Þjóðviljinn - 19.12.1990, Side 6

Þjóðviljinn - 19.12.1990, Side 6
Ari Trausti Guðmundsson skrifar um bækur: Saga handa framtíðinni - Hafrannsóknir við ísland Hafrannsóknir við ísland, II. bindi Höfundur: Jón Jónsson Útgefandi: Bókaútg. Menn- ingarsjóðs Unnin í Odda h/f 447 bls. Afli kostar þekkingu Hálfur heimur okkar er hafið - segir einhvers staðar. Er skemmst að minnast umræðunnar um landsbyggðina og viðhorf tæknikrata og reiknivélavina sem halda að unnt sé að yrka hafið úr 5-6 bækistöðvum á landinu; og þá helst með því að selja sjálfs- ákvörðunarrétt þjóðarinnar til Eínahagsbandalags Evrópu. Sjáv- arútvegur útheimtir ekki bara stjómun of öflugs flota, heldur líka dreifðrar byggðar í landinu og óskoraðra yfirráða yfir sjáva- rauðlindum landsins sem eiga að vera sameign almennings. Hæfilega smáar einingar, stutta siglingu á mið, samhengi í verkþekkingu og margslungin sérkenni í útvegi þarf til, ekki síð- ur en góða tækni. En mestu varð- ar þó um sem fjölþættastan fróð- leik um sjóinn, sjávarbotninn, líf- rikið og samspil hafsins og ann- arrar náttúm. Um það snúast haf- rannsóknir. Hafrannsóknir við Island em allgömul vísindi miðað við margt annað í leikgarði raimsókna og ffæða. Frumvarp um Atvinnu- deild Háskóla Islands var lagt ffam á Alþingi 1934. Þar með hófst fyrir alvöru innlendur kafli hafrannsókna er Fiskideild stofn- unarinnar sá um. Vom þar fyrst fáeinir sérffæðingar, en nú em rannsóknimar að mestu á höndum mannmargs starfsliðs Hafrann- sóknastofnunar (ffá 1965). Sýnist sem ótrúlega miklu hafi verið af- kastað, stundum með samvinnu við erlenda aðila, við rannsókn hafsins við Island, þrátt fyrir smæð þjóðar og smáar rikisfjár- hirslur. Mikilvæg saga Allar nútimarannsóknir í vís- indum hvíla á undirstöðum sem að hluta em einfaldlega afurðir fyrri tíma rannsókna. Engin vís- indi geta rifið sig laus ffá forsögu sinni eða ffelsast frá fyrri tíma niðurstöðum. Auk þess er beinlín- is nytsamlegt að vera vel að sér í vísindasögu sinnar greinar, vilji vísindamenn ná skjótar árangri en ella. Þess vegna er alltaf fengur að því þegar einhver dregur saman rannsóknasögu tiltekinnar vís- indagreinar. Það gerði t.d. Þor- valdur Thoroddsen í sinni Land- ffæðisögu og hjálpaði með því jarðffæðingum nútímans. Fyrir tveimur ámm kom út saga haffannsókna við Island, fyrsta bindi. Náði það ffam yfir árið 1937. Nú er komið fram ann- að bindið; frá 1938 um það bil til okkar daga. Höfundur verksins er Jón Jónsson fiskifræðingur er veitti hafrannsóknum forstöðu ffá 1954 til 1984 og margir þekkja t.d. úr sjónvarpsfféttum þegar ræða þurfti t.d. ástand fiskistofna í fféttatima. Jón er einn úr þeim hópi vísindamanna sem tilheyra eins konar annarri kynslóð þeirra. Hún náði að starfa með brautryðj- endunum er komu til verka snemma á öldinni, náði að vinna mörg brautryðjendastörf sjálf, koma ýmsum stofnunum á al- mennilega siglingu og ýta á eftir þriðju kynslóð vísindamanna. Síðasttaldi hópurinn er ekki að- eins stór og sérhæfðari en nokkra sinni, heldur bíða hans mörg verkefni sem hafa sprottið af starfi þeirra sem ég nefndi aðra kynslóð vísindamanna í landinu. Ritverk Jóns er mikilvæg saga handa mörgum þeirra. Bækur Jóns um hafrannsóknir em þó meira en sögulegt baksvið handa öðrum ffæðimönnum. Þær em líka náma af ffóðleik handa almenningi svo sem fróðleiksfus- um sjómönnum, margs konar