Þjóðviljinn - 12.02.1991, Qupperneq 2
FRETTIR
Ríkismat siávarafurða
Öryggisnetið eflt
Hagtíðindi
Einstæðum
mæðrum
fjölgar
Unnið að frekari framþróun núverandi kerfis í sjávarútvegsráðuneytinu og Ríkismatinu
Vegna mikilla framfara ann-
arra þjóða í skipulagi eftir-
lits og fyrirkomulagi afurða-
mats hefur nú verið hafist
handa hjá Ríkismatinu og sjáv-
arútvegsráðuneytinu um frek-
ari framþróun þess kerfis sem
við búum við í dag.
Þetta kemur fram í síðasta
fréttablaði Ríkismatsins. Þar er
greint frá því að í kjölfar aukinnar
umræðu um mengun í heiminum
verji opinberir aðilar í Bretlandi,
Bandaríkjunum, Kanada, Astraliu
og víðar nú meiri tíma og pening-
um í að endurskipuleggja sín eft-
irlitskerfi og leiðbeiningarstörf í
sjávarútvegi.
Gísli Jón Kristjánsson fisk-
matsstjóri segir að ef til vill séu
Islendingar að missa það forskot
sem þeir hafa haft á þessu sviði,
en eins og kunnugt er þá eru gæði,
hreinlæti og heilbrigði íslenskra
sjávarafurða sífellt mikilvægari
þættir í samkeppninni við aðrar
þjóðir.
Fiskmatssjóri segir að Kan-
adamenn séu komnir með besta
kerfið i dag á sviði eftirlits og
leiðbeiningarstarfa í sjávarútvegi,
en þeir hafa fylgt sömu línu og
mörkuð hefúr verið hjá Rikismat-
inu. Fiskmatsstjóri segir að við
getum margt af þeim lært en það
sé hinsvegar spuming um vilja og
peninga.
Þótt fáir efist um gildi þeirrar
starfsemi sem miðar að því að efla
hina jákvæðu ímynd íslenskra
sjávarafurða, finnst forráðamönn-
um Ríkismatsins að starfsemi
stofnunarinnar hafi oft mætt litl-
um skilningi og að hlutverk henn-
ar hafi ekki verið metið sem
skyldi.
-grh
Endurkröfur
Langmest
vegna
ölvunaraksturs
Endurkröfur vátryggingarfé-
laga á tjónvalda í umferð á síð-
asta ári námu alls ríflega 18 milj-
ónum króna og nam hæsta end-
urkrafan rúmlega 1,6 miljón
króna. Yfir 90% var vegna ölv-
unaraksturs.
Samkvæmt umferðarlögum
eignast vátryggingarfélag, sem
greitt hefúr bætur vegna tjóns af
völdum ökutækja, endurkröfurétt á
hendur þeim, sem tjóni olli af ásetn-
ingi eða stórkostlegu gáleysi.
Á síðasta ári afgreiddi endur-
kröfunefnd vátryggingarfélaganna
alls 154 mál. Af þeim samþykkti
nefndin endurkröfur að öllu leyti
eða hluta í 149 málum. Þar áttu hlut
að máli 123 karlar og 26 konur.
Aðrar ástæður en ölvun réðu
endurkröfum í 10 tilvikum. Árið
1989 voru ástæður endurkröfú
vegna ölvunar í 120 málum, en aðr-
ar ástæður réðu endurkröfu í 13
málum. Ölvunartilvikum hefúr því
farið hlutfallslega íjölgandi milli
áranna 1989 og 1990, eða um 3%.
Hjá tjónvöldum, sem endur-
krafðir voru vegna tjóna af völdum
ölvunar, reyndust 62 hafa um og yf-
ir 2 prómill vínandamagn í blóði,
þar af 6 um og yfir 3 prómill. En
eins og kunnugt er þá telst ökumað-
ur óhæfur til stjóma ökutæki ef vín-
andamagn í blóði hans nemur 1.20
prómill eða meira. -grh
Bolludagur var í gær. - Þá gleymdi þjóðin um tfma öllum kaloríuvanda og hámaði I sig um miljón bollur.
