Þjóðviljinn - 15.01.1991, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 15.01.1991, Blaðsíða 4
ÞJOÐVIUINN Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar KLIPPT OG SKORIÐ Litháen lllum verkum sovéskra hersveita í höfuðborg Lit- háens hefur verið mótmælt harðlega, m.a. af ís- lenskum stjórnvöldum, eins og sjálfsagt er. Og vafalaust munu atburðirnir efla að miklum mun samstöðu manna hér á landi með kröfu Eystra- saltsþjóða um að þær fái að ráða örlögum sínum sjálfar og séu ekki háðar, hvorki opinskárri valdbeit- ingu af hálfu sovétstjórnar né heldur uppákomum sem m.a. gætu stafað af vanmætti þeirrar sömu stjórnar. Það var eftir því tekið í gær, að Gorbatsjov forseti reyndi að gera sem minnst úr atburðum og reyndar vísaði hann því frá að hann hefði sjálfur samþykkt hernaðaraðgerðir gegn friðsömum borgurum í Vilni- us. Forsetinn vill sjálfsagt helst að menn telji, að hér hafi orðið slys, atburðir farið úr böndum í spenntu ástandi. En eins og Boris Jeltsin forseti Rússlands benti á á blaðamannafundi í gær, þá er hér um vissa „sviðsetningu" að ræða sem hann líkti við það sem gerðist í höfuðborg Grúsíu í fyrra þegar marg- ir létust eða særðust í áhlaupi herliðs á mótmæla- fund. Herinn er í þessum dæmum báðum farinn að vinna með þeim af rússneskumælandi íbúum við- komandi lýðvelda sem vilja helst að allt fari í bál og brand og herstjórn verði komið á. Og að á bak við allt saman standa sjálfsagt þeir íhaldsmenn í stjórn- kerfmu sem vilja hverfa aftur til fyrri stjórnarhátta. Þegar þetta er haft í huga hlýtur sú túlkun ýmissa fréttaskýrenda um helgina, að með ofbeldisverkum í Vilnius sé horfið aftur til kalda stríðsins, að teljast hæpin. Hér er ekki um að ræða átök sem varða for- ræði í Evrópu, varða beinlínis átök tveggja fjand- samlegra hernaðarblakka. Miklu heldur minna at- burðir á dæmi úr hnignunarsögu annarra evrópskra heimsvelda. Til dæmis á langvarandi átök um Alsír, þar sem um tvær miljónir Frakka höfðu sest að og börðust af hörku gegn sjálfstæði landsins og stefndu áður en lauk - með samspili sínu við íhalds- sama franska herforingja - í hættu lýðræði í Frakk- landi sjálfu. En hve langt eða skammt sem slíkar hliðstæður ná: Það er Ijóst að framvinda mála í Litháen lýsir djúpstæðri og háskalegri kreppu í Sovétríkjununm. Þar er eins og að myndast þríveldi, þar sem í einni fylkingu eru stjórnir einstakra lýðvelda, hinummeg- in her og gamalt flokksforystuíhald og mitt á milli stendur forsetinn liðfár og næsta valdalítill í raun. Úr þeirri stöðu verður öllum erfitt að spila sem óska þess helst að lýðræðisþróun í Sovétríkjunum haldi áfram blóðsúthellingalaust. Einnig ríkisstjórnum Vesturlanda sem fá að heyra það þessa daga að þær hafi sýnt Eystrasaltsþjóðum daufan áhuga til þessa af tillitssemi við sovéska forsetann. Það hafa reyndar ólíklegustu menn orðið til að segja sem svo, að Litháar og aðrar Eystrasaltsþjóðir hafi verið of bráðlátir í sínum sjálfstæðiskröfum, þeir hafi ekki sýnt „pólitískt raunsæi" eins og það heitir. Eitthvað kann að vera rétt í því - ef menn vilja byggja allt á „realpólitík". En bráðlæti eða ekki: enginn getur ef- ast um rétt Litháa til að vilja vera sjálfstæðir hvað sem tautar og raular, enginn utanaðkomandi getur gerst dómari gegn þeim í því máli, þeir eiga svo sannarlega einlæga og flærðarlausa samúð skilið. Ennum fjölmiðlafrelsið Þegar verið var að breyta út- varpslögunum hér um árið, þá var mest veifað frelsisfánanum: hinar fijálsu