Þjóðviljinn - 07.09.1991, Side 5

Þjóðviljinn - 07.09.1991, Side 5
FlRIÉTTTlR Vandi flugstöðvarinnar verður ekki leystur á kostnað sveitarfélaga Hugmyndir fortíðarvandanefndar um hækkun tekjuliða og lækkun útgjalda hafa sætt gagnrýni. Stjórn Sambands sveitar- félaga á Suðurnesjum hefur ályktað gegn hugmyndum nefnd- arinnar um að endurskoða fasteignagjöld Flugstöðvarinnar til Sandgerðisbæjar. Einnig hefur Ferðamálaráð íslands mótmælt hug- myndum um hækkun lendingargjalda og innritunargjalda farþega. Á stjómarfundi Sambands sveit- arfélaga á Suðumesjum í gær var ályktað um hugmyndir fortíðar- vandanefndarinnar. I ályktuninni komu fram harðorð mótmæli gegn hugmyndum sem fram hafa komið í fjölmiðlum frá fortíðarvandanefnd um að skerða eigi fasteignaskatta sveitarfélaga til að mæta fortíðar- vanda ríkisins. „Stjómin lýsir áhyggjum sínum yfir því, að hug- myndir skuli heyrast, þar sem rekstr- arvanda rikisins eigi að leysa með því að skerða lögbundna tekjustofna einstakra sveitarfélaga," segir í lok ályktunarinnar. Stefán Jón Bjamason, bæjar- stjóri í Sandgerði, sagði aðspurður að fasteignagjöldin af flugstöðinni væm 15,67% miðað við fjárhags- áætlun bæjarins fyrir þetta ár. - Þessar tekjur skipta Sandgerði óhemjumiklu máli. Ef ég nefhi ein- göngu þær ffamkvæmdir sem fara fram hér við höfhina, þá emm við búin að skuldbinda okkur átta ár frarn i tímann, sagði Stefán. - Ég trúi því ekki fyrr en á reyn- ir að þessi fasteignaskattur verði lagður af. Ef til þess kæmi þyrfti að breyta tekjustofnslögum sveitarfé- laga almennt. Það yrði þá að setja allar flugstöðvar undir einn hatt, því það er ekki siðferðilega rétt ef ætl- unin er að undanskilja aðeins eitt mannvirki frá fasteignagjöldum, sagði Stefán. Stefán upplýsti Þjóðviljann um að samkvæmt áreiðanlegum heim- ildum hefði hann heyrt að flugstöðin ætti að skila 37 miljóna króna hagn- aði til íslenska ríkisins. - Mér fyndist eðlilegra að ríkið liti fyrst í eigin barm og breytti þessu ffekar en að teygja sig inn í tekjur sveitarfélaganna. Við höfum líka gefið flugstöðinni vemlegan af- slátt af skattinum. Ef hún greiddi eins og þau fiskvinnslufyrirtæki sem em hér í bænum, sem eiga við rekstrarvanda að glíma eins og flug- stöðin, þá ætti hún með réttu að greiða 34,7 miljónir í stað þeirra 25 miljóna sem hún greiðir núna. Einnig finnst mér það furðulegt að ekki sé hægt að taka eitthvað af þeim tekjum sem ríkið hefur af ffi- höfhinni til að grynnka á skuldum flugstöðvarinnar. I mínum augum og flestra héma á Suðumesjum er þetta mikla mannvirki eiginlega byggt í kringum fríhöfnina, sagði Stefán Jón. Þórður Skúlason, ffamkvæmda- stjóri Sambands íslenskra sveitarfé- laga, segir að skýr ákvæði séu um tekjustofna sveitarfélaga innan ramma laganna. - Mér finnst í raun ffáleitt að ætla sér að veita einhveij- ar undanþágur eða takmarkanir hvað ákveðnar byggingar varðar. í lögun- um eru að vísu undanþágur þar sem segir að hjúkmnarstofnanir, bama- heimili, skólar, rafveitur o.fl. þurfi ekki að greiða fasteignagjöld. Ef ríkisstjómin tekur þessa hug- mynd upp á arminn, er ljóst að laga- breytingar þurfa að koma til. Ég tek undir ályktun sveitarfélaganna á Suðumesjum og finnst í raun ffáleitt að þessi fortiðarvandi íslenska ríkis- ins eigi að leysast á kostnað ein- stakra sveitarfélaga, sagði Þórður. í ályktun Ferðamálaráðs íslands segir að þær hugmyndir sem ffam hafi komið um hækkun lendingar- gjalda og innritunargjalda farþega séu ekki vænlegar til árangurs í efl- ingu ferðaþjónustu í landinu. „Ferðamálaráð telur að aukin skatt- heimta af þessu tagi spilli sam- keppnisstöðu íslenskrar ferðaþjón- ustu, sem nú þegar ber þunga skatt- byrði. Enn er minnt á að ferðaþjónust- an er vaxandi atvinnugrein sem er líkleg til að skila vemlegum hagnaði ef hlúð er að rekstrarskilyrðum hennar,“ segir í ályktuninni. -sþ Ibúar Fischersunds hafa margoft bent á vöntun ská* brautar í