Þjóðviljinn - 16.03.1991, Side 15
Ranga fréttin var rétt
Eitthvað hefur það vafist fyrir
þeim heiðursmanni Karvel
Pálmasyni hvort hann ætti að
gefa kost á sér í heiðurssæti
krata á Vestfjörðum. I lok
febrúar sagði Bæjarins besta
á fsafirði frá því að Karvel
myndi skipa heiðurssæti list-
ans. Daginn eftir birtist frétt I
Vestfirska fréttablaðinu þar
sem haft er eftir Karvel að
frétt Bæjarins besta sé röng.
Nokkru seinna birtist svo listi
krata og kom þá í ijós að Kar-
vel skipar heiðurssætið.
BHMR málið horfið
Það vakti athygíi þeirra sem
hlustuöu á eldhúsdagsum-
ræðumar á Alþingi sl. fimmtu-
dagskvöld, að eitt heitast pól-
itfska mál sfðari hluta kjör-
timabilsins var ekki lengur á
dagskrá. Hér er vitaskuld átt
við bráðabirgðalögin á BHMR.
Samkvæmt heimildum Þjóð-
viijans átti kosningabarátta
Sjáifstæðisflokksins að snúast
að miklu leyti um þetta mál og
átti að kynna ímynd Sjálf-
stæðisflokksins sem hinn
ábyrga flokk sem stendur við
orð sín. Nú er búið aö kasta
þeirri hemaðaráætiun fyrir
róða, þar sem bæjarþing hef-
ur dæmt að ríkisstjómín hafi
verið i fullum rétti með setn-
ingu bráðabirgðalaganna. Sit-
ur íhaldið nú með sveittan
skallann við að leita að högg-
stað á ríkisstjórnarflokkunum,
en verður lítt ágengt einsog
heyra mátti f eldhúsdagsum-
ræðunum.
Sjáifstæðismenn
stikkfrí
15 bændur sátu hjá þegar
aukafulltrúafundur Stéttar-
sambands bænda greiddi at-
kvæði um nýjan búvörusamn-
ing. Þetta voru allt sjálfstæðis-
menn og munu þeir þama
hafa orðið við fyrirskipun sem
barst beint úr Valhöil, en Sjálf-
stæðisfiokkurinn hefur lýst þvi
yfir að hann muni taka upp
þessa samninga komist hann
til áhrifa f þjóöfélaginu
IDAG
16. mars.
er laugardagur.
Gvendardagur.
75. dagur ársins.
21. vika vetrar byrjar.
Nýtt tungl (páskatungl).
Sólarupprás í Reykjavík kl.
7.44 - sólarlag 19.30.
Þjóðviljinn
fyrir 50 árum
Reykvíkingar votta hinum
föllnu hetjum islands virðingu
sína. Fróði kom hingað í gær
um hádegi með lík skipverj-
anna fimm. Mannfjöldi, sem
skipti þúsundum, mætti niður
á hafnarbakka til að láta í Ijósi
samúð sína og hluttekningu,
þegar líkkisturnar voru fluttar í
land.
fyrir 25 árum
„Konur þurfa ekki að vagga
mjöðmum," segja vísinda-
menn. Eftirtekja tollgæzlunnar
á tveim dögum: 1700 flöskur
og 94 þúsund sígarettur. Hita-
veitustokkur í Smálöndum op-
inn á annað ár.
Sá spaki
Tónlist Wagners er betri en
hún hljómar.
(Mark Twain)
Dansfífl og
kattakerling
Hver ertu?
Bryndís Petra Braga-
dótfir, leikkona.
I hvaða stjörnumerki
ertu?
Ég er í vogarmerkinu.
Hvað ertu að gera
núna?
Ég er að tala við þig.
Svo er ég líka að leika í
Meistaranum hjá Leikfé-
lagi Revkiavíkur.
Hvernig er fólk flest?
Það er almennt mjög
gott.
