Þjóðviljinn - 31.07.1991, Page 8

Þjóðviljinn - 31.07.1991, Page 8
Um 250 manns mættu ( Tungnaréttir 1 Biskupstungum til að mótmæla æfingum hersins á afréttum sýslunnar. Mynd: Jón Fjörnir. Sveitir landsins herteknar A Sveinþór Þórarinsson skrifar Heræfingar þær sem nú standa yfir eru á margan hátt nýstárlegar. Hingað til hefur banda- riski herinn látið sér nægja að vera í tindátaleik suður með sjó, innan þess svæðis er hann hefur illu heilli undir höndum. Nú horfa málin hins vegar þannig, á tímum afvopnunar og þíðu í al- þjóðlegum stjómmálum, að herinn er farinn að teygja anga sína víðs vegar um okkar ástkæra land. Ekki er nóg með að leikurinn sé stundaður við „hemaðarlega lítt mikilvægar" ratsjárstöðv- ar fyrir vestan og austan, heldur eru hennenn gráir fyrir jámum komnir í uppsveitir Ámes- sýslu. Brýtur utanríkisráðherra lög með því að heimila æfingar hersins á svæðum sem hann hefur enga stjómsýslu yfir og án nokkurs sam- ráðs við ráðamenn þeirra svæða? Hver það er, sem hefur heimild til að leyfa Hver hefur leyfi til að heimila heræfingar utan hinna svokölluðu varnarsvæða? heræfingamar utan hinna svokölluðu vamar- svæða, virðist ekki liggja Ijóst fyrir. Eitt er víst að menn heima í héraði virðast ekki hafa verið spurðir eins eða neins í sambandi við umferð og uppsetningu birgðastöðva bandarískra hermanna á því landi er þeir hafa umráð yfir. Loftur Þorsteinsson, oddviti í Hrunamanna- hreppi, segir að þegar hann hafi frétt af heræf- ingunum hafi það verið í gegnum fjölmiðla, en ekki þau yfirvöld sem með réttu hafi átt að láta hann vita. - Ég hringdi víða og reyndi að afla mér upp- lýsinga um þessar æfingar. Á Vamarmálaskrif- stofú utanríkisráðuneytisins var því svarað að sýslumaður Ámessýslu hefði fýrir löngu héimil- að bandaríska hemum að vera, með æfingar á ákveðnu svæði í afféttunum. Ég talaði þá við sýslumann scm vildi heldur lítið gera úr sínum hlut í þessu máli. Sýslumaður hefur rétt til að heimila svona hluti í sínu lögsagnarumdæmi, en mér finnst það sjálfsögð kurteisi að láta okkur heima í héraði vita hvað stendur til, sagði Loff- ur. Gunnar G. Schram, lagaprófessor við Há- skóla Islands, sagði að það væri lagaákvæði í vamarsamningnum um að ísland Iáti í té þá að- stöðu sem báðir aðilar em ásáttir um að sé nauð- synleg. - Þetta segir ekkert um að samningurinn sé bundinn við einhver ákveðin svæði. Ég býst við að þetta sé heimildin sem utanríkisráðuneytið notar í þessu máli. Það fer með vamarmálin sem ráðuneyti. Það er því á valdi ráðherra þess, en ekki annarra í ríkisstjóminni, að meta hvaða svæði séu nauðsynleg til vamar landinu, sagði Gunnar. Sigurður Líndal, lagaprófessor við Háskóla Islands, var inntur eftir því hvort utanríkisráð- herra væri einum í Iófa, lagið að heimila hvar heræfingar fæm fram á íslandi. Hann sagði eins og Gunnar að í vamarsamningnum væm ákvæði um það að ísland ætti að láta í té landsvæði til vamar landinu og ekkert væri nefht hvar þau væm. Einnig sagði Sigurður að fólk hefði frjáls- an aðgang að landi utan eignar og ekki væri hægt að banna mönnum að ferðast t.d. um af- réttir. Aðspurður hvort ekki hefði verið eðlilegt að leita leyfis dómsmálaráðuneytis vegna þessara æfmga, sagðist Sigurður ekki treysta sér til að svara því án einhverra rannsókna. Eftir því sem best verður skilið af orðum lagaprófessoranna, virðist einn maður á íslandi ráða því hvenær, til hvað langs tíma, hvar og hvpmig heræfingar Atlantshafsbandalagsins séu á Islandi. Getur bandaríski herinn með þessu móti lagt undir sig hálendi Islands