Þjóðviljinn - 02.03.1991, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 02.03.1991, Blaðsíða 15
^MfU'V'FA^ *» •&**>>.«,J/V>-.í..'\ ♦ >X Yfirlýsing Birnu Þórðardóttur á félagsfundi Alþýðubandalagsins í Reykjavík, laugardaginn 23.janúar 1991 „Fyrst af öllu vil ég þakka þeim sem studdu mig í forvali AI- þýðubandalagsins í Reykjavík og kunna að vera inni. Ég fór ekki leynt með, að ég gaf kost á mér í forval Alþýðu- bandalagsins í Reykjavík til þess að fá fram hvort vilji væri til þess innan félagsins að gera grundvall- arbreytingar á þeirri stefnu sem fulltrúar félagsins hafa flutt á Al- þingi. Að Ioknu forvali, þar sem ég hafnaði í 6. sæti, bauð formaður kjörstjómar mér að taka sæti á lista Alþýðubandalagsins í Reykjavík, eitthvert af sætunum sex til átta eða níu. Ég hafnaði þessu boði vegna þess að ég get ekki tekið sæti á lista sem ég get ekki stutt og get ekki kosið. Margt er það í stefhumiðum Alþýðubandalagsins sem fellur að pólitískum sjónarmiðum mín- um og margir em félagamir hér sem standa mér öðrum nær, ann- ars væri ég ekki í flokknum. En hversu góð sem stefhan er þá skiptir sköpum hveijir flytja hana. Að fenginni reynslu treysti ég ekki núverandi og verðandi full- trúum Alþýðubandalagsins í Reykjavík á þingi. Mér finnst mestu varða nú að beijast fyrir því að launafólk öðl- ist trú á sjálft sig og möguleika til að taka málin í eigin hendur, en það verður ekki á meðan fólk er lítilsvirt með smánarlaunum. Ég hef enga trú á að foringjar leysi vandann. I ýmsum meginmálum hef ég aðra afstöðu en haldið hefur verið á lofti í núverandi stjómarsam- starfi; nægir að nefna þjóðarsátt- ina, aðlögun að Evrópuauðvald- inu, byggðamál og hermálið. Það vinnst hvergi sigur nema vakin sé upp almenn barátta. Ég mun vinna áfram að þess- um málum og öðrum innan Al- þýðubandalagsins í Reykjavík þegar færi gefst. En það er einnig nauðsynlegt að fmna farveg fyrir starf sem flokkurinn sinnir ekki. Um skipulag þess mun vinstri- vængurinn innan og utan Alþýðu- bandalagsins funda innan skamms. Af framansögðu er ljóst að ég tek ekki þátt í atkvæðagreiðslu um framboðslista Alþýðubanda- lagsins í Reykjavík sem_ verður afgreiddur hér á eftir. Ég kem ekki heldur til með að taka þátt í kosningastarfi félagsins. Það er heiðarlegast að koma því á fram- færi hér. Með þessu er ég ekki að segja mig úr Alþýðubandalaginu í Reykjavík og vona að innan og utan félagsins geti ég unnið áffarn að sameiginlegum baráttumálum með félögum sem um það eru sammála.“ Birna Þórðardóttir Rannsóknir Norrænt sam- starf á sviði orkumála Norrœna orkurannsókna- nefndin lýsir eftir hug- myndum Norræna orkurannsókna- nefndin lýsir eftir nýjum hug- myndum um samnorræn rann- sóknaverkefni á sviði orku- mála, en á þessu ári veita Norð- urlöndin samanlagt 20 miljónir norskra króna til slíkra verk- efna. Að sögn Jakobs Bjömssonar orkumálastjóra, sem á sæti í nefhdinni, taka íslenskir sérfræð- ingar nú þátt í tveim