Þjóðviljinn - 15.01.1991, Blaðsíða 11
MINNING
I DAG
Björn J. Guðmundsson
Fæddur 13.9. 1936 - Dáinn 7.1. 1991
Félagi Bjöm er látinn. Þessi
frétt barst okkur til eyma mánu-
daginn 7. janúar s.l.
Þó að ávallt sæki sorg og efi
að fólki þegar því er tilkynnt um
svo ótímabært andlát þá verðum
við að sætta okkur við þá stað-
reynd að af tilverunni þekkjum
við aðeins þrjá þætti; fæðinguna,
lífið og svo dauðann. Hvað fyrir
handan er vitum við minna um.
Þess vegna leitum við gjaman
huggunar í því að líta til baka og
minnast góðra stunda og árang-
urs þess lifs sem kvatt er.
Bjössi var fæddur í Eyrar-
sveit þann 13. september 1936,
sonur hjónanna Guðrúnar
Bjömsdóttur og Guðmundar
Bjamasonar. Bjössi var næstelst-
ur níu systkina. Þessi stóri bama-
hópur naut ekki lengi forsjár föð-
urins, Guðmundur féll frá á besta
aldri. Það gefúr augaleið að erfitt
hefúr verið fyrir ekkjuna að
framfleyta svo stórri fjölskyldu.
Þar kom til dugnaður og sam-
heldni. Bjössi varð því ungur að
takast á við lífsbaráttuna. Af
þessari lifsbaráttu mótaðist hann.
Hann skynjaði nauðsyn þess að
alþýða þessa lands væri samstæð
og sterk og væri þess albúin að
ráða nokkm um örlög sín. - Ör-
eigar allra landa sameinist. —
Þetta vom huggunarorð fátæka
fólksins sem hafði kjark og þor
til að standa á eigin fótum í bar-
áttunni um brauðið. Bjössi stillti
sér þar upp. í hópi þeirra sem
trúðu á frelsið og mátt samstöð-
unnar.
1959 stofnaði Bjössi ásamt
nokkmm félögum Alþýðubanda-
lagsfélag Gmndarfjarðar. Strax í
upphafí starfaði þessi unga
hreyfmg að framfaramálum í
Gmndarfirði. Fyrstu árin var
boðið ffarn með Framsóknar-
mönnum við sveitarstjómar-
kosningar. Árið 1966 bauð Al-
þýðubandalagsfélagið fram sér í
fyrsta skipti og skipaði Bjössi
fýrsta sætið á listanum og náði
kjöri. Þar með var kominn til
starfa í hreppsnefnd fulltrúi úr
röðum öreiganna. Effir þennan
góða sigur hefur þetta litla félag
vaxið og dafnað. Sú saga verður
ekki rakin hér en það merki sem
Bjössi og félagar hófu hefur vax-
ið svo mjög að nú em merkisber-
amir ráðandi afl í þessu litla
samfélagi.
Bjössi flutti búferlum frá
Gmndarfirði um 1970, fyrst til
Svíþjóðar en hann hefur búið í
Hafnarfirði nú um nokkurra ára
skeið.
Bjössa er ekki hægt að minn-
ast án þess að nefna gamansögur,
vísur, kerskni og annað það sem
menn gerðu sér til gamans.
Bjössi var ákaflega glaðlyndur
og skemmtilegur maður. Spaug
hvers konar var hans aðal og
enga gjöf gat nokkur betri fært
honum en góða visu eða gaman-
sögu af vinum og ffændum. Þá
var nú hlegið.
Ekki er gmnlaust um að sú
tryggð sem Bjössi sýndi alltaf
sinni sveit hafi meðal annars átt
rætur í því hve skemmtilegt hon-
um þótti að hitta fólk. Tryggðin
við félagið sannaðist best i þvi að
þegar félagamir höfðu fest kaup
á niðumíddu dekkjaverkstæði
sem innrétta átti sem höll alþýð-
unnar þá mætti Bjössi með sín
smíðatól og tók virkan þátt í
þeirri uppbyggingu og um það
munaði svo sannarlega. Seinna
átti hann eftir að skemmta sér
með félögunum í húsinu góða.
Við sem nú kveðjum góðan
vin og félaga biðjum algóðan
Guð að varðveita með ástvinum
öllum minninguna um drenginn
góða.
