Þjóðviljinn - 19.02.1991, Blaðsíða 6
ERLENDAR FRETTIR
Persaflóastríð
Landsókn á hverri stundu
Gorbatsjov reynir að koma á vopnahléi, sagður hafa í lengsta lagi hálfan annan sólarhring tilþess. Franskur
hershöfðingi segir varnargetu Irakshers á þrotum
Míkhaíl Gorbatsjov, Sovét-
ríkjaforseti, hefur senni-
lega ekki nema 24 klukkustund-
ir, og í mesta lagi 36, til að koma
á vopnahléi með aðilum Persa-
flóastríðs. Þetta hafði franska
blaðið Le Monde í gær eftir
þarlendum heimildum, sem það
kallaði áreiðanlegar.
Tareq Aziz, utanríkisráðherra
Iraks, var í gærkvöldi á heimleið
til Bagdað frá Moskvu, eftir við-
ræður þar við Gorbatsjov. Lagði
Sovétríkjaforseti fyrir hann á
fiindinum ífiðartillögur ffá stjóm
sinni, þær fyrstu fastmótuðu sem
Sovétmenn leggja ffam í Persa-
flóadeilu. - Efhi tillagnanna hef-
ur ekki verið birt opinberlega, en
Le Monde hefur eftir heimildum
sinum um þetta að meginatriði
þeirra sé að vopnahlé verði gert
gegn því að Irakar lofi statt og
stöðugt að flytja her sinn ffá Kú-
væt þegar i stað og án skilyrða.
Þýska blaðið Bild telur að tillögur
Gorbatsjovs séu í fjórum liðum
og á þessa leið:
1. Irakar hörfi ffá Kúvæt án
skilyrða.
2. Sovétríkin skuldbindi sig til
að tryggja að engin lönd verði
tekin af Irak eða stjómarfari þar
breytt.
3. Sovétríkin beiti sér gegn
því að Irak og Saddam forseta
þess verði refsað.
4. Önnur deilumál i Austur-
löndum nær, svo sem Palestínu-
málið, skulu tekin til umræðu.
Svo er að heyra að Gorbatsjov
beiti sér af kappi í þessu máli.
Hann hringdi í gær í Helmut
Kohl, sambandskanslara Þýska-
lands, og ráðfærði sig við hann
um málið. Þá segir Le Monde að
Gorbatsjov hafi beðið Bandarikin
að ffesta því að hefja sókn gegn
Irökum á landi í tíu daga, í von
um að á þeim tíma tækist að tala
Iraka til, en að Bandaríkjastjóm
hafi ekki ljáð máls á svo löngum
fresti.
I fféttaskeytum um Persaflóa-
strið er því nú haldið ffam að sókn
bandamanna á landi geti hafist þá
og þegar, jafnvel innan nokkurra
klukkustunda. Daniel Gazeau,
næstráðandi franska herliðsins á
Persaflóasvæði, hélt þvi ffam á
fréttamannafundi í gær að íraski
herinn væri nú orðinn svo hart
leikinn af loftárásum bandamanna
að nærri lægi að hann væri ófær
um að veijast sókn á landi. NBC-
sjónvarpsstöðin segir bandaríska
foringja í her og leyniþjónustu
hafa reiknað út á tölvum að íraski
herinn í Kúvæt og syðst i írak hafi
látið um 82.000 manns fallna og
særða a.m.k. af um 545.000
manns, sem hafi verið í vamarlin-
um þar er óffiðurinn hófst.
Tvö bandarísk herskip lösk-
uðust í gær er þau rákust á tund-
urdufl Iraka og særðust fjórir
menn um borð í öðm þeirra.
Bendir þetta til þess að skip í flota
bandamanna séu komin innst á
flóann, enda mun herfloti Iraka að
mestu úr sögunni. Þetta mun vera
í fyrsta sinn, sem herfloti banda-
manna verður fyrir tjóni af völd-
um óvinarins.
Reuter/-dþ.
