Þjóðviljinn - 29.10.1991, Blaðsíða 11
SKKÁJfe
í orðastað
ónefnds ráðherra
Lif mitt er jjölmiðlaleikur
og langoftast brosi ég keikur.
En mér brá er ég sá
að ég birtist á skjá
svona blind-ösku-þreifandi
veikur.
Bannsett plág 'eru blaða-
menn
sem blás’upp hluti er skaða
menn.
Þeir birta á skjá
bar’efþeir sjá
blind-ösku-þreifandi glaða
menn.
Hinn Ieiði landsbyggðar-
vandi
leysist með einu grandi.
Lœrum af Sjá-
úseskú og þá
mun scelan rikj' út á landi.
Eitt sinn var fordrukkið frik
flippandi í Keflavík:
Briddsþjóðarsál!
Þína Bermúdarskál!
Eg er borgarstjórinn i
Reykjavík.
Engar
skyringar gefnar
Mikil reiði er meðal áhuga-
manna um italska fótboltann
eflir þá ósvinnu sem Stöð _ 2
sýndi þeim á sunnudag. An
þess að gefa skýringar á einu
eða neinu var einhverra hluta
vegna hætt við áður auglýsta
útsendingu frá ítalska fótboltan-
um. Það hefði átt að vera hægur
vandi íyrir þá aðila sem tóku
þessa ákvörðun að láta vita af
þessari dagskrárbreytingu, en
það var ekki gert. Svona fram-
koma í garð áskrifenda er auð-
vitað íyrir neðan allar hellur og
stöðinni ekki til framdráttar,
nema síður sé. í versta falli get-
ur stöðin átt von á því að missa
áskrifendur vegna þessa, því
vitað er að margur maðurinn
greiðir sína áskrift eingöngu
vegna beinna útsendinga frá
ítalska boltanum.
Sál Dyflinnar
THE COMMITMENTS
(sýnd í Háskólabíó)
Það hefur alltaf mátt
ganga út frá því sem
vísu, þegar breski
kvikmyndagerðar-
maðurinn Alan Parker á í
hlut, að umfjöllunarefhið í
kvikmyndum hans er af
óvenjulegra taginu, þó svo
að myndimar geti verið
nokkuð misjafnar. Það hefði
ekki öllum leikstjórum dott-
ið í hug að gera mynd um
unglinga í Dyflinni sem
stofna Soul-hljómsveit, en
þetta er einmitt galdurinn við
kvikmyndagerð Parkers, því
óvæntara sem umfjöllunar-
efnið er þeim mun betur
tekst honum upp, eins og
önnur tónlistarmynd eftir
Parker, The Wall, sýnir fram
á.
The Commitments hlýt-
ur að teljast til betri helm-
ings mynda Alan Parkers. Þó
svo að hún sé ekki gallalaus,
þá eru plúsamir fleiri en
minusamir, svo notað sé
tækifærisorðfæri samtímans.
Myndin er mjög
skemmtileg áhorfs, og það er
gaman að sjá mynd í ís-
lensku bíóhúsi sem gerist
ekki í gerilsneyddu amerísku
umhverfi, enda leikur Dublin
stórt hlutverk í myndinni, og
er hún öðmm þræði um
þessa litríku höfuðborg írska
lýðveldisins. Myndin tekur á
því hversu mikla þörf irsk
ungmenni hafa til þess að
bijótast undan oki fátæktar
og tilbreytingaleysis. Krakk-
amir sjá í hljómsveitinni
sem þau stofna tækifæri til
þess að komast burtu frá öllu
saman, en það reynist tálsýn,
og þegar upp er staðið hefur
þeim ekki tekist að breyta
neinu í sínu lífi eða annarra.
í því hvemig á þessu atriði
er tekið felst helsti styrkur
myndarinnar.
Leikarahópurinn er stór,
og fáir standa uppúr. Það
vantar nokkuð uppá að per-
sónusköpun sé nægilega
góð, og er eins og að leik-
stjórinn hafi ekki náð að
gera það upp við sig hveijir
ættu að vera aðalpersónur og
hverjir aukapersónur. Til-
raunir til þess að gefa ein-
hveija mynd af persónuein-
kennum hvers hljómsveitar-
meðlims fyrir sig em tilvilj- 1
anakenndar og ómarkvissar.