Þeir munu svo enn bæta við sig (dag með saltkjöti og baunum, enda fastan framundan. Mynd: Kristinn.
Kosningar
Grænir fram í vor
Grænt framboð hefur ákveð-
ið að bjóða fram til alþingis
þann 20. apríl næstkomandi.
Á íúndi sem Græningjar
héldu fyrr í þessum mánuði
ákváðu þeir að fara fram í vor
vegna góðra undirtekta í síðustu
borgarstjómarkosningum. Fram-
boðið er opið öllum áhugamönn-
um um umhverfismál.
Grænt ffamboð mun leggja
megináheslu á eftirfarandi mál í
kosningabaráttunni:
Islendingar taki skýra af-
stöðu gegn Persaflóastriðinu.
- Hætt verði fyrirhuguðum
áformum um nýtt álver og leitað
verði að lausnum varðandi at-
vinnuuppbyggingu s.s. matvæla-
og vatnsútflutning, ferðamanna-
iðnað og aðrar greinar þar sem hin
hreina og ómengaða ímynd okkar
nýtist okkur vel.
- Tekinn verði upp mengunar-
skattur sem leggist á fyrirtæki í
samræmi við þá mengun sem þau
valda.“
Vinnuhópur ffamboðsins hef-
ur undanfarið unnið að nauðsyn-
legum formsatriðum og gert
skoðanakönnun um skipan efstu
sæta. BE
Fróði Björnsson, framkvæmdastjóri Tölvustofunnar hf., afhendir Ingvari
Ásmundssyni, skólameistara Iðnskólans í Reykjavík, gjöf fyrirtækis
sfns.
Kraft-miklir tónleikar
Kraft-miklir tónleikar verða í
Norræna húsinu á morgun, mið-
vikudaginn 13. febrúar kl. 12.30.
Flutt verður amerísk samtímatón-
list eftir William og Leo Kraft.
Eiríkur Öm Pálsson leikur á
trompet og Pétur Grétarsson á
slagverk.
Megas á Tveimur
vinum
Nk. fimmtudagskvöld verða
stórtónleikar á skemmtistaðnum
Tveir vinir og annar í fríi. Þau
sem stíga á stokk eru: Megas og
hans Hættulega hljómsveit, en
auk Megasar er hljómsveitin
skipuð þeim Guðlaugi Óttarssyni
gítar, _Birgi Baldurssyni trommur,
Jóni Ólafssyni hljómborð og Har-
aldi Þorsteinssyni bassa. Björk
Guðmundsdóttir er gestur
kvöldsins. Miðasala hefst kl. 21.
Iðnskólinn fær
hönnunarforrit
Iðnskólanum í Reykjavík
voru nýlega gefin fimm forrit til
kennslu í bókiðnaðardeild. Það
var Fróði Bjömsson, fram-
kvæmdastjóri Tölvustofunnar hf.,
sem afhenti forritin. Hér er um að
ræða hönnunarforritin Design
Studio, Color Studio, Image
Studio og Letra Studio frá fyrir-
tækinu Letraset. Studio-forritin
frá Letraset em sniðin fýrir Mac-
intosh tölvur. Þau em ein fúll-
komnustu forrit til sinna nota sem
nú em á markaði. Gjöfin gerir
skólanum kleift að bæta vemlega
kennslu í þeim þáttum bókagerð-
ar, sem snýr að hönnun og upp-
setningu prentgripa.
Vextirog peningamáií
Bankaskólanum
Steingrímur Hermannsson
forsætisráðherra verður gestur
bankamanna á ráðstefnu um vexti
og peningamál í Bankamanna-
skólanum, Laugavegi 101, í
kvöld kl. 20.30.
Skóflustunga hjá
Öryikjabandalaginu
Á laugardag var tekin skóflu-
stunga að nýju fjölbýlishúsi sem
Hússjóður Öryrkjabandalagsins
reisir, en Hússjóðurinn verður 25
ára 22. febrúar nk. I húsinu verða
33 íbúðir, 2ja til 4ra herbergja.
