Þjóðviljinn - 11.10.1991, Page 4

Þjóðviljinn - 11.10.1991, Page 4
Ferðaþjónustan í örum vexti ( gær og í dag stendur yfir í Hveragerði 21. ferða- málaráðstefna Ferðamálaráðs. Blaðinu í dag fylgir aukablað um ferðaþjónustuna, sem gefið er út í tengslum við Ferðamálaráðstefnuna. A eins til tveggja ára fresti hefur Ferðamálaráð haldið ráðstefnur af þeim toga sem nú er haldin í Hveragerði og eru þær orðnar fastur liður í allri starf- semi á sviði ferðamála. Á annað hundrað fulltrúar fyr- irtækja, samtaka, áhugamannafélaga og opinberra aðila sækja ráðstefnuna sem er öllum opin. Ferðaþjónustan er sú atvinnugrein sem hefur verið í hvað mestum vexti á undanförnum árum. Gjaldeyr- istekjur þjóöarbúsins af ferðaþjónustu nema rúmlega 11 miljörðum króna, um 5-6 þúsund ársverk eru unnin í ferðaþjónustu og hlutur atvinnugreinarinnar í vergri landsframleiðslu nemur um 6-7%. Það er því augljóst að ferðaþjónusta er raunveruleg atvinnugrein sem skiptir þjóðarbúið miklu máli. Mikilvægt er að stjórn- völd geri sér grein fyrir þessum staðreyndum og móti opinbera stefnu í málefnum greinarinnar. Á síðasta þingi mælti þáverandi samgönguráðherra, Steingrím- ur J. Sigfússon, fyrir þingsályktunartillögu um ferða- málastefnu og frumvarpi til laga um ferðamál, en hvorugt þessara mála var afgreitt fyrir þinglok, en sú vinna sem að baki þessum þingmálum liggur er gott veganesti fyrir þróun atvinnugreinarinnar í framtíðinni. Náttúra landsins er sú auðlind sem ferðaþjónustan byggir á, líkt og sjávarútvegur byggir á nýtingu fisk- stofna. Það varðar miklu að farið sé vel með þá auð- lind sem á að skila okkur arði í framtíðinni. Stjórnvöld og einkaaðilar í ferðaþjónustu verða að leggja fé af mörkum til uppbyggingar og úrbóta á ferðamanna- stöðum í miklu ríkari mæli en gert hefur verið hingað til. Ekki síst er mikilvægt að fyrirtækin sem starfa í greininni átti sig á því að velgengni þeirra er háð góðri umgengni við náttúruna, verði henni spillt með akstri utan vega, vanræktri sorphirðu, eða einfaldlega of miklu álagi verður hún ekki lengur sú söluvara sem hún þarf að vera til að tryggja viðgang ferðaþjónust- unnar. Á undanförnum árum hefur skilningur manna í atvinnugreininni aukist á þessum þætti. Það er fagn- aðarefni, en þó vert að undirstrika að enn er langt í land, álag á ákveðna ferðamannastaði er allt of mikið á of stuttum tíma. Eitt brýnasta verkefni atvinnugreinarinnar á næstu árum hlýtur að vera að þróa nýja ferða- og afþreying- armöguleika sem gefa betri dreifingu ferðamanna á árstíma og landssvæði. Árangur í því efni myndi bæði þjóna umhverfissjónarmiðum og byggðarsjónarmið- um, álag á náttúrunni myndi minnka með meiri dreif- ingu og sömuleiðis yrðu fleiri sveitarfélög virk í ferða- þjónustu. Greinin er mannaflafrek og því vel til þess fallin að tryggja atvinnuöryggi í dreifðum byggðum og til sveita. Stjórnvöld hafa vitaskuld verkefni að vinna í þessu efni með samræmingu á þróunarstarfi, en fyrst og síðast þarf að skapa atvinnugreininni sambærileg skilyrði og aðrir gjaldeyrisskapandi atvinnuvegir búa við. Er þá fyrst og fremst átt við skattlagningu, en ferðaþjónustan greiðir mun hærri opinber gjöld en aðrar útflutningsgreinar. Um þessa starfsemi alla þarf að setja rammalög- gjöf þannig að greinin geti þróast í það að verða einn af undirstöðuatvinnuvegum þjóðarinnar, en um slíka löggjöf þarf að vera sátt í þjóðfélaginu. Það á bæði við um almenn skilyrði og eins umhverfismálin. Um- ræðan á Alþingi í fyrravetur um áður nefnd þingmál á sviði feröamála sannar að það er góður möguleiki á víðtækri samstöðu um málefni ferðaþjónustunnar. Mikilvægast af öllu er þó að auðlindin verði nýtt með skynsamlegum hætti, því það er eins og Magnús Oddsson markaðsstjóri Ferðamálaráðs segir í grein í aukablaði Þjóðviljans í dag um ferðaþjónustuna: „Hún verður aldrei stunduð hér til frambúðar nema í sátt við þjóðina og landið.