Alþýðubandalagsfélag
Grundarljarðar
Það er ákaflega erfitt að sætta
sig við þá staðreynd að hann
Bjössi sé dáinn. Hann sem var
svo lífsglaður og kátur og kenndi
sér einskis meins. Við sem höf-
um kynnst Bjössa, hvort sem er í
vinnu eða utan, vitum að hann
var hvarvetna maður sem tekið
var eftir, án þess þó að hann væri
að trana sér fram. Hann hafði
mjög ákveðnar skoðanir á hlut-
unum og fylgdi þeim effir í orði
og æði. Sama hvert umræðuefnið
Bestu þakkir til allra þeirra sem
glöddu mig á 80 ára afmæli mínu
8. janúar síðastliðinn með gjöfum,
skeytum og góðum minningum í
bundnu og óbundnu máli.
Kœr kveðja,
var eða verkefnið sem þurfti að
takast á við. Bjössi kunni skil á
því og deili. Hann var hafsjór af
fróðleik, hvort sem það var um
heimsmálin og mannkynssöguna
eða íslenskan kveðskap, en hann
hafði mikla unun af honum og
eins og opin bók um kveðskap
alþýðuskáldanna.
Með þessum fátæklegu lín-
um langar mig til að þakka
Bjössa fyrir samfylgdina í þessi
tvö ár sem við höfiim starfað nær
óslitið saman hjá Reisi s/f en
einnig áttum við mjög svo
ánægjulegar stundir saman í
Snæfellingakómum i Reykjavík
þennan sama tíma.
Eg bið góðan Guð að gefa
Hönnu, bömunum og öðmm ást-
vinum styrk til að yfirstíga þessa
þungbæm sorg og megi minn-
ingin um hann lifa hjá okkur öll-
um.
Grétar Ingi Símonarson
Kær félagi og vinur er horf-
inn sjónum okkar. Hann lést
skyndilega hinn 7. janúar siðast-
liðinn á nýbyijuðu ári.
Einhvem veginn er það nú
svo, að ffétt um skyndilegt and-
lát ættingja, vinar eða einhvers
sem maður veit einhver deili á,
verður þess valdandi að hugsun-
in um lífið og dauðann, þessa tvo
örlagaþætti í tilvist hverrar
mannlegrar vem, verður allt í
einu svo skýr. Þá fyrst verður vit-
undin um lífíð, það að lifa, svo
sterk, svo dýrmæt. Jafhffamt
verður sorgin svo djúp og eftir-
sjáin svo þungbær. Þetta reyna
nánustu ástvinir, ættingjar og
aðrir vinir Bjöms Guðmunds-
sonar nú. Alltaf munu samt
minningamar um góðan og ljúf-
an dreng hugga og verma.
Við í Snæfellingakómum í
Reykjavík söknum nú vinar í
stað. Það er svo sannarlega djúpt
skarð höggvið í raðir okkar er
við nú megum sjá á eftir Bjössa,
eins og við kölluðum hann
venjulega. Það var kómum okkar
mikill fengur að fá hann til
starfa. Hann var mætur maður,
áhugasamur um allt sem mátti
verða áhugastarfi okkar til ffam-
dráttar enda lá hann aldrei á liði
sinu ef til hans var leitað um eitt-
hvað sem gera þurfti.
Bjöm var einn þeirra manna
sem hafa til að bera slika per-
sónutöfra, að allir sóttust eftir að
eiga hann að vini. Það geislaði
ffá honum lífsgleðin og hlýja
sem speglaðist svo eftirminni-
lega í brosmildum augum hans.
Þetta gleymist okkur ekki sem til
hann þekktum.
Hann var söngmaður góður
og hrókur alls fagnaðar var hann
á gleðistundum. Það var gaman
að vera í návist hans á langferða-
leiðum og fagnaðarfúndum,
heyra hann syngja við raust með
sinni djúpu basssaröddu kynstrin
öll af lögum bæði innlendum og
erlendum. Þá var orkan ekki
spömð og innlifúnin eftir því. Já,
ævinlega var gleðin ríkjandi, þar
sem vinur okkar var viðstaddur.
Við félagamir í Snæfellinga-
kómum finnum til saknaðar og
tómleika nú að Bimi látnum. Við
blessum minningu hans og biðj-
um ástvinum hans og aðstand-
endum öllum huggunar í hendi
Guðs.
Guðmundur Gunnlaugsson
Fyrir hönd Snæfellinga-
kórsins f Reykjavík
Baldur Ólafsson,
fyrrv. formaður
ÞJÓÐVILJINN
FYRIR 50 ARUM
Frílistarnir afnumdir eftir fyrir-
skipun frá London. Bretar taka
að sér að ákveða hvernig verzl-
unarmálum íslendinga skuli
hagaö. Þetta mun ekki heita að
blanda sér I innanrlkismál vor!!