Em þær m.a. gestaíbúðir sem
verða leigðar MS-félaginu, en fé-
lagið ætlar að koma upp dagvist-
un og endurhæfingaraðstöðu í
tengslum við bygginguna. Þörf
íbúðarhúsnæðis fyrir öryrkja er
mjög mikil. í dag em 300 manns
á biðlista eftir íbúð. Tekjustofh
Hússjóðs er fólginn í tekjuhluta
hans frá Islenskri getspá, Lottói. í
eigu sjóðsins em 379 íbúðir víðs
vegar á Iandinu, þar af 300 í
Reykjavík.
Stúdentar mótmæla
sjóðshappdrætti
Stúdentaráð Háskóla íslands
hefúr sent Óla Þ. Guðbjartssyni
dómsmálaráðherra ályktun þar
sem mótmælt er „aðfor þeirri að
einkaleyfi Happdrættis Háskóla
íslands á peningahappdrætti sem
Tæplega 7300 kjarnafjöl-
skyldur eru föðurlausar í land-
inu. Einstæðir feður eru hins
vegar 553 og á framfæri þeirra
eru færri börn en á framfæri
einstæðra mæðra. Einstæðum
mæðrum á landinu öllu fjölgaði
um 300 á milli árana 1989 og
1990. Þetta kemur fram ásamt
fleiri athyglisverðum tölulegum
upplýsingum í Hagtíðindum frá
því í desember 1990.
Einstæðar mæður em hlut-
fallslega flestar í Reykjavík. Höf-
uðborgin er jafnframt, ásamt Ak-
ureyri, í hópi þeirra fáu staða á
landinu þar sem konur em tölu-
vert fleiri en karlar. Karlar em
fleiri en konur í allflestum hrepp-
um og bæjum landsins.
Margir em vissulega ógiftir í
verinu því að ógiftir karlar em
fleiri en konur í mörgum byggð-
um landsins. En í Reykjavík búa
um 7500 fráskildar konur en að-
eins tæplega 4000 karlar sem eins
er ástatt um. Þó má gleðja þær
makalausu með því að í heild em
fleiri ógiftir karlar í höfúðborg-
inni en konur. Hér munar þó ekki
eins miklu og úti um land eins og
t.d. á Vestfjörðum þar sem
ókvæntir karlar em nokkuð fjöl-
mennari en ógiftar konur.
BE
Söngvakeppnin
Nín? framlag
Islands
Lagið Draumur um Nínu
eftir Eyjólf Kristjánsson, í
flutningi höfundar og Stefáns
Hilmarssonar, sigraði í undan-
keppni söngvakeppninnar. Nína
verður því framlag íslands í
Söngvakeppni sjónvarpsstöðva
í Róm á Ítalíu í vor.
Það vom sigurvegaramir frá
því í fyrra, þeir Hörður Ólafsson
og Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson,
sem veittu Nínu harðasta sam-
keppni.
-Sáf
frumvarp til laga um sjóðshapp-
drætti til stuðnings flugbjörgun-
armálum og skák er.“
í ályktuninni segir að það að
greiða vinninga út í formi rikis-
skuldabréfa sé ekkert annað en
peningahappdrætti og hljóti því
að teljast árás á einkaleyfi það
sem Happdrætti HÍ hefúr til árs-
ins 2000. Þessu er mótmælt og
hvatt til endurskoðunar á fium-
varpinu. _ Minnt er á að Happ-
drætti HÍ borgar um 20% af brút-
tótekjum sínum í einkaleyfisgjald
til ríkissjóðs.
Hræðslan við áhrif...
„Hræðslan við áhrif í íslensk-
um bókmenntum: Frá Pilti og
stúlku til Síðasta orðsins“ nefnist
fýrirlestur sem dr. Rory Mc Turk,
lektor í ensku við Leeds-háskóla,
flytur í boði Stofnunar Sigurðar
Nordals. Fyrirlesturinn verður í
stofú 101 í Lögbergi í dag kl.
17.15 og er öllum opinn. Rory
Mc Turk hefúr skrifað mikið um
íslenskar bókmenntir, fomar og
nýjar. Væntanleg er eftir hann
bók um Ragnars sögu loðbrókar.
Fyrirlesturinn verður fluttur á ís-
lensku.
2.SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjuudagur 12. febrúar 1991