Þjóðviljinn - 29.06.1991, Blaðsíða 9
Svik
og prettir
Albert Finney er einsog skapaður ( hlutverk sitt og hefur ekki verið betri siðan hann lék I The Dresser.
Bioborgin
Valdatafl (Millers crossing)
LEIKSTJORN, FRAMLEIÖSLA OG
HANDRin JOEL OG ETHAN COEN
Aöalleikarar: Albert Finney,
Gabriel Byrne, John Turt-
urro, Marcia Gay Harden,
JON POLITO
eir bræður Joel og Ethan Co-
en eru að mörgu leyti frá-
brugðnir öðrum starfsfélög-
um sínum. Það er líkt og
kvikmyndir þeirra séu myndir um
ákveðnar tegundir kvikmynda. Þeir
líta frónískum augum á viðfangsefh-
ið og gera hálfþartinn grín að því.
Þannig var fyrsta mynd þeirra, Blood
simple, afar óvenjulegur „film noir“
og Raising Arizona sérstæð gaman-
mynd um vonlausa bamaræningja.
Persónur í myndum þeirra stíga yfir-
leitt ekki í vitið og þeir gera lítið til
að skapa samkennd milli áhorfenda
og aðalpersóna. Nú er þriðja mynd
þeirra Valdatafl komin til íslands rétt
eftir að nýjasta mynd þeirra, Barton
Fink, hlaut Gullna Pálmann á kvik-
myndahátíðinni í Cannes.
Valdatafl er mafíumynd sem ger-
ist í New Orleans á kreppuárunum.
En söguhetjumar em ekki róman-
tísku týpumar sem við eigum að
venjast úr myndum eins og Guðfoð-
umum. Þeir em heimskir, ágjamir og
svikulir og yfirmenn borgarinnar em
ekkert skárri. Aðalpersóna myndar-
innar er glæponinn Tom Reagan sem
Gabriel Byme leikur. Hann er undir-
maður aðal glæpakóngsins í New
Orleans, Leo. Myndin hefst á því að
einn minni glæpon biður Leo um
leyfi til að drepa veðmangara sem
vissi að glæponinn var búinn að hag-
ræða hnefaleikakeppni og seldi öðr-
um upplýsingar um það. Það finnst
glæponinum léleg siðfræði, því ef
maður getur ekki treyst svindli,
hveiju getur maður þá treyst? Hon-
um finnst heldur ekki nógu mikið af
„heiðarlegum glæponum" í kringum
sig. En Leo neitar honum um leyfið,
enda heldur hann við systur veðm-
angarans. Upp úr þessari neitun hefst
strið á milli glæpaflokka sem Tom,
félagi Leos er andsnúinn. Honum er
sama um veðmangarann þó að hann
elski líka systur hans og haldi við
hana án þess að Leo viti af því. En
þegar Leó kemst að því þá upphefst
mikil svikamylla og snúið er á áhorf-
andann oftar en einu sinni þvi að að-
alpersónan Tom er alltaf skrefi fram-
ar en aðrir. Og ekki endar myndin
vel að Hollywood-sið, enda Coen-
bræður þekktir fyrir annað.
Valdatafl er snilldarleg blanda af
háði, alvöru, stíl og góðu innihaldi.
Þetta er bitur ástarsaga sem á sér stað
mitt í hrollvekjandi glæpasamfélagi
Það eru margar vídeóleigur I
Reykjavík og mikið af myndum á
þeim. Þar er hægt að næla sér í allar
myndimar sem maður missti af í bíó
og jafnvel myndimar sem komust
aldrei í bíó. Sumar vídeóleigur bjóða
líka upp á myndir sem vora gerðar
áður en sum okkar vom bytjuð að
fara á bíó og aðrir em búnir að
gleyma.
Ég hef hugsað mér að taka smá
pláss endrum og eins til að kynna
og á aldrei möguleika á að verða að
neinu.
Gabriel Byme er góður í hlut-
verki Toms, klár maður sem samtím-
is er kaldur og yfirvegaður. Hann er
ekki hlynntur ofbeldi, heldur kýs
hann að fá vilja sínum ffamgengt
með svikum. Albert Finney leikur
Leo, írskan, grunnhygginn glæpa-
kóng sem er leikinn með vélbyssu.
myndbönd sem annars gætu farið
ffam hjá jafnvel hörðusm vídeósjúk-
lingum.
Twelve angry men var gerð árið
1957. Sidney Lumet leikstýrði
myndinni eftir handriti Reginald
Rose sem hann vann upp úr sam-
nefndu leikriti sínu. Myndin gerist
öll inni í herbergi þar sem tólf manna
kviðdómur reynir að koma sér saman
um hvort dæma eigi unglingsstrák tij
dauða fyrir að drepa föður sinn. í
Finney er eins og skapaður í hlut-
verkið og ég hef ekki séð hann eins
góðan síðan hann lék í The Dresser
um árið. En það er John Turturro
sem stelur senunni, hann er einstakur
skapgerðarleikari eins og sést hefúr í
hlutverkunum sem hann hefúr leikið
fyrir Spike Lee, og hér er hann ekk-
ert minna en frábær í hlutverki
óprúttna veðmangarans sem jafnvel
fyrstu eru allir sannfærðir um að
hann hafi drýgt morðið, nema einn
maður. Honum finnst vitnisburður-
inn á móti stráknum slakur og smám
saman fær hann fleiri á sitt band.
