Þjóðviljinn - 11.10.1991, Side 17
H e I garrúnturinn
Listakonur í Sneglu
Á morgun verður opnað í borginni nýtt listhús við
Grettisgötu. Snegla kallast það og að þvi standa fimmt-
án listakonur og á sölusýningu þeirri sem opnar á laug-
ardag verða listmunir eftir þær allar. Verður þar að
finna verk unnin úr textíl og keramíki, auk skúlptúra.
Listhúsið Snegla er opið virka daga kl. 14 til 18 og
laugardaga kl. 10 til 14.
Friðarkonur funda
Úr málmi og
stúkkmarmara
MFÍK, Menningar- og
friðarsamtök íslenskra
kvenna haida haustfund
bambus-
penna
og tússi
1 dag opnar Kristín
Arogrímsdóttir mynd-
listarsýningu í Galleríí
Sævars Karis við
Bankastræti. Myndír
Krisíínar eru unnar með
barobuspenna og tússi
og stendur sýningin til
8. nóvember.
Minningar
um líf
Andlit daganna er yfir-
skrift sýningar sem Harpa
Björnsdóttir opnar í aust-
ursal Kjarvalsstaða á
morgun.
Segir í tilkynningu um
sýninguna að hún sé að ein-
hveiju leyti hugleiðingar um
svipi daganna og andblæ,
minningar um líf sem hverfur
en birtist alltaf affur í nýrri
mynd.
Harpa dvaldi í sumar í
vinnustofu norrænu listamið-
stöðvarinnar í Sveaborg í
Finnlandi. Á sýningunni í
austursalnum verða um sex-
tíu verk og stendur hún til 27.
október. Kjarvalsstaðir eru
opnir daglega kl. 11-18.
1T
sinn að Vatnsstíg 10 í MÍR-
salnum 15. október kl.
20.30.
Á fundinum verður sagt
frá systurfélögum í Alþjóða-
sambandi lýðræðissinnaðra
kvenna, færðar fréttir frá
kvennasamtökum í Búlgaríu
og síðast en ekki síst mun
listakonan Alexandra Kjur-
egej Argunova mæta og
segja frá ferð sinni til
Moskvuborgar þar sem hún
tók þátt í þingi landflótta
sovétlistamanna í boði Jelt-
síns, forseta Rússlands og
forsætisráðherra Sovétríkj-
anna. Á fundinum verða
kaffiveitingar og að sjálf-
sögðu eru allir velkomnir.
Þess má geta að MFIK eru
hálfrar aldar gömul á árinu.
Sigurður Eyþórsson
listmálari opnaði fyrir
skömmu myndlistarsýn-
ingu í Gallerí einn einn
við Skólavörðustíg.
Á sýningu Sigurðar er
að finna 21 verk, bæði
teikningar og málverk,
unnin á síðastliðnum þrem-
ur árum. Munu verkin vera
unnin eftir strang fígúratíf-
um, frjálslegum og hefð-
bundnum aðferðum. Sig-
urður dvaldi nokkur miss-
eri i Reichenau í Austurríki
og nam málunaraðferðir
Enn stendur skemmti-
leg skúlptúrsýning Ingu
Ragnarsdóttur yfir í sölum
gömlu meistaranna, eins og
glöggt má sjá af verkum
hans. Áður dvaldi hann i
Svíþjóð og lagði bæði
stund á grafíklist og al-
mennt myndlistamám við
konunglegu listaakadem-
íuna í Stokkhólmi. Sigurð-
ur hefur haldið' sex einka-
sýningar og tekið þátt í all-
mörgum samsýningum.
Sýningin við Skóla-
vörðustíg 4a er opin dag-
lega frá kl. 12 á hádegi til
kl. 19 á kvöldin og stendur
til 24. október.
Nýlistasafnsins í portinu
við Vatnsstíginn.
Inga sýnir verk sem öll
em unnin á þessu ári og því
síðasta. Þau em flest úr
málmi og svokölluðum
stúkkmarmara. Flest þessara
verka vom áður sýnd á við-
urkenningarsýningu ungra
myndlistarmanna í Bæjara-
landi sem Inga var valin,
ásamt tveimur öðrum, til að
taka þátt í. Það var mennta-
málaráðuneyti Bæjaralands
sem kostaði sýninguna og
sýningarskrár um listamenn-
ina ungu.
