Þjóðviljinn - 17.10.1991, Blaðsíða 4
Sjávarþorpin gáfu mörgum konum ný tækifæri á fyrri helmingi þessarar aldar.
Konur í sj ávarþorpum
Afkoma Flugleiða
betri en í fyrra
Fyrstu sjö mánuði ársins var
hagnaður af reglulegri starfsemi
Flugleiða rúmlega 63,2 miljónir
króna, en var á sama tímabili í
fyrra 12,9 miljónir króna, reiknað
á verðlagi þessa árs.
Heildarhagnaður félagsins íyrstu
sjö mánuði 1991 var 61,5 miljónir
króna en var á sama tíma í fyrra
347,4 miljónir króna á verðíagi
þessa árs. Mismunurinn er fyrst og
fremst vegna hagnaðar sem varð af
sölu eigna á síðasta ári. Hinsvegar
var söluhagnaður félagsins óveruleg-
ur fyrstu sjö mánuði þessa árs.
Eigið fé Flugleiða í lok júlí í ár
var 4,3 miljarðar króna, en var á
sama tíma í fyrra 3,3 miljarðar.
Heildareignir voru tæplega 24 mil-
jarðar króna en skuldir félagsins
19,7 miljarðar. -grh
Framkvæmdir
að hefjast við
viðhaldsstöð
Flugleiða
Fyrsta skóflustungan að
stærsta húsi í eigu íslendinga var
tekin við hátíðlega athöfn i gær.
Framkvæmdir við nýja viðhalds-
skýlið á Keflavíkurflugvelli, sem
kosta mun einn miljarð króna,
hefjast eftir mánuð og er áætlað
að verkinu Ijúki á 14 mánuðum.
Geir Hauksson, formaður Flug-
virkjafélags Islands, tók fyrstu
skóflustunguna að mannvirkinu sem
verður 12.500 fermetrar og um
17.500 rúmmetrar að stærð. Kanad-
íska verktakafyrirtækið Matthews
Contracting Inc. sér um byggingu
stöðvarinnar, en gert er ráð fyrir að
vinnan verði að mestum hluta í
höndum íslenskra undirverktaka.
Með tilkomu stöðvarinnar flyst
hérumbil öll starfsemi Flugleiða til
Keflavíkurflugvallar utan daglegs
eftirlits og smáviðhalds innanlands-
flugvéla. Áætlað er að um 170
manns komi til með að starfa við
nýju viðhaldsstöðina. Auk viðhalds
véla Flugleiða er þegar farið að huga
að því að fyrirtækið hasli sér völl á
alþjóðlegum viðhaidsmarkaði. Með
því yrðu verkefnin fleiri og mögu-
leiki á að það skapi fleiri flugvirkj-
um atvinnu í framtíðinni. -sþ
Endurskinsborðar
á sex ára
Reykvíkinga
Á borgarráðsfundi sl. þriðju-
dag var erindi kennslumáladeildar
um aukafjárveitingu upp á 480
þúsund krónur samþykkt. Ætlun-
in er með þessu fjármagni að
kaupa endurskinsborða á öll sex
ára börn í Reykjavík.
Kristín Á. Olafsdóttir lagði til á
fundi borgarráðs sl. haust að gerð
yrði tilraun með notkun slíkra endur-
skinsborða í Reykjavík. Það varð af
að tveir skólar urðu fyrir valinu, Ár-
túnsskóli og Grandaskóli.
Ragnar Júlíusson, forstöðumaður
kennslumáladeildar, upplýsti Þjóð-
viljann um að reynslan síðasta vetur
hafi verið mjög góð. „Það var kann-
ski ekki mælanlegt í tölum á slysa-
tíðni bama. En bömin notuðu endur-
skinsborðana alla jafna og var það
vel. Af þessum sölcum fór ég fram á
það við borgarráð að öll sex ára böm
í Reykjavík fengju svona borða,“
sagði Ragnar.
Hann sagði að skátamir hefðu
ákveðið að gefa öllum sjö ára böm-
um á landinu svona borða og því
hafi það þótt tilhlýðilegt að sex ára
böm sem einnig ganga í skóla fengju
borðana líka. „Það sem meira er um
vert er að þetta á ekki bara við fyrir
þetta árið, heldur verður þessu við-
haldið. Eftir þtjú ár ættu því öll böm
á aldrinum sex til níu ára að hafa
endurskinsborða undir höndum,"
sagði Ragnar.
Ragnar vildi nota tækifærið og
benda foreldmm á að fylgjast vel
með hvort bömin notuðu ekki borð-
ana, því það væri fyrir mestu að þau
sæjust vel nú í svartasta skammdeg-
inu. -sþ
Unnur Dís Skaptadóttir
var á rabbfundi hjá
Rannsóknastofu í
kvennafræðum í gær
og ræddi um rannsóknir sínar á
konum í sjávarþorpum. Unnur
er vel á veg komin með að ljúka
doktorsritgerð um það efni.
