Þjóðviljinn - 05.04.1991, Síða 8
níit
þlÓÐVILIINN
Útgefandi: Útgáfufélagtð Bjarki h.f. Afgrelðsla:« 68 13 33
Framkvæmdastjórl: Hallur Páll Jónsson Ritstjórar: Árni Bergmann, Helgi Guðmundsson, Auglýslngadeiid: tt 68 1 Sfmfax: 68 19 35 310-68 1331
Ólafur H. Torfason Verð: 150 krónur 1 iausas xiiu
Umsjónarmaður Helgarblaðs: Ragnar Karlsson Fréttastjórl: Slgurður Á. Friðþjófsson Setning og umbrot: Pre Prentun: Oddi hf. ntsmiöja Þjóövlljans hf.
Auglýsingastjóri: Steinar Harðarson Aðsetur: Síðumúla 37,1 08 Reykjavík
Málgagn sósíalisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis
Lífskjarajöfnun og heilbrigði
Heilbrigðisþjónustan er einn stærsti út-
gjaldaliður samfélagsins og sé litið á hana
sem atvinnugrein þá er hún mannfrek og
vinnulaun afar stór hluti heildarkostnaðar-
ins. í þeim efnum hefur lengi verið Ijóst að
hluti lækna er einn launahæsti hópur lands-
ins og þess vegna eðlilegt að hreyft sé at-
hugasemdum og spurt hvort spara megi á
þessum sviðum sem öðrum.
Um leið og þessi staðreynd blasir við er
nauðsynlegt að átta sig á í hvaða umhverfi
heilbrigðisþjónustan er. Starf og menntun
læknis eru alþjóðleg í eðli sínu og hér á
Vesturlöndum hefur fyrir löngu komist á sú
skipan aö læknar séu almennt vel launaðir.
íslensk heilbrigðisþjónusta er því með viss-
um hætti í samkeppni við heilbrigðisþjón-
ustu annarra landa um sérfræðingana, dýr-
asta vinnuaflið. Vönduð heilbrigðisþjónusta
á íslandi verður ekki rekin til frambúðar
öðru vísi en læknum sé búin nógu góð
starfsaðstaða, til að vilja starfa hér á landi.
Laun sérfræðinga, sem verið hafa í
brennidepli að undanförnu, eru þó aðeins
einn þáttur heilbrigðisþjónustunnar sem
hlýtur að verða til skoðunar. í sjónvarps-
þætti fyrir skömmu var vakin athygli á
nauðsyn stefnubreytingar í heilbrigðismál-
um sem fælist í því að leggja miklu meiri
áherslu á forvarnarstarf, koma í veg fyrir
sjúkdóma, en gert hefur verið. Þessa dag-
ana hafa verið að birtast upplýsingar sem
sýnast staðfesta mikilvægi þessa. Komið
hefur í Ijós að kransæðasjúkdómar eru á
hröðu undanhaldi hér á landi og er þetta
m.a. rakið til breytinga á lifnaðarháttum
sem vaida því að þeim áhættuþáttum sem
leiða til sjúkdómsins hefur fækkað. Hingað
til hefur mjög lágum fjárhæðum verið varið
til að koma í veg fyrir sjúkdóma og slys en
miljörðum á miljörðum ofan í lækningar og
endurhæfingu. Þetta er í grundvallaratrið-
um sama stefna og gilt hefur í flestum vest-
rænum löndum.
Víða er leitað leiða til að auka hag-
kvæmni heilbrigðisþjónustunnar. Þannig
berast nú þær fregnir frá Oregon í Banda-
ríkjunum að farið sé að flokka sjúkdóma og
sjúklinga með þeim afleiðingum að fjöldi
sjúklinga séu beinlínis afskrifaðir; ekki er
talið ómaksins vert að veita þeim heilbrigð-
isþjónustu á kostnað þjóðfélagsins. Sem
betur fer hefur þessi stefna ekki enn náð
hingað, en ekki er ólíklegt að hún muni
breiðast út, a.m.k til þeirra landa þar sem
hinn frjálsi markaður nýtur mestrar hylli.
Skipulegt forvarnarstarf, sem tekur til
flestra þátta mannlegs lífs er vissulega
vandasamt og auðvelt er að eyða miklum
fjármunum í allskyns herferðir sem litlu
skila. Eigi að síður er ástæða til að ætla að
ná megi tveimur mikilvægum markmiðum
með forvarnarstarfi; betri heilsu og ódýrari
heilbrigðisþjónustu.
Því er gjarnan haldið fram að hver mað-
ur geti valið lífi sínu þann farveg sem hann
sjálfur kýs. Vissulega er hver einstaklingur
að talsverðu leiti sinnar gæfu smiður, en
þegar kemur að hinum kalda veruleika
vinnumarkaðarins getur komið upp sú
staða að menn eigi ekkert val. Verkafólk
sem vinnur óholla vinnu á ef til vill ekki kost
á annarri og þó hún fengist má reikna með
aö fyrr en varir hafi aðrir verið ráðnir í hið
heilsupillandi starf. í annan stað liggja víða
fyrir upplýsingar sem staðfesta að efnalítið
fólk verst sjúkdómum verr en hinir efna-
meiri. Möguleikar þess á að velja eru um
leið takmarkaðir við efnahag þess; lágum
tekjum fylgir oft ódýrt og lélegt húsnæði,
sem hefur áhrif á heilsufar íbúanna.
Forvarnarstarf má reka á margvíslegan
hátt, s.s. með upplýsingaherferðum, verð-
lagspólitík og uppeldis- og skólastarfi en
þegar til lengdar lætur er lífskjarajöfnun og
útrýming fátæktar í landinu áhrifaríkasta
forvarnaraðgerðin í heilbrigðismálum.
hágé.
O'ALIT
8 SlÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 5. apríl 1991
€ A3IC — GAJQBA3 J3K TTf'/. rC€< >
SJW