Þjóðviljinn - 19.02.1991, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 19.02.1991, Blaðsíða 5
Alþvðubandalagið á Austurlandi: Stjórnmálaályktun kjördæmisráðs 8. febrúar 1991 Stjórnmálaumræða á Islandi á næstu mánuðum mótast óhjá- kvæmilega af þeirri staðreynd að alþingiskosningar eru á næsta Ieiti. I umræðunni verður lagt mat á frammistöðu núverandi ríkisstjórnar og spurt hvaða hlut- verki einstakir stjórnmálaflokk- ar hafa að gegna í náinni framtíð. Þegar fjallað er um verk rík- isstjórnarinnar er fyrst og fremst eitt sem upp úr stendur: Arang- urinn á sviði efnahagsmála. Þeg- ar ríkisstjórn var mynduð með þátttöku Alþýðubandalagsins haustið 1988 var svo sannarlega vá fyrir dyrum; framleiðsluat- vinnuvegirnir stefndu í þrot og allt benti til að fjöldaatvinnuleysi yrði staðreynd innan tíðar. Með sameiginlegu átaki ríkisstjórnar og aðila vinnumarkaðarins tókst að afstýra hruni undirstöðuat- vinnuveganna og bæta mjög rekstrargrundvöll fyrirtækjanna án þess að verðbólgan næði sér á fyrra skrið. Þessar aðgerðir ríkis- stjórnar og samtaka launafólks hafa m.a. haft eftirfarandi í för með sér: - Verðbólga er sambærileg eða jafnvel lægri en í ýmsum nágranna- löndum. - Fjöldaatvinnuleysi hefur ver- ið afstýrt. - Viðskiptahalli hefúr minnkað. - Staða atvinnuveganna hefur batnað mjög. Allt þetta hefúr skipt geysilega miklu máli fyrir atvinnulífið á landsbyggðinni, en hrun blasti við því á árinu 1988. Þessar efnahagsaðgerðir hafa leitt af sér rýmun kaupmáttar og telur Alþýðubandalagið á Austur- landi afar brýnt að lejta leiða til að auka kaupmátt á ný. I stað vaxandi launamunar i samfélaginu, sem bitnar ekki síst á konum og lág- launafólki, þarf að jaína laun og lífskjör. Ávinningar og óleyst verkefni Nokkur jákvæð skref hafa verið stigin af núverandi ríkisstjóm til að jama aðstöðu manna og bæta hlut landsbyggðarinnar. Dæmi um slíkt em ákvarðanir um jarðgangagerð, mikilvægur áfangi i jöfnun sím- kostnaðar, flutningur aðalstöðva Skógræktar ríkisins til Egilsstaða og átak í bændaskógrækt á Héraði. Fyrir utan efnanagsaðgerðimar og slíka afmarkaða þætti í byggða- málum telur Alþýðubandalagið á Austurlandi að enn hafi allt of lítið verið gert til lausnar þeim byggða- vanda sem skapast hefur. Nægir i því sambandi að benda á eftirtalin atriði: - Aform em uppi um að stað- setja nýtt álver á suðvesturhomi landsins, en það mun enn magna fólksflótta ffá landsbyggð til hörnð- borgarsvæðis. - Tillögur um valddreifmgu og flutning stjómsýslu frá höfúðborg til landsbyggðar hafa ekki náð fram að ganga. - Brýnar aðgerðir til jöfnunar hafa dregist úr hömlu, m.a. jöfnun orkukosmaðar. Alþýðubandalagið á Austur- landi telur að róttækur vinstri flokk- ur eins og Alþýðubandalagið hafi miklu hlutverki að gegna í íslensk- um stjómmálum á komandi tímum. Hugsjónir jöfhuðar og réttlætis em nauðsynlegar ekki síst þegar efna- hagsmál og byggðamál em annars- vegar, en til þess að viðhorf Al- þýðubandalagsmanna hafi meiri áhrif þarf að efla styrk flokksins og áhrif á Alþingi og í ríkisstjóm. Fyrir Austfirðinga em ýmsir málafiokkar mikilvægari en aðrir, og verður hér á eftir gerð grein fyr- ir meginviðhorfúm Alþýðubanda- lagsins á Austurlandi í nelstu hags- munamálum íbúa fjórðungsins. Sjávarútvegur