Þjóðviljinn - 16.11.1991, Qupperneq 12
X . w.
Þjópviijinn
Laugardagur 16. nóvember 1991
Formaður VSI:
Herfileg mistök
ríkisstjómarinnar
Orsök efnahagsvandans er fyrst og fremst sú að ríkisstjórn-
inni mistókst herfilega að minnka lánsfjárþörf ríkisins í ár
um 20 prósent, eða sex miljarða króna, einsog fyrirheit
voru um, að áliti Einars Odds Kristjánssonar formanns
Vinnuveitendasambands Islands. Þegar ríkisstjórnin tók við í vor
hækkaði hún vextina á ríkisvíxlum og spariskírteinum sínum mikið
til þess að ná í lánsfé innanlands. Þetta var gert samhliða fyrirheit-
um um að draga úr lánsfjárþörfinni á sama tíma. „Það er ríkissjóð-
ur, þessi stjórn, sú sem var á undan henni og sú á undan þeirri og
svo áfram sem er aðalsökudólgurinn,“ bætti Einar Oddur við.
Þar sem ekki verður af álvers-
framkvæmdum á næsta ári, og
vegna aflasamdráttar, auk þess sem
ríkisstjóminni hefúr ekki tekist á
slá á lánsfjárþörfina í ár, er öll
efnahagsstefnan í uppnámi. Þjóð-
hagsstofnun vinnur að gerð nýrrar
þjóðhagsáætlunar og þarf til þess
nokkum tíma. Fjármálaráðherra
situr einnig við og endursmíðar
fjárlagafrumvarp, en allt heildar-
dæmið þarf að skoðast upp á nýtt.
Einar Oddur gagnrýnir harkalega
tregðu banka og ríkis við að ná
niður vöxtum í landinu.
„Tregða bankastofnana til að
lækka vexti er svo skelfileg að það
verður ekki við það unað,“ sagði
Einar Oddur. „Ef þeir halda áfram
að tregðast svona við hlýtur að
koma til nýrra viðhorfa," bætti
hann við, þó hann vildi ekki viður-
kenna að hér ætti hann við hand-
aflsaðgerðir í vaxtamálum. Friðrik
Sophusson fjármálaráðherra hafnar
ekki neinni leið í þeim efnum að
ná niður vöxtum. Hann sagði ríkið
tilbúið til þess að ræða ný viðhorf í
þeim efnum við aðila vinnumark-
aðarins.
Landsbankinn fer sér hægt í
nafnvaxtalækkunum þrátt fyrir
lága verðbólgu. Bankinn hefur
boðað eins prósent lækkun 21.
nóvember á útlánsvöxtum en 11.
nóvember síðastliðinn lækkaði
Búnaðarbankinn sína vexti um tvö
prósent og er hann banka lægstur.
Einar Oddur sagði að fyrst og
fremst væri við ríkissjóð að sakast
og siðan allt heila kerfið. „Þetta
ógnar öllu viðskiptalífi þjóðarinn-
ar, bæði fólki og fyrirtækjum,"
sagði hann um hina háu raunvexti.
Friðrik sagði þjóðina komna
inn í vítahring. Vítahring þar sem
halli á rikissjóði og aðstoð ríkisins
við atvinnulífið skapaði gífurlega
lánsfjárþörf hjá ríkinu sem síðan
spennti upp vextina. Háir vextir
viðhalda síðan vanda atvinnulífsins
sem skapar þörf fyrir aðstoð hins
opinbera sem leiðir til aukinnar
lánsfjárþarfar og hærri vaxta, og
þannig heldur dæmið áfram. Hann
sagði að ekki yrði tekið á lánsljár-
þörfinni án þess að taka á stórum
útgjaldaliðum ríkissjóðs í heil-
brigðiskerfmu, í menntakerfinu og
hinu félagslega kerfi. Friðrik telur
ákvörðunina um að hækka vextina
í vor hafa verið rétta. Hann sagði
að rétt væri að draga hefði átt úr
lánsfjárþörfinni samhliða því, en
að það hafi ekki gengið eftir vegna
þess að fram hafi komið útgjalda-
liðir sem hafi breytt stöðunni.
Hann nefnir Lánasjóð íslenskra
námsmanna í þessu sambandi,
auknar útfiutningsbætur, tapaðar
kröfúr Atvinnutryggingasjóðs og
aukinn halla í heilbrigðiskerfinu og
í menntakerfinu. Þá benti hann á
að með vaxtahækkuninni í vor
hefðu ekki eingöngu orðið straum-
hvörf i lánamöguleikum ríkissjóðs,
heldur hefði heildarsparnaður
landsmanna aukist. Dregið hafi úr
innflutningi sem innflutningstölur
frá september og október bendi til.