sviðum þessara rannsókna, um íjarhitun og um orku og samfélag, en verk- efhi eru auk þess í gangi um líf- ræna orku og umhverfl, eldsneyt- ishlöður, fast eldsneyti og olíu- tækni. Jakob sagði að öll aðkallandi verkefni á sviði orkumála sem heppilegt er að leysa í norrænni samvinnu komi til greina, og muni hver nýr hópur fá 200.000 norskar krónur í styrk. Tilskilið er að þátttakendur komi ffá þrem Norðurlandanna. Hugmyndarík- um áhugamönnum um orkumál er bent á að hafa samband við Jakob Bjömsson orkumálastjóra. -óig. Fangavarðafélag Islands Réttar- geödeild verðihraðað Félagar í Fangavarðaféiagi íslands hafa ályktað um að hraða verði eins og kostur er stofnun sérstakrar réttargeð- deildar fyrir geðsjúka afbrota- menn. Ástandið í þessum málum í dag, segir í ályktuninni, er hlut- aðeigandi yfirvöldum til van- sæmdar þar sem í nútímaþjóðfé- lagi, sem vill láta kenna sig við ffamfarir og þróun, er óhæfa að geðsjúkt fólk sé lokað inni á ein- angmnarklefum fangelsa beinlín- is vegna sjúkdóms síns. Þá segir í ályktuninni að ekk- ert fangelsi á íslandi uppfylli skilyrði laga frá 1988 um fangelsi og fangavist þess efhis að fangar, sem eiga við andlega eða líkam- lega fotlun að stríða eða þarfhist af öðmm ástæðum sérstaks bún- aðar, skuli afþlána í því fangelsi sem uppfylli skilyrði um slíkan aðbúnað. -gpn* VINSTRI VÆNGURINN Fundur á Komhlöðuloftinu, Bankastræti (yfir Sveini bakara) þriðjudagskvöldið 5. mars íd. 20.30. Stutt ávörp: Þjóðarsáttin - hverra sátt?: Birna Þórðadóttir blaðamaður. Persaflóastríðið - orsakir og afleiðingar: Sveinn Rúnar Hauksson, lœknir og formaður félagsins Ísland-Palestína. Sameinum kraftana á vinstri væng: Ragnar Stefánsson jarðeðlisfrœðingur. Umræður um samstarf flokksbundinna sem óflokksbundinna á vinstri væng. Fundarstjóri: Olga Guðrún Árnadóttir rithöfundur. Undirbúningshópur Útför föður okkar, tengdaföður og afa Þórmundar Guðmundssonar Grænumörk 1 Selfossi verður þriðjudaginn 5. mars frá Fríkirkjunni í Reykjavík kl. 13.30. Kveðjuathöfn verðurfrá Selfosskirkju sama dag kl. 10.30. Gunnhildur Þórmundsdóttir Bjarni Eyvindsson Þórmundur Þórmundsson Unnur Jónsdóttir og barnabörn í DAG ÞJÓÐVIUINN FYRIR 50 ÁRUM Brynjólfur Bjarnason ber fram frumvarp út af húsnæðisvand- ræðum. I þv( er gert ráð fyrir stórfbúðarskatti og heimild til eignamáms. Enn eitt Evrópurfki lagt undir Möndulveldin. Búlgar- fa gengur f bandalag fasistaríkj- anna. Herlög látin ganga I gildi f Norður-Hollandi. Þrátt fyrir hörð- ustu kúgunarráðstafanir er hol- lenzka alþýöan nazistayfirvöld- um erfið. Kennarar og milljóna- mæringar. Hvað lengi eiga kennarar að vera eins og út- skúfuö stétt hjá þjóð sem telur menntun sfna ein fremstu rök til- veruréttar síns. Meirihluti bama- kennara hefur nú laun, sem eru 2. mars laugardagur. 61. dagur ársins. 