Þjóðviljinn - 07.09.1991, Blaðsíða 6
FMÉTllR
Reykjavík á ekki að reka upp-
lýsingamiðstöð Ferðamálaráðs
Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti síðasta vor að draga sig út úr
upplýsingamiðstöð Ferðamálaráðs. Ástæðan fyrir þessari
ákvörðun var að sögn Júiíusar Hafsteins, borgarfulltrúa og for-
manns ferðamálanefndar Reykjavíkur, að ósamkomulag um
skiptingu ijármagns og samstarf um upplýsingamiðstöð á landsbyggð-
inni hafí verið helsti ásteytingarsteinninn innan upplýsingamiðstöðvar-
innar. Nú hefur borgarstjóri, Markús Örn Antonsson, látið hafa eftir sér
í fjölmiðlum að hann hefði áhuga fyrir því að ákvörðun borgarstjórnar
verði endurskoðuð.
Júlíus Hafstein sagði að það væri
Ijóst að borgarstjóm væri búin að af-
greiða það að hætta í upplýsingamið-
stöð Ferðamálaráðs ffá og með 1.
janúar nk.
- Það er ljóst, að samningar verða
ekki ffamlengdir í þeim efnum, sagði
Júlíus.
Aðspurður um hugmyndir Mark-
úsar að endurskoða ákvörðunina,
sagði Júlíus að meðan beiðni um end-
urskoðun væri ekki komin ffam í
ferðamálaneffid, borgarráði eða borg-
arstjóm stæði sú ákvörðun sem þegar
hafi verið tekin.
- Ákvörðunin var tekin á sínum
Svartnætti í
botnfiskvinnslu
Miðað við rekstrarskilyröi
botnfískvinnslunnar, eins
og þau voru í byrjun mán-
aðarins, er það mat Samtaka físk-
vinnslustöðva að hallinn á vinnsl-
unni sé uppá tæp 7% eða um 2,6
miljarða króna. Þessu til viðbótar
er gert ráð fyrir að tekjurýrnun
vinnslunnar vegna kvótaskerðing-
ar á nýbyrjuðu fískveiöiári verði
allt að 13,5%, sem að mati físk-
vinnslumanna verður aö teljast
varlega áætlað, enda gert ráð fyrir
að fiskverð verði óbreytt.
Amar Sigurmundsson formaður
Samtaka fiskvinnslustöðva segir að
miðað við óbreytta stöðu verði þessi
rekstrarskilyrði mörgum fyrirtækjum
ofviða og því blasir við stöðvun hjá
mörgum þeirra áður en langt um líð-
ur. Það sem einkum hefur haft áhrif
til hins verra á afkomu botnfisk-
vinnslunnar er hátt hráefnisverð, en
hráefniskostnaður vinnslunnar er um
þrisvar sinnum meiri en sem nemur
launagreiðslum við framleiðsluna.
Þá hafa vextir farið hækkandi og
lætur nærri að nafnvextir hafi hækk-
að um þriðjung. Ennfremur hefúr af-
skipunartíminn eitthvað lengst sem
þýðir aukinn kostnað við birgðahald.
Við þetta bætist svo lækkun á af-
urðaverði sem endurspeglast í því að
inngreiðslur í Verðjöfnunarsjóð sjáv-
arútvegsins hafa lækkað verulega frá
því sem þær voru hvað hæstar í vor
sem leið.
Til að rétta við skútuna hafa
fiskvinnslumenn lagt til að inn-
greiðslum í Verðjöfnunarsjóð verði
hætt. Það mundi minnka hallann um
2%. Hinsvegar virðist sem lítill
áhugi sé fyrir því hjá stjómvöldum,
því tillaga þar um var nýlega felld í
stjóm hans af fúlltrúa ríkisvaldsins.
Þessu til viðbótar hafa fískvinnslu-
menn lagt til að ferskfiskútflutningur
á þorski og ýsu verði takmarkaður
enn frekar til að auka hráefni til
vinnslunnar. -grh
Hreinlæti gegn alnæmi
Ekki er talin hætta af sýkingu
alnæmis í tannlæknaþjónustu
sé fyllsta hreinlætis gætt. Þetta
er niðurstaða norræns fundar sem
haldinn var á vegum heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytisins í
Reykjavík dagana 19. til 20. ágúst.
Fundurinn komst að þeirri niður-
stöðu að ekki sé talið nauðsynlegt að
starfsfólk tannlækningaþjónustunnar
fari reglubundið í alnæmispróf, né að
takmarka skuli störf þeirra sem smit-
ast hafa.
Fundinn sátu 21 fulltrúi cn þetta
er þriðji norræni fundurinn sem hald-
inn er um þetta málefni. Fundinn sátu
fulltrúar frá hcilbrigðisyfirvöldum,
tannlæknafélögum og tannlæknaskól-
um á Norðurlöndunum.
-Sáf
tíma af tíu borgarfulltrúum Sjálfstæð-
isflokksins og virtist mér það liggja
ljóst íyrir hver vilji borgarstjómar
væri í þessu máli, sagði Júlíus.
