Þjóðviljinn - 28.11.1990, Page 6
ERLENDAR FRETTIR
Andersson um EB-aðild
Norðmenn og Finnar fylgja
Sten Andersson, utanríkis-
ráðherra Svíþjóðar, sagði í
gær í útvarpsviðtali að hann
byggist við að Svíar sæktu um
aðild að Evrópubandalaginu
einhverntíma á næsta ári. Eru
þessi ummæli ráðherrans í
EB-EFTA-viðrœður
Austurríki
vondauft
Alais Mock, utanríkisráð-
herra Austurríkis, sagði í gær að
ef ekki næðist einhver árangur í
viðræðum Evrópubandalagsins
og EFTA um Evrópska efna-
hagssvæðið innan tveggja vikna,
væri spurning hvort einhver
meining væri í að halda þeim
áfram.
Þetta eru hörðustu ummælin til
þessa um viðræðumar af hálfu
ráðamanna EFTA-ríkja, sem
óánægð eru með seinaganginn í
áminnstum viðræðum. I þeim hef-
ur lengi hvorki gengið né rekið og
veldur mestu um það ágreiningur
um hlutdeild EFTA í ákvarðana-
töku innan EB, þegar hið sameig-
inlega efnahagssvæði bandalag-
anna beggja verður orðið að veru-
leika. EFTA krefst hlutdeildar í
töku ákvarðana, en EB heldur fast
við að um þær hafi EFTA aðeins
tillögurétt.
Mock kvaðst jafnframt telja
nauðsynlegt að viðræðumar um
Evrópska efnahagssvæðið yrðu til
lykta leiddar á fyrri helmingi næsta
samræmi við samkomulag fjög-
urra helstu stjórnmálaflokka
Svíþjóðar, er þeir birtu í s.l.
viku, þess efnis að sótt skyldi
um EB-aðild, enda kæmi sú að-
ild ekki tii með að brjóta i bága
við hlutleysi Svíþjóðar, þar eð
kalda stríðið væri nú á bak og
burt.
Andersson sagðist ennfremur
í viðtalinu eiga von á því að þess
yrði ekki langt að bíða að Noreg-
ur og Finnland sæktu um EB-að-
ild. Kvaðst Andersson telja að
best væri fyrir Norðmenn, Svía
og Finna að sækja um aðild nokk-
umveginn samtímis, þar eð með
því móti yrði samningsstaða
þeirra gagnvart EB sterkari.
I Finnlandi þykir mönnum
Svíar hafa snúist fúrðu snögglega
á sveif EB-aðildar og í Noregi er
þetta viðkvæmt mál, eins og
sýndi sig þegar hægri- og miðju-
stjóm Jans P. Syse sprakk í okt. á
deilu um aðlögun að EB. Eins og
sakir standa er afstaða stjóma
Noregs og Finnlands í þessum
málum sú, að hagsmunum ríkja
þessara verði best þjónað með því
r
Askorun til kiarnorkuvelda
Stuðlið að algeru tilraunabanni
Sendinefnd frá alþjóðlegu
þingmannasamtökunum
Parliamentarians Global Acti-
on (PGA) afhentu í gær Míkhaíl
Gorbatsjov, forseta Sovétríkj-
anna, áskorun yfir 2000 þing-
manna í nær 50 ríkjum um
bann við tilraunum með
kjarnavopn. Nefndin mun í dag
og á morgun afhenda sömu
áskorun forsætisráðherra Bret-
lands og forseta Bandaríkj-
anna. Formaður sendinefndar-
innar er Ólafur Ragnar Grims-
son, fjármálaráðherra íslands
og formaður Alþýðubandalags-
ins.
Áskorunin er lögð fram í til-
efni ráðstefnu 118 ríkja, sem hefst
í janúar og fjallar um tillögu um
algert bann við tilraunum með
kjamavopn, er sex ríki hafa lagt
fram. Ríki þessi 118 hafa öll und-
irritað samning frá 1963 um bann
við kjamavopnatilraunum á höf-
unum og í andrúmsloftinu, er
HEILSUVERNDARSTÖÐ REYKJAVÍKUR
Barónsstíg 47
Heilsugæslulæknir
Staða heilsugæslulæknis við Heilsugæslustöðina í
Árbæ að Hraunbæ 102 D og E, er laus til umsóknar
frá 1. janúar 1991.
Nánari upplýsingar gefur yfirlæknir í síma 671500.
Umsóknum skal skila til skrifstofu framkvæmda-
stjóra heilsugæslustöðva í Reykjavík, Barónsstíg
47, fyrir 29. desember n.k.
