Þjóðviljinn - 16.01.1991, Síða 6
MENNING
Ólafur Haukur: Under Your Skin.
Olafur Haukur
áensku
Leikritið „Milli skinns
og hörunds “ komið út
í New York
Leikrit Ólafs Hauks Símon-
arsonar, „Milli skinns og hör-
unds“, sem Þjóðleikhúsið frum-
sýndi 1984, er komið út á ensku
undir heitinu „Under Your
Skin“ í þýðingu Ingu Birnu
Jónsdóttur. Verkið birtist í leik-
ritasafninu Drama Contempor-
ary, sem gefið er út í New York
og er nýjasta bindi ritsafnsins
helgað nútímaleikritun á Norð-
urlöndum.
Ólafur Haukur Símonarson
hefur lagt drjúgan skerf að leikrit-
un síðustu ár og auk þessa verks
m.a. samið leikritin „Kjöt“ og
„Bílaverkstæði Badda“ (sem er nú
sýnt í Háskólabíó undir nafhinu
,,Ryð“ í kvikmyndagerð Lárusar
Ymis Óskarssonar), - svo ekki sé
minnst á söngleikinn „A köldum
klaka", sem Borgarleikhúsið sýnir
um þessar mundir.
Drama Contemporary er eina
leikritsafhið sem út kemur í
Bandaríkjunum og eingöngu helg-
að erlendri leikritun. Meðal ann-
arra norrænna höfúnda í ritinu að
þessu sinni eru Tor Aage Brings-
værd frá Noregi og Ulla Ryum ffá
Danmörku. Með útgáfúnni vilja
Bandaríkjamenn minna á að leik-
ritun Norðurlanda dó ekki út með
Strindberg og Ibsen, heldur dafnar
þar Ieiklist á heimsmælikvarða
sem vitnar um gamla og gróna
leikhúshefð.
ÓHT
Fegurð og leyndardómar
Arngunnur Yr sameinar málverk og skúlptúr á sýningunni „ Varanlegum menjum “
á Kjarvalsstöðum
- Þú málar, smíðar og blandar
saman ólíkum efnum. Er auðvelt
að sameina þessi vinnubrögð?
- Ég hef ágæta aðstöðu í
vinnustofunni í San Francisco og
þótt ég væri dálitið hrædd við tré-
smíðaverkstæðið í byijun, þá hef
ég mjög gaman af svona vinnu
núna. Ef hugmyndimar útheimta
einhveija sérstaka útfærslu þá
verður maður að tileinka sér ýmis
vinnubrögð.
- Nú eru verkin þín þannig að
sjálft efnið, vax, plast, marmara-
plata, röntgenmynd, þurrkaðar
rósir og fleira, dregur að sér at-
hygli skoðandans. Ertu ekkert
smeyk við að fólk gleymi sér við
að skoða handverkið þitt og ný-
stárleg efni, en inntak myndanna
fari fram hjá þvi?
- Nei, þetta er hluti af öllu
saman, lokaútkomunni. Mikil-
vægast er að hafa sjálfúr tilfinn-
ingu fyrir því og finnast það
spennandi. Marmaraplata í þessu
samhengi er hluti af heildinni og
minnir á ákveðna hluti, er hluti af
heildarlausninni. Siðan em líka
önnur verk sem ég hef unnið í
þessu samhengi en sýni ekki, þar
sem ég er kannski komin út í aðra
sálma. Ég gæti líka beitt sjónræn-
um brögðum til að heilla, - það er
í sjálfú sér auðvelt að gera verk
sem „hrífa“ áhorfandann, en
stundum getur hluturinn sjálfúr
haft sterkari þýðingu en það að
„endurgera“ hann. Fólk spyr mig
stundum: „Getur þetta verið lista-
verk eftir þig, fyrst þú hefur ekki
gert það sjálf?“ - og á þá við
hvemig ég innlima efni og hluti.
En þetta er ekki spumingin, held-
ur hvemig hlutunum er komið á
framfæri, hvað sett er saman til að
skapa nýja þýðingu.
Frelsi áhorfandans
- Læknar eru búnir að skil-
greina nokkrar meinsemdir sjúk-
linga á röntgenmyndunum á sýn-
ingunni...
