Þjóðviljinn - 17.10.1991, Síða 3
cr
IDAG
17. október
er fimmtudagur
290. dagur ársins.
26. vika sumars byrjar.
Sólarupprás í Reykjavík
kl. 8.22 - sólarlag kl.
18.03.
Viðburðir
Iðja, félag verksmiðjufólks
stofnað 1934. Karl Kaut-
sky dáinn 1938.
Þjóðviljinn
fyrir 50 árum
Nýtt Dagblað: Hádegisút-
varp féll niður í gær. Or-
sökin ágreiningur valda-
manna í útvarpinu við að-
alþul, Þorstein Ö. Steph-
ensen. Þýzka nazista-
stjórnin ætlar að innlima
Litháen, Lettland og Eist-
land.
fyrir 25 árum
Vinstri menn unnu sigur í
Stúdentafélaginu. Vísitölu-
binding húsnæðislána er
ranglæti sem verður að af-
nema. Kjörbúðarbílastríð
hafið í Garðahreppi.
Sá spaki
Kjarnorkuöldin er komin til
að vera, en gildir það
sama um okkur?
(Bennett Cerf)
á tímabundinni friðun
rjúpnastofnsins
*
Þorsteinn Asgeirsson,
formaður Skot-
sambands Islands
Ég hef sömu skoðun á tíma-
bundinni friðun rjúpnastofnsins
og tímabundinni friðun hvalsins.
Það á ekki að alfriða. Það er allt í
lagi að taka til einhverrar friðun-
ar, kannski stytta veiðitímabilið
eða setja kvóta á menn sem væri
náttúrlega skynsamlegast.
Það á ekki að taka ákvörðun
um að friða ijúpuna þegar hún er
í lágmarki. Það á að gera þegar
hún á að vera í hámarki, en lítið
er af henni. Þegar stoíhinn er í
lágmarki er ekkert hægt að dæma
um hvort friðunar er þörf. Núna
er aukning á henni í sumum
landshlutum, en minnkun annars
staðar.
Það er hvergi nema í Mý-
vatnssveit sem menn eru að biðja
um ftíðun ijúpunnar. Fyrir vestan
til dæmis er hún í fjölgun. Að
baki tel ég að búi svipaðar hvatir
og þær sem ráku Grinpísmenn til
friðunar á hvalnum. En það verð-
ur að vera skynsemi í friðuninni.
Við erum að nýta ijúpnastofhinn í
{'ólamatinn og hann er langt frá
iví að vera útdauður. Ef upp-
sveifla ijúpnastofnsins tekst hins
vegar ekki, þá má fara að skoða
málið.
FlÉTTIR
GATT- samkomulag
náist fyrir árslok
flytja út hráefni og höggva skóga,
t.d. í Suður-Ameríku. Það er því
mikilvægt að lækka skuldir þeirra
eða fella þær niður og fjárfesta í
þessum löndum þannig að þau geti
komið á fót landbúnaði sem getur
unnið úr hráefhunum áður en þau
eru flutt út,“ segir Kjeldsen. „Við
verðum að vera tilbúin að taka við
slíkum útflutningi frá þróunarríkj-
unum. IFAP eru einu alþjóðlegu
samtökin sem bæði iðnríkin og
þróunarríkin eiga aðild að. Þeim
hefur tekist að ná samkomulagi
bæði um GATT- viðræðumar og
einnig um hvemig við getum tekist
á við bæði landbúnaðar- og um-
hverflsvandamálin á nýjan hátt
þannig að allir þættimir tengjast,
þ.e. umhverfið, landbúnaðurinn og
efnahagurinn. Þetta samkomulag
er í fúllu samræmi við Brundtland-
skýrsluna.“
Ráðstefha IFAP stendur til 18.
október og fer fram á Hótel Sögu.
-vd.
Niðurstöður og ályktanir al-
þjóðaráðstefnunnar verða lagðar
fram á alþjóðlegri umhverfisráð-
stefnu sem Sameinuðu þjóðimar
gangast fyrir á næsta ári. Kjeldsen,
sem einnig er formaður norrænu
bændasamtakanna og samtaka
danskra bænda, segir að stærstu
vandamálin sem bændur þurfi að
ræða í tengslum við umhverfismál
séu annars vegar mengunarvandi
iðnríkjanna og hins vegar skóga-
og auðlindaeyðing þriðja heimsins.
„Við viljum að rannsóknir og
þróun á áburði, sem mengar um-
hverfið minna, verði efldar mjög.
Við bændur viljum ekki sitja undir
þeim ásökunum að við mengum og
eyðum gæðum jarðar heldur taka
frumkvæðið að umhverfisvemd
þannig að við getum skilað jörð-
inni til næstu kynslóðar í betra
ástandi en við tókum við henni,"
segir hann.
Kjeldsen leggur mikla áherslu
á að umhverfisvandamál þriðja
Forseti IFAP segir að
alþjóðaviðskipti með búvöru.
ojóðríki eigi að geta haft sfna eigin landbúnaðarstefnu án þess að hún trufli eðlileg
Stjórn Alþjóðasambands búvöruframleiðenda, IFAP, skorar á
stjórnmálaleiðtoga og ríkisstjórnir um heim allan að hraða
gangi GATT-viðræðnanna þannig að samkomulagi verði náð
fyrir árslok 1991 eða í upphafi næsta árs. Stjórnarfundur IF-
AP var haldinn í Reykjavík í gær í boði Stéttarsambands bænda í
tengslum við alþjóðlega ráðstefnu um landbúnað og umhverfismál,
sem IFAP heldur hér og hefst í dag.
