Þjóðviljinn - 29.06.1991, Blaðsíða 16
Tímamót í öryggismál
Igær var Slysavarnafclaginu afhent fyrsta neyðarsendibaujan, en
það er tæki sem tengist gervitungli og á sinn þátt í að stytta björg-
unartíma verulega. Búnaður þessi er nú þegar skyldaður um borð i
skipum hjá mörgum þjóðum, t.d. Noregi, Bretlandi og U.S.A., en
SVFÍ hefur allt frá árinu 1988 reynt að vekja athygU yfirvalda á mikil-
vægi þessa búnaðar fyrir íslenska sjófarendur.
Þann 8. febrúar s.l. samþykkti
Alþingi reglugerð varðandi viður-
kenningu á EPIRB neyðarsendibauj-
um, eins og þær eru kallaðar. I ffam-
haldi af því hafa nokkrar baujur ver-
ið samþykktar og er JOTRON bauj-
an, sem Radíómiðun h.f. er umboðs-
aðili fyrir ein þeirra.
COSPAS/SARSAT er gervi-
tunglavætt leitar- og björgunarkerfi,
sem er hannað til þess að staðsetja
neyðarsendingar ffá EPIRB neyðar-
baujum sem senda á 121,5 MHz og
406,025 MHz. Þetta gervitunglakerfi
er samvinnukerfi
þriggja þjóða ffá árinu 1976, þ.e.
Bandaríkjanna, Frakklands og Kan-
?da, en Sovétríkin bættust í þann
hóp 1980 og Noregur síðan árið
1981.
Kerfið samanstendur af 5 gervi-
tunglum sem eru á braut umhverfís
jörðu í u.þ.b 900 km fjarlægð. Svo-
kallaðar EPIRB baujur (Emergency
Position Indicating Radio Beacon),
sem staðsettar eru um borð í skipum
senda neyðarsendingar til gervi-
tunglanna, þegar skip er í neyð, en
móttökustöðvar á jörðu niðri taka
við upplýsingum frá gervitunglun-
um.
Eftir að móttökustöðin hefur
reiknað út nákvæma staðsetningu,
þá hefúr hún samband við nálægustu
björgunarstöð. Með skipsnúmerinu
er hægt að sjá á augabragði upplýs-
ingar um skipið, t.d. þjóðemi,
áhafnafjölda, eiganda o.fl., en með
þessar upplýsingar getur björgunar-
stöðin gert viðeigandi ráðstafanir.
Björgunarþyrlum, flugvélum og
skipum er síðan stefnt á slysstað, en
þar sem baujan sendir einnig út á
neyðartíðninni 121,5 MHz, þá geta
björgunaraðilar einnig miðað út
baujtma þegar þeir nálgast slysstað-
inn.
Baujumar eru búnar sjálfvirkum
sleppibúnaði, en nokkrir ftamleið-
endur bjóða einnig upp á upphitaðan
sleppibúnað til þess að fyrirbyggja
ísingu, þ.á m. er JOTRON.
Fyrsta baujan fór um borð i
Henrý A. Halfdánarson, björgunar-
skip SVFÍ.
-KMH
Kristján Gíslason, frá Radíomiðun
h.f., afhenti Hannesi Þ. Hafstein,
forstjóra Slysavarnafélaas Islands,
fyrstu gervitunglabaujuna.
Mynd: Kristinn.
Atvinnusjúkdómar
kosta 10-12 milljarða á
Talið er að atvinnusjúkdómar kosti íslendinga um 10-12 millj-
arða á ári og er ástæðan fyrir þeim oftast lélegur aðbúnaður á
vinnustað. Þetta kom meðal annars fram á ráðstefnu sem haldin
var fyrir skömmu á vegum áhugahóps sjúkraþjáfara um vinnu-
vernd. Tilgangurinn með ráöstefnunni var að vekja umræðu um tengsl
álagseinkenna og atvinnu í viðtækasta skilningi.
Sjúkraþjálfaramir sem stóðu að
ráðsteftiunni sóttu stuðning sinn til
ýmissa aðila, þar á meðal vinnueftir-
litsins, en yfirlæknir þess er Vil-
hjálmur Rafnsson.
.Algengasta álagseinkennið sem
við þekkjum er vöðvabólga en hún er
mjög algeng hér á landi,“ sagði Vil-
hjálmur. „Fólk sem vinnur ákveðin
störf s.s fiskvinnslu og skrifstofústörf
kvartar meira undan vöðvabólgu en
aðrir. Erfiðisvinna, þar sem mikið er
um sömu og endurteknu hreyfingam-
ar, stuðlar einmitt að vöðvabólgum."
Vilhjálmur sagði að á ráðstefn-
unni hefðu menn reynt að hreyfa við
fleiri orsakaþáttum álagseinkenna
eins og t.d. andlegu álagi, þ.e. áhrif-
um streitu og mikils álags.
