Þjóðviljinn - 15.01.1991, Qupperneq 6
ERLENDAR FRETTIR
Fundur lettneskra sjálfstæðissinna ( Riga (fyrra eða hitteðfyrra - „frjálst
Lettland í sameinaðri Evrópu," stendur á spjaldinu. Vongleöin sem þjóð-
in var gagntekin af þá hefur nú vikið fyrir ótta við yfirvofandi ofbeldi af
hálfu sovéska hersins.
Lettland
Næst á lista sovéthers?
Hershöfðingi hefur í hótunum. „Almennings-
frelsunarnefnd“ krefst afsagnar stjórnar og að
þing sé leyst upp
Fjodor Kúzmín, hershöfðingi,
æðsti maður sovéska hersins
í Eystrasaltslöndum, krafðist
þess í gær af stjórnvöldum Lett-
lands að þau létu undan í deilu
sinni við sovéska ráðamenn og
lagði jafnframt áherslu á að
gæslusveitir lettneska innanrík-
is- og tollamálaráðuneytisins
yrðu afvopnaðar. Orðalag hers-
höfðingjans og fleira sem í gær
gerðist í Lettlandi þykir benda
til að sovéski herinn hyggi þar á
svipaðar aðfarir og í Litháen
um helgina.
Kúzmín sagði ofangreint á
fundi lettneskra stjómvalda og
sovéskra herforingja, en fundur-
inn var haldinn að tilmælum A-
natolys Gorbunovs, forseta Lett-
lands, í von um aðilar þessir
kæmust að einhveiju samkomu-
iagi. En fundurinn fór gersamlega
út um þúfur.
Kúzmín, sem var rauður í
framan af bræði, krafðist þess að
„sovéskum lögum væri hlýtt“ í
Lettlandi og sovéskum hermönn-
um þar „sýnd virðing". Sagði
hann að allir sovéskir hermenn í
landinu myndu „beijast fyrir rétt-
indum sínum“.
Ummæli Kúzmíns þykja
minna mjög á það sem haft var
eftir sovéskum herforingjum í
Litháen, áður en hann réðist á
sjálfstæðissinna þar um helgina.
Lítill og Moskvusinnaður
kommúnistaflokkur og almenn-
ingsfrelsunamefnd svokölluð
kröfðust þess í gær að stjóm Lett-
lands segði af sér og þing þess
yrði leyst upp og boðuðu til
fjöldafundar í höfúðborginni Riga
til að fylgja kröfúm þessum eftir.
Fylgismenn samtaka þessara
munu einkum vera rússneskir inn-
flytjendur. Er þetta einnig mjög á
sömu lund og það sem gerðist í
Litháen, en sovéski herinn þar
segist hafa ráðist á útvarpsstöðina
í Vilnu á sunnudagsmorgun að
kröfú þarlendrar „þjóðfrelsis-
nefndar“, einnig studdrar af rúss-
neskum innflytjendum.
Mikill hiti er í mönnum í Lett-
landi, eins og sést af því að Al-
þýðufýlkingin þar, hreyfmg hlið-
stæð Sajudis í Litháen og sterkust
flokka á þingi, neitaði að vera
með í viðræðunum við fúlltrúa
sovéska hersins, sem fóm fram í
ráðhúsinu í Riga. „Kommúnistar
em ekki pólitískir andstæðingar
okkar, heldur óvinir," sagði fúll-
trúi Alþýðufylkingarinnar. „Þeir
em fulltrúar hemámsveldis.“
Þúsundir Letta höfðu í gær
skipað sér í kringum helstu bygg-
ingar í Riga og fólkið í mann-
hringnum kringum þinghúsið
hélst i hendur. Þá hafa sjálfstæðis-
sinnar lokað öllum götum til mið-
borgarinnar með því að leggja
strætisvögnum, vömbílum og
snjóplógum á hveija þá götu, sem
er nógu breið til að vera fær skrið-
dreka eða brynvagni.
Vinningstölur laugardaginn
12. janúar '91
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5af 5 5 1.585.299
2. 4a"í1C^ 8 108.676
3. 4af5 322 4.657
4. 3af 5 10.063 347
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
13.783.318 kr.
UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002
Persaflóadeila
Friðarfrestur
rennur út
För Javiers Perez de Cuellar,
framkvæmdastjóra Samein-
uðu þjóðanna, til Bagdað um
helgina í þeirri von að koma á
síðustu stundu í veg fyrir að
Persaflóadeila verði að stríði
virðist engan árangur hafa bor-
ið. Á miðnætti í nótt rennur út
frestur sá, sem Öryggisráð S.þ.
gaf írak til að kveðja her sinn
frá Kúvæt.
Þegar sá frestur er útranninn
verður aðildarríkjum S.þ. heimilt
að beita vopnum til að reka Iraks-
her frá Kúvæt. Ekkert bendir til
þess að Saddam íraksforseti sé
neitt að linast i deilu þessari og í
gær samþykkti þing Iraks í einu
hljóði að landsmenn skyldu beij-
ast til að halda Kúvæt þar til yfir
lyki. Stóðu þingmenn upp er sam-
þykktin var gerð og fögnuðu í
kortér.
Kalla fféttamenn að sam-
þykktin jafngildi stríðsyfirlýsingu
af hálfú Iraks.
Reuter/-dþ.
Persaflóadeila
„Heimurinn stendur okkur
galopinn“
Búist við árásum hryðjuverkamanna víða um heim
Vesturlandaríki flest og fleiri
ríki hafa gert ráðstafanir til
að verjast hryðjuverkamönn-
um á snærum Iraksstjórnar, en
bæði íraksstjórn og palestínsk-
ir o.fl. bandamenn hennar hafa
marglýst því yfir að hernaðar-
árás gegn Irak verði svarað
með árásum á Bandaríkjamenn
og bandamenn þeirra i Persa-
flóadeilu um allan heim.
