Þjóðviljinn - 31.07.1991, Qupperneq 6

Þjóðviljinn - 31.07.1991, Qupperneq 6
Fékkst þú glaðn- ing frá skattinum á mánudaginn? Agnar Þorvaldsson húsamálari: Eitthvað smáræði fékk ég. En lítið var það. Elva Brynjarsdóttir nemi: Ég fékk svipaða upphæð og ég átti von á. Edda Björk Bogadóttir aðstoðarstöðvarstjóri Flug- leiða í Keflavík: Jú, jú. Ég vissi ekkert hvað ég myndi fá, og er þokka- lega ánægð með útkom- una. Halldóra Ólafsdóttir skrifstofustjóri: Já, ég fékk það sem ég bjóst við að fá. ívar Arason vélstjóri: Ég er ekki búinn að sjá seðilinn frá skattinum. En ég býst við að fá eitthvað. Fréttbr Margar konur þora aldrei að segja neinum frá því að þeim hafi verið nauðgað. Þær lifa ( hræðslu og ótta. Flestar nauðganir um verslunarmannahelgamar Vcrslunarmannahelgin fer senn í hönd og er það sá tími sem menn vilja sletta almennilega úr klaufunum og hafa það gott í góðra vina hópi. En það eru ekki allir sem hugsa til þessara helga með ánægju, því fyrir margar konur er þetta tímabil sem þær minnast með hryllingi. Skýringin er sú að útihátíðir hafa orðið vettvangur fjölmargra nauðgana og annarrar kynferðislegrar mis- notkunar. Stígamót, en það eru samtök sem veita þolendum kynferðislegs ofbeldis ráðgjöf og stuðning, standa nú fyrir herferð til að stuðla gegn þessu mikla ofbeldi. Samtökin hafa látið útbúa veggspjald sem dreift verður víðsvegar um landið og er ætlað að vekja alla, sérstaklega ung- linga og foreldra þeirra, til umhugs- unar um þessi mál. Ingibjörg Guðmundsdóttir, tals- maður Stígamóta, sagði að fjöl- margar stúlkur, þær yngstu á aldrin- um 13-14 ára hafi leitað til samtak- anna vegna þess að þeim hefði verið nauðgað. „Það eru margar stúlkur sem ætla að hafa það svo gaman um einhverja verslunarmannahelgina, en í stað þess verða þær fyrir nauðg- un og þar með líf þeirra lagt í rúst.“ Ingibjörg sagði að með herferð- inni væri verið að vekja fólk til um- hugsunar um þær hættur sem geta skapast þegar mikill mannfjöldi er saman kominn og margir ofurölvi. „Við viljum einnig vekja athygli á því, að þegar stúlkur segja Nei, þá meina þær Nei.“ Kunningjanauðganir verða oft einmitt vegna þessa óskýru tjáskipta. Þessar stúlkur, sem hafa ef til vill verið eitthvað ölvaðar, þora síðan ekki að kæra eða segja frá, af einhverjum ástæðum. Þær halda kannski að þær hafi átt ein- hverja sök á atburðinum. En nauðg- un er nauðgun ef karlmaður hefur kynmök við konu gegn hennar vilja.“ Ingibjörg sagði að það væru til menn sem stunduðu þá iðju að leita uppi dauðadrukknar stúlkur til að misnota þær. Stígamót vilja hvetja vinkonur að fylgjast með hver annarri, og ef fólk sér eitthvað' athugavert, þá á það að athuga hvort allt sé í lagi. Þess má geta að Stígamót verða með ráðgjafa í Vestmannaeyjum og Húnaveri sem stúlkur geta leitað til verði þær fyrir nauðgun eða misnotkun. KMH. ÞÝÐIR NAUÐGUN ER GLÆPUR STÍGAMÓT V«U8«t 3 SiurCeWM og «®7S Stlgamót hafa látiö útbúa vegg- spjald sem á að vekja fólk til um- hugsunar um þaö hversu alvarlegt mál nauðganir eru. Drukknar stúlkur geta sér enga björg veitt ef karlmaöur ætlar að nauðga þeim. ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 31. júlí 1991 Síöa 6 i'GOf ilúi .fE íup.sbui/livóiM HHlUiVGÓl.l

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.