Þjóðviljinn - 11.10.1991, Page 12
Sjo a
toppnum frh
kqspnum og þaðan af stærri, jafnt hér
heima sem annarsstaðar meðal
bridgeþjóða.
Ahorfendur standa því öðmvísi
og betur að vígi en spilaramir sem
gera upp hrinur. Ahorfendur fylgjast
með frá spili til spils, með hjálp sjón-
varpsskjás og tölvugrafíkur og staðan
í hveijum leik reiknuð jafnóðum.
Með góðum fyrirvara geta áhorfendur
„spáð í spilin“ uns árangur í lokuðum
sal rennur upp á skjánum.
En áhorfendum er ekki hleypt inn
í sjálfa spilasalina. Þar eru einungis
spilaramir, starfsmenn og tæknilið
(stundum bara tækni án starfsliðs) og
hugsanlega útvaldir blaðamenn
(mótsblaðs).
Nokkrum mínútum eftir að spil
birtist á skjánum hefst „bein útsend-
ing“ þegar pörin í opna salnum hefja
glímuna.
Ástæðan fyrir því að aðgangur að
sjálfúm spilasölunum er bannaður er
fyrst og ffemst fyrirbyggjandi.
Bridgespilið eða mannskepnan er
skritið fyrirbæri, misfellur geta orðið
og ásakanir um skipulagt svindl hafa
ekki einungis iðulega komið ffam,
heldur og fengið rökstuðning.
Það eru þung högg fyrir íþróttina
og því er skynsamlegt að reyna að
veijast þeim á allan máta. Við ætlum
ekki að tíunda vond dæmi, eða viður-
lögin, né þjóðemi þeirra er hlut hafa
átt að svindli.
Það varðar fyrst og ffemst keppn-
isspilara, stjómunaraðila og yfirdóm-
nefndir.
Órökstuddar ásakanir, þótt fram
komi í hita leiks, og það opinbcrlega,
eins og ffam komu hjá Pólveijum í
undanúrslitaleik þeirra og Brasilíu-
manna em einnig vítaverðar.
Pólveijar töldu sig greina „mynst-
ur“ í tempói bakkans gegnum skerm-
inn sem skiptir borðinu í tvennt!
Leikurinn verður sennilega yfir-
farinn, spil af spili, og þótt Brasiliu-
menn verði sýknaðir er ákæran svo
alvarleg, að eítirköst em óumflýjan-
leg.
Viö vonum innilega að íslensku
pörin brosi Pólverjana út úr leiknum.
Kö lum það taktík, kænsku, eða skop-
skyn af bcstu sort, því til em bros og
svo em japönsk bros.
Aðeins nánar um skerminn scm
skiptir spilaborðinu í tvennt og kom á
eftir sagnboxunum til bjargar lcikn-
um, þegar mest á rcið.
Pörin em aðskilin, spilari sér
hvorki né heyrir (upplýsingar em
gefnar skriflega) makker sinn, heldur
nýtur návistar annars mótherjans og
það þekkja allir keppnisspilarar að
auðveldara er að fyrirgefa andstæð-
ingnum mistök heldur en makkcr.
Skermurinn gerir það einnig að
verkum að skylt er að gefa skýringar
á eigin sögnum jafnt sem félaga.
Ábyr^ðin vcx.
A komandi ámm mun verða
gengið enn lcngra í þá átt að „sótt-
hreinsa" bridgcinn cf nauðsyn krcfur.
Fyrst við erum komnir
svona langt...
...afhveiju þá ekki að klára dæm-
ið? Ef við höfum þcssi orö ekki eftir
Jóni Baldurssyni, getum við alltaf lát-
ið sem okkur hafi dreymt þau. Tak-
markaður svcfn. Taugaslítandi að
standa álengdar og geta ckkcrt að
gert. Tímafrekt að lýsa „utanfrá“
furðuspili eins og bridge scm fólk tín-
ist inní og á sjaldnast afturkvæmt úr.
íslendingar em bridgcóðir, urðu
það áður en Yokohama skall á. lök-
endur hér em litlu færri cn mcðal
miljónaþjóða. Tugmiljónaþjóða.
í þcim skilningi er Island ckki
smáskcr. En það yrði cfni í aðra lang-
loku.
En „strákamir okkar“ cm að
keppa um heimsmeistaratitil í einum
af stóm greinunum. Og þeir gætu
unnið.
Keppnisspilarar hér heima gcrðu
almennt ráð fyrir að fyrsta hindrunin,
riðlakcppnin, yrði cngin tálmun. 3.
sætið pantað og frátekið. Yfirburðim-
ir vom óvæntir.
Bandaríkin II var bara næsta
grind. En þvílík jarðarfor! Að mæta
Svíum var 50% svíning. Kóngurinn
lá!
En Pólveijar og 160 spil er of
mikið.
