Þjóðviljinn - 17.10.1991, Blaðsíða 12
Fiskvinnslufyrirtækin
standa auð á Suðumesjum
Atvinnuleysið er hvað verst á Suðurnesjum þegar litið er á yfir-
lit Vinnumálaskrifstofu félagsmálaráðuneytisins varðandi at-
vinnuástandið í landinu. Guðmundur Finnsson, hjá Verka-
lýðs- og sjómannafélagi Keflavíkur og nágrennis, segir að á Kefla-
víkurflugvelli hafi ekki verið ráðið í um 140-50 störf sem losnað hafa
þar síðustu árin. Jón Gunnar Stefánsson, bæjarstjóri Grindavíkur,
segir að Grindvíkingar séu alvanir sveiflum í atvinnulífi, en ástandið
sé með allra versta móti núna.
Guðmundur sagði að ástandið á
Suðumesjum væri sérlega slæmt
núna. „Það hefur verið það síðan
fyrirtækin í fiskvinnslu lokuðu
vegna hrácfnisskorts," sagði Guð-
mundur. Hann sagði að tölumar um
atvinnuleysið á svæðinu kæmu ekki
á óvart þegar fólk hefði að engu að
hverfa þegar það missti starf sitt í
fiskvinnslunni.
„Það hefur engin atvinnuupp-
bygging verið héma önnur en sú að
þjónustan hefur byggst upp á und-
anfömum árum og hún er orðin
mettuð. Það er ekkert sem tekur við
þeim fjölda sem starfar við fisk-
vinnsluna,“ sagði Guðmundur.
Aðspurður um störf á Keflavík-
urflugvelli sagði hann að undanfarin
tvö ár hafi viðgengist þar svokölluð
ráðningarfrysting, sem virki þannig
að ekki er ráðið í þau störf sem
iosna. „Þar em nú um 140-50 störf
laus og það munar um minna,“
sagði Guðmundur og bætti við að
það sem skipti megin máli í þessu
sambandi væri hvemig komið væri
fyrir sjávarútveginum og vinnslunni.
Jón Gunnar Stefánsson, sagði að
i september heföu um 80 manns
verið atvinnulausir í Grindavík.
Þessi tala væri hins vegar komin
niður í 47 manns núna og munaði
þar mestu um að bátamir væm fam-
ir að róa með línu núna. Síldin væri
hins vegar ekki komin að neinu ráði
enn sem komið er, en búast mætti
við að úr færi að rætast varðandi
hana og þá yrði nóg vinna handa
öllum. „Þetta er dæmigerður ís-
lenskur vertíðarbær, og atvinnan
hefúr alltaf verið héma ýmist í ökla
eða eyra. Ég held að fólk hafi alltaf
sætt sig við ótryggt atvinnuástand,
en núna upp á síðkastið hefúr fólk
verið sér meðvitaðra um hver réttur
þess er varðandi atvinnubætur,“
sagði Jón Gunnar.
Hann sagði að atvinnulífið í
Grindavík væri fískur og aftur fisk-
ur. Þjónustan heföi hins vegar verið
að sækja í sig veðrið. Það brygði
hins vegar þannig við að undanfarin
ár heföi fólk verið með ömgga at-
vinnu í september og hluta af októ-
ber í slátmn. Nú væri það dottið úr
myndinni, eins og alkunna er. „Það
er eins og menn séu settir á saka-
mannabekk þegar þeir vilja halda
við iðjunni. Þetta er svona sjálfsagt
víða um land að þessi ömgga vinna
í ýmsum sjávarplássum er núna
horfin,“ sagði Jón Gunnar. -sþ
Á Suðurnesjum hefur atvinnuástandið verið heldur bágborið. Von er að úr
rætist þegar síldin kemur.
Byggðastofnun klofin í afstöðunni til Freyju
Stjórn Byggðastofnunar kiofnaði í afgreiðslu á máli Fiskiðjunnar
Freyju hf. sl. þriðjudag. Þrír stjórnarmenn af sjö báðu um frest-
un á afgreiðslu málsins, en meirihluti stjórnarinnar hafnaði því.
Ólafur Þórðarson, þingmaður og einn stjórnarmanna Byggðastofn-
unar, sagðist ekki skilja hvers vegna ekki hafi mátt bíða tvo daga svo
afstaða heimamanna til sölunnar hefði getað komið fram.
Olafur Þórðarson, Ragnar Am-
alds og Stefán Guðmundsson,
stjómarmennimir í Byggðastofhun
sem sátu hjá við afgreiðslu mála hjá
Freyju hf. vildu fá tveggja daga frest
til að bera saman þækur sínar við
heimamenn, sagði Olafur Þórðarson
er Þjóðviljinn spurði hann um
ástæðu hjásetunnar.
Olafur sagði að sveitarstjóm
hafi verið búin að lýsa sinni skoðun
á málefnum Freyju og heföi tvcggja
daga frestun verið nóg til að átta sig
á þeirra hugmyndum. „Það Iiggur
fyrir að Suðureyrarhrcppur fór í
gegnum greiðslustöðvun. Þá var
gerð viss áætlun fyrir hreppinn
gagnvart umsvifum í byggðarlaginu,
sem eru lágmarksumsvif svo það
héldi velli. Freyjan hefur verið sá
aðili sem hefur borið ábyrgð á
byggð við Súgandafjörð, hvað um-
svif snertir," sagði Ólafur. Hann
sagði að sú niðurstaða sem varð
muni leiða til minni umsvifa en
áællanir hafi gert ráð fyrir.
„Ég lýsti því yfir að mér líkaði
það illa að þessu væri stillt upp eins
og um átök nrilIi Norður- ísafjarðar-
sýslu og Vestur- ísafjarðarsýslu væri
að ræða,“ sagði Ólafur.