Einu tvær persónur myndar-
innar sem hægt er að kalla
vel heppnaðar, em umboðs-
maðurinn með stóm draum-
ana, Jimmy Rabbit, og gamli
trompettleikarinn Joey, sem
kennir krökkunum undir-
stöðuatriði Soul- tónlistar.
En leikaramir standa sig
annars yfirleitt vel, þó svo að
sumir fái ekki mjög bitastæð
hlutverk.
Mikið hefur verið rætt
og ritað um tónlistina i
myndinni, og vissulega er
hún hress og skemmtileg, en
hún er ekki frábær eða stór-
kostleg, eins og einhvers-
staðar hefur sést á prenti, og
er það einfaldlega vegna
þess að tónlistin er „kópía“,
hún er ekki framleg eða
framsækin. Soul-tónlistin
var frumleg og ffamsækin á
sjöunda áratugnum, en Soul-
tónlist sjöunda áratugarins er
það ekki á þeim tíunda.
Það er engin hætta á því
að fólki leiðist á The Comm-
itments, enda er hugmyndin
að baki myndinni mjög góð,
og þó svo að úrvinnslan sé
að nokkm leyti gloppótt er
myndin samt sem áður hin
ágætasta.
THE
COMMITMENTS
SfÓMVARF & ÚWAKP
Sjónvarp
18.00 Líf í nýju Ijósi Franskur
teiknimyndaflokkur meö
Fróða og félögum þar em
mannslíkaminn er tekinn til
skoðunar.
18.30 Iþróttaspegillinn (5) I
þættinum verður m.a. fylgst
með ungum borðtenni-
sköppum í Víkingi og blak-
stúlkum í HK, en einnig
verður litið inn á knatt-
spyrnuæfingu hjá 6. flokki
karla í KR. Umsjón Adolf
Ingi Erlingsson.
18.55 Táknmálsfréttir
19.00 A mörkunum .
19.30 Hver á að ráða?
Bandarískur gamanmynda-
flokkur.
20.00 Fréttir og veður
20.35 Benny Hill I New York
16.45 Nágannar
17.30 Kærleiksbirnirnir Teikni-
mynd.
17.55 Gilbert og Júlía Falleg
teiknimynd.
18.05 Táningarnir í Hæðar-
gerði Fjörug teiknimynd um
skemmtilegan krakkahóp.
18.30 Eðaltónar Tónlistarþátt-
ur.
19.19 19.19
20.10 Einn i hreiðrinu Banda-
rískurgamanþáttur.
20.40 Oskastund Skemmti-
legur þáttur í umsjón Eddu
Andrésdóttur þar sem dreg-
ið er ( Happó. Umsjón Edda
Andrésdóttir. Dagskrárgerð
Jón Haukur Edwald. L.ist-
rænn stjórnandi Kristján
Friðriksson.
21.40 Hættuspil Lokaþáttur
þessa breska framhalds-
Breski fjörkálfurinn Benny
Hill lætur gamminn geisa.
21.25 Sjónavarpsdagskráin I
þættinum verður kynnt það
helsta sem Sjónvarpið sýnir
á næstu dögum. Dagskrár-
gerð: Þumall.
21.35 Tónstofan Aö þessu
sinni er gestur í Tónstof-
unni Kolbeinn Bjarnason
flautuleikari. Umsjón Edda
Þórarinsdóttir. Dagskrár-
gerð Lárus Ýmir Oskars-
son.
22.00 Barnarán. Lokaþáttur
Breskur spennumynda-
flokkur. Aðalhlutverk: Mir-
anda Richardson og Fre-
deriac Forrest.
23.00 Ellefufréttir og dag-
skrárlok
þáttar um durginn hann De-
rek Love.
22.35 E.N.G. Kanadískur
famhaldsþáttur. Annar þátt-
ur.