sundinu Unnið hefur verið að endur- nýjun gatnakerfisins i Grjótaþorpi af fullum krafti í sumar. Óánægjuraddir hafa heyrst um ýmis atriði endur- nýjunarinnar, eins og t.a.m. upp- setningu trappa í stað skábrautar efst í Fischersundi, eins og Þjóð- viljinn greindi frá í vikunni. María Gunnarsdóttir, íbúi í Gijótaþorpi og stjómarmaður íbúa- samtakanna þar, segir að fullyrðing- ar aðstoðargamarnálastjóra, Sigurðar Skarphéðinssonar, að ekki hafi verið gerðar athugasemdir við vinnuna i sumar séu rangar. - Við í íbúasamtökunum gerðum strax í fyrra athugasemdir við tröpp- umar, en þá var byrjað á hluta þeirra. Okkur var þá sagt af arkitektinum, Kjartani Mogensen, að gert væri ráð fyrir skábraut í Fischersundinu. Hann sagði að hún ætti að liggja í sveig með tröppunum, en svo er nú komið að okloir er farið að lengja eftir einhverjum ffamkvæmdum við hana og emm raunar orðin úrkula vonar að hún komi nokkm sinni. Þegar reynt hefur verið að ná sam- bandi við arkitektinn þá er hann aldrei við, sagði María. María sagði að ummæli aðstoð- argatnamálastjóra i Þjóðviljanum, um að ekki hafi verið gerðar athuga- semdir í hverfinu í sumar væm rang- ar. Það hefði verið hringt og bent á þennan annmarka í breytingunum. - Annars hefur það verið annað mál sem við höfúm ítrekað gert at- hugasemdir við hér í þorpinu. Við Fischersundið var löngum gamalt hesthús, sem var rifið í júní sl. og ástæðumar sagðar að það væri fyrir. Nú hins vegar er verið að reisa á sama stað steinsteyptan bílskúr, sem illa fellur inn í heildarmynd hverfis- ins. Einnig höfúm við gert athuga- semdir við það að bílskúrinn nái út fyrir lóðamörk eigandans. Hann skagar í raun 70 cm. út fyrir heildar- línu húsanna í sundinu. Þegar haft hefúr verið samband við borgar- skipulag em einu svörin að þetta sé nú ekki mikið mál, það sé aðeins um 70 cm. að ræða. Ég held að eitthvað mundi heyrast í borgaryfirvöldum ef húseigendur við Fischersund tækju allir upp á því að stækka lóðamörkin um 70 cm. út í sundið, sagði María. -sþ Gangbrautina þarf að þrengja vegna þess að bílskúrinn skagar út fyrir lóðarnörk eigandans. Mynd: Kristinn. VSÍ gagnrýnir vaxtastefnu stjómvalda Iályktun framkvæmdastjórnar Vinnuveitendasambands íslands um horfur í efnahagsmálum kemur fram hörð gagnrýni á vaxtastefnu stjórnvalda og að ekki skuli nást fram marktækur samdráttur í ríkis- útgjöldum í því fjárlagafrumvarpi sem unnið er að. Að mati framkvæmdastjómar- innar hefúr vaxtahækkun ríkisverð- bréfa, sem var eitt af fyrstu verkum ríkisstjómar Davíðs Oddssonar i sumar, valdið almennum vaxtahækk- unum. Framkvæmdastjómin telur að mikil lánsfjáreftirspum opinberra að- ila og háir raunvextir hafi alvarlega skert rekstrarafkomu fyrirtækja og lamað vöxt hlutaíjármarkaðarins. Engar horfúr séu á að raunvextir fari lækkandi á næstu mánuðum og miss- eram ef ekki verði veralega dregið úr lánsfjárþörf hins opinbera. VSÍ telur að raunvextir séu orðnir svo há- ir að engin von sé til nýsköpunar og fjárfestinga í atvinnulífinu. Því þurfi að taka sem fyrst ákvarðanir sem minnki framboð ríkistryggðra skuldabréfa og í því sambandi liggur beinast við að endurskoða reglur um húsbréf, bæði hvað varðar upphæðir þeirra og rétt einstakra aðila til að fá slík bréf. VSI telur að útgáfa hús- bréfa stefni í að verða 15-16 miljarð- ar í ár, en ekki 10 miljarðar eins og áætlað var. ,Þá gagnrýnir framkvæmdastjóm VSI að hlutur ríkis og sveitarfélaga í íslensku atvinnulífi hefúr vaxið óð- fluga á liðnum áram samtímis því að hlutur atvinnuveganna hefúr dregist saman. Á sama tíma og umsvif ríkis- sjóðs hafa aukist um 23% frá árinu 1987, hefur verðmætasköpun í land- inu dregist saman um 3,5%. Þá hefur opinberum starfsmönnum fjölgað, en störfum á almennum vinnumarkaði fækkað. Jafnframt mun samdráttur aflaheimilda uppá 12%-13% á næsta ári valda minni atvinnu sem gæti numið allt að 1500 störfum í sjávar- útvegi. Það mun