Þjóðviljinn - 31.07.1991, Síða 15

Þjóðviljinn - 31.07.1991, Síða 15
Davíð á fund Þorsteins Það er oftar sem fagráð- herrar fara á fund for- sætisráðherra en öfugt. Davíð Oddsson hélt þó á fund Þorsteins Pálssonar sjávarútvegsráöherra á mánudag og kom í fyrsta sinn inn í ráðuneyti Þor- steins. Málin til umræðu voru ekki eingöngu afla- heimildir næsta árs held- ur fyrst og fremst ágrein- ingur Þorsteins og Jóns Baldvins Hannibalssonar um formann nefndar sem á að endurskoða sjávarútvegsstefnuna. Davíð varði svo miklum tíma i að tala Þorstein til að hann lét Seðlabanka- stjóra nokkurn bíða eftir sér í tæpa klukkustund. Sá hafði verið boðaður á fund í forsætisráðuneyt- inu klukkan tvö og mætti stundvíslega. Hann gafst síðan upp stundarfjórung í þrjú en þá hafði ekkert bólað á forsætisráðherr- anum og ekkert af hon- um heyrst. Stjórinn var þó ekkert sár enda gam- all í hettunni og vissi sem var að forsætisráð- herrar geta oft tafist illa. Sjaldan tefjast þeir þó vegna þess að þeir þurfi að tala samflokksráð- herra sína til. Svo er að sjá sem staða Þorsteins innan stjórnar- innar hafi enn styrkst fyrst Davíð fer bónleiðar til hans, auk þess stend- ur Þorsteinn fastur fyrir varðandi nefndina og lætur ekki eftir krötunum sem alltaf hafa talið að þeir ættu að ráða for- manni nefndarinnar. Á leiðinni heim Það hefur aldeilis gustað um Sighvat Björgvinsson frá því hann tók við starfi heilbrigðisráðherra. Rétt- argeðdeildin hefur verið eitt af deilumálunum, en eftir fundinn í Ölfusi á dögunum vöktu ummæli Jóns Hólm í sjónvarpi at- hygli, enda vildi hann lít- ið með þessa fanga gera í sínu umhverfi. Ragnar Ingi sendi okkur eftirfar- andi vísu vegna þessara orðaskipta: Þeir tjá sig með höstug- um hreim. Mér heyrist á mótmælum þeim að geðsjúkir fangar eftir fjarvistir strangar séu loksins á leiðinni heim. Fræmundur sóði Önnur vísa af allt öðru tilefni, en þó kemur krataráðherra nokkuð við sögu. Tilefniö er mynd sem Ijósmyndari Þjóðvilj- ans tók af Sæmundi nokkrum í Munaðamesi á Ströndum með dáinn grútarmengaðan fugl í fjörunni. Vísan er þannig: I grútnum stendur hann gleiður sem gjörþekkir fjöruna. þó grillir í örfáar eyður umhverfisráðherra. Undir þetta skrifar Fræ- mundur sóði, og hefur höfundur því notað svo- kallaða snúisku, eða va- fastíxl, til að búa til nafn sitt. Þ.e. fyrstu stöfum orðanna er víxlað. RÚSÍNAN Hér sést veggmynd Gunnsteins, „Lffsþræðir", en það var afhjúpað við hátlðlega athöfn I gær. Mynd: Jim Smart. Veggmynd afhjúpuð í Keldnaholti Igær var veggmyndin „Lífsþræðir“, eftir Gunnstein Gíslason, af- hjúpuð í anddyri Rannsóknastofnunar landbúnaðarins við Keldnaholt í Reykjavík. Tákngildi myndarinnar, sem kostaði um átta hundruð þúsund, er nýkviknað líf er breiðir úr sér og brýt- ur sér leið. „Rannsóknastöðin í Keldna- holti hefur með landbúnaðinn að gera og því sótti ég myndefnið í það sem er að gerast undir mold- inni,“ sagði Gunnsteinn. „Formin í myndinm vísa ekki á nein dýr í sjalfu sér, heldur aðeins þær hrær- ingar sem eiga stað í moldinni.“ Myndin er 9 fermetrar að flat- armáli og er unnin í múrristu (sgraffito). Formin eru borin uppi af 14 mm ryðfríum stálteinum er halda formunum í um eins cm fjar- lægð frá veggnum, en stálteinamir eru jafnframt hluti af heildar mymíbyggingunni. Gráu fletimir em grásteinsflísar 1 cm þykkar. Það var Myndskreytingasjóður rikisins sem styrkti gero verksins. Gunnsteinn Gíslason er fæddur 13. sept. 1946. Hann stundaði nám yið Myndlista- og Handíðaskóla Islands 1963-1967 í kennaradeild og fijálsri myndlist. Hann innritaðist í Edinburgh College of Art 1967 og lagði stund á veggmyndagerð. Gunnsteini var boðið að taka þátt í samsýningu skoskra höggmyndalistamanna i Bandaríkjunum. Vorið 1969 lauk Gunnsteinn D.A. prófi og hélt sýningu við skólann og var prófverkefnið kirkjuskreyting, unnin í múrristu. Haustið 1972 hóf hann nám í kennslugreinum myndmennta við Konstfackskolan í Stokkhólmi og lauk þaðan prófi 1975. Gunnsteinn hefúr tekið þátt í ó nokkmm fjölda samsýninga og aldið nokkrar einkasýningar. -KMH Heyrðu, Kalll. Það kost- i ar þig fimmtfukall að vera vinur minn f dag. Sfða 15 ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 31. júlí 1991

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.