Alþýðubandalagið á Austur- landi leggur á það aherslu að fiski- miðin við landið séu sameign allrar þjóðarinnar. Sjá verður til þess að arðurinn af nýtingu þeirra renni til þeirra sem starfa við sjávarútveginn og íbúa byggðanna. Markaðslögmál mega ekki ein ráða þróun sjávarútvegsins og nauðsynlegt er að hindra að selja megi aflakvóta milli byggðarlaga takmarkalaust. Þó svo að bæta verði skipulag sjávarútvegsins veralega hvað varðar sókn í nski- stofha, nýtingu fiskimiða og hag- nýtingu afla þá verður ætíð að gæta þess að ganga ekki gróflega á rétt þeirra byggða sem byggja afkomu sína fyrst og fremst á veiðum og vinnslu. Alþýðubandalagið bendir á, að hér eystra standa einstök byggðar- lög höllum fæti vegna vöntunar á samstilltri sjávarútvegsstefnu, sem lýsir sér m.a. í sölu á kvóta burt af stöðvunum og útflutningi á óunn- um fiski, þótt skortur sé a hráefni til vinnslu í landi. Það er forgangs- verkefni að leiðrétta það sem úr- skeiðis hefúr farið í þessum efhum og tryggja lífvænlega afkomu og at- vinnuöryggi fólks í hveiju byggðar- lagi. Alþýðubandalagið á Austur- landi telur einnig að sú þróun sem nú á sér stað innan smábátaflotans sé mjög alvarleg og sýni að rétt hefði verið að binda smábátakvót- ann við viðkomandi byggðarlög í samræmi við tillögur Alþýðu- bandalagsins. Brýnt er að leggja aukna áherslu á fúllvinnslu sjávarfangs á Islandi og auka fjölbreytni í nsk- iðnaði. Jafhffamt þarf að auka menntunarmöguleika á sviði fisk- iðnaðar og kappkosta að gera at- vinnugreinina aðlaðandi. Alþýðu- bandalagið á Ausmrlandi vill m.a. að fiskvinnslufólk í landi njóti hlið- stæðra skattaívilnanna og þeir sem vinna við veiðar og fiskvinnslu á hafi úti. Strax verður að afnema þá óhæfú sem felst í réttleysi fisk- vinnslufólks hvað varðar hetmildir fyrirtækja til að taka það af launa- skrá vegna hráefhisskorts. Móta þarf alhliða fiskvinnslu- stefnu sem hefúr að höfúðmarkmiði að ná sem mestum þjóðhagslegum verðmætum úr þeim afla sem leyft er að veiða hverju sinni og með sem lægstum tilkostnaði, að teknu tilliti til hagsmuna sjávarbyggðanna. Sérstaklega er brýnt að stilla saman innlenda hagsmupi í sjávar- útvegi vegna samskipta Islendinga við Evropubandalagið, vaxandi ásælni útlendinga og hugmynda um að tengja landið við stór efnahags- svæði. Landbúnaður Alþýðubandalagið á Austur- landi telur nauðsynlegt að bæta stöðu sveitafólks og ná fram endur- skipulagningu á hefðbundnum bú- skap með hliðsjón af landkostum og markaði. Sérstaklega er brýnt að treysta stöðu sauðfjárbænda og tryggja lífvænlegan framleiðslurétt á þeim jörðum og svæðum, sem vel em fallin til sauðfjarbúskapar. Ekki á að útiloka að unnt sé að taka upp búskap á jörðum síðar, þótt þær falli úr ábuð vegna samdráttar eða af öðmm ástæðum. Gera þarf samþætta áætlun um atvinnuþróun og landnýtingu í sveitum til að treysta byggðina og kjör bænda. Sérstök þörf er á þessu í þeim byggðarlögum á Austur- landi, sem harðast hafa orðið úti vegna riðuveiki og niðurskurðar, svo og vegna áfalla í loðdýrarækt. Að frumkvæði landbúnaðarráð- herra er nú í sjónmáli samkomulag við bændasamtökin um nýjan bú- vörasamning, þar sem stefnt er að aðlögun landbúnaðarins að breytt- um aðstæðum. Kjördæmisráð telur vænlegan