Þjóðviljinn - 16.03.1991, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 16.03.1991, Blaðsíða 9
A Sif Gunnarsdóttir skrifar K¥IEM¥NDI i '.. Klassískur „film noir“ Laugarásbíó Dreptu mig aftur (Kill me aga- «n) Leikstjóri: John Dahl Handrit: John Dahl & David W. Warfield Framleiðendur: David W. Warfield, Sigurjón Sighvats- son & Steve Golin Aðalleikarar: Vai Kilmer, Jo- anna Whalley-Kilmer, Michael Madsen að er mikill uppgangur í „film noir“ myndum í Bandaríkjunum þessa dagana. After dark my sweet og The Grifters eru gerðar eftir skáld- sögum Jim Thompson sem er einn af þekktari „noir“ rithöfundum vestanhafs. Svo mætti líka nefna Hot spot Dennis Hoppers og vafa- laust fleiri sem ég man ekki eftir. Dreptu mig áftur er alveg klassísk „noir“ mynd í stíl Möltufalkans og Svefnsins langa. Aðalmaðurinn er einkaspæjari (Val Kilmer) í borg- inni Reno. Stundum úrræðalaus, stundum úrræðagóður en alltaf auralaus. Þegar hann er alveg að missa allt út úr höndunum á sér gengur inn hvítklædd, glæsileg kona (Joanna Whalley-KJlmer) og gerir honum vafasamt tilboð sem hann getur ekki hafnað. Hann hafnar því ekki af því að hann er blankur og af því að hún er falleg. Hvort hann trúir henni er annað mál. Auðvitað trúir hann ekki orði af því sem hún segir. En það skipt- ir ekki máli, hann er í vandræðum hvort eð er. Vafasama tilboðið sem daman gerir honum er að hún biður hann um að drepa sig vegna þess að hún á svo vondan fyrrverandi kærasta (Michael Madsen) sem getur ekki samþykkt að hún hætti við hann svo hann ætlar að drepa hana. Henni finnst lausnin vera að láta drepa sig í plati svo að hún losni við hann að eilífu. Hún segir Mæðgur munu metast Stjörnubíó Á barmi örvæntingar (Post- cards from the edge) Leikstjóri: Mike Nichols Handrit: Carrie Fisher eftir samnefndri skáldsögu Framleiðendur: Mike Nichols & John Calley Aðalleikarar: Meryl Streep, Shirley MacLaine, Dennis Qu- aid, Gene Hackman, Richard Dreyfuss Myndin Á barmi ör- væntingar fjallar um samband móður og dóttur. Og til að flækja málin örlítið þá er dóttirin eiturlyfjaneytandi og móð- irin alkóhólisti. Fyrir utan það eru þær báðar frægar leikkonur í Hollywood. Handritið byggir leik/skáldkonan Carrie Fisher (Leia prinsessa í Stjörnustríði) lít- illega á samnefndri skáldsögu sinm sem er sumpart ævisaga og sumpart skáldskapur. Skáldsagan fjallar aðallega um baráttu aðalper- sónunnar við eiturlyf og móðirin kemur lítið sem ekkert fyrir, en í myndinni verður samband dóttur- innar við móðurina að þungamiðju og eiturlyfin leika aukahlutverk. Það má geta þess til gamans að mamma Carrie Fisher er leikkonan Debbie Reynolds en Carrie neitar algjörlega að myndin byggi á sam- bandi þeirra og sé einhversskonar „Mommie dearest" eftirlíking. Carrie Fisher fæddist og ólst upp í Hollywood, umvafin amer- íska draumnum, þekkir vel hvemig stjörnulífið gengur fyrir sig og skrifar hæðnislega um þessa veröld og fólkið sem í henni býr. Meryl Streep leikur Suzanne Vale, leikkonu a niðurleið. Hún tekur eiturlyf og fær þessvegna bara hlutverk í lélegum myndum því að leikstjórar treysta henni ekki. Eftir að hún hefur lokið við sérstaklega lélega mynd tekur hún of stóran pilluskammt og kunningi hennar (Dennis Quaid) flytur hana á sjúkrahús þar sem pumpað er upp úr maganum á henni og hún sioan send í meðferð. Eftir með- ferðina fær hún ekki neitt að gera nema hún búi hjá einhveijum ör- uggum aðila sem getur passað hana, og mamma hennar verður fyrir valinu. Shirley MacLaine leikur móðirina, Doris Mann, konu