áhugafólki um náttúm landsins eða grúskurum í þjóðlegum ffæð- um. Eg les ritið aðallega sem al- mennur lesandi, því ég hef aðeins sérþekkingu á litlum hluta þess sem Jón fjallar um. Flest fann ég þar með góðum skikk. Þetta ann- að bindi er um 380 síður að aðal- lesmáli og em þar 18 kaflar. Mik- ið er þar af tölulegum fróðleik og upptalningum, en einnig hlutar sem unnt er að lesa sem fangandi texta. Mikið efhi er um rannsókn- ir á helstu nytjafiskstofhum okk- ar, en líka fróðleiktir um margvís- legar aðrar tegundir, allt ffá þör- ungum og svifi upp í seli og hvali. Mér þóttu áhugaverðastir kaflamir um rannsóknir á sjálfum sjónum og sjávarbotninum, enda grunnt á eðlis- og jarðffæðingn- um í þessum lesanda. Þá er for- vitnilegt að kynna sér sögulega þætti eins og þróun veiðarfæra og rannsóknir á þeim eða sögu fisk- veiðilögsögunnar. Jón ritar alþýð- legan og lipran texta og er ffá- gangur hans með ágætum. Eina Jón Jónsson umtalsverða gagnrýni mín varðar myndefhi. Hafa átti fleiri og betri myndir í ritinu. Hefði þá t.d. mátt sleppa enska útdrættinum aftast í ritinu, en gefa hann út sem sérrit, til að spara rúm. Þá em kort sum hver smækkuð of mikið. Áletran- ir em þá of smáar, línur daufar og erfitt að lesa úr þeim sem og ein- staka línuritum. Má oftar hyggja að líflegra umbroti og auðlesnari skýringarmyndum þegar rit sem þetta em hönnuð. En hvað sem þessum að- finnslum líður telst Hafrannsókn- ir við ísland ágætt rit og á skilið bæði góða útbreiðslu og sess sem ein af allmörgum bókum sem sameina kosti handbókar og al- menns ffæðirits. Auk þess hvetur það væntanlega aðra vísindamenn til þess að setja á bók sögu rann- sólaia í öðmm greinum. Og síðast en ekki síst hlýtur það að sann- færa menn um að íslendingar geta borið höfuðið sæmilega hátt á sumum sérsviðum vísinda. Arí Trausti Guðmundsson Úrval úr | verk- um Huldu Bókaútgáfa Menningarsjóðs hefur gefið út ritið Ljóð og laust mál eftir Huldu (1881- 1946). Er það úrval af kvæðum og sögum skáldkonunnar með ítarleg- um inngangi eftir Guðrúnu Bjart- marsdóttur og Ragnhildi Richter. Ljóð og laust mál Huldu er níunda bókin í flokknum íslensk rit sem kemur út á vegum Bókmenntaffæði- stofnunar Háskóla íslands og Menn- ingarsjóðs. Hulda (Unnur Bene- diktsdóttir Bjarklind) var atkvæða- mest af íslenskum skáldkonum á öndverðri þessari öld og vakti þegar hún kvaddi sér hljóðs með fyrstu bók sinni 1909 athygli og aðdáun svo að einstakt mun. Guðrún Bjart- marsdóttir (1939- 88) valdi efhi bókarinnar og lét eftir sig drög að inngangi, en hann nemur nær hundr- að blaðsíðum. Útgefandi kynnir bók og höfund svo i kápu: „Hulda (Unnur Benediktsdóttir Bjarklind) hóf ung Ijóðagerð, og þóttu fyrstu kvæði hennar slík að tvö höfuðskáld þjóðarinnar, Einar Benediktsson og Þorsteinn Erlings- son, ávörpuðu hina gáfuðu sveita- stúlku í fogmm þakkaróðum. - Hulda gerðist og mikilvirk. Endur- vakti hún íslenskan þulukveðskap í listrænum stíl og sló jafhframt nýja strengi. - Hulda samdi einnig margt í lausu máli á langri ævi. Kunnust mun hún þó sem frumlegt og list- rænt Ijóðskáld. Árið 1944 fékk hún 1. verðlaun fyrir kvæði sitt í sam- keppni af tilefhi lýðveldisstofhunar- innar. Ljóð og laust mál Huldu er 330 bls. að stærð og hefur að geyma ásamt innganginum, kvæðunum og sögunum bókarauka með skrám um verk eftir og um skáldkonuna. Ámi Bergmann