Kannski við köstum bara upp
krónu, gefúm skít í líkindarcikning-
inn, og staðhæfi að skjaldarmerkið
komi upp í eitt skipti af þremur.
(HL.-ÓL.)
M I N N I N G
Kristinn Finnbogason
framkvæmdastjóri
Fæddur 28. maí 1927 - Dáinn 4. október 1991
Kveðja frá Landsbanka ís-
lands
Nú legg ég augun afíur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vöm i nótt.
Æ, virzt mig að þér taka
méryfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
Kristinn Finnbogason, fram-
kvæmdastjóri og bankaráðsmaður í
Landsbanka Islands, andaðist þann
4. þ.m. efíir erfiða sjúkrahúslegu. í
dag er hann til moldar borinn.
Hann sat bankaráðsfund, sem hald-
inn var á ísafirði 7. september s.l.
Gmnaði þá engan, sem þann fund
sat með Kristni, að þetta yrði síð-
asti bankaráðsfundur sem hann
sæti.
Kristinn heitinn var fæddur að
Ketilvöllum, Laugardalshreppi, 28.
maí 1927 og var því 64 ára gamall
er hann lést.
Foreldrar hans voru Finnbogi
Ámason og Sigriður Ólafsdóttir.
Ungur að ámm lærði Kristinn raf-
virkjun og varð meistari í þeirri
grein. Starfaði hann við þá iðn hér
í Reykjavík og á Blönduósi í nokk-
ur ár. Er hann flutti til Reykjavíkur
gerðist hann bílasali, var iðnrek-
andi um skeið, og forstjóri flugfé-
lagsins Iscargo í nokkur ár. Á þess-
um árum vom Kristni falin mörg
trúnaðarstörf fyrir Framsóknarfé-
lögin í Reykjavík og Framsóknar-
flokkinn. M.a. var hann formaður
fulltrúaráðs Framsóknarfélaganna,
formaður félags Framsóknarmanna
í Reykjavík og gegndi auk þcss
fjölda trúnaðarstarfa fyrir flokk
sinn og lét sér mjög annt um vel-
fcrð hans.
Árið 1971, þcgar Blaðaprent
hf. var stofnað, var hann kjörinn í
stjóm þess og um nokkurt skeið
var hann stjórnarformaður Blaða-
prcnts hf. Tvívcgis var Kristinn
framkvæmdastjóri dagblaðsins
Tímans. Gegndi hann því starfi
samtals í 12 ár, nú síðast frá 1985
til dauðadags.
Kristinn Finnbogason var kjör-
inn af fylþingi í bankaráð Lands-
banka Islands I. janúar 1973, og
sat í því óslitið síðan, og alla tíð
scm varaformaður þess. Kristinn
var mjög áhugasan^r um rekstur
bankans.
Kristinn Finnbogason var tví-
kvæntur. Fyrri kona hanS var Elín
Jörgensen f. 10.11. 1924, dáin 31.
ágúst 1987 og eignuðust þau tvö
böm, Sigríði og Kristin. Eftirlif-
andi kona hans er Guðbjörg Jó-
hannsdóttir, f. 29.04. 1927. Eign-
uðust þau 5 böm, Amrúnu Lilju,
Finnboga Eirík, Hjört, Önnu og
Áma Hannes. Á yngri ámm eign-
aðist Kristinn eina dóttur, Guð-
rúnu, með Huldu Alexandersdótt-
ur.
Kristinn Finnbogason þekkti
alla innviði Landsbanka Islands
mjög vel eftir langa setu í banka-
ráði. Hann setti sig vel inn í hin
ýmsu mál, sem komu til kasta
bankaráðsins, og var fljótur að átta
sig á hinum margbreytilegustu
málum. Kristinn var þéttur á velli
og fasmikill í framkomu, skapstór
og fastur á sínum skoðunum, en þó
samvinnuþýður, þegar málin höfðu
verið rædd og kmfin til mergjar.
Kristinn Finnbogason sýndi það í
störfúm sínum í bankaráði Lands-
bankans að hann vildi hag bankans
sem mestan.
Að leiðarlokum_ vil ég, fyrir
hönd Landsbanka íslands, þakka
Kristni Finnbogasyni fyrir langt og
gott samstarf og heilladijúgt starf í
þágu Landsbanka Islands. Við
munum sakna hans í bankaráðinu
og óneitánlega er stórt skarð
höggvið í 'raðir okkar við fráfall
Kristins.
Landsbanki Islands vottar
ekkju hans, frú Guðbjörgu Jó-
hannsdóttur, bömum hans og öðr-
um aðstandendum innilegustu sam-
úð.
K. Sigurjónsson,
formaður bankaráðs
Landsbanka íslands
Kristinn Finnbogason, fram-
kvæmdastjóri Tímans, hefur nú
kvatt samferðamenn sína. Hann er
til moldar borinn í dag.