og óháðu útvarps- og sjón- varpsstöðvar áttu að verða allt í senn: staðfesting á heilsusamleg- um áhrifum samkeppni fyrirtækja á hveiju sviði sem er og áfanga- sigur í sókninni til meira tjáning- arfrelsis fyrir alla þegna. Ef ein- hver dirfðist að malda í móinn og segja að þetta mundi ekki eftir ganga var æpt á hann hástöfum: hann var íhaldssamur forsjár- hyggjumaður, laumustalínisti og kannski það sem verst er af öllu: menningarviti. Þetta andrúmsloft sem ýmsir oddvitar yngri og eldri Sjálfstæð- ismanna kyntu mest undir varð svo til þess að sú umræða um fjöl- miðlastefhu og þá um skyldur íjölmiðla við landsfólkið, sem nauðsynleg var vegna breyting- anna, hún fór út um þúfur. Slíkt hjal var talið til afskiptasemi og gikksháttar þeirra sem „þykjast alltaf vera að hafa vit fyrir fólk- inu“. Kröppemkaup... Síðan líður fram tíminn og reynsla fæst á ljósvakafrelsið og þá renna á menn tvær grímur. Menn spyija hver um annan þver- an: vildum við „aflétta einokun rikisins á sjónvarpssendingum“ til þess að fá stöð sem bætir 30- 40 amrískum annarsflokksmynd- um í viku við allan þann sæg sem fyrir er í landinu - í bíó, á mynd- bandaleigum og svo á þeirri sjón- varpsstöð sem fyrir var? Vildum við „aflétta einokun ríkisins á út- varpsrekstri" til þess eins að fá upp í hendumar mestan part metnaðarlaust kjaftháttar- og plötuútvarp? Hvers virði er það frelsi sem ekki býður upp á aukna íjölbreytni heldur barasta meira afþví sama? Auk þess sem frelsið þýðir fyrst og fremst aukið frelsi auglýsenda til að leggja undir sig dagskrár, leynt og ljóst? Bull og þvaður Þessar áhyggjur koma víða ffarn og ekki alls fyrir löngu (6. janúar) á íjölmiðlasíðu Morgun- blaðsins, en þar hefur áður marg- sinnis verið hjalað í léttúð um sjálfvirka blessun ljósvakafrelsis. Sverrir Páll skrifar um útvarps- stöðvamar nýju og er grimmur í meira lagi. Um vinnubrögð og metnað segir hann m.a. : „Nýgræðingar em settir beint í beina útsendingu með fangið fullt af plötum og þar fá þeir að hiksta, stama, mismæla sig og klæmast á móðurmálinu blönd- uðu illa lærðri ensku, fullkomlega óáreittir. Og allt er þetta klúður kallað „lifandi útvarp“. Ja svei.“ Greinarhöfundur gerir og harða hríð að útvarpsmönnum sem reyna að gera sig að stjömum „með allskyns bulli og þvaðri og smekkleysu" sem til verður í þeim tilgangi einum að halda ekki kjafti. Tekið er dæmi af þáttum þar sem stjómendur „blaðra um einkamál sín og hvaðeina sem venjulegum hlustanda kemur síst af öllu við, hvort þeir ætla að borða bjúgu eða saltfisk í hádeg- inu, hvort þeir em nýkomnir frá tannlækni, hvemig þeir em af kvefinu og svo ffamvegis". Undir fölsku flaggi Ekki bætir það úr skák að blaðrið er oflar en ekki til þess gert að auglýsa vöm án þess að það heiti auglýsing: „Hvað er út- varpsmaður að gera þegar hann kjamsar á hamborgara frá tiltekn- um veitingastað og sötrar nafn- greindan gosdrykk með? í þágu hverra er verið að halda úti at- kvæðagreiðslu um það hvaða karlmaður fer út að borða á nafn- greindum veitingastað með konu sem hefur fengið ókeypis föt ffá þessari búðinni eða hinni?... Þetta er ekkert annað en ósmekklegur áróður sem troðið er inn á hlust- endur undir fölsku flaggi“. Þetta er allt satt og rétt, náttúr- lega. Og staðfestir það sem efa- semdarmenn sögðu á fyrmefnd- um breytingatímum: ef menn taka sér bandarískan fjölmiðlapraxís til fyrirmyndar (en þaðan er mynstrið vitanlega ættað) þá verður útkoman einmitt á þessa Ieið. Hlutverk og