Hann sagði að ákvarðanir um að
Barist áfram fyrir Jósefsspítala
Við áttum ekki von á öðrum
viðbrögðum frá heilbrigð-
isráðherra á þessari
stundu, en hann hlýtur að eiga
eftir að endurskoða hug sinn til
St. Jósefsspítala, sagði Erna
Fríða Berg formaður bandalags
kvenna í Hafnarfirði við Þjóð-
viljann í gær.
Sighvatur Björgvinsson lýsti
því yfir í umræðum um málefni
Jósefsspítala utan dagskrár á Al-
þingi á þriðjudag, að undirskriftir
10.300 íbúa Hafnarfjarðar, Garða-
bæjar og Bessastaðahrepps myndu
ekki hafa áhrif á niðurskurðinn við
Jósefsspítala á íjárlögum.
Á þingpöllum var hópur fólks
sem skipulagt hafði undirskrifta-
söfnunina og hittist hópurinn yfir
kaffi eftir að umræðum lauk á Al-
þingi. Þar var ákveðið að halda
áfram baráttunni fyrir því að Jós-
efsspítali yrði áfram rekinn sem
deildaskipt sjúkrahús.
Ema sagði að þau myndu bíða
viðbragða ráðherra við tillögum
stjómar spítalans. Þá yrði fylgst
grannt með framvindu málsins á
þingi. -Sáf
gefa ekkert eftir í atvinnutryggingar-
sjóði væm gagnrýnisverðar. „I at-
vinnutryggingarsjóði er fjármagn
sem ríkið á, og hlutafjársjóðurinn
verður til vegna þess að kröfuhafar
ýmissa fyrirtækja hafa samþykkt að
breyta kröfum sínum í hlutafé. Það
má auðvitað um það deila hvort það
sé réttlætanlegra að selja hlutafé
sem er að verðgildi milli 90-100
miljónir á 12,3 miljónir, sem að
óbeint er eign þeirra aðila sem tóku
þá áhættu að breyta skuldum í hluta-
fé. Er það ekki heiðarlegra hjá opin-
berum aðilum, ef þeir em ákveðnir
að gefa eftir á einhveijum vígstöð-
um, að það sé þá gert af því ijár-
magni sem er eign ríkisins?“ sagði
Ólafur.
Hann sagði að vinnubrögð sem
átt heföu sér stað á þessum fúndi í
stjóm Byggðastofnunar væm orðin
mjög þreytandi. „Mér finnst að þeg-
ar að Ragnar Amalds leitar eftir því
að fá frestun á afgreiðslu málsins
meðan hann hafi samband við
heimamenn til að átta sig á þeirra
viðhorfi, hvemig þetta gangi upp
miðað við önnur áform. Mér finnst
það fyrir neðan allar hellur að menn
treysti sér ekki til að verða við því,“
sagði Ólafúr.
-sþ
Siðferði stjómvalda ekki
upp á marga fiska
Það er einkennilegt að neita að afskrifa 100 milljónir þannig að
hægt væri að fara Fáfnisleiðina á þeim forsendum að það væru
sértækar aðgerðir, en færa niður 97 milljón króna hlut í rúmar
12 milljónir og kalla það byggðasjónarmið. Síðan er laxeldið styrkt
um yfir 130 milljónir á sama fundi. Þetta sýnir að siðferði stjórn-
valda er ekki upp á marga fiska þegar upp er staðið, segir Lilja
Rafney Magnúsdóttir formaður verkalýðsfélagsins á Suðureyri og
oddviti hreppsins um ákvarðanir Byggðastofnunar varðandi Fiskiðj-
una Freyju.
Hluthafafundur verður væntan-
lega kallaður saman innan skamms
og segist Lilja búast við því að það
verði mjög skiptar skoðanir um
þetta mál.
„Hreppsnefndin vildi að tilboði
Fáfnis hefði verið tekið, en
Byggðastofnun hafnaði því að af-
skrifa þær 100 milljónir sem til
þess hefði þurft. Við gerum okkur
alveg grein fyrir að fyrirtækin eru
illa stödd, en eftir þær aðgerðir
sem við töluðum um heföi þetta
orðið rekstrarhæft fyrirtæki og við
hefðum haldið togaranum, en nú
missum við hann og mörg störf
með. Fólk er óttaslegið yfir því,“
segir hún. „Með þessum samningi
við Frosta og Norðurtangann er
2000
hlutafé í fyrirtækinu rýrt mikið og
mér skilst að þeir hafi sett það skil-
yrði að aðrir hluthafar færi einnig
sitt hlutafé niður ef þeir komi með
50 milljónir í hlutafé. Ef það yrði
gert í sama hlutfalli færi hlutafé
hreppsins úr 28 milljónum niður í
fjórar. Það yrði ekki mikil hrifning
yftr því núna stuttu eftir að menn
bæði skuldbreyttu og skrifuðu sig
fyrir hlutafé."
Lilja sagði verkafólk þó fegið
því, að hjól atvinnulífsins færu að
snúast aftur. Engin vinnsla hefúr
verið í gangi í rúman mánuð og
fólkið hefúr haft kauptryggingu
þar til síðasta mánudag, en þá fór
það á atvinnuleysisskrá.
-vd.
1500
Nýir áskrifendur Þjóðviljans eru nú komnir á 14. hundraðið.
Starfsmenn blaðsins munu gefa 1400.nýja áskrifandanum
Ijóðabókina Hinumegin viö sólskinið eftir Elías Mar, áritaða af höfu
-------------—
Nýir
áskrifendur
Tökum öll á
og tryggjum
áframhaldandi
r
Askrifendasíminn er 681333