Þjóðviljinn - 12.02.1991, Qupperneq 7

Þjóðviljinn - 12.02.1991, Qupperneq 7
40 miljónir í héraðaverkefni Byggðastofnun styrkir átaks- og þróunarverkefni og undirbúningsrannsóknir. Fámennar jaðarbyggðir studdar mest Stjórn Byggðastofnunar hefur samþykkt að verja allt að 15 miljónum króna til að taka þátt í rekstrarkostnaði átaks- og þróunarverkefna á móti heimamönnum í einstökum héruðum og allt að 25 miijónum til að styrkja undirbúnings- rannsóknir vegna einstakra at- vinnukosta á vegum átaksverk- efna, iðnráðgjafa og atvinnu- þróunarfélaga. Akvarðanimar eru teknar í trausti þess að eiginfjárstaða Byggðastofnunar verði bætt vem- lega, eins og heimild er til í ijár- lögum. Byggðastofnun bendir á að efling atvinnuþróunar í ein- stökum hémðum sé talin ein leið- in til að snúa vöm í sókn í málefn- um landsbyggðarinnar. Víða um land hafi aðilar í hverju héraði haft mikilvægt fmmkvæði að ým- iss konar starfsemi til að auka fjölbreytni atvinnulífsins og með Arnaldur Mar Bjamason Atvinnumála- fulltrúi sveitanna r A dagskránni er efling atvinnulífs, ráðgjöf og skipulag Arnaldur Mar Bjarnason, áður sveitarstjóri í Mývatnssveit og bæjarstjóri í Vestmannaeyj- um, hefur tekið að sér nýja stöðu atvinnumálafulltrúa á vegum Stéttarsambands bænda, Fram- leiðnisjóðs landbúnaðarins og Landbúnaðarráðuneytisins. Þetta er nýtt embætti og helstu störfum atvinnumálafúlltrúans má skipta i þrennt: * Efling fjölbreyttrar atvinnu í sveitum, einkum kvenna, sem byggir sem mest á frumkvæði og ffamtaki heima fyrir. Honum er ætlað að koma á ákveðnu skipulagi og veita yfirsýn yfir málin, án of mikillar miðstýringar. * Sköpun skilyrða fýrir raun- hæfa ákvarðanatöku, áður en ráðist er í framkvæmdir, með því m.a. að aðstoða við gerð rekstraráætlana og markaðsathugana. * Aðstoð við fólk í sveitum til þess að koma auga á og hrinda í ffamkvæmd hugmyndum um nýja atvinnustarfsemi með ffæðslu- og kynningarstarfsemi á breiðum grundvelli. Aðsetur atvinnumálafulltrúans er í húsakynnum bændasamtak- anna í Bændahöllinni við Hagatorg í Reykjavík. ÓHT þessari samþykkt vilji Byggða- stofnun leggja sitt af mörkum til að tryggja atvinnuþróunina. Annars vegar er hér um að ræða átaksverkefni og aðra starf- semi sem hefur atvinnuþróun að markmiði. Hins vegar gefist Byggðastofnun tækifæri til að taka þátt í kostnaði við undirbún- ingskannanir vegna nýrra at- vinnutækifæra. Mjög mikilvægt sé að tryggja nýja möguleika áður en í þá sé ráðist og þessari fjár- veitingu sé ætlað að tryggja eftir því sem kostur er að það verði hægt. Byggðastofnun hefur stutt slík verkefni á undanfomum árum en nú er fjármagnið aukið veru- lega. Þátttaka Byggðastofnunar í einstökum verkefnum er metin í hveiju tilviki, en reiknað með að hún verði yfirleitt um helmingur kostnaðar. I fámennustu jaðar- byggðum verði kostnaðarþáttaka Byggðastofnunar þó allt að þrem- ur fjórðu, en í fjölmennustu byggðarlögum ekki yfir þriðj- ungi. Lögð er áhersla á að verk- efni séu vel skipulögð áður en í þau er ráðist. Nú liggur fyrir hjá Byggðastofnun talsverður fjöldi umsókna um styrkveitingar til átaksverkefna og annarrar at- vinnuþróunarstarfsemi. Stjóm hennar hefúr samþykkt að taka þátt í slíkum verkefnum á eftir- töldum svæðum: - Mýrdalshreppur, - Dalasýsla, - A-Barðastrandarsýsla, - V-Húnavatnssýsla (framhald átaksverkefnis) - A-Húnavatnssýsla, - Skagafjörður, - Þingeyjarsýslur. Nú bíða afgreiðslu beiðnir frá Snæfellsnesi og sunnanverðum Austfjörðum. ÓHT Átaksverkefni og atvinnuþróunarstarf — styrkir Byggöastofnunar | Samþykkt Beiðni liggur fyrir v..................^ Landsbyggðarþjónusta SAA Fjölskylduverkefni á Austurlandi fram til vors Fjölskylduverkefni eru megin verkefni Landsbyggðarþjón- ustu SÁÁ sem hófst á ný í lok janúar á Hornafírði og Djúpa- vogi, en er á Breiðdalsvík og Stöðvarfirði i þessari viku. Einnig er boðið upp á einkavið- töl og hverja þá þjónustu sem óskað er eftir. Þessi lota stendur ffam undir apríllok og standa námskeiðin 3-5 daga á hveijum stað. Um 3500 einstaklingar hafa með einum eða öðmm hætti notið Landsbyggðarþjónustu SÁÁ, sem hóf fyrir ári ferð um landið til að bjóða upp á göngudeildarþjónustu handa þeim aðilum sem áhuga hefðu. Meðal óska og hugmynda sem komu í kjölfarið bar hæst fjölskyldunámskeið, þ.e. nám- skeið fyrir aðstandendur alkóhól- ista út í hinar dreifðu byggðir, þar eð þeir eiga oft erfitt með að nýta sér forgang þann sem fjölskyldu- Landbúnaður Græna hjólið Búvélamiðlun á notuðum tækjum og varahlutum hafin V.