Þjóðviljinn - 29.06.1991, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 29.06.1991, Blaðsíða 1
120. tölublað Laugardagur 29. júní 1991 56.árgangur Aflaklæmar ungu höfðu vart undan að draga gráðugan mannsann í Hafnarfjarðarhöfn á dögunum. Mynd Kristinn. Ríkisstjómin stefnulaus í atvinnumálunum Aðgerðir ríkisstjórnarinnar um að halda að sér hðndum gagnvart atvinnuvegunum getur með sama áframhaldi iagt þá í rúst, sagði Steingrímur Hermannsson, fyrrverandi for- sætisráðherra, á fundi er hann hélt í gær. Steingrímur gagnrýndi og ríkistjórnina fyrir slælega framgöngu í EES-málunum og sagði að allir þeir fyrirvarar sem settir voru af síðustu stjórn, hafi fokið út á hafsauga. Steingrímur sagði á fundinum að hann hafi búist við að ríkis- stjómin hæfi undirbúning fyrir haustsamninga og tæki upp við- ræður við aðila vinnumarkaðarins. En hlutimir hafi gengið hraðar en hann hafi reiknað með og nú sé svo komið að atvinnuvegimir séu á barmi hruns. - Reynslan hefúr sýnt að með breiðri samstöðu er hægt að búa til góða lífsafkomu hérlendis. Síðasta ríkisstjóm setti sér það markmið og það tókst, þó svo einstaka hnút- ar hafi enn verið óleystir. En núna stórhækkar stjómin vextina, með þeim afleiðinum að verðbólgan rýkur upp. Þeir segja svo að þetta sé tímabundið ástand sem muni svo hjaðna, en ég veit að það er ekki eins einfalt og látið er í skína, sagði Steingrímur. I ræðunni kom ffam að mikil- vægt væri að draga úr áhrifum sjávarútvegsins í íslensku efna- hagslífi og það yrði aldrei gert án aðstoðar stjómvalda. - Ég vara við því, ef ríkis- stjómin ætlar að halda að sér hönd- unum í þeim hremmingum sem at- vinnulífið er í þessa dagana. Við höfum dæmin allt í kringum okkur, laxeldið, Álafoss, fiskiðnaðinn o.fl., síðasta stjóm vissi vel um vanda laxeldisins og við tókum þá ákvörðun að styðja við bakið á því með þeirri vissu að seinna myndi það skila sér í þjóðarbúið. Álafoss, ég er viss um að kostnaðurinn fyrir þjóðina verði meiri með því að láta það rúlla, heldur en að koma til hjálpar. Við getum ekki látið ullar- iðnaðinn afskiptalausan, til þess er of mikið í húfi. Leið síðustu stjómar við að hjálpa fyrirtækjum í sjávarútvegi tel ég vera rétta, við hvöttum fyrir- tæki til sameiningar og aðhalds. Þær aðgerðir bám góðan árangur, en ekki þýðir að láta hér staðar numið, stjómvöld verða að finna til ábyrgðar gagnvart atvinnuveg- unum, annars fer voði að höndum, sagði Steingrímur. í málefnum Evrópska efna- hagssvæðisins sagði Steingrímur að útilokað væri að yfirfæra vest- ræn hagkerfi á íslenskt þjóðfélag, fyrst yrði að aðlaga kerfin að þjóð- félagi sem okkar er byggir lífsaf- komu sína svo til eingöngu á einni atvinnugrein. - Við verðum ekki sjálfstæð þjóð ef við höfum ekki_ ákveðna fyrirvara i samningnum. Ég sé fyr- ir mér að erlend stórfyrirtæki kaupi hér upp íslenskar laxveiðár og jafnvel heilu dalina, sagði Stein- grímur. í fyrirspum um gang álversins, sagði Steingrímur að hann væri hálfiruglaður á blessuðu álinu. - Ég eyddi ómældum tíma til að halda friðinn í síðustu stjóm vegna Jóns Sigurðssonar. Ég tel að hann hafi gert viss mistök með því að binda sig of fljótt í sambandi við orkumálin. Sérfræðingar spáðu því að álverð myndi hækka, en hvar er sú hækkun? Þvert á móti hefúr álverðið verið að lækka og ekkert sem bendir til að það hækki. Við verðum tvímælalaust að setja ffarn þá skuldbindingu að Atlantsál borgi fyrir orkuna, hvort sem þeir koma til með að nota hana eða ekki, sagði Steingrímur. -sþ Stjómin blekkir almenning Athugun ríkisstjórnar- innar um að selja ríkis- bankana, mælist misvel fyrir. Steingrímur J. Sig- fússon, segir að ríkisstjórn- in sé vísvitandi að blekkja fólk varðandi umfang bankanna. Steingrímur Hermannsson, fyrrverandi forsætisráðherra, segir að hætta sé á að bankanir lendi í höndum örfárra fjármagnseigenda og telur að völdin séu að færast á fárra manna hendur. Steingrímur J. Sigfússon, fyrrverandi ráðherra, segir að talsmenn einkavæðingar hafi engin rök fyrir sölu rík- isbankanna. - Það hefur ekki tíðkast í langan tima að ríkið skipti sér af starfsemi bank- anna. Ég tel að vísvitandi sé verið að blekkja fólk í mál- efnum bankanna. Ef þeir verða seldir er hætta á að fá- menn valdaklíka, eða fjöl- skyldur fái enn meiri ítök í okkar efnahagslífi enn verið hefúr, nóg hefur það verið samt. Það kæmi mér ekki á óvart að bankanir yrðu seldir eða hreinlega gefnir eins og Jón Sigurðsson gerði við Út- vegsbankan á sínum tíma, sagði Steingrímur. - Mér finnst þetta mál lykta af fijálshyggjukredd- um, ef ríkisstjómin ætlar sér að þjóna Tatcherismanum með sölu á allra handa rikis- fyrirtækjum, er mér spum, hvers vegna þeir fjölgi ekki í ráðherranefndinni sem fjall- ar um málið. Það er nær að Hannes Hólmsteinn Gissur- arson sitji í nefndinni ffekar en að kippa í einhverja spotta bak við einstaka ráð- herra. Steingrimur Hermanns- son sagði á fúndi, er hann hélt í gær, að ekki gætu margir keypt fyrirtæki sem ríkisbankana. - Ég er hrædd- ur um að bankanir komi til með að lenda í höndum sömu fjármagnsaðila sem öllu virðast ráða hér í dag. Ef einkabanki lendir í greiðsluerfiðleikum við er- lenda aðila, hljóta stjómvöld að koma til bjargar, ekki þýðir að skilja við viðskipta- menn bankans í reiðileysi, sagði Steingrímur. -sþ EB samdi af sér Á beininu: Jón Baldvin Hannibalsson Vopna- hlé í Slóveníu Vinir mínir Norðmenn hræðast inngongu í EB Willy Brandt á Islandi:

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.