Orðalagið í yfirlýsingum
þessum bendir til þess að til
standi að óbreyttir borgarar verði
ekki óhultir fyrir slíkum árásum,
fremur en hermenn. Otti við árás-
ir hryðjuverkamanna fer vaxandi
víða á Vesturlöndum, þar sem
margar miljónir araba búa. Auk
palestinskra hópa óttast menn
einna mest árásir af hálfu bók-
stafstrúaðra islamskra samtaka,
einkum þeirra líbönsku.
í Þýskalandi hafa stjómvöld
og bandarísk heryfirvöld aukið
eftirlit með herstöðvum Banda-
ríkjanna þar og bandarískum
borgumm sem í landinu búa, en
óttast er að Bandaríkjamenn þar-
lendis verði öðmm fremur fýrir
árásum hryðjuverkamanna. Haft
er eftir Bandaríkjamönnum þar
búandi að þeir hafi einna mestar
áhyggjur af bömum sínum, enda
hafa verið nokkur brögð að því að
palestínskir hryðjuverkamenn
hafi valið böm úr sem skotmörk. I
fýlkinu Baden-Wurttemberg hef-
ur verið dreift flugmiðum með
hótunum um „heilagt stríð“. Er-
win Hettger, lögreglustjóri fýlkis-
ins, segist gera ráð fýrir árásum af
hálfu „palestínskra, arabískra og
íslamskra andstöðuhópa“.
Pierre Joxe, innanrikisráð-
herra Frakklands, sagði á sunnu-
dag að um 200.000 manna lög-
reglulið væri í viðbragðsstöðu
þarlendis vegna hryðjuverka-
hættu. Samtök hlynnt Palestínu-
mönnum og þeir 1700 Irakar, sem
Abul Abbas - útilokar enga að-
ferð.
í landinu búa, eru þegar undir all-
ströngu eftirliti. I Frakklandi búa
miljónir manna frá Atlaslöndum,
og þar hefúr meðal almennings
gætt vemlegrar samúðar með írak
i Persaflóadeilu.
Margir fomstumenn Palest-
ínumanna, þ. á m. Jasser Arafat
leiðtogi Frelsissamtaka Palestínu
(PLO), hafa lýst yfir fúllum
stuðningi við Irak í yfírvofandi
striði. Zaid Wehbe, aðalfúlltrúi
Arafats í Líbanon, sagði í gær að
ef hemaðarárás yrði gerð á írak
yrðu „palestínskir skæmliðar í
fremstu skotgröf ‘ og myndu beij-
ast gegn ísrael, auk þess sem
„palestínskt herlið“ myndi ráðast
á „bandaríska hagsmuni innan og
utan Palestíhu, sem og í heimin-
um öllum“.
Af öðram palestínskum for-
ingjum, sem lýst hafa yfir stuðn-
ingi við Saddam eða vitað er um
að hafa bækistöðvar í Bagdað, má
nefna Nayef Hawatmeh, leiðtoga
Lýðræðisfýlkingar til frelsunar
Palestínu, Abul Nidal og Abul
Abbas, foringja hóps sem þekkt-
astur er fýrir ránið á skemmti-
ferðaskipinu Achille Lauro 1985,
er lamaður maður var myrtur.
„Við útilokum enga aðferð,“ segir
hann. „Og heimurinn stendur
okkur galopinn.“
Reuter/-Newsweek/-dþ.
Jeltsín
Rússneskur her
gegn sovéskum?
Skorar á rússneska hermenn að neita að ráðast gegn vopnlausu fólki og
lýðræðislega kjörnum stjórnvöldum
Borís Jeltsín, forseti rúss-
neska sambandslýðveldisins
og í raun helsti leiðtogi sovésku
stjórnarandstöðunnar, sagðist í
gær telja að hrottaaðfarir sov-
éska hersins í Litháen væru að-
eins fyrstu aðgerðir í „öflugri
sókn“ gegn iýðræðinu í Sovét-
ríkjunum.
Jeltsín sagði stjómvöld Rúss-
lands vera vel á verði gegn sams-
konar tilræðum við fullveldi þess
og myndu þau taka til athugunar
að stofna sérstakan rússneskan
her til vamar gegn sovéska hem-
um, ef þess þyrfti við.
Jeltsín lýsti þegar um helgina
yfir eindregnum stuðningi við
Eystrasaltslýðveldin þijú i deilu
þeirra við sovésk stjómvöld og
þarf varla að efa að það er öflug-
asti stuðningurinn, sem þjóðir
lýðveldanna þriggja hafa enn
fengið í sjálfstæðisbaráttu sinni.
Hefúr Jeltsín skorað á rússneska
hermenn í sovéska hemum að
óhlýðnast skipunum um að skjóta
á óvopnaða borgara eða að ráðast
á stjómvöld og þing kjörin í lýð-
ræðislegum kosningum.
Jeltsin flaug til Tallinn, höfúð-
borgar Eistlands, á sunnudag,
jafnskjótt og hann frétti af mann-
drápunum við útvarpsstöðina í
Vilnu og ráðgaðist við ráðamenn
Eystrasaltslýðveldanna. Hann
sagðist þar hafa verið varaður við
hugsanlegu banatilræði.
Við fréttamenn sagði Jeltsín í
gær að á laugardaginn heföi Gor-
batsjov sagt við hann sem svo:
„Þjóðfélagið er á leið til hægri og
því er ég á sömu leið.“ „Eg svar-
aði að hann væri þá á rangri leið,
hann ætti að halda til vinstri, í átt-
ina til lýðræðis," sagðist Jeltsín
hafa svarað.
Reuter/-dþ.
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 15. janúar 1991