- Þær em nú samt ekki valdar
með tilliti til þess sem læknamir
sjá, fyrir mér em röntgenmynd-
imar álíka leyndardómur og fyrir
venjulegt fólk.
- Nú eru þama ákveðnar
jjögurra mynda seriur, er þetta
unnið eftirfastri áætlun?
- Já, ákveðið plan er á bak við
þetta allt, en ég vil ekki gefa of
mikið upp, þótt ég geri grein fyrir
heildarhugmyndunum við sköp-
unarferlið í sýningarskrá. Það
þarf að vera visst ffelsi fyrir
áhorfandann að lesa úr verkunum
það sem honum hentar. Listamað-
urinn sjálfúr getur ekki verið með
eina rétta svarið. Það er engin ein
leið að verkunum. Ég vinn verkin
út ffá tveim sjónarmiðum, hug-
myndalega og fagurfræðilega.
Hugmyndin og efnið tala saman,
skapa tengsl.
- Ert þú eins ogfleiri málarar
„að vaxa upp úr málverkinu" og
inn iskúlptúrinn?
- Nei, þrívitt form heillar að
vísu, en ég held ég yfirgefi ekki
málverkið, þótt ég sé farin að
vinna meira með rýmið. Kassa-
verkin með röntgenmyndunum
fannst mér t.d. henta vel, vegna
þess að ég er að fást við það sem
er leyndardómsfúllt. Svo er
spennandi að læra eitthvað nýtt,
vinna með önnur efni.
- Nú býrð þú í San Francisco,
hvemig er að koma i heimsóknir
hingað?
- Alltaf jafn yndislegt. En ég
hef dvalið mikið erlendis, bjó í
Kanada sem unglingur i fimm ár,
á Nova Scotia, ásamt foreldrum
mínum og kom svo heim til að
ljúka menntaskóla. A sumrin
vann ég m.a. á Italíu og í Þýska-
landi. Ég var svo tvo vetur í
Myndlista- og handíðaskólanum í
Reykjavík og fékk það nám að
fúllu metið í Kalifomiu og lauk
þar BFA-prófí ffá málaradeild frá
San Francisco Art Institute 1986.
Síðan hef ég starfað hérlendis, í
Amsterdam og i San Francisco.
Maðurinn minn, Lawrence
Andrews, er líka myndlistarmað-
ur, vinnur aðallega við vídeó-list
og gerir í því sambandi einnig
skúlptúra. Og í sjálfú sér er ein-
Stuöningsmenn Más Guðmundssonar boða til fundar á Kornhlöðuloftinu
HANN Á ERINDI Á ALÞINGI
•Efnahagslegur stöðugleiki:
Traust atvinnulíf - velferð fólksins
•Sameign auðlindanna:
Kvótaleiga í fiskveiðum - arðbær orkunýting
•Afkomuöryggi fjölskyldnanna:
Skattkerfi til tekjujöfnunar - samfelld
og virk húsnæðisaðstoð - dagvist fyrir öll
böm
•Alþjóðleg aðlögun:
ísland í Evrópu, utan EB - sjálfstæð þátttaka
•Menntasókn:
íslensk fræði og rannsóknir -útflutningur sér-
þekkingar - Þjoðarbókhlaða
Stuðningsmenn Más Guðmundssonar í forvali
Alþýðubandalagsmanna í Reykjavíkurkjördæmi
boða til kynningarfundar á Komhlöðuloftinu
(milli Lækjarbrekku og Torfunnar) fimmtudags-
kvöldið 17. janúar, frá kl. 20.30 - 23.00.
Fundarstjóri: Ólafur H. Torfason, ritstjóri
Umræðustjóri: Halldór Guðmundsson, Máli og menningu
L.
Stutt ávörp: Arthúr Morthens, kennari.
Hildur Jónsdóttir, framkvæmdastjóri.
Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna.
Már Guðmundsson hefur framsögu og svarar fyrirspumum.