einnig hafa það í for með sér að draga mun úr atvinnu í öðram atvinnugreinum. Við þessar aðstæður, þar sem íslenskt efnahags- líf stefnir nú inn í fimmta árið í röð án hagvaxtar, hljóti atvinnulífið að gera þær kröfur til ríkisvaldsins, að það gefi undirstöðum velferðarkerfs- ins, atvinnulífinu í landinu, svigrúm og dragi stórlega úr lántökuþörf rík- issjóðs, húsnæðiskerfis og annarra opinberra aðila og það án skatta- hækkana. Að mati framkvæmda- stjómar VSÍ er það forsenda vaxta- lækkunar og þar með aukinna fjár- festinga og atvinnu og tryggrar af- komu. -grh Byrjað á Vestfjarðagöngunum Sprengingar Sýrir jarðgöngum undir Breiðadals- og Botns- heiðar eru hafnar. Samgöngu- ráðherra sprengdi fyrstu hleðsluna á fimmtudag og nú eru fram- kvæmdir að fara af stað af fullum krafti. Kostnaður samkvæmt útboði er áætlaður 2 milljarðar og 475 miljónir, en þá er eftir ýmis ffágangur, svo sem ljósabúnaður, lofhæsting og fleira. Heildarkostnaður verður því rúmir 3 milljarðar. Áætlað er að göngunum verði lokið árið 1995. Göngin verða skipt með gatna- mótum undir Breiðadalsheiði og verður vegalengdin úr Tungudal og þangað 2,16 kílómetrar. Frá gatnamótunum yfir í Botns- dal verða 2,71 km löng göng og ffá gatnamótunum yfir í Breiðadal 3,82 km. Göngin eru tvíbreið að gatnamót- unum undir Breiðadalsheiði, en ein- breið þaðan og útskot gerð með 160 m. millibili. Verktaki er Vesturís sf. sem er samstarfsfélag ístaks hf, Skanska AB ffá Svíþjóð, Phil og Sön ffá Dan- mörku og Selmer Anlegg ffá Noregi. -vd. Hörkuleikir um helgina Um helgina fer fram næstsíö- asta umferðin í 1. deild karla i fót- bolta og stefnir í hörkuleiki, enda hefur keppnin sjaldan eða aldrei verið jafn spennandi. í dag leika ÍBV-Stjaman, Vík- ingur-KA og FH-Víðir og byija leikimir klukkan 14. Á morgun, á sama tíma, Breiðablik og Valur og klukkan 16 KR-Fram. I Eyjum verður Stjaman að sigra ef liðið á ekki að falla i aðra deild og sömuleiðis FH gegn Vfði. Þórir Jónsson formaður knattspymudeild- ar FH segir að ef liðið nær ekki að sigra Víði eigi það ekkert annað slalið en að falla í aðra deild. Ef Vlkingar ætla sér sigur í deildinni verða þeir að bera sigurorð af KA, en á móti veitir norðanmönn- um ekkert af fleiri stigum til að forða sér ffá falli. Sömuleiðis verða Framarar að sigra KR á sunnudag, en í þeim leik verða þeir Jón Sveins- son og Þorvaldur Örlygsson í banni. Þá verður viðureignin í Kópavogi ekki síður spennandi, því þann leik verða Valsmenn að vinna ef þeir ætla sér ekki að falla í aðra deild í fyrsta skipti i sögu félagsins. -grh Berlín, Síma- klefinn og Alnæmi verðlaimað Þrjár íslenskar auglýsingar hlutu viðurkenningu í norrænni keppni um bestu auglýsingakvik- myndina á þessu ári. Veitt vora sérstök heiðursverð- laun, gull-, silfúr- og bronsverðlaun auk diploma. Sænsk auglýsing þótti best á árinu, en Finnar og Danir hlutu silfúr. Af ellefú bronsverðlaunum sem vora veitt hlaut íslenska auglýsingin Berlín, unnin fyrir Eurocard af Hvíta húsinu, ein þeirra. Kvikmyndagerð annaðist Hugsjón hf. Símaklefinn, sem unnin var fyrir Póst og síma af auglýsingastofúnni Góðu fólki, hlaut svokallaða diploma viðurkenningu. Saga Film annaðist kvikmyndagerð hennar. Þá er þess að geta að auka- verðlaun fyrir bestu kvikmyndatöku hlaut auglýsingin Alnæmi, þú einn getur varið þig, sem unnin var fyrir Landlæknisembættið af íslensku aug- lýsingastofunni. Kvikmyndatöku ann- aðist Karl Óskarsson hjá Frost film. Einnig vora veitt aukaverðlaun fyrir tæknibrellur, leik og kimni. Gullsvanurinn er heiti þessarar norrænu keppni og vora sendar inn alls 440 auglýsingamyndir og valdi dómnefnd 61 mynd til þátttöku í lokakeppninni, þar af voru þijár ís- lenskar auglýsingar og hlutu þær allar viðurkenningu, eins og ffam er kom- ið. BE Slða 5 ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 7. september 1991

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.