-Hún. Græna hjólið, búvélamiðlun Búnaðarsambands Vestur- Húna- vatnssýslu, hóf starfsemi á liðnu hausti. Hugmyndin að Græna hjólinu kom fram á aðalfundi B.S.V.H. í vor sem leið. Fram- kvæmd annaðist samstarfshópur á vegum Átaksverkefnis Vestur- Húnvetninga og Búnaðarsam- bandið réð mann til að undirbúa málið í samvinnu við samstarfs- hópinn. Haft var samband við ýmsa að- ila, m.a. á Bútæknideild RALA, bændaskólanum á Hvanneyri, Framleiðnisjóð landbúnaðarins. Undirtektir voru hvarvetna góðar og samstarfsaðilar hvattir til að hrinda hugmyndinni í ffamkvæmd. Að mati samstarfshópsins má vera ljóst að samfara miklum breyt- ingum á tækni og vélakosti bænda hljóti að verða aukin sala á notuð- um tækjum. Þá hefur mikil fjöl- breytni orðið til þess að torvelda mönnum að verða sér úti um vara- hluti og hefst þá oft erfið og tíma- ffek leit að notuðum varahlutum eða vélarhlutum. Græna hjólið auðveldar mönn- um viðhald á notuðum búvélum og stuðlar að: * betri nýtingu og auðveldar viðhald véla, * auknu verðmæti véla og tækja, * lægri viðhaldskostnaði og um leið rekstrarkostnaði bænda. Búvélamiðlunin Græna hjólið starfar þannig, að Jón bóndi í Borg- arfirði lætur t.d. skrá fjölfætlu sem hann vill láta. Skráning gildir í 6 mánuði. Á sama tíma sárvantar Sig- urð bónda í Skagafirði fjölfætlu. Hjá Græna hjólinu fær hann nafn og símanúmer Jóns bónda, sem hann hringir síðan í og þeir semja um verðið. Jón lætur að lokum vita að vélin sé seld. Græna hjólið skráir öll landbúnaðartæki bæði stór og smá. Tæki sem em í lagi og tæki til niðurrifs, þar með em talin fjórhjól og snjósleðar. Bílar og bílapartar em algjörlega undanskildir. Búnað- arsamband Vestur-Húnavatnssýslu undirstrikar að þessi starfsemi er ekki sett upp í samkeppni við bú- vélainnflytjendur, þvert á móti sé óskað eftir góðri samvinnu við alla þá aðila. Upplýsingar veitir BSVH í síma 95- 12774. Frá 1. janúar til 1. júlí 1991 verður boðinn kynningarafsláttur á þjónustu Græna hjólsins. (F réttatilkynning.) deild SÁÁ býður aðstandendum þeirra sem i meðferð em. Nám- skeiðin framundan em þessi: 11.-15. feb. Fáskrúðsfjörður 18.-22. feb. Reyðarfjörður og Eskifjörður 21. feb.-l.mars Hvíldarvika i Reykjavík 4.-8. mars Neskaupstaður 11.-15. mars Egilsstaðir 18.-22. mars Seyðisfjörður 24. mars-3. apríl Hvíldarvika vegna páska. 8.-12. apríl Vopnafjörður 15.-19. april Viðtöl á Þórshöfú og Raufarhöfn 22. -26. apríl Viðtöl á Húsavík og Grenivík. Nauðsynlegt er að ganga sem fyrst frá umsóknum. Trúnaðarmenn SÁÁ taka við þeim á hveijum stað og veita nán- ari upplýsingar, Elín hjá Lands- byggðarþjónustunni í síma 91- 689996 og hjá göngudeild SÁÁ í síma 91-82399. Bændaferðir innanlands og utan Bændasamtökin hafa skipu- lagt næstu orlofsviku bænda á Hótel Sögu vikuna 11.-12. mars og kynna einnig utanlandsferðir til Evrópu og Ameríku. Dagskrá bændavikunnar í mars er með hefðbundnum hætti, heim- sóttar verða afúrðastöðvar, stofnan- ir og fyrirtæki og farin stutt ferð austur fyrir fjall. Haldnar verða kvöldvökur, farið í leikhús osfrv. Framvegis verða valdir heiðursgest- ir á bændavikur sem boðin er þátt- taka í slíkum orlofsvikum. 18. mars verður síðan efnt til vikuferðar til Belgíu og Frakklands, en á síðasta ári fóm alls tæplega 100 manns í slíkar ferðir sem þóttu takast afar vel. Aðalferð sumarsins verður síð- an með 100 þátttakendur til Þýska- lands og Austurríkis, farið í skoðun- arferðir, m.a. til Ungveijalands, haldið í ópem eða á tónleika, gist hjá bændum ofl. Loks verður Kan- adaferð í júlílok og ffam í ágúst, með viðkomu í NY. Upplýsingar veita Agnar og Halldóra í símum 91-29433 og 19200. ÓHT Þriðjudagur 12. febrúar 1991 ÞJÓÐVILJINN — SlÐA 7 Vinningstölur laugardaginn 9. febrúar '91 VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA 1. 5af 5 0 2.773.917 £.. 4af5v^yL 120.529 3. 4af 5 153 5.435 4. 3af 5 4.769 406 Heildarvinningsupphæð þessa viku: 6.023.802 kr. UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKUUNA 991002

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.