Þjóðviljinn - 19.02.1991, Síða 7

Þjóðviljinn - 19.02.1991, Síða 7
Svo mælir sjömannanefnd Skynsamleg lausn eða skaðræðishugmynd? Afangaskýrslan um sauðjjárrækt rakin í helstu atriðum Steingrímur J. Sigfússon landbúnaðarráðherra skip- aði sjömannanefndina 21. mars 1990, í framhaldi af og í sam- ræmi við febrúarsamningana á vinnumarkaði. í henni sátu full- trúar launþega, atvinnurek- enda, bænda og stjórnvalda. Samkvæmt skipunarbréfi var hlutverk nefndarinnar að: „...setja fram tillögur um stefnumörkun, er miði að því að innlend búvöruframleiðsla verði hagkvæmari og kostnað- ur lækki á öllum stigum fram- leiðslunnar, í búrekstri bónd- ans, á vinnslu- og heildsölustigi og í smásöluverslun“. 16 manns hafa komið beint við sögu í störfúm sjömanna- nefndar, auk þess sem 20 manns hafa mætt á fúndi hennar, sem urðu 34 alls. Undir áfangaskýrsluna skrifa Asmundur Stefánsson, forseti ASÍ, Hjörtur Eiríksson frá Vinnu- málasambandi samvinnufélag- anna, Haukur Halldórsson, for- maður Stéttarsambands bænda, og Hákon Sigurgrimsson, fram- kvæmdastjóri þess, Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri Vinnuveitendasambands Islands, Ögmundur Jónasson, formaður BSRB, og Guðmundur Sigþórs- son, skrifstofústjóri landbúnaðar- ráðuneytisins. Vandamálin og lausnirnar * Fullvirðisréttur allra bænda á landinu nemur um 12 þúsund tonnum kindakjöts á ári. Tals- verður hluti réttarins er ónotaður, vegna leigusamninga, riðuniður- skurðar osfrv. Sá réttur getur orð- ið virkur á næstu 2-3 árum. Þetta þarf að koma í veg fyrir. * Framleiðsla innan fúllvirð- isréttar var 9200 tonn árið 1990, sem er um 1000 tonnum meira en nemur innanlandssölu. * Til að minnka framleiðslu- réttinn niður í að samsvara fram- leiðslu ársins 1990 þarf að skerða réttinn um 2700 tonn, eða um 23%. * Til að ná samræmi við inn- anlandsneysluna 1990 þarf að skerða réttinn um 3700 tonn eða 31%. Tillögur sjömannanefndar 1) Sauðfjárframleiðslunni verði settur nýr rammi til 6 ára, frá hausti 1992 að telja, en þá kemur á markað fyrsta framleiðsl- an sem fellur utan ramma gild- andi búvörusamnings. 2) Lögð verði niður föst verð- og söluábyrgð ríkisins á tilteknu magni afurða. I staðinn komi beinar greiðslur til bænda, í fyrsta sinn 1992, sem miðast við spá um innanlandsneyslu á komandi ári. 3) Réttur bænda til þess að fá greiðslur ffá ríkinu kallast „greiðslumark“, sem mælt er í kjötmagni. Bændur sem hafa full- virðisrétt núna fái í hlutfalli við hann sitt greiðslumark. Framlagið komi að mestu í stað niður- greiðslna og greiðist óskert, þótt framleiðsla bóndans sveiflist inn- an sveigjanlegra marka. Heildargreiðslumark fyrir verðlagsárið 1. sept. 1992 til 31. ágúst 1993 jafngildi 8300 tonn- um. Þessa viðmiðun skal taka til endurmats fýrir 15. sept. 1991. 4) Bændum verði fijálst að eiga viðskipti með greiðslumark. 5) Öllum verði heimilt að framleiða og selja án opinbers stuðnings. 6) TiIIögur um kvótakerfi og verðmyndun skoðast sem tíma- bundin ákvörðun og liður í undir- búningi búvöruframleiðslunnar að fijálslegri viðskiptaháttum. Enginn réttur verði því tryggður með þessu kerfi fram yfir árið 1997. 7) Núverandi verðlagningar- kerfi sauðfjárafúrða verði haldið næstu 2 ár. Verð haustið 1991 lækki um 2% ffá grundvelli og um 4% ffá verðlagsgrundvelli 1992. Að því loknu verðir kann- aðir kostir umboðsviðskipta. Jafnffamt verði leitast við að lækka verð aðfanga. Tímaáætlunin í helstu dráttum er tillaga sjö- mannanefndar að aðgerðum á þessa leið, og er þó sleppt að nefna ýmis útfærsluatriði: * Frá 1. maí 1991 til 31. ágúst 1992 kaupi ríkissjóður fúllvirðis- rétt til sauðfjárframleiðslu sem svarar til allt að 3700 tonna. * Fyrir 1. október 1991 skal miðað við að heildarfækkun í bú- stofni verði 13% og samdráttur í virkum fúllvirðisrétti amk. 900 tonn. Ríkissjóður kaupi í þessu skyni allt að 70 þúsund ær til slátrunar og láti afurðir af þeim ekki koma ffam á innlendum markaði. * Þeir bændur sem afsala sér öllum fúllvirðisrétti, fái 5000 kr. fyrir hverja vetrarfóðraða kind sem þeir farga