Stjórn heilsugæslu
Austurbæjarumdæmis nyrðra.
Grunnskóla-
kennarar
Vegna forfalla vantar kennara frá áramótum í
Grundaskóla á Akranesi.
Kennsla í sjöunda bekk og vélritun.
Umsóknarfrestur er til 12. desember.
Upplýsingar gefa Guðbjartur Hannesson skólastjóri,
vinnusími 93-12811, heimasími 93-12723 og Ólína
Jónsdóttir yfirkennari, vinnusími 93-12811, heima-
sími 93- 11408.
Ræsti- og þvottavörur
Fyrirspurn nr. 2440/90
Innkaupastofnun ríkisins óskar eftir tilboðum í
ræsti- og þvottavörur, ásamt tilheyrandi rekstr-
arvörum, til nota á ríkisstofnunum.
Fyrirspurnin er afhent á skrifstofu vorri, Borgar-
túni 7, Reykjavík, milli kl. 08:00 og 16:00 næstu
daga.
Tilboðum þarf að skila eigi síðar en 7. desem-
ber n.k.
Bandaríkin, Bretland og Sovétrík-
in gerðu. Var þetta fýrsti afvopn-
unarsamningur núverandi stór-
velda. Þriðjungur aðildarríkja
hefur nú lýst yfir stuðningi við
áminnsta breytingartillögu.
I áskoruninni er þeim tilmæl-
um beint til leiðtoga ríkja þeirra
þriggja, sem gerðu samninginn
um tilraunabann 1963, að þeir
ávarpi ráðstefnuna í janúar, sem
haldin verður í New York, til að
sýna hve mikils þeir meti málefn-
ið, að þeir sjái til þess að ekki
verði gerðar tilraunir með kjama-
vopn í ríkjum þeirra þangað til
niðurstöður hafa fengist á ráð-
stefnunni og feli sendimönnum
sínum á ráðstefnunni að vinna
sem þeir megi að framgangi til-
lögunnar um algert tilraunabann.
Pólland
Walesa leitar til
Mazowieckis
Verkalýðsleiðtoginn Lech
Walesa, sem keppir við kaup-
sýslumanninn Stanislaw Tym-
inski um pólska forsetastólinn í
annarri umferð forsetakosning-
anna þar, sem fer fram 9. des.,
sagðist í gær ætla að biðja Tade-
usz Mazowiecki, forsætisráð-
herra, um að hætta við að segja af
sér því embætti, þar eð afsögn
hans myndi verða til þess að auka
uppnámið í stjómmálum landsins.
Mazowiecki lýsti því yfir að hann
ætlaði að segja af sér í fyrradag,
eflir að ljóst varð að hann hafði í
fyrri umferð kosninganna fengið
færri atkvæði en Tyminski, sem
þeir Walesa báðir líta á sem miður
trúverðugan mann.
Tyminski - nær óþekktur fyrir
nokkrum vikum en hefur nú sett
allt á annan endann í stjórnmálum
Póllands.
Suður-Líbanon
Fimm drepnir í
sjálfsmorðsárás
Palestínskir skæruliðar
drápu fimm ísraelska her-
menn í gær í sjálfsmorðsárás
austanvert á landræmu þeirri
syðst í Líbanon, sem er undir
ísraelskum yfirráðum. Einn
skæruliða þessara, sem bar
byrðar sprengiefnis, sprakk
sjálfur í loft upp við þetta tæki-
færi og annan í þeim hópi felldu
ísraelar.
Búlgarar í
Nató?
Búlgarskir þingmenn í heim-
sókn í aðalstöðvum Nató í
Briissel í s.l. viku höfðu orð á því
við Manfred Wömer, fram-
kvæmdastjóra bandalagsins, að
þeir hefðu i hyggju að leggja fyrir
búlgarska þingið tillögu þess efn-
is, að tekið yrði til athugunar
hvort Búlgaría ætti ekki að sækja
um aðild að Nató. Sagt er að
Wömer hafi þá vafist tunga um
tönn. Hjá Nató er menn ekki
áfjáðir í slíkar umsóknir frá Aust-
ur- Evrópuríkjum, þar eð þeir
vilja ekki styggja Sovétmenn.