Þjóðstjómin tekur við fyrirskipun
hinna erlendu valdhafa og hlýð-
ir. Og nú eiga landsmenn að
hlýða líka! Auömenn Reykjavlk-
ur féfletta bænda- og millistéttir
með aðstoð þjóðstjómarinnar.
Fyrir peningana sem þjóðstjórn-
in gefur þeim með skattfrelsinu
kaupa þeir jarðir, hús, fiskiskip
og aðrar eignir sem hægt er að
blekkja menn til að selja.
15. janúar
þriðjudagur. 15. dagurársins.
Nýtttungl (þorratungl). Sólar-
upprás 1 Reykjavlk kl. 10.55 -
sólarlag kl. 16.19.
Viðburðir
Anarkistinn Pierre Joseph
Proudhon fæddur 1809. Rosa
Luxemburg og Karl Liebknecht
myrt 1919.
DAGBÓK
APÓTEK
Reykjavík: Helgar- og kvöldvarsla
lyfjabúöa vikuna 11. til 17. jan. 1991 er
Lugamess Apóteki og Árbæjar Apotek.
Fyrmefnda apótekið er opiö um helgar
og annast næturvörslu alla daga kl. 22
til 9 (til 10 á fridögum).
Siðarnefnda apótekiö er opiö á
kvöldin kl. 18 til 22 virka daga og á
laugardögumkl. 9-22 samhliöa hinu
fyrmefnda.
LOGGAN
Reykjavlk.....................w 1 11 66
Kópavogur.....................« 4 12 00
Seltjamames..................tr 1 84 55
Hafnarfjöröur.................« 5 11 66
Garðabær......................« 5 11 66
Akureyri......................« 2 32 22
Slökkviið og sjúkrabðar
Reykjavík...................tr 1 11 00
Kópavogur..................tr 1 11 00
Seitjamames.................tr 1 11 00
Hafnarflöröur................« 5 11 00
Garöabær....................tr 5 11 00
Akureyri....................tr 2 22 22
LÆKNAR
Læknavakt fyrir Reykjavik, Seltjarn-
arnes og Kópavog er i Heilsuvemdar-
stöð Reykiavikur alla virka daga frá kl.
17 til 8, á laugardögum og helgidögum
allan sólarhringinn. Vitjanabeiönir,
simaráöleggingar og tlmapantanir f
tr 21230. Upplýsingar um lækna- og
lyfjaþjónustu eru gefnar I símsvara
18888. Borgarspitalinn: Vakt virka
daga frá kl. 8 til 17 og fyrir þá sem ekki
hafa heimilislækni eða ná ekki til hans.
Landspitalinn: Göngudeildin eropin
frá kl. 20 til 21. Slysadeild Borgarspít-
alans er opin allan sólarhringinn,
tr 696600.
Hafnarfjöröur: Dagvakt, Heilsugæsl-
an, tr 53722. Næturvakt lækna,
tr 51100.
Garöabær: Heilsugæslan Garðafiöt,
t» 656066, upplýsingar um vaktlækni
t» 51100.
Akureyri: Dagvakt frá kl 8 til 17 á
Læknamiðstööinni, « 22311, hjá
Akureyrar Apóteki, t» 22445. Nætur- og
helgidagavakt læknis frá kl 17 til 8 985-
23221 (farsimi).
Keflavik: Dagvakt, upplýsingar I
t» 14000.
Vestmannaeyjar: Neyöarvakt lækna,
tr 11966. ^ ^
SJUKRAHUS
Heimsóknartimar: Landspítalinn: Alla
daga kl. 15 til 16 og 19 til 20. Borgar-
spitalinn: Virka daga kl. 18:30 til
19:30, um helgar kl. 15 til 18 og eftir
samkomulagi. Fæöingardeild Land-
spítalans: Afla daga kl. 15 til 16, feðra-
timi kl. 19:30 til 20:30. Fæöingar-
helmili Reykjavíkur v/Eiriksgötu: Al-
mennur tími kl. 15-16 alla daga, feöra-
og systkinatimi kl. 20-21 alla daga.
Öldrunariækningadeild Landspítal-
ans, Hátúni 10B: Alla daga kl. 14 til 20
og eftir samkomulagi. Grensásdeild
Borgarspitala: Virka daga kl. 16 til 19,
umnelgarkl. 14 til 19:30. Heilsu-
vemdarstöðin viö Barónsstig: Alla
daga kl. 15 til 16 og 18:30 til 19:30.