samning spor í rétta átt og því eigi núverandi ríkisstjóm að staðfesta nann fyrir sitt leyti. Alþýðubandalagið á Austur- landi fagnar þeim undirbúningi að skógræktarátaki á Héraði sem stjómvöld hafa beitt sér fyrir í sam- vinnu við bændur. Slíkrar nýbreytni er þörf á fleiri sviðum í sveitum. Þar á m.a. ferðaþjónusta á vegum bænda framtíð fyrir sér, ef rétt er á málum haldið. Mikið skortir á að nóg ffamboð sé á atvinnu fyrir konur í dreifbýli. Því þarf að fylgja vel eftir aðgerð- um til að skapa ný störf fyrir konur í sveitum. Ferðaþjónusta Alþýðubancíalagið á Austur- landi vekur athygli á því átaki til að efla ferðaþjónustu, sem Alþýðu- bandalagið hefúr haft forgöngu um á kjörtímabilinu í góðri samvinnu við aðra flokka. Með ráðgerðum nýmælum í löggjöf um ferðaþjón- ustu verður starfað ferðamálum um land allt treyst með ferða- og upp- lýsingamiðstöðvum í hveiju kjör- dæmi og stuðningi við ráðningu ferðamálafulltrúa. A Austurlandi á ferðaþjónusta góða vaxtarmöguleika, sem Al- pýðubandalagið mun styðja við eft- ír mætti. Leggja þarf áherslu á að öll byggðalög í fjórðungnum verði þátttakendur í þróun ferðamála og tillit verði tekið til ferðaþjónustu í skipulags- og umhverfismálum. Al- Íýðubandalagið á Austurlandi endir í þessu sambandi á það að- dráttarafl sem óbyggðir, hálendi og jöklar hafa fyrir ferðamenn og þarf að taka tillit til þess í náttúmvemd og við skipulag mannvirkja. Oilai-ogiðnaðannál Einn af möguleikum til bættra lífskjara og hagvaxtar á Islandi er nýting á orku fallvatna og jarðhita. Forsenda þess er þó að hagnaður af orkusölu sé tryggður að itmstu kröfúm um mengunarvamir sé fúll- nægt og að staðsetning og rekstur hugsanlegra fyrirtækja samræmist annarri atvinnuuppbyggingu og æskilegri þróun bvggðar í landinu. Alpýðubandalagið á Austur- landi telur að fyrirhugaðar fram- kvæmdir við 210 þúsund tonna ál- ver á Keilisnesi fúllnægi ekki þess- um skilyrðum. - I fyrsta lagi em þau drög að orkusölusamningi sem fyrir liggja langt frá því að vera fúílnægjandi fyrir Landsvirkjun og íslenska orkunotendur. Samningsdrögin fela í sér gifurlega áhættu og stóran hluta samningstímans er orkuverð- ið langt undir raunvemlegu kostn- aðarverði. Ef verksmiðjan verður að vemleika mun almenningur og innlent atvinnulíf þurfa að greiða hærra orkuverð en ella nema um- talsverðar breytingar verði gerðar á tieim orkusölusamningi sem nú iggur fyrir. - I öðm lagi mun útblástur mengandi efna í landinu aukast veralega með tilkomu verksmiðj- unnar ef mengunarvamir verða óbreyttar frá því sem nú er gert ráð fyrir. Þetta getur haft alvarleg áhrif á ímynd Islands sem lands þar sem mengun er hverfandi og þannig óbeint haft áhrif á markaðssetningu íslenskra afurða í framtíðinni og kynningu landsins sem áhugaverðs ferðamannalands. - I þriðja lagi t ninu fram- kvæmdir við 210 þúsund tonna ál- ver ásamt tilheyrandi orkufram- kvæmdum á aðeins fíóram ámm skapa mikla þenslu í pjóðfélaginu og sá árangur sem hefur náðst í emahagsjnálum yrði í vemlegri hættu. Oviss ávinningur á einu sviði gæti þannig haft mjög skaðleg áhrif a annað atvinnulíf og aðra at- vinnuuppbyggingu. - Að síðustu bendir allt til að staðarval álversins stuðli að enn frekara fólksstreymi til suðvestur- homsins en verið