„Með álagseinkennum eiga menn
ekki aðeins við einhvem atvinnu-
sjúkdóm, heldur einnig óþægindi
sem vara í misjafnlega langan tíma
og menn rekja til þess að þeir leggja
of mikið á líkamann og sálina,“ sagði
Vilhjálmur.
Hann sagði að fyrir nokkrum ár-
um hafi verið gerð hér athugun á
óþægindum fólks ffá hreyfi- og stoð-
kerfinu og þá virtist sem Islendingar
hefðu mikið af þessum óþægindum
og þá jafhvel í meira mæli en ná-
grannaþjóðimar. „Við höfum sér-
stöðu hér á Islandi vegna þess að hér
er langur vinnudagur og hlutfallslega
fleiri konur em hér á vinnumarkaðn-
um.“
Vilhjálmur sagði einnig að konur
hefðu oftast tvöfalda verkefnaskipan,
því þær stæðu í meirihluta tilfella
fyrir heimilinu og þá yrðu þær að
sinna því eftir langan vinnudag. Og
þetta gæti skýrt það hvers vegna kon-
ur hefðu meiri óþægindi ffá hreyfi-
og stoðkerfi en karlar.
Eins og áður sagði era það at-
vinnugreinar eins og fiskvinnsla,
verksmiðjustörf og skrifstofustörf þar
sem mest er um álagssjúkdóma. „1
fiskvinnslu er t.d. afkastamikið
launakerfi sem eykur vinnuhraðann.
ári
Þar er einnig mikið um einhæf hand-
tök, sömu handtökin affur og aflur
með miklum hraða,“ sagði Vilhjálm-
ur.
En hvað getur fólk gert til að
koma í veg fyrir þessa sjúkdóma?
Vilhjálmur sagði að vinnustaðir yrðu
að vera hannaðir þannig að sem best
fari um einstaklinga. Það er skylda
atvinnurekandans að sjá til þess að
svo sé. Oft þarf að skipuleggja vinn-
una þannig að fólk geti skipst á störf-
um, þannig að ekki sé alltaf verið að
gera það sama. „Það er einnig nauð-
synlegt að fólk taki sér hlé á vinnu
og noti þá þann tima til að hreyfa sig
og rétta úr sér.“
Vilhjálmur sagði að lokum að
þeir einstaklingar sem ekki búa við
góða aðstöðu á vinnustað ættu að
snúa sér til vinnueftirlitsins.
-KMH
Talsvert um steranotkun
Allmargir læknar hafa tilkynnt landlækni um að þeir hafi orðið
talsvert varir við aukaverkanir af notkun ólöglegra vaxtarhorm-
óna, svokallaðra stera, sér í lagi hjá sjúklingum í hópi vaxtar-
ræktar- og kraftlyftingamanna.Landlæknir óskaði bréflega fyrir nokkr-
um vikum eftir upplýsingum frá læknum um hvort þeir verði varir við
aukaverkanir af steralyfjum hjá sjúklingum sínum.
„Sumir læknar segjast hafa verið
beðnir um tilvísanir á steralyf og við-
komandi haft það á orði að þetta
væri mikið notað í vaxtarrækt, en að
sjálfsögðu hafa þeir neitað að gefa
slíkt, enda er það ólöglegt," segir
Matthlas Halldórsson aðstoðarland-
læknir.
Svör hafa ekki borist lfá öllum
og því eftir að vinna heildamiður-
stöður úr athuguninni. Matthías segir
að ákveðið hefði verið að kanna
hvort hér væri um vandamál að ræða
áður en 35 einstaklingar í hópi vaxt-
arræktar- og kraftlyftingamanna
höfðuðu ærumeiðingarmál á hendur
Pétri Péturssyni lækni á Akureyri
vegna ummæla hans í fjölmiðlum
um að notkun stera væri mjög algeng
meðal þeirra.
,4>að má segja að mál Péturs hafi
ýtt undir að þetta bréf landlæknis var
sent út,“ segir Matthías. Pétur Pét-
ursson er krafinn um 10,5 miljónir í
miskabætur, greiðslu málskostnaðar
og þess- krafist að ummæli hans verði
dæmd ómerk.
Áhrif af steranotkun eru marg-
víslegar. M.a. má nefha breytingar á
fituefnaskiptum og hormónastarf-
semi. Hárvöxtur eykst, húð verður
þrimlótt, skapgerðareinkenni breyt-
ast þannig að viðkomandi neytandi
að er einkennilegt af ríki-
stjórn að vísa öllu frá sér sem
viðkemur atvinnuvegunum.
Það er eins og hún vilji að fyrir-
tækin verði gjaldþrota og jafnvel
heilu starfsgreinarnar, sagði Stein-
grímur J. Sigfússon um stefnu rík-
isstjórnarinnar í efnahagsmálum.