„Það er mjög mikil og vaxandi
óvissa meðal búvömframleiðenda
vegna þess að þeir vita ekki hvað
muni koma út úr GATT-viðræðun-
um og því verður að ná samkomu-
lagi sem fyrst þannig að við fáum
þann ramma sem við verðum að
taka ákvarðanir innan,“ segir
H.O.A. Kjeldsen, formaður IFAP.
heimsins verði ekki leyst nema
með tilliti til efnahagsvandamála
þeirra. „Þróunarlöndin skulda gíf-
urlega mikið. Þau em neydd til að
Flóknir sjúkraflutningar
Stjórnarandstaðan er lítið hrifin af stjórninni. Þetta kemur
náttúrlega ekki á óvart, bæði vegna þess að ríkisstjórnin „er
nú eins og hún er“, svo vitnað sé til orða forsætisráðherrans,
og líka vegna hins að stjórnarandstaðan á að vera á móti rík-
isstjórninni, hvort sem hún er góð eða vond. í eldhúsdagsumræðum
á dögunum las stjórnarandstaðan ríkisstjórninni pistilinn svo um
munaði, og þá hugsaði Þrándur með sér: - Það er áreiðanlega ekki
heiglum hent að vera ráðherra um þessar mundir hafandi þau Stein-
grim, Ólaf Ragnar, Svavar og Ingibjörgu Sólrúnu (fyrir utan hin öll)
yfir sér upp á hvern einasta dag sem yfir mann kemur; þetta fólk
sem skilur ekki að velferð hinna fátæku verður því meiri sem hinir
ríku borga minna í sameiginlega sjóði.
Þegar Þrándur hafði horfl á um-
ræðumar um hríð rann honum svo
til riQa að horfa upp á meðferð
stjómarandstöðunnar á stjóminni
að hann slökkti á sjónvarpinu og
varð hugsað til frægrar bókar, hvar
í standa á völdum stað þessi orð:
„Minn herra á engan vin“.
Rikisstjómin ætlar að loka ein-
um spítala í Hafnarfirði í spamað-
arskyni, endurskipuleggja og hag-
ræða á spítulum í höfuðborginni í
sama tilgangi. Það em erfiðir timar,
það er atvinnuþref, eins og þar
stendur, og þess vegna tekur Þránd-
ur undir með ráðherrunum, ekki
veitir af að spara og nurla þar sem
þess er nokkur kostur. Nokkur blæ-
munur er þó á skoðunum ráðherr-
anna og Þrándar á þvi hvort spam-
aðurinn eigi að bitna á ríkum eða
fátækum, en það er aukaatriði.
Samkvæmt áreiðanlegum heimild-
um úr heilbrigðisráðuneytinu er of-
framboð á sjúkrarúmum á Reykja-
víkursvæðinu um ein 100 rúm sem
standa tóm mestan part úr árinu.
Því vill heilbrigðisráðherra breyta
spítala Hafnfirðinga i legudeild fyr-
ir aldraða, væntanlega til að láta þá
sem þar vom nýta tómu rúmin.
Bæjarstjórinn í Hafriarfirði segir
enga þörf á sliku ráðslagi, i Hafriar-
firði sé þegar búið að uppfylla
þörfina fyrir sjúkrarúm handa öldr-
uðum og Hafnfirðingum veiti ekki
af rúmunum i spítalanum sem á að
breyta í hjúkmnarheimili. Þannig
er bæjarstjórinn, sem nú situr á
þingi fyrir viðskiptaráðherrann,
kominn í lið með stjómarandstöð-
unni og má um það segja að flest
verði óhamingju stjómarinnar að
vopni.
Enda þótt Hafrifirðingar séu vel
settir gegnir allt öðm máli með
granna þein-a i höfuðborginni þar
sem skortir einhver hundmð
sjúkrarúma fyrir aldraða. Um leið
og spítalanum í Hafnarfirði verður
breytt í pláss fyrir aldraða á að loka
Haftiarbúðum í Reykjavík, þar sem
aldraðir sjúklingar hafa verið vist-
aðir. Kemur nú að því einu sinni
enn að hagfræðin gerist torskilin.
Samkvæmt þessu á að flytja þá
sem verða lasnir á góðum aldri frá
Hafriarfirði til Reykjavíkur og nota
plássið sem þannig fæst í Hafriar-
firði fyrir aldraða úr öðmm byggð-
arlögum, því eins og áður er sagt er
búið að leysa þetta mál í Firðinum.
Þar með fylla sjúklingamir úr
Hafriarfirði rúmin i Reykjavík sem
áður vora tóm. Næst verða sjúk-
lingamir í Hafriarbúðum væntan-
lega fluttir á spítalann í Hafnarfirði
og standa þá Hafnarbúðir tómar og
verða líklega seldar undir vertshús.
Þá er enn óleystur vandi nokkur
hundrað aldraðra sjúklinga í
Reykjavík. Þama era flóknir
sjúkraflutningar, stærðfræði og
hagfræði farin að mgla Þránd í
ríminu, því honum finnst að sá
möguleiki hafi ekki verð nefridur
að nota 100 umframrúmin fyrir
aldraða og spara og nurla á öðmm
sviðum eða láta hina ríku jafrivel
borga meira. Þetta hefði stytt bið-
lista fyrir þá sem bráðvantar pláss
og gerist Þrándur nú enn mglaðri,
því það var víst aldrei meiningin.
Sér Þrándur enga leið út úr þessum
vanda nema þann að halda með
stjómarandstöðunni og bæjarstjór-
anum i Hafriarfirði, jafrivel þótt
ekki sé ljóst hvemig þessir aðilar
ætla að leysa umrædd vandamál á
annan hátt en að vera á móti, en
það er svo enn annað vandamál.
- Þrándur
Síða 3
ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 17. október 1991