sem er stundum leikkona en alltaf ákaflega mikill persónuleiki. Hún drottnar yfir dóttur sinni, talar fyrir hana og tekur ákvarðanir fyrir hana. Suzanne hefur alltaf lifað í skugga móður sinnar og verður nú að taka sig á, bæði við að hefja líf án eiturlyfja og líka við að losa sig undan móður sinni og fara að lifa fyrir sjálfa sig. Handritið að Á barmi örvænt- ingar er reglulega skemmtilegt og gefur áhorfendum nýja mynd af Hollywood að tjaldabaki. MacLa- ine og Streep fá báðar vænan skammt af yndislega hnyttnum til- svörum og syngja báðar í þokka- bót. Shirley MacLaine er óviðjafn- anleg í hlutverki móðurinnar sem valtar yfir dóttur sína af hreinni móðurast (og smá öfundsýki) og söngatriðið hennar er einn af há- punktum myndarinnar. Það er gaman að sjá hvað þessi gamal- reynda leikkona fær enn bitastæð hlutverk í landi þar sem æskan er ofar öllu. Meryl Streep sannar hér enn einu sinni að hún er ein besta leik- kona vestanhafs og fer jafn vel með gamanhlutverk og dramatísk. Aðdáendur hennar eiga líka von á óvæntri viðbót frá henni, hún er þrumugóð söngkona og ég er viss um að ef hún fær einhvemtíma leið á að leika þá getur hún slegið í gegn sem kántrýsöngkona í stað- mn. Gene Hackman, Richard Dreyfuss og Dennis Quaid fara með karlhlutverkin í myndinni sem eru ekkert sérstaklega stór en vel erð að öllu leyti. Svo má geta ess að leikstjórinn Rob Reiner fer með lítið hlutverk hálf hallærislegs framleiðanda í stuttu en sniðugu atriði. Leikstjórinn Mike Nichols stýrir þessari einföldu sögu af létt- leika og það er aldrei dauður punktur í myndinni. Hrein tveggja tíma skemmtun! einkaspæjaranum hins vegar ekki að fyrrverandi kærastinn er líka fyrrverandi tugthúslimur og að þau hafi rænt peningafúlgu frá ein- hverjum spilavítismafíosum og að hún hafi síðan barið kærastann í hausinn og stungið af. Síðan heldur Dreptu mig aftur áfram í klassískum stíl, það em all- ir komnir á sporið, löggan, fyrrver- andi kærastinn og maflan. Og maður bíður spenntur eftir að sjá hveijir lifa af og fá að njóta peninganna og ég segi aðeins að maður verður ekki fýrir vonbrigð- um þó að maður verði kannski dá- lítið hissa. Val Kilmer og Joanne Whalley-Kilmer I .Dreptu mig aftur* Þetta er frumraun leikstjórans John Dahl á hvíta tjaldinu og Dreptu mig aftur hefur tekist alveg ágætlega, nún er mátulega sjúskuo og ekki mettuð af ofbeldi eins og þessar myndir eiga á hættu að verða. Val Kilmer (kominn með Jim Morrison bartana) er ágætur í hlut- verki einkaspæjarans, dálítið auð- trúa en þó harður. Joanna Whalley- Kilmer er ekta „femme fatale“, fal- leg, grimm og sjálfselsk. En Mi- chael Madsen er líklega bestur sem fyrrverandi kærastinn, skemmti- lega galinn og andstyggilegur. Dreptu mig afhír er mynd sem lætur lítið yfir sér en er hm ágæt- asta skemmtun. Glæpaveldi riðar til falls Háskólabíó Guðfaðirinn III (The Godfat- her part III) Leikstjóri: Francis Ford Cop- pola Handrit: Francis Ford Cop- pola & Mario Puzo Framleiðandi: Francis Ford Coppola Myndataka: Gordon Willis Aðalleikarar: AI Pacino, Diane Keaton, Talia Shire, Andy Garcia, Eli Wallach, Joe Man- tegna, Bridget Fonda, George Hamilton, Sofia Coppola, Franc D’Ambrosio að eru fáar myndir í kvikmyndahúsum í dag sem fólk hefur haft eins miklar væntingar til og Guðfaðirinn III. Þeir ótalmörgu sem sáu fyr- irrennara hennar fara ekki hug- myndalausir að sjá (væntanlega) lokakafla sögunnar um Corleone ijölskylduna. Og það væri hægt að segja að það versta við Guðföður- inn 111 séu Guðfeðumir I og