Þjóðviljinn - 31.07.1991, Qupperneq 4
Ehlenbar w frettir
Ort vaxandi munur á ríkum
og fátækum í Bandaríkjunum
Anæstliðnum áratug fór
munur á tekjum rikra og
fátækra Bandaríkja-
manna mjög vaxandi. Það eina
prósent þegnanna sem mest
hafði handa í milli jók tekjur
sínar um 122% (eftir að skattar
hafa verið dregnir frá), en sá
fimmtungur Bandaríkjamanna
sem minnst hefur, varð fyrir um
10% tekjuskerðingu á sama
tíma.
Þetta eru niðurstöður rann-
sóknar sem sýna meðal annars, að
það eina prósent Bandaríkjamanna
sem ríkastir eru bætti tekjur sínar
úr 203 þúsund dollurum á Qöl-
skyldu árið 1977 í 451 þúsund
dollara (rúmlega 27 miljónir
króna) árið 1988. Og skal það tek-
ið fram að búið er að taka tillit til
verðbólgu; hér er um raunverulega
„kaupmáttaraukningu" að ræða.
Rannsóknin var gerð á vegum
stofnunar sem nefnist „Center on
Budget and Policy Priorities", sem
er kallað einskonar „hugsana-
banki" fijálslyndra manna.
Þessar niðurstöður ganga þvert
á þá talnanotkun sem John Naisbitt
og aðrir atvinnumenn í samfélags-
bjartsýni hafa leyft sér og á að
sanna, að andstæður í samfélaginu
séu ekki að skerpast, heldur þvert á
móti; flestir séu á leið uppávið þar
sem friðsæl neyslugleðin ríkir.
Ekki svo að skilja, að vaxandi
bil á milli ríkra og fálækra sé ein-
hverskonar lögmál í Bandaríkjun-
um. Sú rannsókn sem hér er vitnað
til greinir frá því að á sjötta og sjö-
unda áratugnum dró heldur úr
tekjumun í Bandaríkjunum og
komu þar til bæði efnahagsleg og
pólitísk áhrif. En síðan gerðist það,
að sögn Isaacs Shapiros, talsmanns
þess hóps sem könnunina vann, að
í byrjun áttunda áratugarins tók
tckjumunur að vaxa. Sú tilhneiging
hefur haldið áfram síðasta áratug.
Og þetta er sá sami tími og forsetar
Lúxusíbúö í New York: allt leggst á eitt með þeim sem rlkastir eru...
Repúblíkana hafa ráðið ríkjum í
Hvíta húsinu og létt m.a. sköttum
og skyldum af þeim ríkustu undir
því yflrskyni að allt samfélagið
græddi á slíkri stefnu.
Rannsóknin tekur til tímabils-
ins frá 1977 til 1988. Sem fyrr seg-
ir Ieiddi hún í ljós, að sá fimmt-
ungur heimila sem bjó við kröpp-
ust kjör varð á þessum áratug fyrir
kjaraskerðingu sem nam um tíu af
hundraði. Sá fimmtungur Banda-
ríkjamanna sem var í næstfátæk-
asta hópnum varð einnig fyrir
kjaraskerðingu á þessum tíma -
um 3%. Fimmtungurinn í miðjunni
bætti ögn við sig í tekjum á tíma-
bilinu eða fjórum af hundraði. Þeir
næstbestsettu fengu svo níu pró-
sent tekjuaukningu og þau tuttugu
prósent Bandaríkjamanna sem rík-
astir eru fengu hvorki meira né
minna en 34% aukningu raun-
tekna.
Það er í þeim hópi sem finna
má forstjórahópana, sem hafa
dregið að sér mikil greinaskrif að
undanfömu fyrir „græðgi í stjóm-
arherbergjum“, m.ö.o. fyrir þá
sjálfskömmtun á launum og fríð-
indum sem þessi yfirstétt hefur
tekið sér.