Steingrímur sagði að sér væri
spum hvemig þessi stjóm hefði tekið
á málum fiskiðnarins árið 1988 ef
hún hefði verið við völd þá. - Ef þeir
eru samkvæmir sjálfum sér er það
Guðs blessun að hún var ekki við
verður uppstökkur, tíðablæðingar
kvenna traflast, brjóst karla stækka,
rödd kvenna dýpkar mjög og áhætta
á krabbameini í Iifur eykst. Sé lyfið
gefið inn með sprautu eykst hætta á
sýkingum, t.d. alnæmissmiti, ef
menn nota sprautur hver ffá öðrum.
Matthías segir næsta skref, eftir
að unnið hefur verið úr upplýsingum
ffá læknum, að auka mjög ffæðslu
um áhrif steralyfja. „Það er umdeilt
hvað menn fá út úr steram við
stjómvölinn þá, ef svo hefði verið
væri varla nokkurt sjávarútvegsfyrir-
tæki starfandi hérlendis í dag, sagði
Steingrímur.
Núverandi ríkisstjórn gengur
jafnvel enn lengra í átt til fijáls-
hyggju en stjómir kapitalískra ríkja
eins og Bandaríkjanna og Japans,
sagði Steingrímur við Þjóðviljann. -
í þessum ríkjum styðja stjómvöld við
atvinnuvegina ef þeir eiga í erfiðleik-
um. Eg nefni dæmi um bílaiðnaðinn í
Bandaríkjunum, þegar hann var á
heljarþröm komu þarlend stjómvöld
til hjálpar.
Ráðaleysi þessarar
ríkisstjómar virðist
íþróttanotkun og sumir sem telja
áhrifin sem sóst er eftir mest sál-
fræðilegs eðlis,“ segir Matthías.
„Þvagprafa kostar 15.000 krónur og
ekki hægt að beita þeim endalaust.
Við höfum fengið íþróttahreyfinguna
til samstarfs um ffæðslu og t.d. hefúr
verið rætt um að gefa út bækling sem
fjallar eingöngu um þessi efni og
aukaverkanir þeirra.“
-vd.
algjört
Ráðaleysi þessarar ríkisstjómar
virðist algjört. Síðan er forsætisráð-
herra með einhvetjar dylgjur um að
síðasta ríkisstjóm hafi verið að leyna
einhvetjum vandamálum. Ég veit
ekki hvar hann hefur haldið sig, alla-
vega hefúr hann ekki fylgst með því
hvað hér hefúr verið að gerast varð-
andi atvinnuvegina, það var í okkar
augum alltaf ljóst og við leyndum
engu um það. Að dreifa athyglina
með svona sandkassaleik finnst mér
ekki hæfa forsætisráðherra landsins,
sagði Steingrímur J. Sigfússon.
-sþ
Ríkið
níðist á
unglingum
Það er ljótt gat í al-
menna tryggingakerfinu
sem einungis bitnar á sextán
ára unglingum.
Þeir fá ekki sjúkradagpen-
inga þó að þeir veikist.
Sextán ára menntaskóla-
nemar sem lögformlega eru
ekki lengur á framfæri for-
eldra sinna virðast komnir
með skyldur en ekki réttindi
samkvæmt skilgreiningu ís-
lenska ríkisins. Þeir eiga að
vinna fyrir sér en hvað gerist
ef þeir veikjast eða lenda í
vinnuslysi? Þá teljast þeir
ekki með öðru fólki.
Sigríður Guðmundsdóttir
hjá Tryggingastofnun ríkisins
staðfesti að petta væri gamalt
misrétti og hörmulegt gat í
kerfinu. Að því er Leifur
Guðjónsson hja Verkamanna-
félaginu Dagsbrún segir, eiga
allir fúllgildir félagar í Dags-
brún rétt á sjúkradagpening-
um eftir sex mánaða vtnnu en
það dugir skammt fyrir þá
sem eru ao vinna fyrir námi.
-kj
Hertar
innheimtU'
aðgerðir
Fjármálaráðuneytíð hef-
ur ákveðið átak í innheimtu
útistandandi skattaskulda
lögaðila og einstaklinga við
ríkissjóð. Stefnt er að því
aðgerðir hefjist um land allt
1. júh' næstkomandi.
Útistandandi skuldir á
virðisaukaskatti skattskyldra
einstaklinga og lögaðila nema
um 1600 miljón króna sem er
um 4% af aætluðum tekjum
ríkissjóðs af virðisaukaskatti.
Þá eru útistandandi stað-
freiðsluskuldir um 1700 milj-
n krónur. Þar af eru 80 milj-
ónir króna vegna álagningar
ársins 1988, 180 miljónir
vegna 1989, 770 miljónir
vegna 1990 og 650 miljónir
krona vegna yfirstandandi árs.
-grh