Þjóðviljinn - 07.09.1991, Qupperneq 1
Blýmengun á Heiðarfjalli
Við skorum á umhverfisráðherra að beita valdi embættis
síns til þess að knýja utanríkisráðuneytið og fulltrúa
Bandaríkjahers fyrir hönd eigenda hauganna á fjallinu,
til samstarfs um tafarlausa lausn á þessu máli,“ segir
Sigurður R. Þórðarson, einn landeigenda Eiðis við Heiðarfjall.
Rannsókn Iðntæknistofnunar á_ jarðvegssýni af fjallinu hefur
leitt í ljós að í því eru 30.000 HÍM (hlutar í miljón) af blýi sem
þýðir að 3% af jarðvegssýninu eru blý.
„Það er ljóst að hér er á ferð- og ffemst að hagsmunum fárra ein-
inni mjög alvarlegt mengunar- staklinga en það getur haft mun
vandamál sem í dag beinist fyrst víðtækari afleiðingar á síðari tím-
um, verði ekkert aðhafst,“ segir
Sigurður.
„Ráðherra lýsti því yfir að
hann myndi taka ákvarðanir um
frekari rannsóknir eftir að niður-
stöður gasrannsóknarinnar lægju
fyrir. Nú hafa þær verið birtar og
við höfum bætt við niðurstöðum
eftir rannsóknir á jarðvegssýnum.
Við hyggjumst kynna ráðherra þær
bréflega og i því bréfi förum við
fram á tafarlausar aðgerðir, bæði
frekari rannsóknir og ráðstafanir til
að koma í veg fyrir áframhaldandi
mengun af þessu sorpi. Við krefj-
umst þess að Vamarliðið verði
knúið til að svara því hvað sé í
þessum haugum.“
Landeigendur hafa enn ekki
heyrt neitt ffá utanríkisráðherra né
vamarmálaskrifstofunni en þeim
var heitið svari við beiðni um fund
með ráðherranum að lokinni jarð-
gasrannsókninni. „Steingrímur
Hermannsson sagði eitt sinn í
blaðaviðtali um þetta sama mál að
það þyrfti að sparka í leggina á
stjómendum vamarmálaskrifstof-
unnar af og til og hann hefur
greinilega haft rétt fyrir sér um
það,“ segir Sigurður. „Þeirra af-
staða er sú að allt sé í himnalagi á
Heiðarfjalli. Það verður ekki annað
séð en íslensk stjómvöld stingi
hausnum í sandinn með því að
gera lítið úr þessu máli í þeim
vafasama tilgangi að vemda hags-
muni Bandaríkjahers á íslandi.“
-vd.
Enn
ósamið
um húsin
að Sogni
Enn hefur ekki verið gengið
frá neinum samningum varðandi
húseignir Náttúrulækningafé-
lagsins og SÁÁ að Sogni vegna
stofnunar réttargeðdeildar þar.
Fjármálaráðuneytið hefur átt í
viðræðum við NLFÍ um að húsin
verði tekin á leigu, en engin tilboð
hafa verið gerð né upphæðir nefhd-
ar. Til tals hefúr komið að ríkið
kaupi húsin tvö, en engar ákvarð-
anir hafa verið teknar.
Guðmundur Rúnar Guðmunds-
son deildarstjóri eignaumsýslu-
deildar í fjármálaráðuneytinu segir
það eitt að ffétta að málið sé „á
viðræðustigi“.
„Það hefur ekkert gerst í þessu
undanfamar vikur,“ sagði Eiríkur
Ragnarsson framkvæmdastjóri
NLFI. Aðspurður um á hveiju
strandaði svaraði hann því til, að
það væri ekki þeirra megin heldur
hjá ríkinu. „Við höfum gert það
sem við vomm beðin um og losað
húsin, en ég veit ekkert hvað er að
gerast í þessu hjá heilbrigðis- eða
Qármálaráðuneytinu."
Bmnabótamat húss NLFÍ er 28
miljónir og bmnabótamat timbur-
hússins í eigu SÁÁ tæpar 10 milj-
ónir. Heilbrigðisráðherra sagði í
sumar að stefnt væri að opnun rétt-
argeðdeildarinnar 1. október, en
ljóst er að það mun ekki nást. Eng-
inn hefúr enn sótt um stöðu réttar-
geðlæknis. „Það stendur sem heil-
brigðisráðherra hefúr sagt að það
liggur mikið á þessu og verið að
hraða þessu alveg eins og kostur
er,“ sagði Guðmundur Rúnar.
-vd.
Hestamenn frá Sleipni á Selfossi leggja af stað í lestarferðina í gær. Mynd: Kristinn.
Lestarferð í tilefni aldarvígslu Olfusárbrúar
Hestamannafélagið Sleipnir
á Selfossi lagði af stað í
gær frá Pósthúsinu í Póst-
hússtræti í Reykjavík í lestarferð
austur fyrir fjall. Lestarferðin
endar við Tryggvaskála á Sel-
fossi á morgun, sunnudag kl.
13.30.
Ferðin er farin í tilefni 100 ára
vígsluafmælis Ölfusárbrúar. Þegar
lestin kemur að Tryggvaskála hefst
aðaldagskrá afmælisvikunnar á
Selfossi, en afmælisvikunni lýkur
um kvöldið.
I lestarferðinni em 12 hestar
klyfjaðir gömlum póstkoffortum.
Lestarstjóri er Steingrímur Viktors-
son.
-Sáf
viðurkemur
5-