skyldur Hvað vilja menn svo til bragðs taka? Svo skemmtilega vill til að á þeirri sömu fjölmiðla- síðu Morgunblaðsins skrifar Ás- geir Friðgeirsson um nauðsyn fjölmiðlastefnu og setur yfir átak- anlega fyrirsögn: „Fljótum við sofandi?". Að feigðarósi náttúr- lega. Þar segir sem svo: „Fjölmiðlastefna ætti að skil- greina hlutverk fjölmiðla í lýð- ræðissamfélagi nútímans, til- greina skyldur gagnvart skoðana- og trúarhópum sem og viðteknu siðgæðiskerfi. Stefna sem ætti sömuleiðis að tilgreina upplýs- ingahlutverk miðlanna og síðast en ekki síst ætti hún að draga lín- ur varðandi skyldur fjölmiðla gagnvart menningu og þjóðlegri arfleifö“. Það er ekki víst hvort greinar- höfundur áttar sig á því sjálfur, en ótal sinnum hafa markaðstrúar- menn hamast gegn einmitt við- horfum af slíku tagi, talið þau for- sjárhyggju og laumusósíalisma og guð má vita hvað. Enda liggur það í augum uppi að í markaðs- kerfínu sjálfu er ekki að finna neinar „skyldur“ útvarpsstöðva gagnvart menningu, þjóðlegri arf- leifö né heldur lýðræði. Það væri einna helst að „viðtekið siðgæðis- kerfi“ (sem þarf ekki endilega að vera gott siðgæðiskerfi) væri eitt- hvað virkt í markaðsdæminu - af ástæðum sem of langt mál er að fara út í hér. Orð og athöfn? Jæja. En ef menn meina eitt- hvað með skrifum af þessu tagi, þá eru þau ekki annað en inn- gangur að því sem máli skiptir: hvað ætla menn til bragðs að taka? Böl bæta? En þá er komið enn og aftur að þeim íslenska ósið, að menn byrja á einhveiju og halda ekki áffam. Til dæmis er strax í greininni um að fljóta sof- andi slegið á þá strengi, að nú sé mikið um sjónvarp um gervitungl og að það „torveldi möguleika á raunhæffi fjölmiðlastefnu ein- stakra þjóða“. M.ö.o.: við getum ekki leyst nein mál sjálfir vegna þess að að vandinn er alþjóðlegur. Þetta eru reyndar falsrök: gervi- hnattasjónvarp gerir vissan usla í íslenskri menningarlandheigi, en vegna þeirrar vamar sem okkur er þrátt fýrir allt í því að tala eigið mál er hann í reynd margfalt minni en sá sem menn hérlendir vinna nú þegar innan þessrar landhelgi með metnaðarleysi, kjafthætti og subbuskap. ÞJÓÐVILJINN Síðumúla 37 — 108 Reykjavík Sími: 681333 Símfax: 681935 Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans. Framkvæmdastjóri: Hallur Páll Jónsson. Ritstjórar: Árni Bergmann, Helgi Guðmundsson Ólafur H. Torfason. Fréttastjóri: SigurðurÁ. Friðþjófsson. Aörir blaðamenn: Bergdfs Ellertsdóttir, Dagur Þorteifsson, Elfas Mar (pr.), G. Pétur Matthíasson, Garðar Guöjónsson, Guðmundur Rúnar Heiðarsson, Hildur Finnsdóttir (pr.T Jim Smart (Ijósm.), Kristinn Ingvarsson (Ijósm.), Ólafur Gíslason, Sævar Guöbjömsson. Skrifstofustjóri: Sigrún Gunnarsdóttir. Skrifstofa: Guörún Geirsdóttir, Kristin Pétursdóttir. Auglýsingastjórí: Steinar Harðarson. Auglýsingar: Sigríður Sigurðardóttir, Svanheiöur Ingimundardóttir, Unnur Ágústsdóttir. Útbreiðslu- og afgreiðslustjóri: Hrefna Magnúsdóttir. Afgreiðsla: Bára Siguröardóttir, Halla Pálsdóttir, Þorgerður Siguröardóttir, Þórunn Aradóttir. Bílstjórí: Jóna Sigurdórsdóttir. Skrífstofa, afgreiösla, rítstjóm, auglýsingar: Síðumúla 37, Rvík. Sími: 681333. Símfax: 681935. Auglýsingar: 681310, 681331. Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf. Prentun: Oddi hf. Verð í lausasölu: 100 kr. Nýtt Helgarblaö: 150 kr. Áskriftarverð á mánuði: 1100 kr. 4.SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 15. janúar 1991

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.