Þjóðviljinn - 19.02.1991, Síða 3

Þjóðviljinn - 19.02.1991, Síða 3
FRETTIR Loðnubrestur ðvissa um frumvarp Halldórs Allsendis óvíst er að frumvarp sjávarútvegs- ráðherra um ráðstafanir vegna aflabrests í loðnuveiðum nái fram að ganga á Alþingi Eg hef enga ástæðu til að ætla að það sé ekki, sagði Hall- dór Ásgrímsson aðspurður hvort hann teldi að þingmeiri- hluti væri fyrir frumvarpi hans um ráðstafanir vegna aflabrests í loðnuveiðum. Sjávarútvegs- ráðherra lagði fram þetta frumvarp í eigin nafni fyrir helgina, en sh'kt er mjðg óvenjulegt. Frumvarpið felur í sér að ráð- herra verði heimilt að úthluta 8.000 tonna þorskígildakvóta Hagræðingarsjóðs sjávarútvegs- ins til að aðstoða loðnuflotann. Eins verði ráðherra heimilt að út- hluta 5.000 lesta úthafsrækju- kvóta til sömu skipa. Þingflokkur Alþýðubanda- lagsins lagðist gegn ffumvarpinu og því var það ekki lagt fram sem stjómarfrumvarp. Samkvæmt heimildum Þjóðviljans munu sumir þingmenn Alþýðuflokkins einnig vera tvístígandi í afstöðu sinni. Það reynir því á stjómar- andstöðuna til að koma málinu í gegn. Fmmvarpið átti að taka fyrir á þingflokksfundi Sjálfstæðis- flokksins í gær en fæstir þing- mannanna höfðu myndað sér skoðun á ffumvarpinu. Kristinn Pétursson, Sjfl., sem reyndar á sæti í neðri deild en frumvarpið er lagt ffam í þeirri effi, er þó mót- fallinn ffumvarpinu. Hann telur ekki rétt að nota Hagræðingarsjóð á þennan hátt þar sem hann kem- ur ekki byggðarlögum til aðstoðar á þennan hátt. Ekki er óliklegt að þingflokkurinn verði klofinn í þessu máli. Málmfriður Sigurðardóttir, þingflokksformaður Kvennalist- ans, er jákvæð gaggnvart fmm- varpinu, þótt ekki sé búið að taka formlega afstöðu til þess. Hún sagði að þetta væri líklega skárri kostur en flatur niðurskurður sem hlyti að koma óréttlátlega niður. Halldór hefur boðað að verði ffumvarpið ekki samþykkt beiti hann 9. gr. laga um stjóm fisk- veiða sem heimilar honum að skerða hlut allra er veiða botnfisk og auka botnflskkvóta loðnuskip- anna. Halldór sagði að þetta væri ekki í fyrsta skipti sem ekki væri ljóst hvort meirihluti væri fyrir erfiðum málum sem tengdust stjómun fiskveiða. „Hinsvegar vil ég forðast að skerða almennar aflaheimildir,“ sagði Halldór og bætti við að taka þyrfti á þessu máli og ef menn vildu ekki standa að því á þennan hátt þá yrðu þeir hinir sömu að benda á aðrar leið- ir. Skúli Alexandersson, Abl., sem hefur gagnrýnt ffumvarpið, sagði að það væri ekki hægt að taka einn þátt út einsog í þessu til- viki þ.e. útgerðina og spurði hvar væm tillögur varðandi vanda byggðarlaganna vegna loðnu- brestsins. „í öðm lagi, þá er búið að skerða þorskaflaheimildir um 24 prósent síðan 1987 og það blasir við að skerðingin verði 40- 50 prósent á næsta ári,“ sagði Skúli. „Meðan ástandið er þannig er ffáleitt að leysa vanda loðnu- skipastólsins með því að taka hluta af ffamtíðar þorskaflanum og færa til þeirra,“ sagði Skúli og benti auk þess á að á sínum tíma hefðu útgerðarmenn hafnað því að hafa Aflatryggingarsjóð sem hefði getað leyst þennan vanda nú. -gpm Revkiavík Tvö manndráp Karl og kona stungin til bana Karl og kona voru stungin til bana í höfuðborginni um helgina, auk þess sem sonur veitti föður sínum alvarlegan áverka með hnífi. Aðfaranótt laugardagsins Guðlaugur Pálsson, elsti