skrifar um bækur: Hin þjóðin í landinu íslenskt vættatal. Árni Björnsson tók saman. Mál og menning 1990. Ámi Bjömsson minnir okkur á það í inngangi að til em mörg uppflettirit um persónur hér á landi. Um merkismenn og ein- stakar stéttir. Og því ekki, spyr hann, að setja saman skrá um þær yfimáttúmlegu vemr, sem nafn- kenndar em? Rétt er spurt: Það lið á sér mikinn rétt í okkar sögu, hugarfari og landslagi reyndar líka. í inngangi gerir Ami og grein fyrir helstu ættbálkum vætta; huldufólki, tröllum, dvergum, kynjadýmm, loftöndum, jóla- sveinum, fommönnum, landvætt- um, goðvemm og draugum. Er það yfirlit gagnort og nytsamlegt. Þar rakst þessi lesari hér á kenn- ingu um uppmna huldufólks sem hann man ekki til að hafa séð áð- ur. En hún er sú að þegar Satan og aðrir óspektarenglar gerðu upp- reisn gegn Drottni og var kastað út í ystu myrkur, þá vom þeir sem sátu hjá, fylgdu hvorki Drottni né Satan, reknir i jörðu niður. Og skipað að búa í hólum, fjöllum og steinum og kallaðir álfar eða huldumenn. Dante ætlar í sínum Guðdómlega gleðileik þessum englum sem „vom hvorki með guði né djöfli heldur með sjálfum sér“ stað í ljótum kór ofarlegá í Víti og er skemmtilegt að bera saman þá miðaldalausn á spum- ingunni um þá afstöðulausu við alþýðlegar skýringar íslenskar á sama máli. Núnú: svona bók er ekki hægt að lesa frá orði til orðs. Vættir em upptaldar í stafrófsröð, sagt frá uppmna og helstu frægðarverk- um, skotið inn sögu eða sögubroti um nokkrar þær merkustu og svo vísað í þjóðfræðasöfn til nánari fróðleiks um hverja og eina. Allt er þetta skilmerkilegt. Þama em vættir frá því á landnámsöld jafnt sem Höfðadraugur sá i Reykjavík sem heldur vöku fyrir breskum sendiherra um 1950. Þar em allir frægir mórar og skottur og álf- konur merkar: ein eltir mennskan mann til Amríku og heim aftur (vel á minnst: skyldi vera huldu- fólk í Nýja íslandi?). Aftast em kort yfir vættir eftir „búsetu“ og skal nú lesandi rekja það dæmi af sjálfum sér að hann skoðar sína heimabyggð á Reykjanesi ofan- verðu. Þar þekkti hann áður tvo drauga, Háaleitisdrauginn og Stapadrauginn, en nú eignast hann átta í viðbót á svæðinu frá Höfnum og út á Vatnleysuströnd. Takk fyrir. Ami Bjömsson lokar á eftir sér með ritgerð sem hann kallar „Alþýðlegt hugarflug“. Þar and- mælir hann af skynsamlegu viti þeim skilningi, að huldufólk, draugar og fleiri „vættir" hafi ver- ið partur af einskonar „þjóðtrú“. Ámi rekur það (m.a. af alllöngum viðskiptum starfsmanna Þjóð- minjasafns við aldrað fólk) að „aldrei virðist nema tiltölulega lít- ill hluti fólks hafa verið sanntrú- aður á drauga og huldufólk“. Þeir em að sönnu einnig í minnihluta sem afneita með öllu þeim mögu- leika að yfimáttúmleg fyrirbæri kunni að vera til. En flestir em svona hálfvolgir eða þykir ekki taka því að leita uppi „skynsam- legar“ skýringar á góðri sögu. Þess vegna vill Ámi Bjömsson fremur tala um „alþýðlegt hugar- flug“ en þjóðtrú, um vættanna líf sem blöndu af skáldskap og skýr- ingartilraunum á ýmsum fyrir- bæmm, kannski torskildum. Þetta er allt þörf áminning nú á tímum þegar „nýaldarbylgjan" vill endi- lega gleypa i sig okkarþjóðsagna- arf og gera hann að „óyggjandi sönnun fyrir framhaldslífi" eða einhveiju í þá vem. 6.SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 19. desember 1990

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.