Sýning Ingu stendur til
20. október og er opin virka
daga kl. 16-20 og um helgar
kl. 14-20.
Frítt jóga-
nómskeió
Þessa helgi mun
Sri Chinmoy setrið
halda námskeið i
jóga og hugleiðslu f
Árnagarði við Suður-
götu.
A námskeiðinu
verða kenndar margs-
konar slökunar- og
einbeítingaræfmgar,
Þá verður hugleiðsla
kynnt, en hún þykir
áhrifamikil aðferð til
að ná betri árangri í
starfi og meiri lífsfulf-
nægingu. Námskeiðið
er í sex hlutum og
byijar fyrsti hlutinn í
kvöld ld. 20. Upplýs-
ingar í síma: 25676.
Sigurður Eyþórsson við eitt verka sinna. Mynd: Kristinn.
Fólk og forynjur
Stiklað á stóru
Hressandi haustgöngur
Ferðafélag Islands hvetur fólk til að drífa sig í göngu-
ferðir um helgina. Félagið verður með gönguferð upp í
Svínaskarð og um Móskörð og Laufskörð yfir á hátind
Esjunnar á sunnudag, lagt verður af stað kl. 10.30. Þá
er einnig boðið upp á tvær ferðir fyrir svefnpurrkur sem
hefjast kl. 13. Onnur er gönguleið um gosbeltið
Rjúpnadyngjur - Húsafellsbruni - Heiðmörk, hin er
styttri ganga sem hentar vel fjölskyldufólki og er þá far-
ið frá Lækjarbotnum. Útivist er að vanda einnig með
spennandi ferðir í boði.
Á sunnudag verður 11. áfangi Reykjavíkurgöngunnar
farinn og lagt af stað kl. 10.30. Gengið verður frá Esju-
bergi með Esjuhlíðum niður að Kollafjarðarbotni og
endað á stað sem nefnist Blikastaðakró og ku vera við
Korpúlfsstaðaárós. Seinni ferð Útivistar hefst kl. 13 og
verða í henni skoðaöir gervigígarnir í Rauðhólum og
gengið um fyrsta skipulagða skógræktarsvæði aldar-
innar. Þá má ekki gleyma að minna á Hana-nú göng-
una í Kópavogi. Eins og alla laugardaga verður á
morgun lagt af stað upp úr kl. 10 frá Fannborg 4 eftir
heitan kaffisopa.
Tónlistarlífiö
Á morgun verða EPTA-píanóleikar Valgerðar Andrés-
dóttur í Kirkjuhvoli kl. 17 og á sunnudag hefur Kamm-
ermúsíkklúbburinn vetrarstarfið með tónleikum Sinn-
hoffer-kvartettsins frá Munchen. Tónleikar þýsku
strengjaleikaranna hefjast kl. 20.30 í Bústaðakirkju.
Verða þar leikin verk eftir Mozart. Þá má ekki gleyma
Ijóðatónleikum Gerðubergs. Á morgun kl. 17 syngja
Erna Guðmundsdóttir og Sigríður Jónsdóttir dúetta og
einsöng. Jónas Ingimundarson leikur undir á pfanó.
Myndlistin í bænum
I Gallerí Borg hanga nú uppi nýjar pastelmyndir eftir
Hring Jóhannesson, en á Kjarvalsstöðum opnar Einar
Hákonarson einkasýningu á laugardag, þar sem hann
mun sýna tæp hundrað verk. í Hafnarborg, Hafnarfirði,
opnar Elías Hjörleifsson sýningu á olíumálverkum og
myndum unnum með olíustifti og olíukrít. Elías er ný-
kominn heim eftir dvöl í Danmörku í rúman aldarfjórð-
ung. I Epal við Faxafen 7 stendur yfir sýning á verkum
dönsku arkitektanna Rud Thygesen og Johnny Sören-
sen.
Bjargvætturinn
hefur rétt fyrir sér
Það kom úr þeirri átt-
inni sem enginn atti von á.
Þeir Einar Oddur og Þórar-
inn V. hafa talað úr sölum
vinnuveitenda. Svo notað sé
málið sem allir tala í dag:
Stóra slemman er fallin.
Iðnaðarráðherrann fór
fjóra niður á hættunni. Og
rúbertan töpuð.
