Þjóðviljinn - 23.03.1991, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 23.03.1991, Qupperneq 3
Að gefnu tilefni Frá þjóðarsátt um jarðgöng til menningar og mennta Kjörtímabilið sem nú er senn á enda hefur verið óvenjulegt fyrir margra hluta sakir. Eftir síðustu kosningar tók við einhver vonlausasta ríkis- stjórn sem sögur fara af og má hafa hana til marks um að ekki dugir traustur þingmeirihluti einn saman til að koma góðum málum í kring. Ríkisstjórnin sprakk með fjölmiðlabraki og hafði þá varla nokkru komið í verk sem máli skipti. Þorsteini Pálssyni, þáverandi forsætisráð- herra og formanni Sjálfstæðisflokksins, tókst aldrei að ná þeim tökum á leiðtoga- starfínu sem eru nauðsynleg til að samsteypustjórn verði starfhæf til frambúðar. Yfirleitt gera menn lítið að því að velta fyrir ser mannlegum þáttum stjórnmála, en ekki hefur það auðveldað Þorsteini verkin að með honum í stjórninni var fyrr- verandi forsætisráðherra, sem varla hafur tekið því með gleði að þurfa að víkja fyrir sér miklu yngri og óreyndari manni. En hvað sem því líður verður þessarar ríkisstjórnar ekki minnst fyrir merkileg afrek, enda skildi hún við atvinnu- og efnahagslíf í ótrúlegri upplausn. Stofna varð til sjóða upp á marga miljarða til að koma sjávarútveginum a réttan kjöl með skuldbreytingum og hlutafjárframlögum og verðbólgan var mæld í tugum prósenta. Sú ákvörðun Alþýðubandalagsins að ganga til liðs við afganginn af ríkisstjóminni árið 1988 hlaut að orka tvímælis eins og ástatt var. Innanhússástandið í flokknum var ekki upp á marga fiska, litið lát virtisl á langvarandi deilum og burðir flokksins til að takast á við erfíð úrlausnarefni virtust því litlir. Reynslan hefúr aftur á móti sýnt þá feikilegu seiglu sem í flokknum býr. Á þessu tímabili hefur hann ekki einasta tekið þátt í ríkisstjómarsamstarfinu af fúllum myndug- leik með ábyrgð á afar þýðingarmiklum málaflokkum, heldur hefúr tekist að sigla flokknum út úr þeirri sjálfheldu sem eilífar innanflokksdeilur höfðu komið honum í. Flokkurinn hefúr þorað að taka á hinum erf- iðustu viðfangsefnum og á mörgum mikil- vægum sviðum blasir við árangur sem lengi mun standa. Marktækasti árangurinn af stjómarsam- starfinu, sem blasir við hveijum manni, er auðvitað minnkandi verðbólga. Með sam- starfi við aðila vinnumarkaðarins og bændur hefúr tekist að keyra verðbólguna svo niður að hún er nú á svipuðu róli eða jafnvel minni en í flestum löndum Vestur-Evrópu. Þetta er árangur sem enginn gerði í raun ráð fyrir og hefði vissulega ekki náðst ef ekki hefði tek- ist að skapa þjóðarsáttina ffægu. Á hinn bóg- inn er þetta árangurinn sem fljótlegast er að gera að engu ef ekki er rétt á haldið í fram- haldinu. Það dugir skammt að koma verð- bólgunni niður í fáein misseri ef þess verður ekki gætt að halda áffam á líkri braut í haust. Þessa dagana hafa verið að birtast vísbend- ingar sem benda til þess að erfitt geti reynst að ffamlengja þjóðarsáttina. Flugmenn, sem hingað til hafa ekki verið taldir vanhaldnir i launum, sjá ástæðu til að boða til verkfalls á fostudaginn langa, sjómenn hafa verið að fá hækkun á fiskverði og svo gerðist það sem enginn bjóst við: fiskverkandi í Grundarfirði