“ ÁÞS 'Helgarblad Útgefandi: Útgáfufélagiö Bjarki h.f Framkvæmdastjóri: Hallur Páll Jónsson Ritstjórar: Arni Berg- mann, Helgi Guömunds- son. Ritstjórnarfulltrúar: Ámi Þór Sigurösson, Siguröur Á. Friðþjófsson Umsjónarmaöur Helgarblaðs: Bergdís Ellertsdóttir Auglýsingastjóri: Steinar Haröarson Afgreiösla: n 68 13 33 Auglýsingadeild: tr 68 13 10-68 1331 Slmfax: 68 19 35 Verö: 170 krónur I lausa- sölu Setning og umbrot: Prentsmiðja Þjóöviljans hf. Prentun: Oddi hf. Aðsetur: Síöumúla 37, 108 Reykjavík Helgarpistill Síðasta Reykjavíkurbréf Morgunblaðsins fjallaði um þá nauðsyn að spara og veita að- hald. Og þarf enginn að vera hissa á því efnisvali: það er mjög í anda dagskipunar ríkis- stjórnarinnar. Hitt er svo fróð- legt að á þessu máli er tekið með þeim hætti sem er ekki sjálfsagður á síðum Morgun- blaðsins. Sukkið hjá Könum Höfundur Reykjavíkurbréfs byrjar á því að segja, að næstlið- inn áratugur í Bandaríkjunum hafi verið áratugur „græðgi og óhófs“. Þar eru rakin nokkur glæfraleg umsvif fjárplógsmanna sem nutu ljúfrar fyrirgreiðslu banka í því að velta fram og aftur Græðgin og óhófið peningum og verðbréfum - en þau ævintýri hafa mörg hver endað í ósköpum. Morgunblaðinu blöskr- ar það sukk allt í þeim mæli að höfundur Reykjavíkursbréfs bregður jafnvel á það ráð að setja upp pínulitið jafnaðarmennsku- bros út í annað munnvikið eða svo: gróðabrallinu, segir þar „hafi fylgt gríðarlegur efnamunur, meiri en nokkru sinni fyrr þar í landi og var hann þó nógur fyrir“. Tíska sem hvarf? Að nokkurri hneykslun lok- inni kemst höfundur Reykjavíkur- bréfs að þeirri niðurstöðu að reynslan af uppgangi og falli verðbréfajöfranna hafi orðið sú, að menn séu nú þar vestra famir að draga saman seglin. Sýna meiri hófsemi. Enda verði þeir forstjórar sem til skamms tíma skömmtuðu sjálfum sér hraðvax- andi tekjur fyrir vaxandi gagnrýni hluthafa í fyrirtækjum fyrir það hve góðir þeir eru við sjálfa sig (Aðrar heimildir segja þó að það reynist hluthöfum næsta erfitt að taka í hnakkadrambið á forstjóra- græðginni: vald þeirra er dreift og ósamstillt meðan á stjórnarfund- um fyrirtækja sitja bræður í for- stjórastétt og hylma yfir hver með öðrum). Hin tiltölulega bjartsýna niðurstaða blaðsins er sú að „óhóf og græðgi síðasta áratugar er ekki lengur í tísku“. Hið íslenska sukk Það er að segja: ekki „í tísku“ i Bandaríkjunum. Aftur á móti telur blaðið líklegt að hið banda- ríska fordæmi hafi breitt úr sér hér á landi. Hingað hafi borist „einhver angi af þeim hugsunar- hætti sem ríkti á Vesturlöndum á áratug hófiausrar peningaeyðslu". Greinarhöfundur gerir svo stutan stans við það að þar með hafi „Is- lendingar lifað um efni fram“. En snýr sér svo að meginviðfangs- efni greinarinnar: að kærulausri meðferð (les: bruðli) á almanna- fé. Þar er víða við komið. Það er ekki síst talað um nauðsyn þess að ráðamenn gangi á erfiðum tím- um á undan með góðu fordæmi og skeri niður sín fríðindi í risnu, dagpeningum og slíku. Fylgir með allgóð lýsing á því „ferða- hvetjandi“ kerfi dagpeninga sem okkur minnir að þeir Matthías Mathiesen og Albert Guðmunds- son hafi þanið svo út í sinni íjár- málaráðherratíð að það eitt getur kostað drjúg meðalárslaun að láta eina ráðherrafrú koma í veg fyrir einsemdarraunir bónda síns á þvælingi hans um heiminn. Það er meira að