Þjóðviljinn - 16.01.1991, Side 1
Miðvikudagur 16. janúar 1991 — 10. tölublað 56. árgangur
Persaflóadeila
Fresturinn runninn út
Bandaríkjastjórn: Stríð hefst „heldur jyrr en seinna “. Herir um öll Austurlönd nær búast til átaka.
Engin svör frá Saddam við friðartillögu Frakka
Frestur sá, sem Oryggisráð
Sameinuðu þjóðanna gaf
írökum til að fara með her sinn
frá Kúvæt með góðu rann út kl.
fímm í morgun að Greenwich-
meðaltíma og íslenskum tíma
og á miðnætti að New York-
tíma. Þá var klukkan átta að
morgni í írak og Kúvæt.
Af hálfú Bandaríkjastjómar
var í gær tilkynnt, að líklegt væri
að hemaðaraðgerðir gegn Irak
hæfúst „heldur íyrr en seinna“ ef
stjóm þess ríkis fasri ekki að
áminnstri samþykkt Öryggisráðs.
Sex bandarísk flugvélamóðurskip
með 450 flugvélar um borð vom í
gærkvöldi í færi við árásarmörk í
Irak og Kúvæt. Hvarvetna í Aust-
urlöndum nær bjuggu herir sig
undir að stríð hæfist á hverri
stundu.
I Israel er herinn í ýtmstu við-
bragðsstöðu, enda hefiir Saddam
íraksforseti hótað að hefja stríðið
fyrir sitt leyti með eldflauga- og
eiturgasárás á Tel Aviv, sama
hvort ísraelar taki þátt í árás á
Sjálfsvíg
Karlar í mikl-
um meirihluta
Flestir fremja sjálfsvíg
á aldrinum tuttugu til
þrjátíu ára
Af 308 manns sem frömdu
sjálfsvíg á árunum 1980-1990
voru 229 karlar og 79 konur. Af
þeim voru 27 nítján ára og yngri.
Af þeim voru fjórir á aldrinum
10-14 ára. Þetta kemur fram í
svari dómsmálaráðherra Óla Þ.
Guðhjartssonar við fyrirspura
Inga Björns AMúertssonar,
en svarfð var lagt fr*m á þáMgf í
g*BT.
Flestir fifemja sjáífsvíg miMi tví-
tugs og þrítugs eða 63 á nýliðnum
áratug. Talan fer síðan lækkandi; á
fertugsaidri frömdu 53 sjálfsvíg, en
37 á aldrinum 40 til 50 ára. Þá eykst
tíðni sjálfsvíga, því á sextugsaldri
ffömdu 59 sýálfsvíg sem er töluvert
meira en hjá aldurshópnum 60-70
ára þar sem 35 ffömdu sjálfsvíg. Bn
28 á áttræðisaldri ffömdu sjálfsvíg á
þessum árum.
Einnig var spurt hvemig sjálfs-
víg skiptist miili árstíða og er talan
nokkuð svipuð i hverjum mánuði
fyrir sig, þó mest yfir vetrarmánuð-
ina janúar til mars og nóvember.
Fæstir ffömdu sjálfsvíg í júnímán-
uðunum eða 19.
í svarinu kemur fram að ráðu-
neytið hafi ekki beitt sér fyrir fyrir-
byggjandi aðgerðum vegna sjálfs-
víga og að sjálfsvíg séu einungis á
verksviði ráðuneytisins að því leyti
að lögreglan rannsakar dauðsföll
með tilliti til hvemig dauðann hefúr
borið að höndum. Af dánarorsaka-
skrá Hagstofú ísiands er ekki unnt
að komast að ástæðum sjálfsvíga,
segir í svarinu.
-gpm
hann eða ekki. Gerir hann sér
vonir um að með því móti takist
honum að sameina þorra araba að
baki sér, vegna sameiginlegs hat-
urs þeirra á Israel.
Sýrland er orðið beggja
blands, er bæði með í liðssafnað-
inum gegn Saddam, en segist
jafnffamt ætla að ráðast gegn
Israel ef Israelar fari í stríð við
Jórdaníu og írak. Frakkar komu á
síðustu stundu ffam mcð nýja
ffiðartillögu, þess efnis að Irakar
hæfu þegar brottflutning liðs síns
ffá Kúvæt gegn því að haldin yrði
ráðstefna um deilumál Austur-
landa nær í heild sinni. Mörg Evr-
ópu- og arabaríki tóku undir
þetta, en Bandaríkin og Bretland
bmgðust ekki vel við og sögðu
eftirgjöf við írak felast í tillög-
unni. Og engin svör höfðu í gær-
kvöldi borist við henni ffá Irak.