Alþýðufrelsisfylking Palest-
inu (PFLP) hefur lýst árásinni á
hendur sér. Þetta er í annað sinn í
vikunni, sem Israelar verða fyrir
verulegu manntjóni af völdum ar-
abískra skæm- og hryðjuverka-
manna. Á sunnudag fór egypskur
landamæravörður inn í Israel um
18 km norður af hafnarborginni
Eilat við Akabaflóa, skaut til
bana fjóra Israela og særði 25.
Hann var handtekinn af félögum
sínum í egypsku landamæragæsl-
unni er hann flúði til baka yfir
landamærin.
ísraelar svömðu fyrmefhdu
árásinni þegar í gær með loftárás-
um á stöðvar Palestínumanna i
Suður-Líbanon og vom fimm
menn drepnir í þeim, að sögn pal-
estínskra talsmanna.
Árásir vopnaðra araba frá
grannlöndum ísraels inn yfir
landamæri þess hafa orðið tíðari
síðustu vikur. Á laugardag sökkti
ísraelskur fallbyssubátur hraðbáti
við Líbanonsströnd og fómst þar
fjórir liðsmenn palestínsku sam-
takanna PFLP-GC. Telja ísraelar
að báturinn hafi verið sendur í
árásarferð til ísraels.
Reuter/-dþ.
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 28. nóvember 1990
okkur
að ná viðunandi samkomulagi við
EB um myndun Evrópsks efna-
hagssvæðis svokallaðs.
Norðurlandaríki þessi þijú em
í Fríverslunarsambandi Evrópu
(EFTA) ásamt Islandi, Austurriki
og Sviss. Af þeim hefúr Austur-
ríki þegar sótt um aðild að EB.
Lýðræðið blómstrar í
Gabon
Samsteypustjóm hefur verið
mynduð í Mið-Afríkuríkinu Gabon
og er þar með 22 ára einsflokks-
kerfi þar úr sögunni. Stjómarfor-
ustu hefur áfram ríkisfiokkur
gamla kerfisins, sem lýtur fomstu
Omars forseta Bongo, en fimm
aðrir flokkar em með í stjóm. Fjöl-
flokkakosningar fóm ffam í Gabon
fyrir skömmu og fékk ríkisflokkur-
inn nauman meirihluta.
Herkonur
óróavaldar
Nokkrar saúdiarabískar konur,
allar af háum stigum, mótmæltu
fyrr í mánuðinum ýmsum skorð-
um, sem þeim em settar í landslög-
um, er byggjast algerlega á íslam-
slögmáli (sharia). Vom mótmælin í
því fólgin að konumar settust und-
ir stýri á bílum og óku þeim, en
þessháttar er konum bannað í
Saúdi-Arabíu. Þær vom handtekn-
ar, en látnar lausar þegar gegn lof-
orði um að gera þetta aldrei aftur.
Talið er að þær hafi látið hvetjast
til mótmælanna við að horfa á kon-
ur í bandaríska hemum, þangað
komnum til að andæfa Saddam
Hussein, stýra allrahanda ökutækj-
um.
Forseti sagður
týndur
Eitt Afríkustríðið enn virðist
nú hafa brotist út á landamæmm
Súdans og Sjad (Chad). Frá því 10.
þ.m. hafa staðið þar bardagar á
milli sjadneska stjómarhersins og
þarlendra uppreisnarmanna, sem
sækja inn í föðurland sitt ffá Dar-
fúr, landshluta í Súdan sem liggur
að Sjad.
Sjadstjóm segir innrásarlið
þetta málalið Gaddafis Líbýuleið-
toga, en hann segist ekki hafa kom-
ið nálægt þessu. Að sögn ffanskra
fféttamiðla hefúr stjómarherinn
farið illa út úr bardögunum. Hann
hafi misst um 2000 manns, bestu
hersveitir hans séu mikið til úr sög-
unni og jafnvel er hermt að forseti
landsins, Hissene Habre, sé týndur.
Þekktur heimspekingur
látinn
Látinn er í Kina Feng Youlan,
einn þekktustu fræðimanna aldar-
innar um kínverska heimspeki, 94
ára að aldri. Eftir Feng, sem lengi
var prófessor við Pekingháskóla,
liggur m.a. yfirlitsrit um sögu kín-
verskrar heimspeki, sem kom út
1930 og ffæðimenn styðjast enn
mikið við. Feng varð doktor í
heimspeki 1923 við Columbiahá-
skóla í New York. Á ríkisámm Ma-
ós formanns sætti hann stundum
áreimi valdhafa, einkum í menn-
ingarbyltingu svokallaðri sem
hófst 1966, en hefúr síðustu ár not-
ið tilhlýðilegrar virðingar í foður-
landi sínu.