undir því yf- irskini að um heræfingar sé að ræða? Það virðist vera, ef utanríkisráðherra segir já. Éesendum til glöggvunar segir 1. gr. vamar- samningsins. „Bandaríkin munu fyrir hönd Norður- Atlantshafsbandalagsins og samkvæmt skuldbindingum þeim, sem þau hafa tekist á hendur með Norður-Atlantshafssamningnum, gera ráðstafanir til vamar Islandi með þeirn skil- yrðum, sem greinir i samningi þessum. I þessu skyni og með vamir á svæði því sem Norður- Atlantshafssamningurinn tekur til, fyrir augum, lætur Island í té þá aðstöðu I landinu, sem báðir aðilar em ásáttir um, að sé nauðsynleg." Grein þessi er góð og gild, en hún hefur tak- markanir, þannig að utanríkisráðherra getur ekki eftir eigin hugdettum leyft hemum að valsa um í sínum tindátaleik. I 2. gr. þessa sama samnings segir nefnilega: „Island mun afla heimildar á landsvæðum og gera nauðsynlegar ráðstafanir til þess að í té verði látin aðstaða sú, sem veitt er með samningi þessum og ber Bandaríkjunum eigi skylda til að greiða Islandi, íslenskum þegnum eða öðmm mönnum gjald fyrir það.“ Ef herinn óskar eftir því að fVamkvæma sín- ar æfingar á afréttum landsins, er það ekki heimilt nema viðkomandi yfirvöld gefi sitt leyfi til þess. í lögum nr. 42/1969 er íjallar um afrétt- armálefni, Qallaskil ofl. segir m.a. í 2. gr.: „Sýslunefnd hefur á hendi yfirstjóm allra afrétt- ar- og fjallskilamála í sínu umdæmi, en hrepps- nefnd eða bæjarstjóm annast stjóm og fram- kvæmd þeirra í hverri fjallskiladeild." Sam- kvæmt þessu verðu utanríkisráðuneytið að fá leyfi sýslumannsins í Amessýslu til að heimila heræfingar á afréttum sýslunnar. Þetta segist Vamarmáladeild utanríkisráðuneytisins hafa gert fyrir löngu. Heimamenn í Ámessýslu sem hringt hafa á sýsluskrifstofúna, segja að lítið sé um svör, sýslumaður hvorki neiti því né játi að hafa gefið leyfi íyrir æfingunum. I upphafi kom fram að hreppsnefndir þeirra hreppa sem eiga afréttir á því svæði sem heræf- ingamar fara nú fram á, nöfðu enga hugmynd hvað um væri að vera. Þær hafi sem aðrir lands- menn mátt fylgjast með leiknum í fjölmiðlum. Utanríkisráðherra hefúr ekki Iátið vinna verkin sem skyldi. Hann verður að hafa íslenska lög- sögu með í myndinni þegar hann leyfir amerísk- um dátum að spranga um íslensk fjöll og fim- indi. Er hægt að mæla því mót að Jón Baldvin Hannibalsson hefur leyft hemum að hafa afnot Það liggur því ljóst fyrir að ekki hefur verið farið eftir lögum um heræfingamar í Amessýslu af afrétt þeirri er heyrir undir Hmnamanna- hrepp? Það er því athyglisvert að rýna aðeins betur í lög nr. 42/1969. I 11. gr. þeirra laga seg- ir: „Enginn má hafa afnot afréttar fyrir sjálfan sig, svo sem grasnyt og hlunnindi, nema hrepps- nefnd leyfi. Eigi tekur þó ákvæði þetta til fisk- veiði eða annarra hlunninda, sem í einkaeign em, þótt í affétti séu.“ Kjartan Helgason, hreppstjóri í Hmna- mannahreppi, segir að enginn hafi haft samband við hreppsnefndina um leyfi fyrir afnot af affétt- inni. Það liggur því ljóst fyrir að ekki hefur ver- ið farið eftir landslögum í sambandi við heræf- ingamar í uppsveitum Ámessýslu. Er því von nema spurt sé: Braut utanríkisráðherra lög þegar hann heimilaði bandaríska hemum að vera með æfingar í Ámessýslu? Annars virðist sama hvert litið er í islenska stjómkerfmu, þegar talið berst að heræfingum „vemdarans". Menn eru þar hæstánægðir með æfingamar. Dómsmálaráðherra, Þorsteinn Páls- son, æðsti maður löggæslu á íslandi, svaraði því neitandi þegar hann var spurður hvort leitað hafi verið til hans ráðuneytis um þessar heræfmgar fyrir utan þau svæði sem herinn hefúr til umráða í dag. Það er við hæfi að láta dómsmálaráðherra eiga síðasta orðið í vangaveltunum um hemað- arumsvifin í Ámessýslu. „Þama er um eðlilega æfingu að ræða og sjálfgefið að vamarliðið fái svigrúm til þess að framkvæma eðlilegar æfing- ar af þessu tagi. Þær em mjög litlar að umfangi og em ekki einu sinni tilkynningarskyldar sam- kvæmt alþjþðlegum reglum um heræfmgar af þessu tagi. Ég lít svo á að þetta sé mjög eðlileg starfsemi og sjálfsagt að hún fari fram.