Efalaust hefur fáa gmnað nú á
haustdögum í miðjum önnum að
svo kynni að fara, enda Kristinn
ekki nema 64 ára.
En í þessum efnum ræður eng-
inn sínum næturstað og engin grið
gefm af þeim hljóðláta gesti sem
alla heimsækir að lokum.
Kristinn Finnbogason kom
verulega við sögu blaðaútgáfú í
landinu. Hann var í tvígang fram-
kvæmdastjóri Tímans, í seinna
skiptið frá árinu 1985 og til dauða-
dags. Þá var hann lengi i stjóm
Blaðaprents hf., tók þátt í stofiiun
þess árið 1971 og var meðal annars
stjómarformaður um skeið.
Það var á þessum vettvangi
sem undirritaður var samferða
Kristni eða síðustu fjögur árin. Þar
áttum við gott samstarf og ágætan
trúnað, enda báðum umhugað mjög
um afkomu blaðanna og þeirra
stöðu á fjölmiðlamarkaðnum.
Fyrir þá kynningu er vert að
þakka nú að leiðarlokum. Ekkju
Kristins og bömum hans sendi ég
samúðarkveðjur.
Hallur Páll Jónsson,
frkvstj. Þjóðviljans
HANDBRAGÐ MEISTARANS
Bakarí
_Brauðbergs
Ávallt nýbökuð brauð
-heilnæm og ódýr-
Aðrir útsölustaðír:
Hagkaup-Skeifimni
-Kringlunni
-Hólagarði
Verslunin Vogar,
Kópavogi.
Brauóberg
Lóubötar2-6stai?lS39 j
tireunbefg 4 stai 77272
Þjóðviljinn
SJÁLFBOÐALIÐSSVEITIN
getur bætt við sigfleiri félögum til að virtnaýmis
verk við áskrifendasöfnun Blaðsins okkar
Látið skrá ykkur í síma
681333
FÉLAGSMÁLASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Síðumúla 39 — 108 Reykajvík — Sími 678500
Forstöðumaður útideildar
Laus er til umsóknar staða forstöðumanns útideildar.
Háskólamenntun á sviði félags-, uppeldis- eða sálar-
fræði er áskilin og einnig reynsla af starfi með ung-
lingum. Æskilegt er að starf geti hafist eigi síðar en
1. janúar n.k.
Útideild er deild innan Félagsmálastofnunar Reykja-
víkur sem sinnir leitar- og vettvangsstarfi meðal ung-
linga og er markmiðið með starfinu að fyrirbyggja að
unglingar lendi í erfiðleikum og aðstoða þá ef slíkt
kemur fyrir. Starfið felur í sér, auk vettvangsstarfs,
einstaklings-, hópa- og samvinnufélagsvinnu. Starf
forstöðumanns er fólgið í ábyrgð á daglegum rekstri,
skipulagningu á starfi deildarinnar, auk almennra
starfa í deildinni.
Starfið býður upp á mikla möguleika þar sem starf
útideiidar er í stöðugri mótun.
Nánri upplýsingar veitir Petrína Ásgeirsdóttir for-
stöðumaður útideildar s. 621611 og 20365 og Vilmar
Pétursson deildarstjóri unglingadeildar í s. 625500.
Umsóknarfrestur er til 1. nóvember n.k.
Umsóknum skal skila til Félagsmálastofnunar
Reykjavíkurborgar, Síðumúla 39, á umsóknareyðu-
blöðum sem þar fást.
Auglýsing
frá félagsmálaráðuneytinu
Kynningarfundir um áfangaskýrslu nefndar um breyt-
ingar á skiptingu landsins í sveitarfélög verða haldnir
sem hér segir:
15. október 1991 kl. 14.00 Hvanneyri, Bændaskólinn
15. október 1991 kl. 20.30 Búðardalur, Dalabúð
16. október 1991 kl. 14.00 Patreksfjörður,
Félagsheimilið
16. október 1991 kl. 20.30 ísafjörður, stjórnsýsluhúsið
18. október 1991 kl. 14.00 Snæfellsnes,
Félagsheimilið Breiðablik
21. október 1991 kl. 14.00 Hvammstangi, Vertshúsið
21. október 1991 kl. 20.30 Sauðárkrókur, Safnahúsið
22. október 1991 kl. 14.00 Akureyri, Hótel KEA
22. október 1991 kl. 20.30
Húsavík, Hótel Húsavík.
23. október 1991 kl. 14.00 Egilsstaðir, Hótel Valaskjálf
23. október 1991 kl. 21.00 Höfn, Hótel Höfn
24,. október 1991 kl. 14.00Selfoss, Hótel Selfoss
29. október 1991 kl. 20.30 Keflavík, Flughótelið
Félagsmálaráðuneytið, 10. október 1991.
NÝTT HELGARBLAÐ 1 2 FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 1991