hækkaði dagvinnukaup verkafólks sina um 10% upp á sitt eindæmi við litinn fognuð framkvæmdastjóra Vinnuveitendasambands- ins. Siðast en ekki síst hefur fiskverkafólk um allt land tekið sig saman um að krefjast hækkunar á skattleysismörkum. Bogi þolinmæðinnar er afar spenntur með þjóðarsáttinni og lítið þarf út af að bera til þess að allt fari úr böndunum. Á hinn bóginn vísar krafan um hækkun skattleysis- marka, sem Olafur Ragnar Grímsson fjár- málaráðherra hefúr tekið undir, á leið sem á að vera fær. Þessi krafa er í samræmi við þá grundvallarhugmynd um lífskjarajöfnun sem Alþýðubandalagið hefur sett ífam í sinni kosningastefnuskrá. Með því að hækka skattleysismörkin og flytja skattbyrðina til er hægt að auka kaupmátt launa i lægri þrepum launastigans. Þessu fylgir auðvitað sá vandi, svo sem sjá má á verkfalli flugmanna, að hinir hærra launuðu eru líklegir til að una ekki Iítilli eða engri launahækkun og um leið hækkun skatta. I annan stað blasir við að hagur margra fyrirtækja fer nú stórlega batn- andi, ýmis stórfyrirtæki skila hundruðum miljóna í hreinan hagnað eftir afskriftir og skatta. Allt á þetta að geta leitt til þess að hér verði áffam sæmilega stöðugt efnahags- ástand, en þá því aðeins að víðtæk samstaða takist í þjóðfélaginu um að jafna lífskjörin. Lægstu launin verða að hækka, það verður heldur ekki komist hjá að bæta stöðu þeirra sem hafa meðallaun. Þetta er verkefnið sem næsta ríkisstjóm tekur í arf ffá þeirri sem nú situr, verkefni sem mikill meirihluti þjóðar- innar mun krefjast að verði af hendi leyst. Menntun og menning em þeir mála- flokkar sem stjómmálamönnum þykir einatt minnst varið í að sýsla með. Állir viður- kenna þó að menntun og skólaganga sé mik- ilvæg fyrir þjóðina en fáir leggjast í djúp- hugsaðar vangaveltur um framtíðarskipan menntamála, að ekki sé nú minnst á menn- ingarmálin. Undirritaður átti tal við reyndan foringja af vinstri vængnum, sem nú er hætt- ur afskiptum af stjómmálum, skömmu eftir að Alþýðubandalagið var sest í ríkisstjóm- ina. Hann hafði uppi ýmsar vangaveltur um kosti og galla ríkisstjómarsamstarfsins, þeg- ar á heildina var litið taldi hann það ásættan- legt. Hins vegar fannst honum afspymu vit- laust af Alþýðubandalaginu að taka við menntamálaráðuneytinu. Það væri þó ráðu- neyti sem ekki skipti miklu máli, enginn mundi nokkm sinni taka eftir því að Alþýðu- bandalagsmaður hefði setið í því ráðuneyti. Hann hafði áreiðanlega að því leyti rétt fyrir sér að afskipti af mennta- og menningarmál- um em yfirleitt ekki líkleg til skyndivin- sælda. Almenningur hefúr að sönnu áhuga á skólum, en fjölmiðlar aftur á móti yfirleitt ekki. Þetta skiptir miklu máli vegna þess að fjölmiðlamir ráða líklega meiru um vinsæld- ir stjómmálamanna en verk þeirra. Fjölmiðl- ar hafa oftast lítinn áhuga á menningu og það er afar auðvelt að magna upp anáitöðu við það að vemlegu fé sé varið til menning- arstarfsemi. Hvort Svavar Gestsson menntamálaráð- herra öðlast varanlegar vinsældir af verkum sínum í ráðuneyti menntamála undanfarin ár skal engu um spáð hér. Hins vegar er enginn vafi á því að undanfarin ár hefúr verið unnið að mörgum verkum á sviði mennta- og menningarmála sem mikla og