Rannsóknastofa í kvennafræð-
um var stofnuð árið 1990 með
reglugerð sem þáverandi mennta-
málaráðherra Svavar Gestsson
undirritaði. Rannsóknastofan starf-
aði i fyrra, en að sögn Guðnýjar
Guðbjömsdóttur lektors, sem situr
í stjóm Rannsóknastofunnar, fór
mest af þeirri vinnu í að gera
Rannsóknastofuna sýnilega. Það
þurfti að útvega húsnæði, huga að
ljárveitingum og finna starfinu far-
veg. Stofan var' síðan opnuð form-
lega í ágúst s.l. Meðal markmiða
rannsóknastofunnar er kynning á
kvennafræðum í því augnamiði á
að halda hálfsmánaðarlega rabb-
fundi. Þar mæta konur sem em að
fást við rannsóknir á kvennafræð-
um og segja frá viðfangsefnum
sínum og fá viðbrögð við þeim.
Guðný sagði það jafnframt vel
þegið að konur sem teldu sig hafa
efni sem hentaði hefðu samband
við Rannsóknastofuna.
Unnur Dís Skaptadóttir er að
vinna að doktorsritgerð við banda-
rískan Háskóla. Ritgerðin fjallar
um breytingar sem verða á hlut-
verkum kynjanna við þéttbýlis-
myndun og iðnþróun. Á iúndinum
gerði Unnur grein fyrir þeim kafla
sem hún er að vinna að núna, en
hann fjallar um flutning kvenna úr
sveit í sjávarþorp, og leitaði eftir
viðbrögðum við honum. Fjölmenni
var á fundinum, stemmningin
frjálsmannleg, margar konur tóku
til máls og höfðu margt til málanna
að leggja.
Til þess að bregðast við nýjum
veruleika sjávarþorpanna þurfti
nýja húsmóðurímynd. Á þessum
tíma voru stofnaðir húsmæðraskól-
ar til þess að kenna konum ný hlut-
verk og m.a. þurfti að kenna þeim
að skipuleggja vinnu sína án
vinnukvenna. Unnur Dís telur hins
vegar að óbeint hafi það orðið
hlutverk húsmæðraskólanna að
kenna konum andlega umönnun
annarra heimilismanna sem hún
segir að ekki hafi verið tíðkuð á
sama hátt áður. Þáttur húsmóður í
framleiðslustörfum minnkar, en
það eykst aftur á móti áherslan á
að hún búi manni sínum fagurt
heimili. Upplýsingar um þetta
kvaðst Unnur fyrst og fremst hafa
úr tímaritum frá þessum tíma þar
sem nokkuð var skrifað um tilgang
húsmæðraskóla. Hún kvaðst ekki
vera að ráðast á þá eða húsmóður-
hlutverkið, heldur fyrst og fremst
að athuga hvernig hlutverk kynj-
anna og fjölskyldugerð hefðu
breyst.
Niðurstöður Unnar eru þær að
staða kvenna hafi ekki versnað við
að flytjast úr sveit í sjávarþorp.
Það er of mikil einföldun. Hún hef-
ur fyrst og fremst breyst, sagði
Unnur. Sumar konur tapa ein-
hvetju, en aðrar hagnast á skiptun-
um. Þær eru raunar margar sem fá
tækifæri sem þær höfðu ekki feng-
ið áður.
Unnur byggir mynd sína af
breytingum á stöðu kvenna við
flutning úr sveit í sjávarþorp á við-
tölum og sagnfræðilegum heimild-
um til þess að sjá hvemig heimilin
vom. Ekki vom allar konur hús-
mæður á stómm heimilum. Staða
vinnukvenna skiptir ekki minna
máli og mörg heimili höfðu alls
ekki efhi á vinnukorium. Á þessum
tíma breytast heimilin, þau minnka
og þeim fjölgar griðarlega vegna
þess hve margir fá skyndilega
tækifæri til að stofna heimili. Þeir
vom margir sem ekki gátu það áð-
ur og höfðu ekki tælafæri til að
stofria til hjúskapar vegna efna-
hagslegrar stöðu. Allt skiptir þetta
máli þegar verið er að skoða stöðu
kvenna, sagði IJnnur Dís. Það er
ekki nóg að einskorða sig við hús-
móðurina og heimilið.
Unnur sagði að lokum að allt
sem hún hefði að segja væri með
þeim fyrirvara að rannsókn sinni
væri ekki lokið. En rabbfúndimir
em einmitt hugsaðir þannig. Þang-
að á ekki að koma með fúllunna
fyrirlestra eða strangvísindalegar
niðurstöður, heldur eiga fræðikon-
umar að segja frá rannsóknum sem
em í deiglunni og gefast kostur á
að heyra álit fúndargesta. - kj
Unnur Dís Skaptadóttir ræðir breytingar á hlutverki kynja og heimilisgerð.
Mynd:Jim Smart.
mhmP
m
ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 17. október 1991
Síða 4