í haust, en annars kr. 3750. Fyrir óvirkan fullvirðisrétt fá- ist sem svarar 80% af greiðslum fýrir virkan rétt. Fullvirðisréttur vegna riðu- niðurskurðar hefúr sömu stöðu og virkur réttur. * Virkur fúllvirðisréttur bænda verði færður niður með opinberri ákvörðun, náist mark- miðin að ffaman ekki með frjáls- um uppkaupum. Greiddar verði 500 kr. fýrir hvert kg. Slík niðurfærsla á virkum rétti verði jafnt hlutfall á hveiju bú- markssvæði, að meðtöldum ffjálsum uppkaupum sem höfðu þar i för með sér bústofnsfækkun. * Frá 1. sept. 1991 til 31. ág- úst 1992 gefst bændum áfram kostur á fijálsum samningum um afsal fúllvirðisréttar og verði þá greiddar 400 kr. á kg. * Frá 1. sept. 1991 verði heimiluð sala á fúllvirðisrétti milli einstaklinga. Ríkissjóður hafi heimild til að kaupa 20% af fúllvirðisrétti í hverri sölu, fýrir 400 kr. á kg. Þó sé leyfilegt að hafa hlutfall ríkisins lægra eða ekkert á nánar tilgreindum svæð- um sem byggja afkomu nær ein- göngu á sauðfjárrækt. Takmarkanir á viðskiptum með fúllvirðisrétt falla niður l.sept. 1992. * Takist ekki á þennan hátt að færa fullvirðisrétt niður um 3700 tonn, verði hann færður niður að því marki fýrir 15. sept. 1992 og komi greiðsla fýrir. * Frá 1. sept. 1991 til 31. ág- úst 1992 sé hveijum bónda heim- ilt að auka fúllvirðisrétt sinn um 15% frá því sem nú er með kaup- um á rétti. * Heildargreiðslumark fýrir verðlagsárið 1. sept. 1992 til 31. ágúst 1993 jafngildi 8300 tonn- um. Þessa viðmiðun skal taka til endurmats fyrir 15. sept. 1991. * Miðað skal við að í upphafi hvers verðlagsárs, 1. sept., séu kindakjötsbirgðir sem duga þriggja vikna neyslu. * Framleiðsla sem verður um- fram innanlandsneyslu sé mark- aðssett með markaðsstuðningi innanlands eða utan, en greiðslu- mark næsta árs lækkað sem nem- ur þeim mun á framleiðslu og sölu. * Bændur geti framleitt „utan kerfisins“, með sérstökum samn- ingum við afúrðastöð, án opin- bers stuðnings, kjöt sem er um- fram innanlandsneyslu, t.d. til út- flutnings. * Utflutningur kindakjöts eftir 1. sept. 1992 verður á ábyrgð bænda og vinnslustöðva. * Skattlagning hindri ekki hagræðinguna eða viðskipti með greiðslumark. * Endurskoðuð verði ýmis framlög sjóða og gjöld á fram- leiðslu. * Bændum sem bregða búi verði auðveldað að selja jarðir sínar. Hvers vænta skattborgarinn og neytandinn? Sjömannanefndin telur á næstu árum unnt að ná fram 20- 30% verðlækkun á kjúklingakjöti og töluverðri lækkun á svína- og nautakjöti. Kindakjöt þurfi því að lækka verulega að raunvirði til þess eins að halda núverandi markaðsstöðu. Útreikningar sýna að verð kindakjöts þarf að lækka um 4- 5% á ári á næstu árum til að það haldi núverandi markaðsstöðu, eða um 20% á næstu 5-6 árum. Ríkisframlögin * Framlög ríkisins vegna sauðfjárframleiðslunnar hafa undanfanin ár numið um 3,5-4 miljörðum króna á ári, á verðlagi ársins 1991. Þetta eru niður- greiðslur, ffamlög vegna sauðfjár- veikivama, útflutningsbóta og Framleiðnisjóðs landbúnaðarins. * Sjömannanefnd bendir á að þetta séu á fjárlögum 1991 um 4% heildarútgjalda ríkisins og óraun- hæft að reikna með auknum fram- lögum. Landbúnaðarstefnan hljóti að taka mið af því að almennt sé krafist niðurskurðar á þessum framlögum. ÓHT Þriðjudagur 19. febrúar 1991 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7 Miljónir kr. á verðlagi I mars 1991 -rr-3865 Ríkisútgjöld vegna sauðfjárframleiöslu Hámark skv. tillögum Sjömannanefndar i i 1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 Heimild: Sjðnnmaretnd. ÞJÓOVIUINN IÓHT Vinningstölur laugardaginn 16. feb. '91 VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA 1. 5af 5 1 6.993.607 2. 4«(^ 4 183.273 3. 4af 5 187 6.762 4. 3af5 6.782 435 Heildarvinningsupphæð þessa viku: 11.941.363 kr. i« UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002 Kindakjötið Umframframleiðsla i Innanlandssala i I I TONN FuUvirdisrétturinn_ 12000 10500 9000 7500 6000 4500 3000 1500 0 1984 1985 1986 1987 1988 1989 1990 ÞJÓÐVILNNN / ÖHT

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.