Lundúnaborg
Sprenging á Viktoríustöð
Olli talsverðu manntjóni og gífurlegu umferðaröngþveiti. IRA talinn hafa verið að verki
Einn maður beið bana og um
fjörutíu særðust, þar af
nokkrir alvarlega, er sprengja
sprakk í gærmorgun á Viktor-
íustöð, einni fjölförnustu járn-
brautarstöð Lundúna. Lögregl-
an teiur að Irski lýðveldisher-
inn (IRA) hafl verið þar að
verki.
Þremur stundum fyrr, fyrir
dögun, sprakk sprengja á Padd-
ingtonstöð þar í borg, sem einnig
er fjölfarin, en þar var þá fátt
manna og hlaust ekkert manntjón
af. Hinsvegar var fjöldi manns á
Viktoríustöð að koma úr lestum á
Hryðjuverk
kókaínbaróna
200 kílóa sprengja sprakk við
nautaatsvang í Medellín í Kólom-
bíu á laugardagskvöld, með þeim
afleiðingum að 22 menn biðu
bana og 176 særðust.
Lögregla kennir um kókaínbar-
ónum, en Medellín hefur verið köll-
uð höfuðstaður þeirra. Meðal þeirra
sem fórust voru niu lögreglumenn,
og telur lögreglan að hryðjuverk
þetta hafi verið framið til að hræða
hana ffá því að beita sér gegn eitur-
Iyfjahringunum.
leið til vinnu er sprengingin varð
þar. Mun mannskaðinn einkum
hafa orðið af málmtætlum sem
skullu á fólkinu. Þijú böm eru
meðal hinna særðu. Sprengjan
mun hafa verið falin á meðal
síma- og miðasöluklefa.
Af þessu leiddi auk annars eitt
mesta umferðaröngþveitið í sögu
borgarinnar, því að eftir spreng-
inguna á Viktoriustöð lokaði
stjóm bresku jámbrautanna öllum
helstu jámbrautarstöðvum þar, en
þær em 14 að tölu, af ótta við að
sprengjum hefði verið komið fyr-
ir á fleiri stöðvum. Um hálf milj-
ón manna á leið í vinnu var þá á
leið að borgarmiðju með lestum
og urðu miklar umferðarstíflur
viðsvegar um borgina er fólk
þetta reyndi að komast á ákvörð-
unarstað með öðmm farartækjum,
einkabílum, strætisvögnum og
neðanjarðarlestum.
Talsmaður jámbrautanna
sagði að aldrei fyrr hefði öllum
þessum stöðvum verið lokað sam-
tímis, ekki einu sinni 1940, þegar
loftárásir Þjóðverja á Lundúnir
vom sem mestar.
Tilræði þessi þykja benda til
þess að IRA sé á ný að hefja
hryðjuverk gegn óbreyttum borg-
umm í Bretlandi. Það hefúr flokk-
ur þessi látið vera þar í landi síðan
1983.
Reuter/-dþ.
Sundurtættir bllar eftir sprengjutilræði IRA við breska hermenn I Þýska-
landi - nú virðist standa til að leggja sprengjur fyrir óbreytta breska
borgara.
Sovétríkin
Bou^ainville
Þúsundir
dauðsfalla
Læknar á Bougainville, einni
Salómonseyja, telja að vera
kunni að um 3000 manns hafi
látist á eynni af völdum hafn-
banns, sem stjórn Papúu-Nýju
Gíneu setti á hana í maí s.l.
Fólk þetta hefúr að sögn lækn-
anna látist úr ýmsum sjúkdómum,
sem hægt er að lækna menn af en
hafa orðið banvænir vegna þess að
lyf og bóluefhi hafa ekki fengist
flutt til eyjarinnar síðan hafhbannið
var sett.
Bougainville heyrir undir
Papúu- Nýju Gíneu en eyjarskeggj-
ar vilja losna úrþví sambandi. Setti
Papúustjóm hafnbannið á eyna til
að þvinga íbúa þar til að hverfa ffá
þeim kröfum. Stjóm Papúu-Nýju
Gíneu lofaði í jan. í samningi við
uppreisnarmenn á Bougainville að
aflétta hafhbanninu, en mun ekki
hafa látið verða af því enn.