23.25 Blekkingarvefir Lög-
reglumaöurinn Columbo er
mættur I spennandi saka-
málamynd. Að þessu sinni
reynir hann að hafa uppi á
morðingja sem gengur laus
í herbúðum. Æfingastjóri
hersins deyr á sviplegan
hátt þegar jarðsprengja
springur á æfingu. I fyrstu
álítur Columbo að um slys
sé að ræða, en hann kemst
brátt aö því að maökur er I
mysunni. Aöalhlutverk: Pet-
er Falk, Robert Foxworth
og Janet Padget. Leikstjóri
Sam Wannamaker. Bönnuð
börnum.
DAq 'j
FM 92.4/93.5
6.45 Veðurfregnir. Bæn, séra
Sighvatur Karlsson flytur.
7.00 Fréttir.
7.03 Morgunþáttur Rásar 1 -
Hanna G. Sigurðardóttir og
Trausti Þór Sverrison. 7.30
Fréttayfirlit. Gluggað í blöö-
in. 7.45 Daglegt mál, Mörður
Árnason flytur þáttinn.
8.00 Fréttir.
8.10 Að utan
8.15 Veðurfregnir.
8.40 Geisladlskar
9.00 Fréttir
9.03 Laufskálinn Afþreying I
tali og tónum. Umsjón Sig-
rún Björnsdóttir.
9.45 Segðu mér sögu „Litli lá-
varðurinn" eftir Frances
Hodgson Burnett. Friðrik
Friðriksson þýddi. Sigurþór
Heimisson les, lokalestur
(45).
10.00 Fréttir
10.03 Morgunleikfimi.
10.10 Veðurfregnir.
10.20 Neyttu meðan á nefinu
stendur Þáttur um heimili og
neytendamál. Umsjón Guð-
rún Gunnarsdóttir. (Frá Ak-
ureyri)
11.00 Fréttir
11.03 Tónlist 19. aldar. Meðal
annars verða leikin verk eftir
César Franck og einnig
nokkur planóverk eftir frönsk
tónskáld, sem þau sömdu til
minningar um Joseph
Haydn.
11.53 Dagbókin
12.01 Að utan (Endurt.)
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veöurfregnir.
12.48 Auölindin
12.55 Auglýsingar.
13.05 ( dagsins önn Umsjón:
Ásdís Emilsdóttir Petersen.
(Einnig útvarpað ( næturút-
varpi kl. 3.00)
13.30 Létt tónlist
14.00 Fréttir
14.03 Útvarpssagan: „Fleyg og
ferðbúnin" eftir Charlottu
Blay Bríet Héðinsdóttir les
þýöingu sína (18).
14.30 Miðdegistónlist „Polona-
ise Mélancolique" í c-moll
eftir Frans Liszt. Leslie Ho-
ward leikur á píanó.
„Gleymd rómansa" eftir
Franz Liszt. Heinrik
Brendstrup leikur á sello og
Catherine Edwards á p(anó.
Sönglög ópus 7 eftir Alex-
ander Zemilinsky. Ann Sofie
von Otter, Andreas Schmidt,
Barbara Bonney og Hans
Peter Blochwitz syngja,
Cord Garben leikur með á
píanó.
15.00 Fréttir.
15.03 Langt í burtu og þá
Mannlífsmyndir og hug-
sjónaátök fyrr á árum. Af
Ingimundi fiðlu. Umsjón
Friðrika Benónýsdóttir. Les-
arar meö umsjónarmanni:
Ellert A. Ingimundarson og
Anna S. Einarsdóttir. (Einnig
útvarpað sunnudag kl.
21.10).
16.00 Fréttir.
16.05 Völuskrín Kristln Helga-
dóttir les ævintýri og barna-
sögur.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Tónlist á síðdegi Forleik-
ur að „(tölsku stúlkunni ( Als-
ír” eftir Gioacchino Rossini.
Orfeus kammersveitin leikur.
„Vor í Appalatsíu" svíta eftir
Aaron Copland. Sinfónlu-
hljómsveitin í Detroit leikur.
Antal Dorati stjórnar.
17.00 Fréttir.
17.03 Vita skaltu lllugi Jökuls-
son sér um þáttinn.