Júlíus sagði að málefni upplýs-
ingaþjónustunnar væm orðin þannig
að landsbyggðin þyrfti ekki að borga
neitt í sameiginlegan rekstur eins og
ráð var fyrir gert i reglum þjónust-
unnar.
- Byggðastofnun hefúr látið
Ferðamálaráð fá styrki. Að megninu
til rennur þessi styrkur svo til upp-
byggingarstarfs ferðanefúda á lands-
byggðinni, sem síðan greiða þetta
fjármagn sem sinn hluta til upplýs-
ingaþjónustunnar. Þegar málum er
svona háttað finnst mér eðlilegra að
Ferðamálaráð eigi að taka málið al-
farið að sér, sagði Júlíus.
Júlíus gagnrýndi einnig innri störf
upplýsingaþjónustunnar og sagði að
t.d. hafi þrír framkvæmdastjórar starf-
að fyrir hana á jafn mörgum árum.
- Auk allra þessara atriða er
Reykjavíkurborg að undirbúa að reka
sína eigin upplýsingaþjónustu. Einnig
höfúm við átt aukið samstarf við
Ferðamálaráð á öðmm sviðum eins
og t.d. á kynningarstörfum erlendis,
sagði Júlíus.
Aðspurður um áhuga Markúsar á
að endurskoða ákvörðun borgar-
stjómar sagði Júlíus að borgarstjóri
yrði að tala sig út um það við borgar-
fúlltrúa hver vilji hans væri í þessum
efnum. Eftir það ættu menn að geta
tekið afstöðu til málsins upp á nýtt ef
þeir sjá ástæðu til þess.
Ekki náðist í Birgi Þorgilsson
ferðamálastjóra vegna málsins.
-sþ
Tólfta alþjóöaralliö hófst I Öskjuhllð I gær. Það er spáð harðri keppni. Erlendu keppendurnir eru verulega góðir
og það verður gaman að fylgjast með því hvernig okkar mönnum reiðir af.
Bíll nr. 4 er eins og allir sjá Mazda 323 4x4 Turbo, 225, en ökumennirnir heita Peter Geitel og Kaj Hakkinen.
I dag fara ökumennirnir I Þjórsárdalinn og niður Land og sömu leið að kveldi til Reykjavikur. Borgarfjörðurinn tek-
ur síðan við á sunnudagsmorgni en rallinu lýkur við Hjólbarðahöllina i Fellsmúla klukkan 15.30 á morgun.
Skólagjöldum mótmælt
Kennarafundur Fjölbrautaskólans við Ármúla og stjórn Kennara-
sambands íslands hafa sent frá sér ályktanir þar sem hverskonar
hugmyndum stjórnvalda um upptöku skólagjalda er mótmælt. í
Ármúlanum var þetta samþykkt með einu mótatkvæði.
Stjóm K1 segir í sinni ályktun að
vegið sé að velferðakerfinu, sem
byggt hafi verið upp á undanfömum
áratugum, með sérstökum skóla-
gjöldum í framhaldsskólum og há-
skólum, með niðurskurði námslána,
með innritunargjöldum á sjúkrahús-
um og með því að auka hlut sjúk-
linga í lyfjakostnaði.
„Stjóm Kennarasambands ís-
lands hafnar öllum þessum hug-
myndum enda yrðu þær til þess að
auka misrétti i þjóðfélaginu og
leggja auknar byrðar á þá þegna þess
sem hafa minnstar ráðstöfúnartekj-
ur,“ segir í ályktuninni.
Stjóm KI skorar einnig á ríkis-
stjómina að huga að upptöku fleiri
skattþrepa, herða skattaeftirlit og sjá
til þess að fjármagnstekjur verði
skattlagðar einsog aðrar teícjur í stað
þess að auka enn á misréttið í þjóð-
félaginu. -gpm
MYNDVERKASÝNING
FÉLAGSMANNA V.R.
/ LISTASAFNIALÞÝÐU, GRENSÁSVEGI !6A, 31. ÁGÚSTTIL 15. SEPTEMBER 1991
í tilefni 100 ára afmælis Verzlunarmannafélags Reykjavíkur sýna 30 félagar V.R.
verk sín, en þeir vinna allir áb myndiist í tómstundum sínum.
Sýningin er opin alla virka daga fró kl. 14-22 og um helgar kl. 10-22
ALUR VELKOMNIR - ÓKEYPIS AÐGANGUR
18 9 1-19 9 1
Verzlunaimannalélag Heykjavto
1991
HANDBRAGÐ MEISTARANS
Bakarí
Brauðbergs
Ávallt nýbökuð brauð
-heilnæm og ódýr-
Aðrir útsölustaðir:
Hagkaup-Skeifunni
-Kringlunni
-Hólagarði
Verslunin Vogar,
Kópavogi.
Brauðberg
Lóuhólar 2-6 simi 71539
iiraunberg 4 shm 77272
ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 7. september 1991
Síða 6