Landakotsspítali: Alla daga kl. 15 til
16 og 18:30 til 19. Bamadeild: Heim-
sóknir annarra en foreldra kl. 16 til 17
alla daga. St. Jósefs-spitali Hafnar-
firði: Alla daga kl. 15 til 16 og 19 til
19:30. Kleppsspitalinn: Alla daga kl
15 til 16 og 18:30 til 19. Sjukrahús
Vestmannaeyja: Alla daga kl. 15 til 16
og 19 til 19:30. Sjúkrahús Akraness:
Alla daga kl. 15:30 til 16 og 19 til 19:30.
Sjúkrahúsið Húsavik: Alla daga kl. 15
til 16 og 19:30 til 20.
ÝMISLEGT
Rauöa kross húsiö: Neyðarathvarf
fyrir unglinga, Tjarnargötu 35,
»r 91-622266, opið allan sólarhringinn.
Samtökin 78: Svaraö er ( upplýsinga-
og ráðgjafarslma félags lesbia og
homma á mánudags- og fimmtudags-
kvöldum kl. 21 til 23. Slmsvari á öðrum
tímum. « 91-28539.
Sálfræðistööin: Ráögjöf I sálfræöi-
legum efnum,« 91-687075.
Lögfræðiaöstoö Orators, félags
laganema, er veitt i sima 91-11012 milli
kl. 19:30 og 22 á fimmtudagskvöldum.
MS-félagiö, Álandi 13: Opiö virka daga
frákl. 8 til 17, «91-688620.
„Opið hús" fyrir krabbameinssjúk-
linga og aöstandendur þeirra f Skóg-
arhlíö 8 á fimmtudögum kl. 17 til 19.
Samtök áhugafólks um alnæmis-
vandann sem vilja styöja smitaöa og
sjúka og aöstandendur þeirra I « 91-
22400 og þar er svaraö alla virka daga.
Upplýsingar um eyðni: « 91-622280,
beint samband við lækni/hjúkrunar-
fræðing á miövikudögum kl. 18 til 19,
annars símsvari.
Samtök um kvennaathvarf: «91-
21205, húsaskjól og aöstoð viö konur
sem beittar hafa verið ofbeldi eöa orðið
fyrir nauðgun.
Kvennaráögjöfin Hlaövarpanum,
Vestur-götu 3: Opiö þriöjudaga kl. 20 til
22, fimmtudaga kl. 13:30 til 15:30 og kl.
20 til 22, « 91-21500, simsvari.
Sjálfshjáiparhópar þeirra sem oröiö
hafa fýrir sifjaspellum: « 91-21500,
símsvari.
Vinnuhópur um slfjaspellsmál:
« 91-21260 alla virka daga kl. 13 til 17.
Stigamót, miöstöö fyrir konur og böm
sem oröiö hafa fyrir kynferðislegu
ofbeldi. Ráðgjöf, fræðsla, upplýsingar,
Vesturgötu 3, « 91-626868 og 91-
626878 allan sólarhringinn.
Bilanavakt rafmagns- og hitaveitu:
« 27311. Rafmagnsveita: Bilanavakt i
« 686230.
Rafveita Hafnarfjarðar: Bilanavakt,
* 652936.
GENGIÐ
14. janúar 1991 Sala
Bandaríkjadollar...........56,22000
Sterlingspund.............106,42700
Kanadadollar...............48,79100
Dönsk króna.................9,43050
Norsk króna.................9,29100
Sænsk króna.................9,78590
Finnskt mark...............15,10680
Franskur franki.............10,69530
Belgiskurfranki............. 1,76050
Svissneskur franki.........43,58820
Hollenskt gyllini...........32,17630
Vesturþýskt mark............36,26630
Itölsk lira.................0,04822
Austumskur sch...............5,15090
Portúgalskur escudo........ 0,40510
Spánskur peseti..............0,57790
Japanskt jen................0,41629
Irskt pund.................97,88700
KROSSGÁTA
Lárótt: 1 ruddaleg 4
glöggurö tré 7 land-
stjóri 9 keröld 12 hryöj-
unni 14 hreysl 15
gagnleg 16 lengdarein-
ing 19 dæld 20 nýlega
21 skakki
Lóörétt: 2 sefa 3 hæð
4 himna 5 verkfæri 7 is
8 dómstóll 10 langaöi
11 hnlf 13 lykt 17
munda 18 venslamann
Lausn á slöustu
krossgátu
Lárétt: 1 ótæp 4 hjúp 6
óbó 7 kuml 9 form 12
ystur 14 nón 15 ger 16
dýrka 19 lauf 20 áöur
21 gamli
Lóörétt: 2 tiu 3 póls 4
hófu 5 úir 7 kyndla 8
myndug 10 orgaöl 11
múrari 13 túr 17 ýfa 18
kál
Þriðjudagur 15. janúar 1991 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11