Þjóðviljinn - 28.08.1991, Síða 1

Þjóðviljinn - 28.08.1991, Síða 1
163. tölublað Miðvikudagur 28. ágúst 1991 56. árgangur Þórir Ólafsson, rektor KHI, ávarpar fund Kennarafélags skólans sem samþykkti harðorða ályktun gegn ákvörðun menntamálaráöherra um að fresta lengingu náms skólans. Hér sést aðeins hluti fundarmanna - Mynd: Jim Smart. Hlítum ekki til- skipun ráðherra Kennarafélag Kennaraháskóla íslands telur sér ekki fært að hlíta tilskipun menntamálaráðherra um að fresta lengingu náms skólans um óákveðinn tíma. Félagsmenn ítreka þá kröfu að hin dæmalausa ákvörðun frá 20 ágúst síðastliðnum verði dregin til baka. Sigurður Konráðsson, formaður félagsins, sagði þetta hafa verið samþykkt samhljóða á fjöimennum og heitum fundi í félaginu í gær. Hann sagði að einfaldlega kæmi ekki annað til greina en að ákvörðunin yrði dregin til baka þar til skýr svör liggi fyrir um stefnu yfirvalda. Félagið mótmælti ákvörðun- inni harðlega í ályktun. Þar er Ol- afi G. Einarssyni bent á að kennar- ar og aðrir starfsmenn KHI hafi varið ómældum tíma í að skipu- leggja lengingu námsins úr þremur árum í ljögur og að einungis hafi verið greitt fyrir brot þeirrar fag- legu vinnu. Um þessa lengingu var kveðið á í lögum ffá 1988 og átti að koma til ffamkvæmda innan sex ára. Það var Svavar Gestsson, þá- verandi menntamálaráðherra, sem tók ákvörðun um lenginguna í apr- íl í vor. Bent er á að ýmsar óafturkræf- ar ákvarðanir hafi verið teknar varðandi skipulag námsins í vetur. „Þessi vinna er nú virt að vettugi án nokkurs faglegs rökstuðnings, hvorki ffá ráðherra, aðstoðarmanni hans né öðrum starfsmönnum menntamálaráðuneytisins. Kennar- ar og aðrir starfsmenn KHI eru ekki tilbúnir að kasta tíma sínum í að semja nýja kennsluskrá fyrir þriggja ára nám,“ segir í ályktun- inni og staðhæfl að eldri kennslu- skrá fyrir þriggja ára nám sé óffamkvæmanleg. Þá er bent á að ástæða fyrir umsóknum fjölmargra sem sóttu um skólann í ár hefði einmitt verið að boðið var upp á þetta nám í fjögur ár. „Það eru svik við um- sækjendur," segir í ályktuninni um ákvörðun ráðherra sem var tilkynnt skólanum 20. ágúst, tólf dögum áður en skóli á að hefjast og telur kennarafélagið ógerlegt að hefja nám eftir annarri kennsluskrá á svo stuttum tíma. Félagið gagnrýnir menntamála- ráðherra harkalega fyrir að vera ekki til viðtals fyrir fulltrúa skól- ans og að hafa beitt aðstoðarmanni sínum, Olafi Amarssyni, fyrir sig - sem hafi haldið því fram að þessi ákvörðun ráðherra um ffestun væri ekki of seint tekin. „Ummæli þessi lýsa slíkri fáffæði á skipulagi há- skóla að fáheyrt er,“ segir í álykt- uninni. Þá segir að ekki sé hægt að fallast á röksemdir ráðuneytisins fyrir frestuninni, það er að henni valdi kennaraskortur og húsnæðis- mál. En fúlltrúar skólans hafa lýst sig reiðubúna til að ræða þau mál og hafa gert tillögur um úrbætur. „Röksemdir ráðuneytisins em því augljós fyrirsláttur. Þær em því miður ófaglegar með öllu og sýna einungis að ráðamönnum hefur gengið annað til en að setja sig inn í þau mál sem þeim hefúr verið trúað fyrir af þjóðinni,“ segir í ályktuninni. Ekki náðist í menntamálaráð- herra eftir að ályktunin kom ffam seint í gær. -gpm Japanir æstir í pistólukjöt yhaust verða flutt til Japans á I bilinu 100 til 150 tonn af JLhrossakjöti hjá Félagi hrossabænda. Þetta kemur fram í nýlegu hefti búnaðarblaðsins Freys. Um er að ræða fitusprengt pistólukjöt og er þetta um helmingi meira magn en í fyrra. Með aukinni eífirspum hefúr verðið í Japan hækkað og hugsanlegt er að skortur verði á kjöti. Freyr hefur það eftir Halldóri Gunnarssyni hjá F.H. að í haust þyrfti að slátra 1000-1500 hrossum og að Japanir setji það sem skilyrði að kjötið sé feitt og af gripum eldri en fimm vetra. -gpm Helgi efstur á Islands- mótinu Spennan á íslandsmótinu í skák magnast nú með hverri umferð. Helgi Óiafs- son er efstur með 4 1/2 vinning úr fimm skákum. Hann hefur sýnt öryggi og það verður spennandi að fylgjast með því hvort hann heldur forystunni. Að vísu á hann eftir að tefla við erfiða andstæðinga. Jóhann Hjartarson er næstur honum að vinningum og þeir setjast ein- mitt við sama borð í Garðaskóia í kvöld klukkan 17.00. Helgi hefur hvítt Staðan í mótinu er annars þannig að Jóhann Hjartarson er með 4 vinninga, hálfúm vinningi á eftir Helga. Jón L. Ámason og Karl Þorsteins em með 3 1/2 og þessir fjórir, sem taldir hafa verið, hafa ekki tapað neinni skák. Það má telja líldegt að baráttan um efsta sætið eigi eftir að standa milli þeirra í síðustu umferðunum. Margeir Pétursson er með 3 vinninga. Þröstur Þórhallsson með 2 1/2, Róbert Harðarson með 2, Helgi Áss Grétarsson, Héðinn Steingrímsson, Snorri Bergsson og Halldór G. Einarsson með 1 1/2 og aðrir með minna. Það er 6. umferð sem tefld verður í kvöld en alls verða tefldar 11 umferðir. Þetta mun vera sterkasta ís- landsmót sem haldið hefúr verið og víst er um það að taflmennskan er skemmtileg. -kj Helgi Ólafsson, skákskýrandi Þjóð- viljans, er efstur á Islandsmótinu I skák þegar það er hálfnað. Þetta er sennilega sterkasta Islandsmót sem haldið hefur verið

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.