Þjóðviljinn - 18.12.1990, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 18.12.1990, Blaðsíða 3
III pgf ■ wm ||| Saga Islands V Saga (slands er ýtarleg umfjöllun um hagi landsmanna, atvinnuhætti, menningu og lífshætti á hverjum tima. Þetta fimmta bindi fjallar aðallega um 15. öld-ensku öldina-vaxandi umsvif Englendinga allt þar til Danakonungi tókst endanlega að tryggja yfirráð sín. Greint er frá eflingu kirkjunnar, rakið hvernig ísland tengdist sögu landafundanna miklu. Bókmennta- og myndlistarsögu tímabilsins eru gerð rækileg skil. Fjöldi mynda prýðir bókina. Höfundar eru Björn Þorsteinsson, Guðrún Ása Grímsdóttir, Sigurður Líndal, Jónas Kristjánsson og Björn Th. Björnsson. Ritstjóri er Sigurður Líndal. Skálholt II. Kirkjur Þetta er þriðja bindið í ritröðinni Staðir og kirkjur. Bókin fjallar um allar þekktar kirkjur sem staðið hafa í Skálholti frá öndverðu. Leitast er við að gefa sem gleggsta mynd af hverri kirkju, höfundi hennar og byggingarsögu. Höfundurinn, Hörður Ágústsson, hefur endurgert nokkrar þeirra utan og innan i teikniformi, m.a. miðaldakirkju þá, sem stærst var timburkirkna á Norðurlöndum. ( bókinni eru á þriðja hundrað mynda og teikninga. Steypa lögð og steinsmíð rís Þetta er fimmta bókin f bókaflokknum Safn til iðnsögu íslendinga, hinu merka framlagi til atvinnuháttasögu þjóðarinnar. Rakin er saga og þróun steinsteyptra mannvirkja hérlendis í máli og myndum. Höfundur er Lýður Björnsson og ritstjóri bókaflokksins er Jón Böðvarsson. Almannahagur Safn 75 ritgerða um hagfræði og efnahagsmál eftir Þorvald Gylfason. Ritgerðunum er ætlað að skýra efnahagsvanda íslensku þjóðarinnar og vekja lesendur til umhugsunar um leiðir til úrbóta. Athygli verð bók fyrir athafnamenn sem almenning. UPPLVSINGIN Á ÍSLANDI Tto ýiCmanna- Ju&gtíL Lærdómsrit Þrjár bækur bætast nú í hóp þessa stórmerka flokks sígildra rita: Manngerðir eftir Þeófrastos, rituð fyrir um 2000 árum. Lof heimskunnar sem Erasmus frá Rotterdam skrifaði fyrir nær fimm öldum. Saga tímans eftir Stephen W. Hawking, sem hefur skipað efstu sæti metsölulista víða um lönd. jjl ■ R pj - ■ í ͧ§ z * i Upplýsingin á íslandi (slenskir fræðimenn gera grein fyrir áhrifum B \ upplýsingarinnar, hinnar alþjóðlegu rj hugmyndastefnu hér á landi, er gætti mest á tímabilinu 1770-1830. Meðlaókinni er fyllt upp í eyðu, sem verið hefur í íslenskri sagnfræði allttil þessa. Bókin er prýdd fjölda Ijósmynda. Ritstjóri er Ingi Sigurðsson. Hiö íslenzka bókmenntafélag SlÐUMÚLA 21, SÍMI 679060 Saga tímans „Þaðerástæða tilað hafa nokkurt mál um þessa bók vegna þess, að hún er glæsileg afurð mannlegrar hugsunar og áreiðanlega bitastæðasta bók sem kemur út á Islandi á þessu ári." GHF. Mbl. 12. des. 1990 1. prentun uppseld 2. prentun væntanleg

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.