Arekstursstefna hjá æðstaráði
Virðist œtla að þvinga fram atkvœðagreiðslu um sambandslagasamning
í lýðveldum sem neita að taka þátt í henni
að greiða fyrir innleiðslu
Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð við andlát
og jarðarför
Péturs J. Jóhannssonar
Guðrún Sæmundsdóttir
Þröstur Pétursson Drffa Marinósdóttir
Ægir Pétursson Brynhildur Pétursdóttir
stjúpdætur og barnabörn
Hávarður Karl Reimarsson
Hátúni 10
verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu miðvikudaginn 20. febrúar
kl. 10.30.
Aðstandendur
Æðstaráð Sovétríkjanna
kom saman í gær og stend-
ur þinghald þess í þrjá mánuði
að þessu sinni. Segja sumir
fréttaskýrendur að það geti haft
úrslitaþýðingu viðvíkjandi
framtíð Sovétríkjanna.
Eitt af fmmvörpum þeim, sem
lagt verður fyrir æðstaráðið á
næstunni, er frá forsætisneíhd
þess og viðvíkjandi þjóðarat-
kvæðagreiðslu um nýjan sam-
bandslagasáttmála, sem sovéska
stjómin hefúr lagt fram. Markmið
stjómarinnar með þeim sáttmála
er að tryggja einingu Sovétrikj-
anna og koma í veg fyrir að ein-
stök lýðveldi gerist sjálfstæð.
Þjóðaratkvæðagreiðslan á að fara
fram 17. mars.
I frumvarpi forsætisnefndar
æðstaráðs er lagt til að gripið
verði til ráðstafana til að tryggja,
að „þjóðaratkvæðagreiðslan fari
fram í Sovétríkjunum öllum ...
óháð ákvörðunum og ráðstöfun-
um stjómvalda á einstökum
svæðum í því sambandi“.
Með þessu frumvarpi þykir
mörgum að stefnt sé í árekstur við
Eystrasaltslýðveldin þrjú, Ar-
meníu, Georgíu og rússneska
sarnbandslýðveldið. Eystrasalts-
Jeltsln - stefnir hann á sovéska
forsetastóiinn?
Iýðveldin og áminnst tvö lýðveldi
í Kákasus hafa gefið til kynna að
þau muni engan hlut að þjóðarat-
kvæðagreiðslu þessari eiga. Rúss-
neska stjómin hefúr í hyggju að
spyija kjósendur í þjóðarat-
kvæðagreiðslunni hvemig þeim
lítist á að kjósa Sovétríkjaforseta í
beinum og almennum kosning-
um. Er þetta talið boða að Borís
Jeltsín, Rússlandsforseti og öflug-
asti andstæðingur Gorbatsjovs
forseta, hugsi sér að keppa við
hann um embættið.
Af öðmm málum, sem tekin
verða fyrir á þinginu, má neíha
ráðstafanir í verðlagsmálum, sem
eiga
markaðsbúskapar og gert er ráð
fyrir að hækka muni framfærslu-
kostnað almennings, og breyting-
ar í her- og lögreglumálum.
Fijálslyndir og róttækir stjóm-
málamenn óttast að í því síðar-
talda muni Gorbatsjov skipa sér
við hlið íhaldssamra kommúnista,
sem vilja sterka stöðu hersins og
leyniþjónustunnar KGB.
Róttækir þingmenn bám í
upphafi þingfundar í gær fram til-
lögu um að aðfarir sovéska hers-
ins í Eystrasaltslöndum undan-
fama mánuði yrðu teknar til um-
ræðu, en þeirri tillögu var vísað
frá. Reuter/-dþ.
6 SlÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 19. febrúar 1991
170fórust
Yfir 170 menn fórust á föstu-
dagskvöld í Thung Maproa,
þorpi á taílenska hluta Malaja-
skaga, er vörubíll með farm af
sprengiefni sprakk í loft upp.
Kalla yfirvöld þetta mannskæð-
asta umferðarslysið, sem sögur fari
af í Taílandi. Vömbíllinn lenti út af
veginum og valt og þyrptust þorps-
búar þá umhverfis hann. Varð þá
sprengingin. 35 hús í þorpinu
hmndu í rústir við sprenginguna.