Þótt skrifað hafi verið
undir alls konar álverssamn-
inga í hátt á annað ár hefur
það ekki hafl neitt annað í för
með sér en útgjöld fyrir Is-
lendinga. Að vísu skilaði
sjónarspilið krötunum viðbót-
arþingsæti á Reykjanesi og
höfuðpaumum hásætinu þar,
en eftir á að hyggja má kann-
ski líta á þetta allt saman sem
dýrastu auglýsingu kosninga-
baráttunnar.
Iðnaðarráðherranum
fannst meðreiðarsveinamir í
fráfarandi ríkisstjóm orðnir
helst til tregir i taumi og hlióp
því á bak Sjálfstæðisflokkn-
um að loknum kosningum til
að tryggja framgang almáls-
ins. I stað þess að ana blint
áfram út í foraðið, eins og
fjármálaráðherrann, hafa
vinnuveitendur látið hér stað-
ar numið og vilja nú horfa
blákalt framan í staðreyndim-
ar. Það era sáralitlar líkur á að
af nokkra álveri verði. Og
best íið viðurkenna það strax.
Álverð hefur fallið stöð-
ugt í allt sumar, langt niður
fyrir það sem búist var við
fyrir ári. Ýmsar skýringar
hafa verið gefnar á þessu,
m.a. þær að Rússar væm að
ifa upp gamlar birgðir um-
mframleiðslu fýrri ára.
22. júní mátti lesa í viku-
ritinu Economist að birgðir
álfiramleiðenda væra, orðnar
3.4 miljónir tonna. Á sama
stað var haft eftir norsku
ffamleiðendunum Hydro Al-
uminium að 600.000 tonna
álffamboð Rússa nú í sumar
inn á London Metal Ex-
change hefði komið á óvart.
Þeir nefðu hins vegar tilkynnt
að þeir hygðust setja mtljón
tonn á markaðinn 1992.
Rússar era að framleiða
2.5 miljónir tonna áls á ári og
era næststærstu ffamleiðend-
ur heims. Vegna ástands
heima fyrir er iðnaðarffam-
leiðslan í lamasessi og nýj-
ustu afvopnunarsamningamir
þýða það, að álnotkun Rússa
verður minnkandi heima fyrir
á næstu ámm. Þeir þurfa á
beinhörðum gjaldeyri að
halda og kæra sig kollótta um
20-30% verðsveiflu til eða
ffá.
Þetta er staðan á markað-
inum og það era einkennilegir
spámenn sem ekki taka mark
á breyttum aðstæðum í austri.
Því hefiir líka verið hald-
ið fram að bílaiðnaðurinn
mundi gleypa við öllu þessu
ódýra áíi og á þeim vettvangi
vrði gífurlcg aiikning í notkun
þess í ffamtíðinni. Þessa sér
ennþá engin merki. Ýmis
önnur efni, t.d. plast- og
trefjaefhi, era í athugun hjá
biffeiðaframleiðendum og
lofa góðu. Þetta lofar hins
vegar ekki góðu fyrir álffam-
leiðendur. Þá hefur aukningin
í umbúðamarkaðinum einnig
stöðvast. Neytendur era famir
að óttast eituráhrif áls og
aukning einnota umbúða úr
áli hefur ekki orðið sú, er
vænst var. Umhverfisvitund
almennings er á uppleið.
Öllum þessum upplýsing-
um hefur áður verið komið á
ffamfæri hér á síðum blaðs-
ins. Fyrir nokkra var líka sagt
ffá öðrum tíðindum utan ur
heinji.
Italska raforkufýrirtækið
ENEL hefur á prjónunum
griðarlegt samvinnuverkefni
með Rússtun eystra. Þar á að
reisa 13.000 MW raforkuver,
þar sem brennt verður jarð-
gasi. Fjórðung rafprkunnar á
síðan að leiða til Italíu inn í
sölukerfi ENEL. Dálaglegur
strengur þa0! Samkvæmt
áætlunum Italanna yrðu
mannvirkin greidd upp á 25
árum með orkusölunni ein-
göngu. Ekki ætti það að fela í
sér mikla áhættu ryrir Rússa.
Er ekki þama komin fýr-
irmynd sem,vert vasri að gefa
gaum hér á tslandi?
