Þjóðviljinn - 11.10.1991, Qupperneq 15

Þjóðviljinn - 11.10.1991, Qupperneq 15
F R É T T I R Stjórnarflokkarnir boða markaðslausnir á öllum sviðum Davíð Oddsson formaður Sjálfstæðisflokksins sagði að titill hvítbókarinnar „Velferð á varanlegum grunni" væri vís- bending um að ríkisstjórnin vildi ekki velferðarkerfið feigt, einsog margir héldu fram. Hann sagði að kerfið hefði hingað til verið byggt á sandi. Þetta kom fram þegar hvítbók- in svokallaða var kynnt blaða- mönnum í gærmorgun. Jón Baldvin Hannibalsson formað- ur Alþýðuflokksins sagði að í þessari stefnuyfirlýsingu ríkis- stjórnarinnar sem gilti út kjör- tímabilið væru boðaðar mark- aðslausnir. Hann boðaði minni pólitíska miðstýuringu, aukna samkeppni og minni einokun og sagði að það væri jafnað- armennska. Það að ríkið ætti að útvega öllum allt væri hins- vegar kommúnismi, sagði Jón Baldvin. Ráðherramir voru spurðir hvort það skyti ekki skökku við að sam- gönguráðherra stæði gegn sam- keppni á milli Flugleiða og SAS á sama tíma og þessi bók kæmi út. Davíð taldi það mál ekki stórt at- riði í sjálfú sér, en að sér finndist að afskjpti sem þessi af hálfú hins opinbera ættu að vera sem minnst. Jón Baldvin taldi að í þessu tilviki hefði mátt hugsa meira um hag neytenda. I bókinni er áréttað að fest verði i sessi eignaraðild þjóðarinn- ar að auðlindinni, sagði Jón Bald- vin aðspurður hvort Alþýðuflokks- menn væri ánægðir með sjávarút- vegskaflann. Þar er hvergi getið veiðileyfagjalda sem var eitt af stefnumálum Alþýðuflokksins fyrir siðustu kosningar. Um búvöru- samninginn sagði Jón Baldvin að þrátt fyrir það að allir lögfræðingar væm ekki sammála mati rikislög- manns um að ekki væri hægt að rifta samningnum væri of miklil áhætta því samfara að láta reyna á það mál fyrir dómstólum. Hann sagði að þrátt fyrir það ætlaði ríkis- stjómin að stuðla að því að fram- leiðsla, vinnsla og dreifing land- búnaðarvara yrði löguð að mark- aðsaðstæðum og neysluvenjum. Meginmarkmið ríkisstjómar- innar er að ijúfa langvarandi kyrr- stöðu í íslenskum þjóðarbúskap og hefja nýja ffamfarasókn, stendur í hvítbókinni. Ríkisstjómin lofar að Jón Baldvin Hannibalsson og Davið Oddsson kynna stefnu rikisstjórnarinnar nœstu fjögur árin. Lykilorðið er markaðslausnir. Mynd: Kristinn. beita sér fyrir aðgerðum í skatta- og félagsmálum sem komi hinum tekjulægstu til góða. Hvergi er get- ið hátekjuskattþreps og skattur á fjarmagnstekjur er nefndur í sam- bandi við að samræma eignaskatt í landinu, stefnt er að lækkun eign- arskatts fyrirtækja. Annað mark- mið í skattamálum er að breikka skattstofninn og fækka undanþág- um. Auk þess að leggja mikla áherslu á móðurmálskennslu i kafla um menntamál vill ríkis- stjómin vinna að því að koma á samfelldum skóladegi, en í fjár- Iagafmmvarpinu fyrir næsta ár er gert ráð fyrir að ákvæðum nýrra gmnnskólalaga um einsetningu skóla, fjölgun kennslustunda, fækkun í bekkjardeildum og fleir- um slíkum atriðum verði frestað um óákveðinn tíma. Sem annarsstaðar er lögð áhersla á þjónustugjöld í