17.30 Hér og nú Fréttaskýr-
ingaþáttur Fréttastofu.
(Samsending með Rás 2)
17.45 Lög frá ýmsum löndum
18.00 Fréttir.
18.03 ( rökkrinu Þáttur Guð-
bergs Bergssonar. (Einnig
útvarpað föstudag kl. 22.30)
18.30 Auglýsingar.
18.45 Veðurfregnir. Auglýsing-
19JJ0 Kvöldfréttir
19.32 Kviksjá
19.55 Daglegt mál Endurtekinn
þáttur frá morgni sem Mörð-
ur Árnason flytur.
20.00 Tónmenntir - Mozart,
sögur og sannleikur Fyrri
þáttur um goðsögnina og
manninn. Umsjón Tryggvi M.
Baldvinsson. (Endurt.)
21.00 Er leikur aðlæra (s-
lensku? Umsjón Ásgeir Egg-
ertsson.
21.30 Hljóðfærasafniö Fáheyrð
hljóðfæri. Nigel Eaton leikur
á sveiflýru („hurdey -gurdy")
22.00 Fréttir
22.15 Veöurfregnir.
22.20 Orð kvöldsins. Dagskrá
morgundagsins.
22.30 Leikrit vikunnar: „Snjó-
mokstur" eftir Geir Kristjáns-
son Leikstjóri Helgi Skúla-
son. Leikendur: Rúrik Har-
aldsson og Þorsteinn Ö.
Stephensen. (Endurt. frá
fimmtudegi.)
23.20 Djassþáttur Umsjón Jón
Múli Árnason.
24.00 Fréttir.
00.10 Tónmál (Endurt.)
01.00 Veðurfregnir.
01.10 Næturútvarp á báöum
rásum ti morguns.
Rás 2
FM 90.1
7.03 Morgunútvarpið - Vaknað
til lifsins Leifur Haukson og
Eirfkur Hjálmarsson hefja
daginn með hlustendum. -
Auður Haralds símar heim
frá Borginni eilifu.
8.00 Morgunfréttir - Morgunút-
varpið heldur áfram, meðal
annars með Þáttum af ein-
kennilegum mönnum Einar
Kárason flytur.
9.03 9-flögur Úrvals dægurtón-
list ( alan dag. Umsjón Þor-
geir Ástvaldsson, Magnús
R. Einarsson og Margrét
Blöndal.
12.00 Fréttir og veður.
12.20 Hádegisfréttir
12.45 9-fjögur Úrvals dægur-
tónlist, ( vinnu, heima og á
ferð. 13.20 „Eiginkonur (
Hollywood" eftir Jackie Coll-
ins. Per E. Vert les þýðingu
Gissurar Ó. Eriingssonar.
16.00 Fréttir.
16.03 Dagskrá: Dægurmálaút-
varp og fréttir Starfsmenn
dægurmálaútvarpsins og
fréttaritarar heima og erlend-
is rekja stór og smá mál
dagsins. - Pistill Gunnlaugs
Johnsens.
17.00 Fréttir. - Dagskrá heldur
áfram.
17.30 Hér og nú Fréttaskýr-
ingaþáttur Fréttastofu. Dag-
skrá heldur áfram, meðal
annars með vangaveltum
Steinunnar Sigurðardóttur.
18.00 Fréttir.
18.03 Þjóöarsálin - Þjóðfundur
I beinni útsendingu Sigurður
G. Tómasson og Stefán Jón
Hafstein sitja viö símann,
sem er 91- 686090.
19.00 Kvöldfréttir
19.32 Blús Umsjón Ámi Matt-
híasson.
20.30 Mislétt milli liða Andea
Jónsdóttir við spilarann.
21.00 Gulskífan: „Lodger“ frá
1979 með David Bowie.
22.07 Landið og miðin Sigurð-
ur Pétur Harðarson spjallar
við hlustendur til sjávar og
sveita.
00.10 ( háttinn Gyða Dröfn
Tryggvadóttir leikur Ijúfa
kvöldtónlist.
01.00 Næturútvarp á báöum
rásum til morguns.
Stöð 2
Síða 11
ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 29. október 1991