Evrópubandalagið vill ör-
ugglega kaupa oricu héðan á
næstu árum, þvi hrikaleg
vandamál bíða nú úrlausnar
bæði i Bretlandi og Frakk-
landi. Hinn duldi umhverfis-
kostnaður, sem fylgir kjam-
orkuúrgangi frá orkuverum,
er nú miskunnarlaust dreginn
ffam í dagsljósið af eftirlits-
mönpum Evrópubandalags-
ins. Áður hafði franska tækni-
veldinu tekist vel að sópa
vandamálunum undir teppið
og það fór ekki hátt að
ffanska orkusölufyrirtækið
EDF var að tapa stórum fulg-
um á rekstri kjamakljúfanna.
Með því að tengja saman
orkunet Evrópu vonast for-
kólfar EB til að ná ffam auk-
inni hagkvæmni og lægra
orkuverði fyrir notendur. Þeir
vona líka að ná megi ffam
orkuspamaði, þegar tií lengd-
ar lætur, með þessu kerfi. Sót-
svört, mengandi kolaorkuver
eða geislavirkni í umhverfinu
er eldd ffamtíðarsýn EB.
Af þessum fféttum má
ráða , að öraggur markaður
bíði Islendinga hjá EB þegar
fram líða stundir. Strengur yf-
ir hafið verður þá vænlegur
kostur. Það er næsta víst, að
mörg fyrirtæki Evrópu væra
tilbúin í samvinnuverkefni
sem fæli í sér lágmarksáhættu
fýrir ísjendinga líkt og lýst
var ffá Italíu.
Þessu verkefni sem og
öðrum hefiir alls ekki verið
sinnt sem skyldi, því iðnaðar-
ráðherrann hefiir ratt öllu
Einar Valur
Ingimundarson
skrifar
öðra út af borðinu, blindaður
af álglýju! Það era i raun for-
kastaníeg vinnubrögð af hans
hálfu að hafa ekki látið vinna
neina valkosti til vara ef ál-
samningurinn félli.
Prófessor Bragi Amason
hefur barist hetjulegri baráttu
við að koma inn í umræðuna
um orkufrekan iðnað mögu-
leikum vetnisffamleiðslu á Is-
landi og era margar af hug-
myndum, hans mjög athyglis-
verðar. Á þær hefur iðnaðar-
ráðherrann ekki viljað heyra
minnst.
Tekur þó út yfir allan
þjófabálk, þegar lesin er
skýrsla breska ráðgja:
tækisins Caminus Energy ltd.,
en fulltrúi þeirra rædcu við
stjóm Landsvirkjunar í sum-
ar. Þar segir hann að heild-
söluverð raforku til breskra
orkufyrirtækja Iiggi sennilega
á bilinu 2 til 3 pence fyrir
kilówattstundina. Það þyðir
40-50 mills á málinu, sem við
skiljum. Hann geti hins vegar
engu spáð um möguleika Is-
lendinga til orkusölu, því
bresk orkufyrirtæki vilji helst
ekki gera aætlanjr til lengri
tíma en 6-7 ára. Islensk yfir-
völd segi hins vegar að heðan
verði enga orku að hafa fyrr
en uip aldamót.
Á heimaskítsmátsstaða
iðnaðarráðherrans i álmálinu
virkilega að ráða þvi að ekki
sé ráðist strax í þetta spenn-
andi verkefni? Samkvæmt
nýjum upplýsingum mundi
Alcatel treysta sét til að
leggja héðan streng til Skot-
lands á 3 árum!
Þegar allt logar í illdeil-
um út af starfsleyfi álversins,
þar sem umhverfisráðherrann
er algerlega undir iðnaðarráð-
herrann seldur; þegar þver-
girða á náttúraperlur Norð-
austurlands háspennumöstr-
um við áköf mótmæli heima-
manna og annarra lands-
manna; þegar illa virðist ára í
þjóðarbuskap næstu ára; -
ætla menn þa virkilega að láta
iðnaðarráðnerrann araga
lengra á asnaeyrunum?
Eg hvet fleiri Sjálfstæðis-
menn til að tileinka sér raun-
sæi þeirra Einars Odds og
Þórarins V. og segja eins og
H.C Andersen forðum: ,Hann
erekki i neinu!"
Frekar en að striplast
lengur ffamrni fyrir alþjóð
ætti iðnaðarráðherra að sjá
sóma sinn í að viðurkenna
mistök sín og segja af sér.
sig
NÝTT HELGARBLAÐ
17 FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 1991