heilbrigð- iskerfinu og einnig imprað á einka- væðingu. Þá á einnig að athuga hvort hægt verði að selja útlend- ingum íslenska heilbrigðisþjón- ustu_. I umhverfismálum hyggst rík- isstjómin fylgja þeirri meginreglu að hver sá sem veldur mengun eða óæskilegri umhverfisröskun standi straum af beinum eða óbeinum kostnaði við að eyða mengun eða bæta spjöll, einsog það er orðað í hvítbókinni. Þá má geta þess að ríkisstjómin hefur uppi stórfelld áform um einkavæðingu og er í kafla um það talað um sölu á Bún- aðarbankanum, Síldarverksmiðjum ríkisins, Sementsverksmiðju ríkis- ins, Gutenberg hf, Ferðaskrifstofu íslands hf og Endurvinnslunni hf. En í sérstökum kafla um iðnaðar- mál er að auki talað um að athuga möguleika á því að breyta Raf- magnsveitum ríkisins í hlutafélag og selja sveitarfélögum og öðmm aðilum hlutabréf. -gpm Allt síðustu ríkisstjórn að kenna Kjaflshögg á neytendastarf Hefur neytendastarf á Islandi ver- ið með þeim hætti að ástæða sé til að veikja það? spyr Jóhannes Gunnarsson formaður Neytanda- samtakanna - þar sem í fjárlaga- frumvarpi fyrir næsta ár er gert ráð fyrir að skera framlagið til samtakanna niður um 70 prósent - án þess að fá svar. Hann segist ekki hafa fengið önnur rök fyrir niðurskurðinum en þau að almennt sé verið að spara, en framlagið er skorið niður úr 5 miljónum króna í 1,5 miljónir króna. Jóhannes bendir á að önnur félagasamtök haldi sínum fjárfram- lögum í krónutölu í frumvaipinu, en það er skerðing upp á ein sjö prósent. Þá bendir hann einnig á að á sama tíma og þessi niðurskurður á sér stað hækka framlög flestra aðalskrifstofa ráðuneytanna meira en sem nemur verðbólgu. Hann bendir sérstaklega á yfirstjóm for- sætisráðuneytisins, en sá liður á fjárlögum hækkar um 43 prósent og væri Öryggismálanefnd með hækkaði framlagið um 66 prósent. Jóhannes sagðist ekki trúa því að þingmenn myndu láta þetta fara óbreytt í gegnum þingið þar sem þetta yrði slíkur afturkippur i neyt- endamálum að ekki væri hægt að kalla það annað en „rosalegt kjafts- högg“ á neytendastarf í landinu. Þetta er yfirlýsing ríkisstjómarinn- ar um að það sem við gemm skipti ekki máli, en ég er viss um þjóðin er ekki á sama máli, sagði Jóhann- es. Davíð Oddsson forsætisráð- herra hafði ekki annað um þetta að segja en að hann hefði ekki kynnt sér þetta sérstaklega, en að það væri sín skoðun að samtök sem þessi ættu ekki að vera styrkt af hinu opinbera. Jóhannes bendir hinsvegar á að á Norðurlöndunum sé starfsemi sem þessi styrkt myndarlega á þeirri forsendu að ekki sé hægt að reka slíka starfsemi öðruvísi vegna fámennis og er þó verið að miða við lönd þar sem tugmiljónir manna búa. Þess vegna þyrfti framlag ríkisins hér á landi að vera meira en til dæmis í Noregi þar sem ríkið veitir neytendasamtökum 100 krónur íslenskar fyrir hvert mannsbam. Það gerðu 25 miljónir hér á landi, en einsog að ofan greinir er gert ráð fyrir 1,5 miljón- um króna á fjárlögum ársins 1992, en samtökin báðu um 13 miljónir króna. Neytendasamtökin heyra undir viðskiptaráðuneytið. Um þessi