kaup- maður ( heimi skv. Guinnes-meta- bókinni. Afmæli Guðlaugur Pálsson, kaupmað- ur á Eyrarbakka, verður 95 ára miðvikudaginn 20. febrúar. Haiin tekur á móti gestum að Skipholti 70, annarri hæð, ffá kl. 19:30 á afmælisdaginn. fannst tuttugu og fjögurra ára gömul þorskaheft kona látin í sambýli þroskaheftra að Njörva- sundi, en hennar hafði verið sakn- að frá heimili sínu í Kópavogi frá því á fimmtudag. Lögreglan handtók skömmu seinna tæplega þrítugan mann, íbúa í sambýlinu, sem hefur játað á sig verknaðinn og hefiir hann verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 3. april og til að sæta geðrannsókn. Gæsluvarð- haldsúrskurðurinn hefur verið kærður til Hæstaréttar. Seinnipartinn á sunnudag var lögreglu svo tilkynnt um að tæp- lega fimmtugur maður hefði verið stunginn í kviðinn í húsi við Blesugróf og lést hann skömmu síðar. Lögreglan handtók húsráð- andann, rúmlega fimmtuga konu sem talin er hafa orðið manninum að bana, en hún hefur átt við geð- ræn vandamál að stríða. Hún hef- ur áður komið við sögu lögreglu þegar hún varð manni að bana ár- ið 1974. Á fostudagskvöldið veitti sonur föður sínum áverka með hnifi og flúði síðan af vettvangi. Hann fannst svo daginn eftir og hefur verið úrskurðaður í gæslu- varðhald til 23. mars og til að sæta geðrannsókn. -grh ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3 Hjörtur E. Þórarinsson, fráfarandi formaður Búnaðarfélags (slands, setti búnaðarþing (gær. Tillögur um veru- legan niðurskurð (sauðfjárrækt verða ( brennidepli á þinginu. Mynd: Kristinn. Sauðfjárræktin Óttast byggðaröskun vegna niðurskurðar Tillögur um verulegan niður- skurð í sauðfjárrækt verða í brennidepli á búnaðarþingi sem var sett í gær. Nú þegar hefur komið fram gagnrýni á hugmyndir sjömannanefndar- innar, sem kynntar voru fyrir helgi, og Sigurður Þórólfsson, fulltrúi Dalamanna á þinginu, segir að í tillögum nefndarinnar sé gert ráð fyrir of miklum nið- urskurði á of stuttum tima. Hann segist búast við að bænd- ur muni taka þessum hug- myndum fálega. Tillögur sjömannanefhdarinn- ar ganga út á að laga ffamleiðslu dilkakjöts að markaðsþörf, lækka verulega verð til neytenda og hag- ræða í greininni. Til þess að þessi markmið náist telur nefndin að skera þurfi 70 þúsund fjár strax í haust, en það jafhgildir 13 pró- sentum alls sauðfjár í landinu. Sjömannanefhdin er skipuð fulltrúum helstu samtaka launa- fólks og atvinnurekenda og hags- munasamtaka bænda, auk land- búnaðarráðuneytisins. Innan skamms er von á sambærilegri skýrslu ffá nefndinni um mjólkur- framleiðslu. Byggðaröskun? Haukur Halldórsson, formað- ur Stéttarsambands bænda og annar tveggja fulltrúa þess í nefndinni, segir að tillögur nefnd- arinnar séu raunhæfar og viðsætt- anlegar fyrir bændur. En aðrir viðmælendur Þjóðviljans eru ekki á sama máli. Sigurður Þórólfsson er sauð- fjárbóndi í Fagradal í Dölum og fulltrúi héraðsins á búnaðarþingi. Hann segir ljóst að grípa þurfi til einhverra aðgerða, en lýsir sig ósammála Hauki um að tillögur sjömannanefhdarinnar séu raun- hæfar og viðsættanlegar. - Það er of hratt farið í sakim- ar að ætla að skera niður 70 þús- und fiár á einu ári. Þetta er gert á þeirri forsendu að kjötið muni lækka hjá þeim sem eftir verða, en það gleymist að það kostar sitt að kaupa