ALLIR VELKOMNIR
Amgunnur Yr viö verk sitt „Varasöm ást“ á Kjarvalsstööum. Mynd: Krist-
inn.
kennilegt hve fáir íslendingar
stunda lítið slíka myndbandagerð,
en það er mikið um að vera í víd-
eólist um allan heim. Þótt hér í
þessu litla samfélagi sé ótrúlega
margt að gerast á listasviðinu má
kannski segja að það vanti fleiri
greinar, meiri breidd i viðfangs-
efnin. Margir íslendingar kannast
t.d. ekkert við Steinunni
Vasulka, sem er víðþekkt-
ur og fær vídeólistamaður
og býr í Santa Fe. En það
er athyglisvert, að þegar
Island ber á góma erlend-
is, er það yfirleitt tengt
framlagi okkar á menn-
ingarsviðinu, það man
fólk úr sjónvarpsþáttum
og öðrum fjölmiðlum.
— Nú eru margir með
fordóma gagnvart Banda-
ríkjunum og þeim lista-
mönnum sem þar hafa
dvalið...
„í Varanlegum menjum vildi
ég sýna innri líkamann sem ver-
öld sem við í raun þekkjum og
skiljum ekki, og höfum lítið vald
yfir. Hann er sem tákn hins óvar-
anlega og óörugga, í senn leynd-
ardómsfullur og fagur, og ógn-
vekjandi og Ijótur. Eg vildi reyna
að sameina hugmyndir um and-
ann og holdið sem eitthvað skylt
frekar en aðskilið. “
(Úr sýningarskrá).
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
Óður til sameinaðrar
Evrópu
Reykjavík og Selfoss: Nýárstónleikar Sinfóníu-
hljómsveitarinnar í anda Vínartónlistarinnar.
Fimm börn með einleik
Arlegir Nýárstónleikar Sin-
fóníuhljómsveitarinnar
verða í Háskólabíói annað
kvöld kl. 20 og á laugardaginn
kl. 16:30. Auk þess verða þeir
fluttir í íþróttahúsinu á Selfossi
á fostudagskvöld kl. 20:30.
Á efnisskrá verða fjölmörg
verk, flest í anda Vínartónlistar-
innar, eftir evrópsk og amerísk
tónskáld, t.d. Frakkana Marc-
Antoine Charpentier og Charles
Gounod, Italann Luciano Berio,
Þjóðverjann Jóhannes Brahms,
Danann Hans Christian Lumbye,
Bandaríkjamanninn Leroy And-
erson og Austurríkismennina
Franz von Suppé, Jóhann Strauss
eldri og yngri.
Einleikarar verða 15 talsins,
tíu úr röðum Sinfóníuhljómsveit-
arinnar og auk þess fimm böm,
þijú úr Tónlistarskóla íslenska
Suzukisambandsins og tvö úr
Tónlistarskóla Hafnarfjarðar.
Hljómsveitarstjóri er Austur-
ríkismaðurinn Peter Guth, sem
hefúr þijú sl. ár stjómað Vínar-
tónleikum hljómsveitarinnar og
fór með hana um Vestfirði 1989.
Hann hefúr sjálfúr valið verkin á
efnisskránni og segir að þau
myndi óð til sameinaðrar Evrópu,
- Það er rétt, þetta kemur upp.
En þetta byggist á mikilli fáfræði,
fólk gerir sér miklar ranghug-
myndir um bandarískt listalíf. Það
er ekkert fúllkomið, en þeir sem
hafa samanburðinn við önnur
lönd vita að þar er menning ekki
síðri en annars staðar.
ÓHT
Peter Guth, stjómandi Nýárstón-
leikanna og fyrsti konserfmeistari
Sinfónluhljómsveitar Austurrikis: (
Vlnarborg finna menn frelsið
vegna opnunar lanmdamæranna
til Austur-Evrópu.
en í Vínarborg finni menn skýrt
fyrir því frelsi sem fylgi opnun
landamæra nágrannaríkjanna og
að tónlistin endurspegli þessa
sameiningu. Guth er um þessar
mundir fyrsti konsertmeistari Sin-
fóníuhljómsveitar Austurríkis.
ÓHT
6.SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 16. janúar 1991
//.ts) ó í'f 'éÉVt)'1' H-vtU ’