19. vika vetrar hefst. Sólarupp- rás f Reykjavfk kl. 8.33 - sólar- lag kl. 18.48. undir 300 krónur á mánuði, þó dýrtfðaruppbót sé talin með, - og það á tfmum þegar Dags- brúnarverkamaður hefur 500 krónur á mánuði, ef hann hefur vinnu daglega. DAGBÓK APOTEK Reykjavfk: Helgar- og kvöldvarsla lyfjabúða vikuna 1. til 7. mars er f Arbæjarapóteki og Laugamessapóteki. Fyrmefnda apótekið er opið um helgar og annast næturvörslu alla daga kl. 22 tll 9 (tll 10 á fridögum). Síöarnefnda apótekið er opið á kvóldin kl. 18 til 22 virka daga og á laugardögum kl. 9 til 22 samhliða hinu fyrmefnda. LÖGGAN Reykjavik.................* 1 11 66 Kópavogur.................« 4 12 00 Seltjamarnes..............® 1 84 55 Hafnarfjörður.............« 5 11 66 Garðabær...............« 5 11 66 Akureyri..................« 2 32 22 Slökkviið og sjúkrabílar Reykjavlk.................» 1 11 00 Kópavogur.................« 1 11 00 Seltjamarnes..............* 1 11 00 Hafnarfjörður...........5 11 00 Garðabær,.................« 5 11 00 Akureyri..................® 2 22 22 LÆKNAR Læknavakt fyrir Reykjavik, Seltjam- arnes og Kópavog er I Heilsuvemdar- stöð Reykjavíkur alla virka daga frá kl. 17 til 8, á laugardögum og helgidögum allan sólarhringinn. Vitjanabeiðnir, simaráðleggingar og tlmapantanir f rr 21230. Upplýsingar um lækna- og lyfjaþjónustu eru gefnar I símsvara 18888. Borgarspitalinn: Vakt virka daga frá kl. 8 til 17 og fyrir þá sem ekki hafa heimilislækni eða ná ekki til hans. Landspitalinn: Göngudeildin er opin frá kl. 20 til 21. Slysadeild Borgarspit- alans er opin allan sólarhringinn, « 696600. Neyðarvakt Tannlæknafélags fslands er starfræktumhelgar og stórhátíðir. Simsvari 681041. Hafnarfjörður: Dagvakt, Heilsugæsl- an. * 53722. Næturvakt lækna, « 51100. Garðabær: Heilsugæslan Garðaflöt, « 656066, upplýsingar um vaktlækni ® 51100. Akureyrí: Dagvakt frá kl 8 til 17 á Læknamiöstöðinni, » 22311, hjá Akureyrar Apóteki, » 22445. Nætur- og helgidagavakt læknis frá kl 17 til 8 985- 23221 (farsimi). Keflavfk: Dagvakt, upplýsingar i »14000. Vestmannaeyjar: Neyðarvakt lækna, »11966. SJÚKRAHÚS Heimsóknartlman Landspftalinn: Alla daga kl. 15 til 16 og 19 til 20. Borgar- spitalinn: Virka daga kl. 18:30 til 19:30, um helgar kl. 15 til 18 oa eftir samkomulagi. Fæðingardeild Land- spítalans: Alla daga kl. 15 til 16, feðra- tlmi kl. 19:30 til 20:30. Fæölngar- heimlli Reykjavikur v/Eiriksgötu: Al- mennurtími kl. 15-16 alla daga, feðra- og systkinatími kl. 20-21 alla daga. Öldrunariækningadeild Landspital- ans, Hátúni 10B: Alla daga kl. 14 til 20 og eftir samkomulagi. Grensásdeild Borgarspítala: Virka daga kl. 16 til 19, um helgar kl. 14 til 19:30. Heilsu- vemdarstöðin við Barónsstfg: Alla daga kl. 15 til 16 og 18:30 til 19:30. Landakotsspitali: Alla daga kl. 15 til 16 og 18:30 til 19. Bamadeild: Heim- sóknir annarra en foreldra kl. 16 til 17 alla daga. St. Jósefsspitall Hafnar- firði: Alla daga kl. 15 til 16 og 19 til 19:30. Kleppsspitalinn: Alla daga kl 15 til 16 og 18:30 til 19. Sjúkrahús Vestmannaeyja: Alla daga kl. 15 til 16 og 19 til 19:30. Sjúkrahús