Þjóðviljinn - 28.08.1991, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 28.08.1991, Blaðsíða 3
ÍDAG 28. ágúst er miðvikudagur. Ágústínusmessa. 240. dagur ársins. Sólarupprás í Reykjavík kl. 5.56 - sólarlag kl. 21.03. Viðburðir Stiftsbókasafnið (Lands- bókasafn íslands) stofnað 1818. Þjóðviljinn fyrir 50 árum Nýtt Dagblað: Siðferðis- ástandið í sambandi við setuiiðið er ægilegra en nokkurn grunaði. Milljón Parísabúa fara kröfugöngur á þjóðhátíðisdegi Frakka. Laval sýnt banatilræði er hann var að kveðja „sjálf- boðaliða" til austurvígstöðv- anna. fyrir 25 árum Nýr gagnfræðaskóli á Sauðárkróki. De Gaulle kominn til Addis Abeba. Dregur úr vinsældum John- sons vestanhafs. Gestaleik- húsið sýnir gamanleikinn Bunbury í Reykjavík. Sá spaki Það sem er að byltingu er blátt áfram það að hún er ósköp náttúruleg. Hún er eins náttúruleg einsog úrval náttúrunnar á lífverum, al- veg eins tortímandi og jafn skelfileg. (William Golding) á ákvörðun menntamála- ráðherra að fresta lengingu kennaranáms Eiríkur Jónsson vara- formaður Kennara- sambands Islands Ég tel þessa ákvörðun í alla staði óeðlilega. Á undanfömum árum hefur starf kennara tekið miklum breytingum og stöðugt em gerðar meiri kröfur til þeirra. Mikil vinna hefur verið lögð í að skipuleggja 4 ára kennaranám við Kennarahá- skólann og reyna með því að koma til móts við þser breytingar sem orðið hafa á undanfömum ámm. Ákvörðunin gengur því þvert á það markmið að efla kennaramenntun með það fyrir augum að bæta skólastarf í grunnskólunum. Ákvörðunin er tekin aðeins nokkr- um dögum áður en KHI ætlaði að hefla störf samkvæmt nýrri náms- skiá og er því hrein móðgun við það fólk sem heför lagt á sig ómælda vinnu við að skipuleggja námið og ekki síður við nemendur. Sú skýring heför heyrst að kenn- araskorturinn í dreifbýli geri það að verkum að ekki sé fært að lengja námið. Þessi rök fá ekki staðist þvi að í landinu er mikill fjöldi fólks með kennaramenntun sem ekki er við kennslustörf, m.a. vegna lágra launa og óföllnægjandi starfsaðstöðu. Það er alveg ljóst að kennaraskorturinn verður ekki leystur nema til komi verulegar kjarabætur og um leið bætt vinnu- aðstaða i skólum. ÞIÓÐVHJINN Dagblöð eru hluti af friálsri skoðanamyndun Nú er liðin vika síðan Þjóðviljinn fékk greiðsiustððvun og til- kynnt var að blaðið þyrfti 2000 nýja áskrifendur tii að komast af. Á þessum tíma hafa liðlega 300 manns gerst áskrifendur og margir hafa auk þess haft samband við blaðið og boðið fram aðstoð sína. Um helgina tóku sjálfboða- liðar til starfa og hófu að bjóða áskrift með símhringingum. Næstu tvær til þrjár vikurnar munu skera úr um það hvort Þjóðviljinn kemur út áfram. Meðal þeirra sem gerst hafa áskrifendur að blaðinu núna er Tryggvi Gíslason, skólameistari Menntaskólans á Akureyri. Hann var spurður hvort hann teldi skipta máli að Þjóðviljinn héldi áfram að koma út. „Dagblöð eru hluti af frjálsri skoðanamyndun og það er ekki nóg að hægri fylkingin ein hafí málgögn. Því fínnst mér að Þjóð- viljinn þurfi að koma út áfram,“ sagði Tryggyi Gíslason. Guðrún Ágústsdóttir, varaborg- arfulltrúi í Reykjavík, tók að sér að hrinda af stað söfnun áskrifenda. Hvernig hafa viðbrögðin ver- ið? „Við höfum föndið fyrir mikl- um velvilja í garð Þjóðviljans og mjög margir telja að það yrði slys fyrir tjáningarfrelsið og lýðræðið í landinu ef blað eins og Þjóðviljinn hætti að koma út.“ En væntanlega eru ekki allir sem þið hringið í sama sinnis? „Nei, við heyrum auðvitað líka óánægjuraddir en það virðist þó vera samdóma álit þeirra sem eitt- hvað þekkja til að Þjóðviljinn hafi batnað verulega á undanfömum mánuðum. Margir, sem voru áskrifendur áður og höfðu sagt upp Tryggvi Gíslason skólameistarí Guðoin Ágústsdóttir varaborgarfulltrúi blaðinu, gefa sig fram núna og vilja taka þátt í lífróðrinum sem stendur yfir. Gefa fyrrum áskrifendur ykkur upp ástæðumar fyrir upp_sögn? „Já, mjög margir. Ástæðumar em greinilega fjölbreytilegar. Sum- ir tala um að blaðið hafi færst ffá flokknum og vinstri hreyfingunni, það sé því ekki málgagn eins og þeir vilji en svo em aðrir sem segja að blaðið sé allt of mikið flokks- blað fyrir Alþýðubandalagið, en eins og gefur að skilja líta flestir svo á að Þjóðviljinn og Alþýðu- bandalagið séu í sama liði. Þeir sem verið hafa áskrifendur áður gefa þó upp margar aðrar ástæður fyrir því að þeir hættu að kaupa blaðið á sínum tíma. Sumir halda því fram að það sé allt of mikið um menningarmál í blaðinu, en um leið vill þessi hópur ekki missa þetta efhi. Enn aðrir segja að í blaðið vanti íþróttir og léttara efni, það þurfi að vera fjölbreyttara og svo framvegis. Það er að minnsta kosti greinilegt á samtöl- unum að viðmælendur okkar vilja gera miklar kröfur til blaðsins." Lœtur enginn sér fátt um finn- ast? „Að sjálfsögðu segja ýmsir að þeir vilji ekkert með blaðið hafa en það er varla nokkur sem við tölum við sem ekki hefur skoðun á Þjóð- viljanum.