“ Skógtir í stao búfjár Lausn á rollumálinu, sem blaðið hefur greint frá að und- anförnu, virðist vera í sjónmáli og bendir allt til þess að Vatns- endajörðin, sem rollurnar til- heyra, verði gerð að skógrækt- arjörð. Með þessum hætti verð- ur komið í veg fyrir lausagöngu búfjársins á landi Garðbæinga. Málsatvik em þau, að rollur bóndans í Vatnsenda, en það land tilheyrir Kópavoginum, hafa gert töluverðan usla með þvi að fara inn á land Garðbæinga, Smala- holt, þar sem Skógrækt Garðbæ- inga hefúr plantað tijám. Þar hafa rollumar étið upp trén, Garðbæ- ingum til mikilla leiðinda. Fyrir tveimur vikum sendi skógrækt Garðbæinga bæjarstjóra Kópavogs, Sigurði Geirdal, kvört- unarbréf þar sem hann var vin- samlegast beðinn um að finna lausn á þessu vandamáli hið fyrsta. Á mánudag var Skógrækt Garðabæjar sent svarbréf þar sem bæjarstjóri Kópavogs skýrði frá lausn sem unnið er að þessa dag- ana til að koma málinu í réttan farveg. í bréfmu skýrði Sigurður Geirdal ffá því að Vatnsendabónd- inn, sem hefúr um 100 fjár, hafi óskað eftir því að fá breytingu á búháttum á Vatnsenda á þann veg, að í stað hefðbundins búskapar með sauðfé og hross verði Vatns- endi skógræktaijörð með fúllum réttindum lögbýlis. Fundur til undirbúnings þess- um breytingum var haldinn í síð- ustu viku þar var farið yfir þá möguleika sem fýrir hendi eru varðandi búháttarbreytingar. Ekki fékkst endanleg niðurstaða og verður viðræðum haldið áfram. í ffamhaldi af þessu er unnið að því að ljúka samningum um réttindi og skyldur „tómstunda- bænda“ í bráðabirgðafjárhúsum í Fífúhvammslandi en þar em nú um 100 fjár. í samningsuppkasti verður gert ráð fyrir að þeir fækki fé og hætti með öllu eftir fimm ár. -KMH Við erum mestir Það er ekki ofsögum sagt af landanum. Við eigum heimsmet á flestum sviðum sé miðað við höfðatölu. í Hagtölum mánað- arins er gerður samanburður á nokkrum stærðum á íslandi, Danmörku, Noregi, Svíþjóð, Bretlandi, Bandaríkjunum og Japan. Þar kemur í ljós að ís- lendingar skara fram úr á ýms- um sviðum. Ef borin er saman verg lands- framleiðsla á mann í dollurum 1988 eru Islendingar í fyrsta sæti með 24.031 dollara á mann. Japan kemur í öðru sæti með 23.235 dollara. Einkaneyslan er líka mest á Islandi, 14.711 dollarar á mann og enn er Japan í öðru sæti með 13.325 dollara. Samneyslan er hinsvegar mun minni á mann í dollurum hér á landi_ en á hinum Norðurlöndun- um. I Svíþjóð er samneyslan mest eða 5.591 dollarar á mann. Dan- mörk kemur í öðru sæti með 5.414 dollara, Noregur í þriðja sæti með 4.470 dollara og Island í fjórða sæti með 4.414 dollara. Að lokum skulum við líta á meðalárshækkun neysluvömverðs á árunum 1983 til 1988. Þar er ís- land í algjörum sérflokki. Neyslu- vörur hækkuðu að meðaltali um 25,1 prósent á ári á þessu tímabili. Næstmest varð hækkunin í Nor- egi, 6,9 prósent á ári. Minnst var hækkunin í Japan, 1,1 prósent á ári. -Sáf ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 31. júlí 1991 Síða 8

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.