Þetta sést til dæmis á því að ef
að 5% ríkustu fjölskyldurnar eru
teknar út af fyrir, þá er tekjuaukn-
ing þeirra um 60% en ef að eitt
prósent þeirra allra ríkustu er færð-
ur til bókar þá hefur hann krækt sér
í 122% viðbót af þeirri frægu þjóð-
arköku.
1 íyrgreindri athugun er og
gerð grein fyrir ástæðum þessarar
þróunar. Þar er talað um það að í
raun hefur orðið launafrysting hjá
þeim sem lægri launin hafa, meðan
fjármagnstekjur hinna ríku hafa
vaxið mikið. Félagsleg þjónusta og
atvinnuleysisbætur til þeirra sem
verst eru settir hafa skroppið sam-
an. Og sem fyrr segir: Breytingar á
skattapólitík hafa leitt til þess að
skattgreiðslur þeirra allraríkustu
(eina prósentið fræga) hafa minnk-
að um 18% af tekjum, meðan þeir
sem meðaltekjur hafa borga svipað
í skatt og áður.
áb byggði í IHT
Ótti við sani'
særi Ershads
og 18 fylgi-
kvenna hans
Núverandi stjóm í Bangladesh
hefur lagt fyrir hæstarétt landsins
lista með nöfnum 18 kvenna, sem
stjómin segir að fyrrverandi ein-
ræðisherra þar og forseti, Hossain
Mohammad Ershad, sem neyddist
til að láta af völdum í des. s.l. og er
nú í fangelsi, hafi haft sér tii fýlgi-
lags. Fullyrðir stjómin að kven-
menn þessir hafi ráðið miklu um
stjómun landsins með Ershad og
væri hann að reyna að grafa undan
núverandi stjóm með aðstoð
þeirra.
Stjómin lagði þetta fyrir hæsta-
rétt i þeim tilgangi að sannfæra
hann um að ekki sé ráðlegt að láta
Ershad Iausan, eins og hann hefur
farið fram á við réttinn. Hann var
dæmdur til 10 ára fangelsisvistar
fyrir að hafa undir höndum vopn
án tilskilins leyfis.
Orrustan í
Fílaskarði
Harðasta oirusta hins um tíu
ára gamla borgarastriðs á Sri
Lanka til þessa hefur staðið s.l.
þijár vikur við stöð stjómarhersins
í Fílaskarði (Elephant Pass) suð-
austan til á Jaffnaskaga, nyrsta
hluta eyjarinnar. Hafa tamíltígrar,
sem vilja sjálfstætt ríki fyrir ta-
mílska þjóðemisminnihlutann á
eynni, setið um herstöð þessa síðan
10. júlí og stjómarherinn allan
þann tíma reynt að leysa stöðina úr
umsátri. Sá sem stöðina hefur á
valdi sínu ræður einu fæm land-
leiðinni út á skagann og til borgar-
innar Jaffna.
Talsmenn Srilankastjórnar
segja að yfir 1300 manns hafi fall-
ið í orrustu þessari hingað til, flest-
ir þeirra úr liði tamíltígra. Frá þeim
er hörgull á fréttum til samanburð-
ar.
Auglýsing
um að álagningu opinberra gjalda á árinu 1991 sé lokið.
( samræmi við ákvæði 1. mgr. 98. gr. laga nr. 75/1981 um
tekjuskatt og eignarskatt er hér með auglýst að álagningu
opinberra gjalda á árinu 1991 er lokið á alla aðila sem skattskyldir
eru skv. 1. kafla framangreindra laga.
Álagningarskrár verða lagðar fram í öllum skattumdæmum
miðvikudaginn 31. júlí 1991 og liggja frammi á skrifstofu hvers
skattumdæmis og hjá umboðsmönnum skattstjóra í hverju
sveitarfélagi dagana 31. júlí -14. ágúst að báðum dögum
meðtöldum.
Álagningarseðlar skattaðila, er sýna álögð opinber gjöld 1991,
húsnæðisbætur, vaxtabætur og barnabótaauka, hafa verið póstlagðir.