Akraness: Alla daga kl. 15:30 til 16 og 19 til 19:30. Sjúkrahúsið Húsavik: Alla daga kl. 15 til 16 og 19:30 til 20. ÝMISLEGT Rauða kross húsiö: Neyðarathvarf fyrir unglinga, Tjarnargötu 35, » 91-622266, opið allan sólarhringinn. Samtökin 78: Svarað er ( upplýsinga- og ráðgjafarsima félags lesbla og homma á mánudags- og fimmtudags- kvöldum kl. 21 til 23. Slmsvari á öðrum timum. « 91-28539. Sálfræðistöðin: Ráögjöf i sálfræöi- legum efnum, «» 91-687075. Lögfræðiaðstoö Orators, félags laganema, er veitt í sima 91-11012 milli kl. 19:30 og 22 á fimmtudagskvöldum. MS-félagið, Álandi 13: Opiö virka daga frá kl. 8 til 17, » 91-688620. „Opið hús” fyrír krabbameinssjúk- linga og aðstandendur þeirra I Skóg- arhlfð 8 á fimmtudögum kl. 17 til 19. Samtök áhugafólks um alnæmis- vandann sem vilja styöja smitaða og sjúka og aðstandendur þeirra I» 91- 22400 og þar er svarað alla virka daga. Upplýsingar um eyðni: «» 91-622280, beint samband við íækni/hjúkrunar- fræöing á miðvikudögum kl. 18 til 19, annars simsvari. Samtök um kvennaathvarf: v 91- 21205, húsaskjól og aöstoö við konur sem beittar hafa veriö ofbeldi eða orðiö fyrir nauðgun. Kvennaráögjöfin Hlaðvarpanum, Vestur-götu 3: Opið þriðjudaga kl. 20 til 22, fimmtudaga kl. 13:30 til 15:30 og kl. 20 til 22, * 91-21500, sfmsvari. Sjálfshjálparhópar þeirra sem orðið hafa fýrir sifjaspellum:« 91-21500, símsvari. Vinnuhópur um sifjaspelismái: tr 91-626868 og 626878 alla virka daga kl. 13 til 17. Stigamót, miöstöð fyrir konur og böm sem orðið hafa fyrir kynferðislegu ofbeldi. Ráðgjöf, fræðsla, upplýsingar, Vesturgötu 3, « 91-626868 og 91- 626878 allan sólarhringinn. Biianavakt rafmagns- og hitaveitu: tr 27311. Rafmagnsveita: Bilanavakt i tr 686230. Rafveita Hafnarfjarðar: Bilanavakt, * 652936. GENGIÐ 1. mars 1991 Bandarlkjadollar.... Sterlingspund....... Kanadadollar........ Dönsk króna......... Norsk króna........ Sænsk króna......... Finnskt mark....... Franskurfranki...... Belgískurfranki..... Svissneskur franki.... Hollenskt gyllini... Vesturþýskt mark.... Itölsk líra........ Austurrfskur sch.... Portúgalskur escudo. Spánskur peseti..... Japanskt jen....... (rskt pund......... Sala ...55,52000 .106,57100 ...48,23400 ...9,51740 ...9,35150 ...9,83700 ...15,13010 ...10,73990 .... 1,77440 ...42,22050 ....32,43940 ...36,56360 ..0,04887 ...5,19000 .... 0,41810 ...0,58600 ...0,41948 ....97,46500 KROSSGÁTA Lárétt: 1 blekking 4 blunda 6 eöli 7 þó 9 Iburöur 12 ráfa 14 hrædd 15 smáger 16 reikningar 19 tré 20 félagi 21 skakkt Lóðrétt: 2 flýti 3 fram- för 4 mikill 5 skordýr 7 fleiður 8 getir 10 brim 11 spaugsöm 13 var- úð 17 vitlausa 18 upp- vaxandi Lausn á síöustu krossgátu Lárétt: 1 báls 4 gust 6 kýr 7 bara 9 ó|x>l 12 örvar 14 eið 15 eik 16 ungum 19 tæli 20 riss 21 stagl Lóðrétt: 2 áta 3 skar 4 gróa 5 svo 7 bresta 8 röðuls 10 þremil 11 lakast 13 vig 17 nit 18 urg Laugardagur 2. mars 1991 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.