Hér fer allt saman, gott handrit,
heilsteypt leikstjóm, frábær leikur og
mögnuð kvikmyndataka. Myndin á
að gerast á einum sjóðheitum degi
og kviðdómurinn svitnar og þreytist
æ meira eftir því sem á líður. Klukk-
an tifar og smám saman koma ein-
svíkur manninn sem bjargaði lífi
hans. Marcia Gay Harden leikur
Vemu, konuna sem bæði Tom og
Leo elska og bindur enda á vináttu
þeirra. Þetta er ekki stórt hlutverk en
mikilvægt og hún skilar því vel.
Joel og Ethan Coen hefúr tekist
að gera afburðamynd þar sem kli-
sjumar ganga upp og stereótýpumar
lifna við. Sif
kenni persónanna betur í ljós og
ástæður þeirra fyrir skoðunum sínum
á hinum ákærða. Henry Fonda leikur
efasemdarmanninn og Lee J. Cobb
þann sem Iengst af er sannfærður um
sekt stráksins.
Þetta er mjög gott skapgerðar-
drama og það er athyglisvert að
fylgjast með hvemig hægt er að
magna upp spennu með aðeins tólf
ólíkum manneskjum i einu herbergi.
Sif
Myndband vikunnar
Sumardagskrá Bíóborgar/hallar
Bíóhöll og Bíóborg ættu að
hafa eitthvað fyrir alla í
sumar, enda skarta þessi
kvikmyndahús samanlagt
átta sölum. Eg veit ekki í hvoru
bíóinu myndirnar hér á eftir birt-
ast eða hvenær, en sumarið mun
leiða það í ljós.
* Skjaldbökumar koma aftur í
sumar í myndinni Teenage mutant
ninja turtels II: The secret of the
ooze. Þar em skjaldbökumar orðnar
umhverfisvemdarsinnar og beijast
fyrir því að eiturefnið sem gaf þeim
yfimáttúrlega krafta komist ekki í
rangar hendur. Framleiðendur mynd-
arinnar fengu nokkra gagnrýni fyrir
ofbeldið í fyrri myndinni vegna þess
hvað áhorfendur vom ungir, og í
þetta skiptið hafa þeir reynt að halda
ofbeldinu í lágmarki.
* Tim Burton, leikstjóri Be-
etlejuice og Batman, heldur sig enn-
þá innan ævintýrageirans í nýjustu
mynd sinni, Edward Scissorhands.
Þar leikur Johnny Depp strákinn Ed-
ward sem uppfmningamaður smíð-
aði (einskonar Gosa). Edward hefur
heila og hjarta og allt annað sem þarf
til að vera eins og alvöm strákur,
nema eitt. Uppfinningamaðurinn dó
áður en hann gat fest á hann hendur
og þar hefur Edward hnífbeitt skæri
sem gerir honum lífið oft erfitt. Di-
ane Wiest leikur konu sem finnur
hann og fer með hann heim til sín og
Winona Ryder leikur heimasætuna
þar á bæ sem Edward verður ást-
fanginn af.
* Rainbow Drive er löggumynd
með Peter (Robocop) Weller í aðal-
hlutverki. Hann leikur lögregluþjón-
inn Mike Gallagher sem einn góðan
veðurdag finnur fimm lík í yfirgefnu
húsi skammt ffá heimili sínu. Hann
verður fúrðu lostinn þegar honum er
sagt að hann fái ekki að rannsaka
málið, og enn flækist það þegar hann
fféttir að aðeins sé verið að rannsaka
fjögur morð, fimmta líkið virðist
hafa horfið. Náttúrlega hlýðir hann
ekki skipun yfirboðara síns og rann-
sókn hans leiðir hann upp á efstu
þrep þjóðfélagsstigans.
* Nicholas Cage leikur aðalhlut-
verkið í myndinni Zandalee ásamt
þeim Judge Reinhold og Eriku And-
erson. Cage leikur málarann Johnny
sem táldregur konu besta vinar síns,
Thierry (Reinhold). Konan, Zan-
dalee, veit ekki hvað hún er að láta
hafa sig út í þegar hún fer að halda
við Johnny þvi hann er ekki allur þar
sem hann er séður, og á endanum er
fleira en hjónabandið komið í rúst.
* Nú má James gamli Bond fara
að passa sig því það er kominn nýr
súperspæjari ffam á sjónarsviðið.