II. Þær íjölluðu um valdarán og uppbygg- ingu á stórum glæpaflokki til að sýna hversu rotið valdakerfið er í Bandaríkjunum, en þriðja myndin er um hnignun og jafnvel endalok essarar valdamiklu flölskyldu og vemig spilling drepur út frá sér. Myndin gerist árið 1979. Mi- chael Corleone (A1 Pacino) er orð- inn þreyttur og gamall sykursýki- sjúklingur. Hann er að afsala sér glæparíkinu, búinn að selja öll spilavítin i Las Vegas og er að reyna að verða löglegur viðskipta- maður í gegnum Vatikan bankann. Dóttir hans Mary (Sofia Cop- pola) vinnur við Vito Corleone sjóðinn sem veitir bágstöddum styrki. Konan hans fyrrverandi, Kay (Diane Keaton), er gift aftur og komin út af yfirráðasvæði hans en systir hans, Connie (Talia Shire), sem áður hataði mafíuna er nú orðin fullgildur meðlimur henn- Guðfaðirinn III ar. Sonur hans vill verða óperu- söngvari en ekki lögfræðingur. Fjölskyldan er að leysast upp og Michael þarf að fmna nýtt höfuð fjölskyldunnar. Systir hans bendir honum á óskilgetinn son Sonny bróður hans (þið munið eftir atrið- inu í fyrstu myndinni þar sem Sonny er með brúðarmeynni), Vin- cent, sem Andy Garcia leikur. En Vincent er skapstór eins og pabbi hans og þeir Michael eru ósam- mála um vinnuaðferðir. Michael er líka óánægður með að Vincent og Mary em í ástarsambandi og hann notar óprúttnar aðferðir til að bina enda á pað. Michael fer til Italíu til að ljúka sammningnum við Vatikan bankann en kemst að því að jafn- vel kirkjan er spillt og meiri hlut- inn af starfsmönnum hennar enn meirj glæpamenn en krimmamir í litlu Ítalíu í New York. Lokaatriðið gerist í ópemhús- inu í Palermo þar sem fyrirsátir og morð blandast saman við uppsetn- ingu á ópemnni Cavalliera mstic- ana þar sem sonur Michaels syngur aðalnlutverkið. Það er löng kvik- myndahefð fyrir morðum í leik- húsum, til dæmis lokaatriðið í Hitchcock myndinni The man who knew too much, og ekki hægt að segja að Coppola bæti neinu nýju við. Sextán ár em síðan Guðfaðir- inn II var frumsýnd og hún var fyrsta framhaldsmyndin sem fékk óskar sem besta kvikmyndin það árið. Og það er spurning hvort Coppola hafði virkilegan ahuga á að halda áfram að lýsa lífi Corle- one fjölskyldunnar. Illar tungur segja að hann sé bara að þessu til að safna peningum fyrir næstu mynd og það er víst að númer þrjú er ekki í sama gæðaflokki og hinar tvær. Söguþráðurinn er ekki nógu þéttur, sumar persónur verða aldrei sannfærandi, aðrar em kynntar en gleymast síðan og leikurinn er mis- jafn. A1 Pacino er eins magnaður og maður á von á í aðalhlutverkinu. Vansæll gamall maður sem er að missa allt út úr höndunum á sér og uppgötvar að þó að hann geti keypt sig inn í kirkjuna þá fær hann enga fyrirgefningu hjá sjálfum sér fyrir fomar syndir gegn samvisku sinni. Andy Garcia er líka góður sem hinn skapmikli Vincent og atriðin með honum og Pacino eru með þeim bestu í myndinni. En Keaton er stíf, Sofia Coppola kann ekki við myndavélina og Fonda er því miður í allt of litlu nlutverki. Hins vegar er gamli flagarinn George Hamilton ágætlega sannfærandi sem lögfræðingur guðföðurins, Talia Shire sterk í hlutverki systur- innar, Donal Donelly skuggalegur sem Gilday erkibiskup og Wallach og Mantegna litríkir glæpamenn. Er þá Guðfaðirinn III þess virði að sjá hana? Já vissulega. Þrátt íyrir nokkur vonbrigði heldur hún manni stöðugt spenntum og þetta er nú einu sinni Guðfaðirinn. Sif Síða 9 ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 16. mars 1991

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.