hefur á undan- fómum ámm. Reynslan af orkufrekum iðnaði hérlendis sýnir að ekki á að láta út- lendinga hafa forystu um uppbygg- ingu á þessu sviði né lokaorð um staðsetningu stóriðjufyrirtækja. Samgöngumál Alþýðubandalagið á Austur- landi telur að umbætur á sviði sam- gangna séu einn mikilvægasti þátt- urinn til að stuðla að heilbngðri þróun byggðar í landinu öllu. Tryggja verður áframhaldandi upp- byggmgu flugvalla út um allt land og brýnt er að viðhalda öflugum samgöngum á sjó. Sú uppbygging Egilsstaðaflugvallar sem rikis- stjómin hefúr látið vinna að á und- anlomum missemm getur haft mjög jákvæð áhrif á atvinnulíf og þróun byggðar á Austurlandi á næstu áram. Hvað varðar samgöngur á landi ber að stefha að því að Ijúka lagn- ingu bundins slitlags á alla helstu vegi hið fyrsta og koma öllum byggðum í öruggt vegasamband. Leggja ber áherstu á bættar sam- göngur hið fyrsta milli Norður- og Austurlands til að tengja þessa fjórðunga og þar með landið allt betur saman. Þá ber sérstaklega að fagna áformum um jarðgangagerð og verður nú þegar að móta skýra stefnu um þær framkvæmdir og kappkosta ao nota við þær nýjustu og hagkvæmustu tækni. Hvað varðar forgangsröð jarð- gangaframkvæmda ber að leggja megináherslu á að jarðgöng ijúfi einangmn byggða. Jarðgöng á Vest- fjörðum og Austurlandi eiga að vera forgangsverkefni á næstu ár- um. Sú stefnumótun sem ríkis- stjómin hefúr lagt granninn að í þessum efnum er í raun eitt merk- asta skref sem stigið hefur verið á undanfömum ámm til nýrrar og skynsamlegrar byggðastefnu. Byggðamál Eitt helsta verkefni íslenskra stjómmálamanna á komandi ámm þarf að beinast að því að stöðva fólksstreymið frá landsbyggð til höfúðborgarsvæðis. Til að ná ár- angri á þessu sviði er m.a. nauðsyn- legt að gera eftirtaldar ráðstafanir: a) Að efla atvinnuvegi lands- byggðarinnar og stuðla að jákvæð- um viðhorfum til þeirra. b) Að bæta samgöngur á land- inu öllu. c) Að auka opinbera þjónustu á landsbyggðinni og flytja ýmsar op- inberar stofnanir ut á land. d) Að sftiðla að því að ný fyrir- tæki verði staðsett úti á landi. e) Að jafna lífskjör í landinu m.a. með því að gera ráðstafanir til að tryggja alls staðar sama vöm- verð, sama húshitunarkostnað og sama símakostnað. f) Að styrkja samráð og sam- starf í einstöícum hémðum og hefja undirbúning að því að komið verði á millistjómstigi sem fengi það hlutverk að fjalla um málefni ein- stakra svæða. Millistjómstigið hefði markaða tekjustofna og fengi í hendur vald sem nú er í höndum ýmissa stofnana í stjómsýslumið- stöðvum höfúðstaðarins. Umhverfisvernd Umhverfisvemd er að verða æ ríkari þáttuj í stjómmálaumræðu hérlendis. A því sviði hefúr Al- þýðubandalagið verið framkvæðis- aðili og Austfirðingar lagt mikið til þessara mála síðustu áratugi. Þessu starfi mun Alþýðubandalagið halda markvisst áffam. Með stofnun umhverfisráðu- neytis á síðasta ári fékkst löngu tímabær viðspyma fyrir þennan málaflokk í stjómkerfinu. Þeim ár- angri þarf að fylgja eftir á öllum sviðum stjómsýslu, þannig að hvar- vetna sé tekið mið af umhverfís- hagsmunum, m.a. í þjóðhagsáætl- unum. Náttúm- og umhverfísvemd þarf að vera undirstöðuþáttur í öllu skipulagi varðandi landnotkun og mannvirkjagerð og stór svæði þarf að friðlýsa