Þjóðviljinn - 11.10.1991, Side 13
S k á k
Karpov og Ivantsjúk bítast um efsta sætib
r TOSHIBA
Tæknilega fullkomin og glæsileg tæki.
Teletext: Islenskir stafir
NICAM-STEREO
Fjarstilling, allar skipanir á
skjánum. Flatur skjár með
fínni upplausn. SuperVHS
21" -25" -28" -35".
Tryggðu þérstrax framtíðartæki frá Toshiba - stærsta framleiðanda
heims ígerð sjónvarpsmyndlampa.
Hagstætt verð.
Góð kjör.
Einar Farestveit&Co.hf.
Borgartúni 28, sími 622901.
—
I. -2. Ivantsjúk og Karpov 10 v.
3. Nikolic 8 1/2 v.
4. Khalifman 8 v.
5. - 6. Ljubojevic og Seirawan 7
1/2 v. + ólokin skák
7. Ehlvest 7 1/2 v.
8. Speelman 7 v.
9. Beljavskij 6 1/2 v.
10. Portisch 6 v. + ólokin skák.
II. - 12. Salov 5 1/2 v. + biðskák
og Jóhann 5 1/2 v.
13. Chandler 5 v. + biðskák.
14. -15. Andersson og
Timman 5 v.
16. Gulko 4 1/2 v.
Anatolij Karpov og Vasilij Iv-
antsjúk héldu uppteknum hætti og
unnu báðir skákir sínar í 14. og
næstsíðustu umferð heimsbikar-
móts Flugleiða. Karpov vann Jaan
Ehlvest af öryggi og Ivantsjúk
vann Andersson eftir mjög tvísýna
skák. Þegar þetta er ritað liggja
ekki öll úrslit íyrir en Jóhann
Hjartarson átti peði meira gegn
Lajos Portisch þótt jafntefli væru
líkleg úrslit. Þá átti Ljubojevic
vinningsmöguleika gegn Seirawan.
En úrslit urðu þessi að öðru leyti:
Karpov vann Ehlvest, Ivantsjúk
vann Andersson, Khaliftnan vann
Timman, Nikolic vann Gulko,
Beljavskij vann Chandler en jafnt-
efli varð hjá Salov og Speelman.
Staðan að þessum tveim skákum
slepptum er þá þessi:
Ivantsjúk hefur sótt í sig veðrið og er jafngrimmur með svart og hvitt. Ein-
ungis einn maður getur hrifsað af honum fyrsta sœtið. A laugardagskvöldið
teflir hann hins vegar við sterkari andstœðing en Karpov. Það er Bandarikja-
maðurinn Seirawan. Mörgum hefur reynst erfitt að ná heilum vinningi af
honum. Mynd: Jim Smart.
Þótt Ivantsjúk og Karpov séu
jafhir að vinningum stendur Ivant-
sjúk betur að vígi fyrir síðustu um-
ferð því hann gerði jafntefli við Jó-
hann, sem ekki telst með þegar tek-
in eru saman heimsbikarstig, en
Karpov vann hann. Þetta gerir það
að verkum að síðasta umferðin
býður upp á miklar baráttuskákir
þessara tveggja. Karpov hefur svart
á Chandler og Ivantsjúk svart á
Seirawan.
Karpov hefur teflt afar vel á Heimsbikarmóti Flugleiða. Hann hefur teflt svo vel að einungis einn maður geeti hrifsað af honum fyrsta sætið. Á laugardags-
kvöldið á hann að tefla við Englendinginn Chandler i síðustu umferð, en hefur svart og gengur stundum illa að vinna með svörtu mönnunum. Mynd: Kristinn.
Hvítt: Anatolij Karpov
Svart: Jaan Ehlvest
Gríinfelds vörn
1. d4 Rf6
2. c4 g6
3. Rc3 d5
(Ehlvest ræðst ekki á garðinn
þar sem hann er lægstur er hann
beitir Griinfelds-vöminni gegn
Karpov sem státar af ófáum sigrum
yfir meistara þessarar byijunar,
Garrij Kasparov.)
4. cxd5 Rxd5
5. e4 Rxc3
6. bxc3 Bg7
7. Be3 c5
8. dd2 0-0
9. Rf3 Rd7
(Kasparov var vanur að velja
þessum riddara stað á có en Ehl-
vest tekur þá skynsanmlegu
ákvörðun að sneiða hjá þeim leið-
um sem teknar hafa verið til með-
ferðar í einvígjum þeirra. )
10. Bd3
11. h3
12. Hcl
13. Bh6
14. Bc4
15. 0-0
16. Bb3
17. Hfel
18. Df4
19. Bxa4
20. h4
21. De3
22. Bf4
Rb6
Ra4
He8
Bh8
e6
Da5
b5
Bb7
Hac8
bxa4
Dc7
Da5
f5?
(Vafasamur leikur en svartur á
erfitt með að fmna heilsteypta
áætlun.)
23. exf5 cxd4
24. cxd4 Dxf5
25. Re5!
(Báðir keppendur vora að kom-
ast í bullandi tímahrak og Karpov
gemýtir möguleika sína. Hann veit
sem er að svartur þolir ekki upp-
skipti á e5.)
25... Bd5
26. a3 Bg7
28. Hc5 De7
29. Bg5 Db7
30. Hecl Hxc5
31. Hxc5 Db3
32. Hc3 Dbl+
33. Kh2 Bf8
Sjá stððumynd
(Ehlvest var alveg að falla en
þessi leikur tapar strax því nú kem-
ur Karpov riddara sínum í ákjósan-
lega vígstöðu.)
34. Rg4 Bd6+
35. Bf4 Be7
36. Hc7 Db3
37. De5 h5
38. Rf6+
- og Ehlvest gafst upp því eftir
38. .. Bxf6 39. Dxf6 verður hann
mát. Öraggur og áreynslulaus sigur
Karpovs.
Ps. Ljubojevic vann Seirawan
og Jóhann Hjartarson og Portisch
gerðu jafntefli.
O
w
Æ
_ro
‘oiÆ
O b
Xlo