langvarandi þýðingu hafa. Sumt er sýnilegt, blasir bein- línis við augum eins og nýendur- bætt Þjóðleikhús, annað kemur til ffamkvæmda á lengri tíma og má í þeim efnum neína sérstaklega lög um leikskóla og grunnskóla að ógleymdu því að fella niður virðis- aukaskatt af menningarstarfsemi sem vonandi stendur til ffambúðar með þeim varanlegu áhrifúm sem því fylgir. Meðal þeirra mála sem af- greidd voru á síðustu og heitustu dögum þingsins var ný vegaáætlun þar sem gert er ráð fyrir margvís- legum framkvæmdum stórum og smáum á næstu árum. Steingrímur J. Sigfússon samgönguráðherra hefúr nýlega opnað Ólafsfjarðar- göng formlega. Göngin eru eins- konar tákn um nýja tíma í samgöngumálum, vitnisburður um nýjan skilning á mikilvægi nútíma samgangna. Göngin kostuðu lítið eitt á annan miljarð. Á þéttbýlissvæðunum fyrir sunnan heyrast stundum athugasemdir eins og þær að ekki sé mikið vit í að leggja stórfé í vegi fyrir fólk sem er kannski á forum, ódýrara sé að aðstoða það við að flytja suð- ur. Sem betur fer hafa talsmenn þessara sjón- armiða ekki haft völd til að fylgja þeim eflir. Þeir hafa þó fengið blóð á tönnina með kjöri formanns í Sjálfstæðisflokknum. Davíð Oddsson styðst sem kunnugt er við fijáls- hyggjugengið í flokknum sem hefúr ekki mikinn áhuga, svo ekki sé fastar að orði kveðið, á byggðamálum. Ólafsfjarðargöngin eru ótrúlega ódýr, það mætti segja mér að Ólafsfirðingar flytji út fiskafúrðir fyrir tals- vert hærri upphæð á einu ári. En traustasti mælikvarðinn til að sýna fram á hve vel hef- ur tekist til er samanburðurinn við ráðhúsið í Reykjavík. Ráðhúsið, sem á ekki að hýsa nema afar takmarkaðan hluta af skrifstofum borgarinn- ar, kostar meira en helmingi meira en þriggja kílómetra jarðgöng í gegn um Ólafs- fjarðarmúla. Ráðhúsið breytir nákvæmlega engu fyrir almenning í Reykjavík en göngin valda byltingu fyrir Olafsfirðinga og Eyfirð- inga. Göngin eiga eftir að spara mikla pen- inga bæði beint og óbeint en ráðhúsið verður aldrei annað en kostnaðarauki fyrir borgar- búa. Hér verður látið staðar numið í vanga- veltum um þátttöku Alþýðubandalagsins í þeirri ríkisstjóm sem nú er að skila af sér, og hefúr þó aðeins verið tæpt lítillega á þeim þremur málaflokkum sem ráðherrar flokks- ins hafa borið ábyrgð á. Eins og áður sagði orkaði sú ákvörðun flokksins að taka þátt í henni tvímælis. Reynslan hefur hins vegar sýnt að sú ákvörðun var rétt. Flokksmenn, sem nú einhenda sér í kosningabaráttuna eiga því að geta gengið djarflega til verks. Flokkurinn hefur sýnt að í honum býr bæði seigla og þor til að takast á við verkefnin jafnt í meðbyr sem mótbyr. hágé. Olafsfirðingar fagna opnun jarðganga um Ólafsfjarðarmúla. Ljósmynd: HMP Sú ákvörðun Alþýðubandalagsins að ganga til liðs við afganginn af ríkis- stjórninni árið 1988 hlaut að orka tví- mælis eins og ástatt var. Innanhúss- ástandið í flokknum var ekki upp á marga fiska, lítið lát virtist á langvar- andi deilum og burðir flokksins til að takast á við erfið úrlausnarefni gátu því virst litlir. Reynslan hefur aftur á móti sýnt þá feikilegu seiglu sem í flokknum býr. S(ða 3 Þjóðviljinn Laugardagur 23. mars 1991

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.