“ hágé. FKÉTTIR Kjaraskerðing að lækka sjómannaafsláttinn Forystumenn sjómanna leggjast alfarið gegn framkomnum hug- myndum fjármálaráðherra að lækka sjómannaafsláttinn í því skyni að auka tekjur ríkissjóðs um einn og hálfan miljarð. Þeir segja að ef það verði reynt, kalli stjórnin yfír sig stríð við alla sjómannastéttina, sem má ekki við því að verða fyrir enn einni kjaraskerðingunni í sömu mund og aflaheimildir eru skertar fjórða árið í röð. Jafnframt muni lækkunin, ef til hennar kemur, hafa áhrif til hins verra í mönnun skipa og báta. Guðmundur Hallvarðsson, for- maður Sjómannafélags Reykjavíkur og einn af þingmönnum Sjálfstæð- isflokksins, segir að afstaða hans til lækkunar sjómannaafsláttarins sé alveg ljós: „Ég er á móti því að lækka sjómannaafsláttinn því þar með erum við að hækka skatta. Það er í öndverðu við það sem við sögð- um í kosningabaráttunni i vor,“ sagði Guðmundur Hallvarðsson. Óskar Vigfússon, formaður Sjó- mannasambands íslands, sagði að á þessari stundu væri ekki tímabært að tjá sig mikið um þessa hugmynd fjármálaráðherra. Óskar sagði að hér væri á ferðinni gamall draugur sem ekki væri hægt að taka á fyrr en hann sýndi sig. Hinsvegar sagð- ist Óskar vera alveg klár á því að ef reynt yrði að gera þessa hugmynd, um lækkun sjómannaafsláttarins, að veruleika mundi það aðeins leiða til stórátaka við sjómannastéttina. Helgi Laxdal, formaður Vél- stjórafélags Islands, segir að ef stjómvöld lækka sjómannaafslátt- inn, eins og talað er um, sé það ekk- ert annað en hrein og klár kjara- skerðing fyrir sjómenn. Gegn því munu sjómenn beijast með kjafti og klóm. Formaður Vélstjórafélagsins segir að ef það gangi ekki upp, sé ekld um annað að ræða en að sækja það sem ffá þeim sé tekið til við- semjenda sjómanna við gerð næstu kjarasamninga. Sjómannaafslátturinn nemur nú um rúmum 600 krónum á dag, eða um 19 þúsund krónum á mánuði. Farmenn fengu sjómannaafsláttinn inn í sína kjarasamninga um miðjan síðasta áratug, en áður höfðu fiski- menn einir haft þennan afslátt sem upphaflega var hugsaður til að verða mönnum hvatning til að leggja fyrir sig sjómennsku. Þá samþykkti þáverandi fjármálaráð- herra, Albert Guðmundsson, að far- menn fengju einnig að njóta afslátt- arins og varð það til þess að leysa íllvígan hnút sem þá var kominn í kjaradeilu farmanna og viðsemj- enda þeirra. Konráð Alffeðsson, formaður Sjómannafélags Eyjafjarðar, sagði að norðlenskir sjómenn myndu verða alveg æfir ef tillaga kæmi ffam um að lækka afsláttinn. Hann sagðist ekki vera í neinum vafa um að það mundi hafa veruleg áhrif á mönnun skipa og báta ef afsláttarins nyti ekki við í þeirri mynd sem hann er nú. Benedikt Valsson, fram- kvæmdastjóri Farmanna- og fiski- mannasambandsins, segir að þessi hugmynd um að lækka sjómannaaf- sláttinn hafi komið upp öðru hveiju og því sé ekki ástæða til að tjá sig mikið um málið á þessu stigi. Hins- vegar muni málið horfa öðruvísi við fari svo að tillaga um lækkun verð,i lögð ffam á borð ríkisstjómar. Á meðan svo er ekki kjósi menn að bíða og sjá hveiju fram vindur. Öm Pálsson, framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda, segir að tríllukarlar leggist alfarið á móti þessari hugmynd fjármálaráð- herra og reyndar sé hún ekki svara- verð. Sérstaklega í ljósi þeirrar hrikalegu tekjuskerðingar sem blas- ir við sjómönnum i byrjun nýs fisk- veiðiárs vegna skerðingar á afla- heimildum. Sigurður Ólafsson, formaður Sjómannafélags Isfirðinga, segir að það sé of snemmt að tjá sig um málið að svo stöddu því það sé ekk- ert handfast í þeim efnum. Það eina sem ffam heför komið sé einhver klausa í blaði og það mundi æra hvem og einn að fara að eltast við eitthvað svoleiðis í hvert skipti. Sig- urður sagði að sjómannaafslátturinn ætti í raun að færast yfir til fisk- vinnslufólks því það væri enginn hörgull á mannskap á sjóinn. -grh Síða 3 ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 28. ágúst 1991

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.