Kærur vegna allra álagðra opinberra gjalda, húsnæðisbóta,
vaxtabóta og barnabótaauka, sem skattaðilum hefur verið tilkynnt
um með álagningarseðli 1991, þurfa að hafa borist skattstjóra eða
umboðsmanni hans eigi síðar en 29. ágúst 1991.
31. júlí 1991.
Skattstjórinn í Reykjavík. Gestur Steinþórsson
Skattstjórinn í Vesturlandsumdæmi. Stefán Skjaldarson
Skattstjórinn í Vestfjarðaaumdæmi. Ólafur Helgi Kjartansson.
Skattstjórinn í Norðurlandsumdæmi vestra. Bogi Sigurbjörnsson.
Skattstjórinn í Norðurlandumdæmi eystra. Gunnar Rafn Einarsson.
Skattstjórinn í Austurlandsumdæmi. Karl Lauritzon.
Skattstjórinn í Suðurlandsumdæmi. Hreinn Sveinsson.
Skattstjórinn í Vestmannaeyjum. Ingi T. Björnsson.
Skattstjórinn í Reykjanesumdæmi. Sigmundur Stefánsson.
Sprengjum varpað
á króatískt þorp
Stipe Mesic, forseti Júgóslav-
íu, gekk af fundi forsætis-
ráðs landsins í gær í mót-
mælaskyni við að ráðið kaus
Branko Kostic, varaforseta, for-
mann nefndar á vegum ráðsins
sem á að fylgjast með vopnahléi í
Króatíu, takist að koma því á.
Dvína þar með vonirnar um að
takist að stöðva bardagana í
Króatíu, og voru þær vonir þó
ekki miklar fyrir.
Mesic, sem er Króati, vildi ekki
sætta sig við Kostic sem formann
áminnstrar nefndar þar eð hann
drægi einhliða taum Serba í deilum
þeirra og Króata. Áður hafði Franjo
Tudjman, forseti Króatíu, ákveðið
að hundsa fundi helstu ráðamanna
um deilumar.
í forsætisráði eiga sæti fulltrúar
júgóslavnesku lýðveldanna sex og
sjálfstjómarsvæðanna tveggja.
Tiltölulega kyrrt var í Króatíu í
gær eftir blóðuga helgi, en þó var
barist þar sumsstaðar með sprengju-
vörpum og vélbyssum. Þá sagði
lögreglan í Zagrcb, höfuðborg
Króatíu, að tvær stríðsþotur júgó-
slavneska flughersins hefðu varpað
sprengjum á þorpið Kostajnica, sem
er í grennd við borgina Sisak, og
valdið nokkru manntjóni. Um 3000
manna lið serbneskra skæmliða var
sagt stefna á Sisak. I bardögunum
um helgina tóku skæmliðar Glina,
borg nokkm suðvestar. Virðist hér
vera um að ræða sókn skæmliða
nteð meiri eða minni stuðningi sam-
bandshersins til að ná á vald sitt
hémðum þeim í Króatíu sem em
norðvestur af Bosníu- Herzegóvínu.
Vitað er með vissu að næstum
100 manns hafa verið drepnir í bar-
dögum Króata og Serba síðustu
tvær vikur, en vera má að dánartal-
an eftir þau illindi sé talsvert hærri.
Mesic - útganga hans af fundi forsæt-
isráðs er talin staðfesting á þvl hve
gersamlega ráðalaus pólitlsk fomsta
sambandslýðveldisins sé gagnvart
ófriöi Króata og Serba.
Vígaferli kókaín-
hringa halda áfram
Vopnaðir menn mddust í fyrra-
dag inn á troðfullan bar í Cali, borg
suðvestan til í Kólombíu, og skutu
til bana 15 menn og særðu 11.
Fréttamiðlar í borginni telja ekki
ólíklegt að morðingjamir séu út-
sendarar kókaínbaróna í Medellín,
sem keppa um ráðin á eiturlyfja-
markaðnum við samskonar at-
hafnamenn í Cali.
ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 31. júlí 1991
Síða 4