mál var rætt við Jón Sigurðsson ráð- herra í Neytendablaðinu í júní síð- astliðnum: „Við Islendingar höfum verið frekar aftarlega á merinni á þessu sviði og það var fyrst fyrir fáum ár- um sem við fórum að gefa neyt- endavemd gaum...og á þessum tíma sem ég hef verið hér hefur styrkurinn við Neytendasamtökin verið aukinn verulega. Enda er ég þeirrar skoðunar að það sé betra fyrir okkur að styrkja þessi fijálsu félagasamtök en að byggja upp stofnanaveldi einsog gert er í stærri löndum,“ sagði Jón. -gpm Davíð Oddsson forsætisráð- herra gagnrýndi fyrri ríkis- stjórn í löngu máli í stefnu- ræðu sinni í gær og talaði meðal annars um verulegan og viðvarandi halla í tíð fyrri ríkisstjórnar sem ætti sök á gífurlegri lánsfjáreftirspurn rík- issjóðs. Hann sagði að auk erfiðra ytri aðstæðna hefðu al- varlegar veilur í hagstjórn undanfarið magnað erfiðleik- ana í íslensku efnahagslífi. Davíð talaði um að opinberir sjóðir hefðu verið notaðir einsog deyfilyf og að fyrri rík- isstjórn hefði ekki viljað beita viðurkenndum hagstjórnarað- ferðum, en hafi trúað á lækn- ingamátt opinberrar íhlutunar. Davíð sagði að vegna þessa hefði ríkisstjómin þurfta að vinda ofan af óstjóminni og að aðhalds- aðgerðimar sem gripið var til hefðu skilað árangri þar sem verð- bólga færi hraðlækkandi, hægt hefði verið á innflutningi og dreg- ið úr þenslumerkjum. Hann talaði ckki sérstaklega um til hvaða að- gerða hefði verið gripið. Það gerði hann í stefnuræðu sinni í vor, en þá réttlætti hann vaxtahækkanir ríkisins á forsendu markaðslögmála. Þá gagnrýndi hann einnig yfirdrátt rikissjóðs hjá Seðlabanka sem þá var átta mil- jarðar króna. Síðan ríkisstjómin tók við hefúr yfirdrátturinn aukist þrátt fyrir vaxtahækkanir og góða sölu ríkisvíxla. Yfirdrátturinn er um 10 miljarðar króna og rikis- stjómin hefur í fmmvarpi til fjár- aukalaga farið ffam á 13,6 mil- jarða króna erlenda lántöku til að stemma yfirdráttinn. En í ræðu sinni í gær gagnrýndi forsætisráð- herrann að vextir og afborganir af lánum ríkisins næmu nú 17 pró- sent af áætluðum heildartekjum ríkissjóðs á árinu 1992. Lausnimar sem Davíð boðaði vom sala ríkisfyrirtækja, breyting- ar á skattalögum sem fælu í sér breikkun á skattstofnum, og auk- inn agi og ráðdeild í opinberum rekstri Þá sagði hann að það ætti að virkja kostnaðarvitund almennings og opinberra starfsmanna með aukinni kostnaðarþátttöku sem myndi auka hagkvæmni í opinber- um rekstri. Þá boðaði hann einnig aukna samkeppni frá erlendum að- ilum á lánamarkaði. Þá óskaði hann eftir því að samið yrði skynsamlega í komandi kjarasamningum því að með þeim hætti væri hægt að tryggja kaup- máttinn meðan þjóðin ynni sig úr vandanum og „það er umfram allt trúin á getu okkar íslendinga sjálfra til að sigr- ast á hveijum vanda sem leggja mun grunninn að bættum lífskjör- um og betra mannlífi á íslandi,“ lauk forsætiráðherrann máli sínu í gærkvöldi. -gPm NÝTT HELGARBLAÐ 15 FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 1991

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.