fiillvirðisrétt til þess að hagræða, segir Sigurður við Þjóð- viljann. Sigurður telur að of mikil grisjun byggðar geti leitt til hruns hennar víða um land og bendir á að í tillögum sjömannanefndar- innar séu ekki hugmyndir um hvað eigi að gera við þá sem bregða búi. Eins og kom fram í í BRENNIDEPLI Sigurður Þórólfsson telur að of mikil grisjun byggðar geti leitt til hruns hennar víða um land og bendir á að í tillögum sjömanna- nefndarinnar séu ekki hugmyndir um hvað eigi að gera við þá sem bregða búi. Þjóðviljanum um helgina er áætl- að að tillögur sjömannanefndar- iimar muni leiða til fækkunar árs- verka í sauðfjárrækt um 1200, úr 3000 í 1800. Sigurður gagnrýnir margt í áfangaskýrslu sjömannanefhdar- innar og telur ýmislegt óljóst. Hins vegar lítur hann hugmyndir um beinar greiðslur til bænda já- kvæðum augum. Of mikið of f Ijótt Gunnar Sæmundsson, for- maður Búnaðarsambands Vestur- Húnavatnssýslu, tekur í sama streng og Sigurður. - Þetta er of mikill niður- skurður á of stuttum tíma. Það þyrfti að gefa mönnum tvö til þrjú ár til viðbótar, segir Gunnar. Tillögur nefhdarinnar gera ráð fyrir að ef ekki tekst að ná tilætl- uðum niðurskurði í haust, verði það sem á vantar skorið flatt nið- ur. Gunnar segist sannfærður um að menn muni hika lengur en til haustsins að taka tilboði um að hætta búskap, en segir að bændur muni ekki þola flata skerðingu. - Ef niðurskurðurinn verður of mikill er hætta á að það bresti flótti í liðið og byggð bregðist víða, segir Gunnar. Gunnar fellst á það sjónarmið að bændur séu í þröngri stöðu vegna krafna um innflutning á landbúnaðarvöram. I Þjóðviljan- um á laugardaginn var hafl eftir Þórólfi Sveinssyni, varaformanni Stéttarsambands bænda, að með því að samþykkja tillögumar væra bændur á vissan hátt að kaupa sér ftið ífá þessum kröfum. Á hinn bóginn segir Gunnar að fulltrúar launafólks og at- vinnurekenda verði að taka á sig ábyrgð á afleiðingum þess mikla niðurskurðar sem sjömanna- nefndin leggur til. — I þessari skýrslu er ekki rætt um úrræði til handa þeim sem eiga að hætta búskap, segir Gunn- ar Sæmundsson. Sársaukafullf Steingrímur J. Sigfusson landbúnaðarráðherra ávarpaði þetta síðasta búnaðarþing á líð- andi kjörtimabili. Hann sagði að erfitt væri að segja til um hvað tæki við af gildandi búvörasamn- ingi, en taldi ljóst að breytingar væra í farvatninu. Fyrir helgina lýsti hann yfir því að tillögur sjö- mannanefhdarinnar yrðu leiðandi fyrir viðræður um nýjan búvöra- samning, en hann sagði við þing- ið í gær að tillögur nefhdarinnar fælu í sér róttækar og erfiðar að- gerðir til lausnar þeim vanda sem sauðfjárræktin stendur frammi fyrir. Haukur Halldórsson sagðist telja tillögur sjömannanefhdar marka timamót, en varaði þingið einnig við því að breytingamar sem biðu íslensks landbúnaðar yrðu ekki sársaukalausar. Það er hins vegar ljóst af við- ræðum við þá Gunnar og Sigurð að þeir telja tillögur sjömanna- nefhdarinnar of sársaukafullar og óttast veralega byggðaröskun verði þær að veraleika. - Ég vona að menn sníði ag- núana af þessum tillögum. Ég trúi því reyndar og treysti að þegar málið verður skoðað nánar muni menn ná farsælli niðurstöðu en þeirri sem þama er lögð til, segir Gunnar við Þjóðviljann. -gg

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.