„Viðfangsefnið í dag er að draga úr
þessu mikla hungri ríkisins í láns-
fé, það er að segja draga úr um-
svifum ríkisins, minnka lánsfjár-
þörfina og fá þannig vexti niður,“
sagði Friðrik. -gpm
Öll mjólkurframleiðsla
gæti stöðvast innan tíðar
Ef ekki finnst lausn á deilu ófaglærðs starfsfólks I mjólkursamlögunum á
Akureyri og Húsavík vegna námskeiösálags, er hætta á að mjólkurfram-
leiðsla stöðvist vfða um land síðar I mánuðinum
Kristín Hjálmarsdóttir, for-
maður lðju, sagði að allar
dyr virtust lokaðar vegna
ágreinings starfsfólks Mjólkur-
samlags KEA á Akureyri og
Mjólkursamlags KÞ á Húsavík
við Vinnumálasamband sam-
vinnufélaganna. Verkfall í
mjólkurbúunum tveimur skall á
í gær og stendur það yfir í þrjá
daga. Ef samningar hafa ekki
náðst fyrir 25. nóvember telur
Kristín að til víðtæks verkfalls
geti komið hjá starfsfólki í
mjólkuriðnaðinum.
Guðlaugur Þorvaldsson ríkis-
sáttasemjari boðaði deiluaðila til
fundar í Reykjavík. Astæðuna
fyrir því að boða fólkið suður
sagði Guðlaugur vera tímaskort
hjá sér vegna fjölda samninga-
funda.
Það verður enginn fundur
haldinn fyrr en þessu þriggja daga
verkfalli er lokið. Hann verður
fyrir norðan i það skiptið, sagði
Kristin.
Verkfall ófaglærðs starfsfólks
hjá Mjólkursamlagi KEA á Akur-
eyri og Mjólkursamlagi KÞ á
Húsavík, er til komið vegna náni-
skeiða er haldin hafa verið.
Starfsfólkið vill fá launahækkun
vegna þess eins og tíðkast víða í
matvælaiðnaðinum. Samningsað-
ilar mjólkursamlaganna hafa neit-
að rétti starfsfólksins til launa-
hækkana, en eru þó tilbúnir að
greiða 12 þúsund króna ein-
greiðslu fyrir námskeiðið. Kristín
sagði að Iðja myndi ekki hnika frá
sinni kröfu og ef samningamenn
mjólkursamlaganna gæfu ekki eft-
ir væri útlit fyrir langt verkfall frá
25. nóvember.
Verkalýðsfélög í öðrum lands-
hlutum hafa íhugað að styðja
verkalýðsfélögin fyrir norðan í
kröfum sínum. Verkalýðsfélagið
Þór á Sclfossi hefur t.d. aflað sér
verkfallsheimildar og Dagsbrún
veltir fyrir sér að stöðva vinnu í
Mjólkurstöðinni í Reykjavík, ná-
ist samningar ekki fyrir 25. nóv-
ember.
Hin umdeildu námskeið hafa
aðeins verið haldin í tveimur
verkalýðsfélögum og segir Kristín
það vera ástæðuna fyrir því að
verkfall sé ekki víðar þessa stund-
ina.
- Hugmyndir um verkföll í
öðrum mjólkurbúum eru til
komnar vcgna þess að námskeið-
in, sem haldin hafa verið hér, eiga
eftir að fara víðar, sagði Kristín.
-sþ
Félagar I Landvarðafélagi (slands með Helgu Einarsdóttur, formann sinn, I
fararbroddi, yfirgefa Hótel Sögu eftir að þeim hafði verið vísað út af orku-
þingi 91. Mynd: Kristinn.
Línulögn
mótmælt á
orkuþingi
Allir þeir sem ekki senda
inn mótmæli við fyrirhug-
uðu línustæði Fljótsdals-
línu yfir ósnortin landsvæði fyrir
5. desember næstkomandi teljast
því sammála. Til að vekja at-
hygli á þessu mættu félagar í
Landvarðafélagi Islands á orku-
þing í gær og afhentu þingfull-
trúum dreifirit og mótmæla-
eyðublað til að senda. Landverð-
ir vildu einnig benda á hve lítið
fer fyrir sjónarmiðum náttúru-
verndar á orkuþinginu. Mót-
mæli þeirra stóðu stutt því að
forsvarsmenn orkuþings vísuðu
þeim út af þinginu.