og varðveita þannig sem mest ósnortin. Koma þarf i veg fyrir mengun af völdum iðnaðar og bæta úr pví sem pr áfátt, m.a. í fiskiðnaði. Atak verður að gera til-að leysa með viðunandi hætti sorphirðu og sorpeyðingu og stuðla að endur- vinnslu úrgangs og bættri um- gengni hvarvetna. Alþýðubandalagið á Austur- landi leggur áherslu á hlut firjálsra félagasamtaka í umhverfismálum og telur brýnt að gott samstarf sé Flokkurinn styður tillögur um náttúmstofur í hveiju kjördæmi til að sinna eftirliti og rannsóknum í þágu umhverfismála. Umhverfisvemd verður ekki tryggð pema í alþjóðlegu samstarfi. Fyrir Islendinga skiptir á þessu sviði mestu máli að tryggja vemdun sjávarauðlinda og koma í veg fyrir mengun, m.a. geislamengun af úr- gangi ffá kjamorkuverum og vopnabúnaði á höfúnum. Istand og alþjóðlegt samstarf Um þessar mundir em að eiga sér stað miklar breytingar á sviði milliríkjaviðskipta og, alþjóðlegs efhahagssamstarfs. íslendingum ber að fylgjast með þessari þróun af gaumgæfhi, en allar,ákvarðanir um breytingar á stöðu íslands þarf að taka af mikilli varfæmi. Alltof lítið hefur verið gert til að kanna þá möguleika sem Island getur átt með því að standa sem óháð ríki utan allra efhahagsbanda- laga. Þá möguleika verður að at- huga miklu oetur og kynna þjóð- inni, áður en ákvarðanir em teknar um að tengja landið stómm efna- hagsheildum eins og Evrópsku efnahagsstæði. Ákveðin öfl hérlendis með Sjálfstæðisfjokkinn í fararbroddi boða nú að Island eigi að sækja um aðild að Evrópubandalaginu. Al- þýðubandalagið á Austurlandi hafnar algjörlega slíkri aðild, sem fæli í sér framsal á stjómarfarslegu fúllveldi og opnaði útlendingum aðgang að náttúmauðlindum þjóð- arinnar. Við eigum ekki að einangra okkur innan tollmúra Evrópustór- veldis, heldur hagnýta okkur legu landsins og sérstöou og ástunda goð samskipti við allar þjóðir heims. Alþýðubandalagið á Austur- landi ítrekar að vera hers í landinu og aðild þjóðarinnar að NATO er tímaskekkja. Það væri í fúllu sam- ræmi við þróun alþjóðamála að her- stöðvasamningnum frá 1951 verði sagt upp og Island hætti aðild að NATO. Því þarfað herða baráttuna fyr- ir hlutlausu Islandi sem skipi sér ut- an hemaðarbandalaga, svo og fyrir því að allar herstöðvar hér á landi verði lagðar niður. Bægja verður ffá Íeirri stöðugu hættu sem fylgir um- érð kjamorkuknúinna skipa og kafbáta með kjamorkuvopn um borð á hafsvæðum í grenno við Is- land. LHskiörogjöfnuður * Alþýðubandalagið á Austur- landi vill að ötullega verði unnið að auknum jöfnuði meðal landsmanna á öllum sviðum óháð búsetu manna og kynferði. Tryggja þarf sem jafh- astan aðgang að félagslegri þjón- ustu og jafhrétti til náms og na sem ipestum jöfnuði launa og lífskjara. Ohikað ber að beita skattakerfi í því samþandi. I nútímasamfélagi á að leita allra leiða til að stytta vinnutíma með því að auka afköst og hækka laun fyrir dagvinnu. Mikilvægt er að endurskipu- leggja atvinnulíf landsmanna þann- ig að auka megi hagsæld og bæta hfskjör. Kjördæmisráð Alþýðubanda- lagsins á Austurlandi hvetur kjósendur til að kynna sér stefnu flokksins og veita G-Iistanum öfl- ugan stuðning í komandi alþing- iskosningum. Þriðjudagur 19. febrúar 1991 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.