Hvað er verst/best í
fari karla/kvenna?
Verst í fari karla er af-
brýðisemi og hroki, en
það besta í fari þeirra er
tillitssemi. Mér pykir líka
mikill kostur ef peir eru
aóðir dansarar. Verst í fari
Rvenna er einnig afbrýði-
semi, sérstaklega afbrýði-
semi í garð annarra
kvenna. Best í fari þeirra
er hreinskilni.
Óttastu um ástkæra
ylhýra málið?
Eg hræðist það ekki
að við hættum að tala
islensku, en mér er minn-
isstætt þegar ég heyrði litla
krakka, sem voru að leik,
tala ensku hvert við ann-
að fyrir nokkrum árum.
Það sló mig dálítið og
mér þykir það umhugsun-
arvert.
Ertu myrkfælin?
Nei, það erég ekki.
Hefurðu séð draug?
Nei, en það er eflaust
fleira til í þessari veröld
en það sem við sjáum og
skiljum.
Værirðu ekki þú hver
vildirðu vera?
Mér finnst alveg ágætt
að vera ég sjálf.
Hefurðu hugleitt að
breyta lífi þínu algjör-
lega?
Nei, líf mitt er síbreyti-
legt og þannig vil ég ein-
mitt hafa það.
Hvað er það versta
sem fyrir þig gæti kom-
ið?
Að missa heilsuna.
Hvað er leiðinlegasta
leikrit sem þú hefur
séð?
Ég er nú svo vitlaus
að ég sé alltaf eitthvað
gott i öllu. Ég man ekki
eftir neinu leikriti sem mér
þótti mjög leiðinlegt.
Skemmtilegasta bók
sem þú hefur lesið?
Þær eru nú svo marg-
ar. Laxness er allur mjög
góður og Shakespeare
karlinn yndislegur.
Áhrifamesta kvik-
mynd sem þú hefur
horft á?
Þær eru líka margar
áhrifamiklar. Til að nefna
eina þá segi ég „Cabar-
et“, en hana sa ég úti á
þeim tíma þegar myndir
komu löngu seinna til (s-
lands. Hún hafði mikil
áhrif á mig.
Áttu barn eða gælu-
dýr?
Já, ég á kött sem heit-
ir Ágúst og er kallaður
Gústi. Hann er þriggja ára
og á afmæli 1. maí. Ég
er mikil kattakerling og
dýravinur almennt.
Ertu með einhverja
dellu?
Já, ég er dansfífl. Mér
þykir líka gaman á skíð-
um, en aðallega er ég
með dansdellu.
En einhverja komp-
lexa?
Ekki gefið upp.
Kanntu að reka
nagla í vegg?
Já, ég getþað og geri
við ýmislegt. Ég var einu
sinni handTangari hjá múr-
arameistara, eg veit þó
ekki hvernig honum
fannst ég standa mig.
Hvað er kynæsandi?
Útgeislun frá fólki.
Áttu þér uppáhalds-
flík?
Ég er alltaf í peysu
sem eg prjónaði sjalf
þessa dagana. Hun er í
uppáhaldi hjá mér nú,
enda í tíu litum.
Ertu dagdreymin?
Ég eyði ekki miklum
tíma i dagdrauma. Það er
helst þegar ég er komin í
háttinn sem ég er dag-
dreymin.
Ertu feimin?
Stundum, það fer eftir
aðstæðum hverju sinni.
Skipta peningar
máli?
Nei, í mínu lífi skjpta
peningarekki máli. Eg hef
neldur aldrei átt neina
peninga.
Hvað skiptir mestu
máli í iífinu?
Að vera sáttur við
sjálfan sig, lífið og tilver-
una.
BE
oc
1 u
Framför! Framfarir ern geimT)
ferðirog ^ -----—'
þannig
Vissuleaa eru ~ 1
geimferöir og
plánetur
forvitnilegar...
V"
Síða 15
ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 9.mars 1991