Háspennulínan á að liggja frá
Fljótsdal um Jökuldalsheiði,
Krepputungu, upp að Dyngjufjöll-
um og þaðan í Suðurárbotna og til
Akureyrar. Um er að ræða stærsta
óbyggða svæði Evrópu. „Línunni
er ætlað að liggja um stórt land-
svæði sem er að mestu ósnortið af
mannanna verkum. Þar ríkja enn
ómælisvíddin og kyrrðin. Þar
mynda fjöll og jöklar tilkomumik-
inn hring um veröldina" segir í
dreifiriti Iandvarða. Þar er einnig
bent á þann möguleika að leggja
línuna með núverandi byggðalínu.
„Okkur finnst að hér fari ekki
mikið fyrir sjónarmiðum náttúru-
vemdar og viljum benda á að þrátt
fyrir allt sé það ekki þess virði að
leggja allt undir í kapphlaupinu um
orkunýtingu,“ sagði Sigurborg
Rögnvaldsdóttir landvörður. 1 máli
landvarða kom fram að engum
áhugasamtökum um náttúruvemd
var boðin þátttaka í orkuþingi og
að Landvarðafélag Islands hafi
frétt af þinginu í fjölmiðlum. Svan-
hildur Skaftadóttir, framkvæmda-
stjóri Landvemdar, staðfesti að
Landvemd hefði ekki borist boð
um þátttöku á orkuþingi. Land-
verðir töldu einnig að gífúrlega
hátt þátttökugjald - 20 þúsund
krónur - útilokaði marga frá því að
sitja þingið.
Framkvæmdastjóri orkuþings,
Ómar Bjarki Srnárason, mótmælti
þeirri staðhæfmgu að sjónarmið
náttúmvemdar kæmu ekki fram og
minnti á erindi þeirra Amþórs
Garðarssonar, framkvæmdastjóra
Náttúmvemdarráðs, og Kristínar
Halldórsdóttir, formanns Ferða-
málaráðs. Landvörðum þótti það
lítið hlutfall af 80 fyrirlesumm.
Ómar Bjarki og Eiríkur Þor-
bjömsson úr undirbúningsnefnd
orkuþings vildu vísa landvörðum
út úr húsakynnum þingsins þar
sem þeir höfðu ekki gert boð á
undan sér. Landverðir sögðust hafa
haldið að þingið væri öllum opið.
Lyktir málsins urðu þær að einum
landverði var boðið að sitja þá
fjóra tíma sem eftir vom af þinginu
en öðmm var gert að yfirgefa Hót-
el Sögu. -ag
Ríkisstjómin sýknuð
Nefnd um félagafrelsi á veg-
um Alþjóðavinnumála-
stofnunarinnar, ILO, tekur
ekki undir kæm BHMR um að rík-
isstjómin hafi brotið alþjóðasam-
þykktir um félaga- og samninga-
frelsi með bráðabirgðalögunum frá
því í ágúst 1990.
BHMR sendi Alþjóðavinnu-
málastofnuninni kæm í nóvember í
fyrra, þar sem segir að bráða-
birgðalögin frá þvi í ágúst séu í
ósamræmi við alþjóðasamþykktir
um félagafrelsi og vemdun þess. í
kæmnni er beitt svipaðri rök-
semdafærslu og í máli sem BHMR
höfðaði fýrir bæjarþingi Reykja-
víkur. Nefndin um félagafrelsi tek-
ur ekki undir það með BHMR að
með bráðabirgðalögunum frá 1990
hafi ríkisstjómin brotið samþykktir
Alþjóðavinnumálastofnunarinnar
um félagafrelsi og samningafrelsi.
Þar sem ísland hefur fullgilt al-
þjóðasamþykktirnar um félaga-
frelsi og samningafrelsi, verður
kæmmálið sent sérfræðinganefnd
ILO um framkvæmd alþjóðasam-
þykkta til umfjöllunar. Gera má
ráð fyrir að sérfræðinganefndin
taki málið fyrir í febrúar nk.
Páll Halldórsson, formaður
BHMR, sagði í útvarpsfréttum í
gærkvöld að hann teldi víst að sér-
fræðinganefndin kæmist að því að
bráðabirgðalögin væm ógnun við
ftjálsan samningsrétt.
-áþs
4
'i
T