Þjóðviljinn - 11.10.1991, Síða 2

Þjóðviljinn - 11.10.1991, Síða 2
xO CÖ ö) O ö) o ö) > 0 1- Elinborg Stefánsdóttir, Jramkvœmdastjóri Listahátiðar. Mynd: Kristinn. Dreg hetjur í efa Hver ertu? Ég- Hvað ertu að gera núna? Vinna við Kvik- myndahátíð í Reykjavík 1991. Hvað er verst i fari karla? Yfirgangur og óheið- arleiki. Hvað er best i fari kvenna? Ég held að það fari eftir manneskjunni. Ottastu ástkœra yl- hýra málið? Nei, þvert á móti. Óttastu um ástkœra ylhýra málið? Við verðum að minnsta kosti að fara varlega. Ertu myrkfælin? Nei. Hefurðu séð draug? Já. Geturðu sagt eitt- hvað meira um það? Nei. Hefurðu hugleitt að breyta lífi þínu alger- lega? Já. Og ég ætla að gera það bráðlega. Hvað er það versta sem Jýrir þig gœti kom- ið? Það hef ég ekki grun um. Það er ábyggilega svo vont að ég get ekki ímyndað mér það. Leiðinlegasta bók sem þú hefiur lesið? Ég man ekki titilinn, hún var svo leiðinleg. Ertu með einhverja dellu? Nei, það held ég ekki. En einhverja komp- lexa? Ekki sem ég man eft- ir. Kanntu að reka nagla í vegg? Já,já,já, já. Hvað er kynœsandi? Það fer nú bara eftir þvi um hvaða mann við erum að tala. Sumir eru kynæsandi útaf þessu, en aðrir útaf einhveiju öðru. Skipta peningar máli? Því miður, já. Hvar vildirðu helst búa? Ég hef aldrei hugleitt hvar ég vildi helst búa. Mér líður alltaf vel þar sem ég er. Hver er eftirlœtis söguhetjan þin? Ég á svo ógurlega margar, það er engin ein framyfir 100. Uppáhaldsmálari? Þeir eru nú nokkrir. Mér dettur Miro í hug. Hvað finnst þer skemmtilegast að gera? Lesa, fara á bíó, fara í gönguferðir, ferðast um hálendið, o.s.frv., o.s.frv. Hver er þinn mesti galli? Fullkomnunarárátt- an. Trúirðu á annað líj? Já. Hver er þinn uppá- haldsfugl? Tjaldurinn. Uppáhaldsrithöfund- urinn? Þeir eru svo margir að ég get ekki tekið einn fram yfir annan. Hvaða hetju sögunn- ar dáir þú mest? Ég álít nú að þær frá- sagnir sem við höfúm af svokölluðum hetjum sögunnar séu kannski ekki alveg sannleikanum samkvæmt, þannig að ég fer varlega í að dá það sem er kallað hetjur sög- unnar. Hvað er leiðinlegast við málverkasýningar? Mér finnst ekkert leiðinlegt við þær. Ferðu oft á bió? Mjög oft. Eru til ofurkonur? Það fer eftir skil- greiningunni á orðinu. Ég veit það ekki. Hvað finnst þér að fiœðingarorlof ætti að veralangt? Ár. Hvaða hæfileika vildirðu hafa til að bera? Helst sem flesta. Mottó í lífinu? Já, nokkur. Hvað þykir þér vœnst um? Of margt til að ég taki eitt fram yfir annað. -gpm Brosmildir en fláráðir framhaldsskólanemar heimsœkja kennara sinn á afmœlisdaginn. Jelena kennslukona trúir ekki sinum eigin eyrum og augum þegar nemendurnir sýna sitt rétta andlit. Flöqö unair föqrum skinnum Kæra Jelena eftir Ljúdmilu Razúmovskaju verður frum- sýnt á Litla sviði Þjóðleikhúss- ins á laugardag. Þetta er áleit- ið verk sem vekur spurningar og höfðar ekki síst til ungs fólks. Það snýst um að velja sér viðhorf til lífsins. Jelena er kennari við fram- haldsskóla og á afmælisdcgi hennar koma nokkrir ncmendur í heimsókn. Þau óska henni til hamingju og færa henni gjafir en fljótlega kemur í Ijós að raun- verulegur tilgangur heimsóknar- innar er annar. Leikritið var skrifað árið 1980. Eftir frumuppfærslu í Tall- inn í Eistlandi var það sett upp í Leningrad árið 1981 og þá mcð nýjum endi að skipan pólitiskra yfirvalda. Þar er skemmst frá að scgja að gagnrýnendur og aðrir áhorfendur voru mjög hrifnir af þessu verki og leikhús um gjörvöll Sovélríkin höfðu hug á að taka Kæru Jclenu til sýningar. Ekki Icið hins vegar á löngu þar til það var sctt á skrá yfir óæskileg leikrit og bannað. Með pcrestrojkunni árið 1986 komst það aftur í náðina og hefur nú verið sýnt um öll Sovétríkin. Kvikmynd var gerð eftir leikritinu árið 1987 og það fer nú víða um leikhús á Vesturlöndum. Leikstjóri er Þórhallur Sig- urðsson, Messíana Tómasdóltir gcrir leikmynd og búninga en lýs- ingu annast Ásmundur Karlsson. Leikarar eru fimm talsins. Með hlutverk Jelenu fer Anna Kristín Arngrímsdóttir en nemendur hennar eru leiknir af þeim Baltas- ar Kormáki, Halldóru Björnsdótt- ur, Hilmari Jónssyni og Ingvari E. Sigurðssyni. Þessi fjögur eru meðal yngstu leikara Þjóðleik- hússins og nokkuð sérstakt að eiga þess kost að sjá þau saman í sýningu. Ingibjörg Haraldsdóttir þýddi þetta leikrit í vor sem leið og sagðist hafa haft mjög gaman af þeirri vinnu vegna þess að henni þætti leikritið afar gott. Ingibjörg sagðist hafa mætt á nokkrar æfingar og breytt texta á stöku stað í samráði við leikara. Ingibjörg hefur fengist töluvert við þýðingar á leikritum og hún sagði jafnframt að sér fyndist sér- staklega skemmtilegt að þýða fyr- ir leikhús: - Það er sérstök til- finning að heyra textann fluttan á sviði, sagði Ingibjörg. Um stefnu í þýðingunni sagði Ingibjörg að ekki hefði verið stætt á því að staðfæra málfar ungling- anna í leikritinu. Það væri svo margt ólíkt í uppeldi og menntun að í því hefði verið fólgin of mik- il breyting. Ingibjörg sagði að leikritið Kæra Jelena væri dæmigert fyrir sovéska leiklist að því leyti að i því væri spurt stórra spuminga. - Þeir eru óragir við eilífðarmálin. Spyrja hiklaust um hvað sé gott og fagurt og hvað ljótt og vont. Fyrir þeim er það hitamál hvað er rétt og hvað rangt. í d a g S k ú m u r 11. október er föstudagur. 284. dagur ársins. Sólarupprás i Reykjavík kl. 8.04 - sólarlag kl. 18.24. Viðburðir Þórður kakali Sighvats- son dáinn 1256. Stefán frá Hvítadal skáld fæddur 1887. Jafnaðarmannafé- lag Reykjavíkur klofnar 1922. Hún er svo skýr að við birtum hana í hvítri bók og þar með hvítþvoum við okkuráðuren við Nafnið á stefnuskránni segir líka allt: Meðferð á ráðhúsgrunni! NÝTT HELGARBLAÐ 2 FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 1991

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.