I Bagdað fór fólk um götur í
hundruðþúsundatali, til þess hvatt
af ráðamönnum, og lét i ljós víga-
móð og sigurvissu. En jafhffamt
sendu margir íjölskyldur sínar úr
höfúðborginni, og rútur á norður-
leið þaðan vom að sögn troðfúll-
ar. Bendir það til þess að stríðs-
hrifning írasks almennings sé
minni en ráðamenn vilja vera láta.
I Bandaríkjunum stóðu kirkj-
ur opnar langt ffam á nótt til að
fólk gæti komið þangað og beðið
fyrir ffiði.
Ahmed Abdul Aziz al-Jas-
sem, ambassador Kúvæts í Sýr-
landi, sagði í ávarpi til landa
sinna: „Hafið þolinmæði. Stimd
ffelsunar nálgast.“
Reuter/-dþ.
RODD
ISLAIIðS
VER!)1
RðDD
rwhk
VEf?ND|
KAmAm
msunÆ
íl flgff
LlTuitu
HliFSÐ V f
wóbuh L
AUSTUM-ðl
NIER V'
P ; m
l ■» i '1 %
•
Friöarvaka á Austurvelli: Mannfjöldi safnaðist saman fyrír framan Alþingishúsið síðdegis I gær til þess að leggja áherslu á kröfumar um fríð við
Persaflóa og I Eystrasaltslöndum. Vakan stóð fram eftir kvöldi, en eins og sjá má voru þátttakendur á öllum atdfi. Mynd: Jim Smart.
Osætti um Birgi Isleif
Fálega var tekið í hugmyndir Jóns Sigurðssonar um að veita Birgi ísleifi Gunnarssyni banka-
stjórastöðu í Seðlabankanum. Bankaráð ákvað að tilnefna Birgi með tveimur atkvœðum gegn
einu, þrír sátu hjá
Jón Sigurðssofl viðskiptaráé-
herra kynnti á ríkisstjórnar-
fundi í gærmorgun hugmyndir
sínar um að hann tiinefndi
Birgi ísleif Gunnarsson í
bankastjórastöðu Geirs heitins
Hallgrímssonar í Seðlabanka
íslands. Samkvæmt heimildum
Þjóðviljans lýstu ráðherrar
þriggja flokka andstöðu sinni
við þetta.
Ráðherrar Borgaraflokks,
Framsóknarflokks og Alþýðu-
bandalags lýstu sig andsnúna því
að Birgir fengi stöðuna. Það var
einungis Jón Baldvin Hannibals-
son samflokksráðherra Jóns sem
lýsti sig fylgjandi. Jóhanna Sig-
urðardóttir tjáði sig ekki um mál-
ið. _
I viðtölum í gær við Steingrím
Hermannsson forsætisráðherra og
Jón Sigurðsson kom fram að nöfn
á mönnum sem kæmu til greina í
stöðuna heföu verið rædd, en þeir
vildu ekki tjá sig um hveijir heföu
verið nefndir. Jón sagðist bíða efl-
ir því að bankaráð bankans mælti
með manni í stöðuna, en eftir að
það gerist tekur viðskiptaráðherra
ákvörðun um hver hlýtur stöðuna.
Bankaráð Seðlabankans kom
saman gær og lágu tvær tillögur
fyrir fúndinum. Önnur tillagan
var frá Ólafi B. Thors um að
bankaráð legði til við viðskipta-
ráðherra að Birgir Isleifur verði
skipaður æi stöðuna og hin tillag-
an ffá Geir Gunnarssyni að einn
af aðstoðarbankastjhórum Seðla-
bankans verði skipaður til að
gegna stöðu bankastjóra á meðan
endurskoðun á lögum um stjóm-
skipun Seðlabankans fer fram.
Tiliagan um Birgi ísleif var
samþykkt með tveimur atkvæðum
gegn atkvæði Geirs, þrír banka-
ráðsmanna sátu hjá við atkvæða-
greiðsluna.
Þá var samþykkt samhljóða
að beina því til viðskiptaráðherra
að skipuð verði nefnd til að end-
urskoða lög um Seðlabankann og
a’ lagabreytingar verði undirbún-
ar til samræmis við niðurstöður
slíkrar endurskoðunar.
-gpm/-Sáf