Það er Mikael nokkur Corben sem
Richard Grieco leikur í myndinni
Teen agent. Hann er á leið til Frakk-
lands með menntaskólabekknum sín-
um þegar ruglast er á honum og öðr-
um manni sem var (það er búið að
drepa hann) njósnari fyrir CIA. Þar
með er frönskunámið fyrir bí, Cor-
ben fær allskonar Bond græjur til að
bjarga heiminum, og ekki má gleyma
konunum sem eilíft falla fyrir leyni-
þjónustumönnum.
* Desperate hours er endurgerð á
samnefndri kvikmynd ffá árinu 1955
sem var með Humphrey Bogart í að-
alhlutverki. Mickey Rourke leikur
forhertan glæpamann sem hefúr flúið
úr fangelsi og felur sig ásamt tveim-
ur félögum sínum í litlu einbýlishúsi
og tekur fjölskylduna þar í gíslingu á
meðan hann ákveður flóttaleið. Þess-
ir klukkutímar sem hann eyðir með
fjölskyldunni reynast afdrifarikir fyr-
ir alla. Anthony Hopkins leikur fjöl-
skylduföðurinn en Mimi Rogers
móðurina. Michael Cimino leikstýrir.
* Nýjasta mynd Mike Hodges
heitir Black Rainbow og er um sam-
band miðils og rannsóknarblaða-
manns. Rannsóknarblaðamaðurinn
sem Tom Hulce leikur ætlar sér að
fletta ofan af miðlinum (Rosanna
Arquette), en kemst þá að því að hún
hefur raunverulega hæfileika og get-
ur til dæmis séð fyrir morð og aðrar
hörmungar. Það versta er að hún sér
einnig andlit morðingjans svo að hún
þarf að flýja með hjálp blaðamanns-
ins.
* What about Bob er ný gaman-
mynd leikstjórans Frank Oz, en hann
leikstýrði til dæmis Dirfy rotten sco-
undrels (og var einn af þeim sem átti
að leikstýra Mermaids). Myndin seg-
ir ffá Bob (Bill Murray) sem er af-
skaplega taugaveiklaður maður,
meira að segja vandamálin hans eiga
við vandamál að striða. Til að hjálpa
sér við að yfirvinna vandamálin er
hann hjá afskaplega yfirveguðum
sálfræðingi sem Richard Dreyfúss
leikur. En þegar Dreyfúss fer í ffí
með fjölskyldu sinni líst Murray ekki
á blikuna og eltir hann.
* Sylvester Stallone er eitthvað
að reyna að færa sig út úr aksjón-
myndageiranum og í myndinni Osc-
ar reynir hann við gamanhlutverk.
Myndin gerist snemma á fjórða ára-
tugnum og Stallone leikur glæponinn
Snaps sem lofar föður sínum á dán-
arbeði að hætta allri glæpastarfsemi
og gerast heiðarlegur borgari. Það er
náttúrlega hægara sagt en gert.
* Rocketeer er leikin teikni-
myndahetja sumarsins. Hann er uppi
í seinni heimsstyijöldinni og berst
við nasista með undarlegu tæki sem
gerir honum kleift að fljúga. Bill
Campbell leikur hetjuna, Jennifer
Conelly kærustuna og Joe Johnston
leikstýrir.
* Michael Keaton birtist á hvita
tjaldinu í sumar í myndinni One
good cop um góða löggu (altsvo
löggu sem þiggur ekki mútur) í New
York sem lendir f því að félagi hans
deyr og hann þarf að s á um þijár
foreldralausar dætur hans. Þá dugar
kaupið ekki fyrir lífsnauðsynjum og
Keaton þarf að velta því fyrir sér
hvort reglur séu kannski til að bijóta
þær. Heywood Gould skrifaði hand-
ritið og leikstýrir myndinni einnig.
* Only the lonely skartar gömlu
þokkadísinni Maureen O’Hara í einu
af aðalhlutverkunum, en hún hefúr
ekki sést á hvíta tjaldinu í næstum
því tuttugu ár. Hér leikur hún móður
löggunnar Danny Muldoon sem John
Candy leikur og gerir honum lífið
erfitt þegar hann verður ástfanginn af
dóttur útfararstjóra sem Ally Sheedy
leikur. Chris Columbus leikstýrir en
sá ffægi grínari John Huges er ffam-
leiðandi. Sif
Við erum í sama húsnæði
og SANDUR HF.
Þar fæst einnig
allt f múrverkið.
Stórhöfei
SflNDUR HF.
VIÐARHÖFÐA1 • SÍMI673555 ‘112 REYKJAVÍK
JWl
ÍSLENSKAR MÚRVÖRUR HF.
Viðartiöfði 1-112 Reykjavík - Sími 673555
IMUR-klæöning
fslenskt múreinangrunarkerfi
SEMKÍS
steypuvibgeröarefni og
múrblöndur
*
Islenskar múrvörur
fyrir íslenskar
aöstæöur
Tækniþjónusta og rdögjöf
Æ, Æ
VNR
ÍSLENSKAR MÚRVÖRUR HF.
Viðarhöfði 1-112 Reykjavík - Sími 6735E
--------------------
Síða 9
ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 29. júní 1