Þjóðviljinn - 15.01.1991, Síða 12

Þjóðviljinn - 15.01.1991, Síða 12
■ SPURNINGIN ■ Hvað finnst þér skemmtilegast? Sigríður Tryggvadóttir nemi: Að fara út með vini mínum og taka myndir. Neskaupstaður Pólitískur bæjarstjóri Guðmundur Bjarnason tekur við starfi bæjarstjóra í Neskaupstað Eg er að fara úr mjögsvo skemmtilegu starfi í stóru fyrirtæki, en það verður spenn- andi að takast á við bæjar- stjórastarfið. Ég á nú samt ekki von á að það verði mikil breyt- ing á starfinu þótt bæjarfulltrúi taki við því, segir Guðmundur Bjarnason í samtali við Þjóð- viljann. Bæjarráð hefúr samþykkt að ráða hann í stöðu bæjarstjóra og er áformað að hann taki við starf- inu í april. Asgeir Magnússon hefur ver- ið bæjarstjóri í Neskaupstað síðan árið 1984, en hann tekur nú við starfi framkvæmdastjóra Iðnþró- unarfélags Eyjafjarðar. Guðmundur er starfsmanna- stjóri Síldarvinnslunnar. Hann var varabæjarfulltrúi i Neskaupstað allt frá 1970 þar til hann var kjör- inn í bæjarstjóm síðast liðið vor. Hann lætur af formennsku í bæj- arráði þegar hann sest í stól bæj- arstjóra, en verður áífam bæjar- fulltrúi. - Ég lít auðvitað á mig sem bæjarstjóra allra Norðfirðinga, enda þótt ég sé ráðinn af meiri- hlutanum í bæjarstjóm, segir Guðmundur við Þjóðviljann. Guðmundur Bjarnason bæjarfull- trúi verður bæjarstjóri. AB Norðurlandi vestra Ragnar efstur Ragnar Arnalds alþingismað- ur fékk yfir 92 prósent til- nefninga í fyrsta sæti lista AI- þýðubandalagsins á Norður- landi vestra, i seinni hluta for- valsins sem fram fór um helg- ina. I öðm sæti haíhaði Sigurður Hlöðversson, tækniffæðingur á Siglufirði. Unnur Kristjánsdóttir, iðnaðarráðgjafi á Blönduósi, varð í þriðja sæti. Anna Kristín Gunn- arsdóttir, kennari Sauðárkróki, varð í íjórða sæti og Björgvin Karlsson, vélstjóri á Skagaströnd í fimmta sæti. Þeir sem komu næstir voru Þorvaldur G Jónsson, A-Húna- . þingi, Elísabet Bjamadóttir Hvammstanga, Ingibjörg Hafstað Skagafirði, Hafþór Rósmundsson og Kolbeinn Friðbjamarson, báðir frá Siglufirði. Að sögn Allans Morthens, for- manns kjömefndar, er kosningin ekki bindandi heldur leiðbeinandi. Gengið verður enbdanlega ffá list- anum á fundi kjördæmisráðs laug- ardaginn 26. janúar. —Sáf Katrín Harðardóttir þjónn: Sofa. Þá hvílist maður. Jóhann Árnason nemi: Á þessari stundu að fara til Am- eríku í skóla. Kristján Kristjánsson þjónn: Að ferðast úti bláinn. R eykn esingar- Kópavogsbúar! Alþýðubandalágið Missið ekki af fundi ráðherra Alþýðubandalagsins, Ólafs Ragnars, Steingríms og Svavars í Þinghóli, Hamraborg 11, Kópavogi, þriðjudaginn 15. janúar kl. 20.30 - 22.30. Fundarefni: Arangur ríkisstjórnarinna verkefni þeirrar næ Fundarstjóri: Sigríður Jóhannesdóttir Umræðustjóri: Heimir Pálsson Umræður - fyrírspurnir - svör

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.