segja viðurkennt í Reykjavíkurbréfi að það sé eðli- legt og sjálfsagt að menn geri at- hugasemdir við „umframkostnað“ við Ráðhús og Perlu og Flugstöð og fleiri hús. Gildi fordæmis Þetta innlegg er góðra gjalda vert - svo langt sem það nær. Það er vissulega rétt hjá Morgunblað- inu, að skýrt fordæmi sem ráða- menn geta gefið með því að skera niður hjá sér allt það sem almenn- ingi finnst sukk og óþarfi, það hefur gildi langt umfram þær upphæðir sem sparast. Það er líka rétt að fólk sættir sig þá fremur við „óvinsælar aðgerðir“ eins og þær heita, ef höfðingjar hafast það að að byrja á sjálfum sér. Slik afstaða þarf reyndar ekki að byggja á neinni jafnaðarhyggju, heldur blátt áfram á kaldri pólit- ískri skynsemi. Eða af hverju ættu menn ekki að læra af Borís Jeltsín forseta Rússlands, sem á vinsældir sínar meðal almennings þvi helst að þakka að hann varð einna fyrstur sovéskra ráðamanna til að afsala sér ýmislegum fríð- indum? Og sagði einmitt sjálfur, að slíkt fordæmi breytti að sjálf- sögðu ekki miklu um lífskjör fólks, en væri nauðsynlegt til að hressa upp á siðgæðið í samfélag- inu. Okkar eigið einkasukk En taki menn svo eftir öðru. Þegar talað er um „græðgi og óhóf' erlendis, þá talar höfundur Reykjavíkurbréfs um þann anga kapítalismans sem kenndur er við spilavíti. En hér heima er óhófið í hans meðferð nær eingöngu bundið við meðferð peninga í op- inbera geiranum. Þetta er hvorki tilviljun né stafar þetta af plássleysi. Þetta er mjög í anda þeirrar áherslu sem Morgunblaðið hefur lengi lagt: sukkið er hjá því opinbera, en sukk hjá einkaaðilum er eins og stikkfrí. Það er ekki til umræðu, frekar en hjúskaparvandræði eða önnur einkamál. Og er þó af nógu að taka í flottræfilshætti og vafa- sömum samhristingi einkaneyslu og reksturs fyrirtækja eins og allir vita. Þetta er feimni sem vert er að gefa góðan gaum. Það er nefni- lega ekki einu sinni rétt hjá höf- undi Reykjavíkurbréfs að „græði og óhóf‘ séu komin úr tísku, til dæmis í því landi sem við tökum helst mið af, Bandaríkjunum. Það er alltaf verið að skrifa um þessa græðgi í bandarísk blöð (eða þá bresk). Óhófið þykir kannski ekki jafn sjálfsagt og áður í fjölmiðl- um - m.a. vegna þess hve hrapal- lega margir sukkaramir hafa runnið á rassinn með sitt fé og þó einkum annarra. En það sem er feimnismálið mesta er blátt áfram þetta: græðgi og óhóf er innbyggt í þá markaðs- hyggju sem mestu ræður um hug- arfar allra helstu pólitískra ná- granna Morgunblaðsins, heima fyrir sem erlendis. Græðgin og óhófið em blátt áfram rökrétt af- leiðing af því að „hámörkun gróða“ er talið það eina hreyfiafl samfélagsins sem vit er í - en all- ar ráðstafanir til að draga úr „efnamun" háskalegur sósíalismi. Það er þessi græðgi sem gerir það að verkum að virðuleg borgaraleg blöð standa hér og þar agndofa yfir frekjunni í forstjórunum sem hafa rofið öll tengsl á milli þess hve mikið þeir bera úr býtum sjálfir og þess hvemig fyrirtækj- unum gengur: þeir vita sem er að í slíku athæfi er pólitískt sprengjuefni fólgið. „Hið nýja stéttastríð“ er hafið segir Sunday Times í Bretlandi - og það em forstjóramir sem byrjuðu það. Það er ágætt að gera strangar kröfur um ráðdeild hjá borg og ríki. Það er blátt áfram nauðsyn- legt. En ef menn láta um leið sem „óhóf og græðgi“ í einkageiran- um sé einhverskonar útlent vandamál og altént ekki til um- ræðu - þá vöknar heldur betur í þeirra móralska púðri. Þá heyrist ekki hvellur, heldur aðeins feimn- islegt hviss þegar stílvopn er mundað. NÝTT HELGARBLAÐ 4 FÖSTUDAGUR 11. OK.TÓBER 1991

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.