Þjóðviljinn - 11.12.1991, Síða 1

Þjóðviljinn - 11.12.1991, Síða 1
238. tölublað Miðvikudagur 11. desember 1991 56. árgangur Kuldi og tvöfeldni í garð foreldra og bama Formaður Foreldrasamtakanna, Kristinn H. Þorsteinsson, segir niðurskurð ríkisstjórnarinnar á ijárframlögum til skólakerfisins og á barnabótum koma mjög illa við foreldra og börn, enda sé þar um að ræða hóp sem sist megi við áföUum. „Með þessu er stigið stórt skref aftur á bak,“ segir hann. Formaður Samfoks, samtaka for- eldra og kennara, Unnur HaUdórsdóttir, segir þessar aðgerðir enn eitt dæmið um þann kulda í garð foreldra og barna sem blási um samfélag- ið. Stjórn Foreidrasamtakanna kom saman í gærkvöld og samþykkti þar harðorða ályktun þar sem aögerðum ríkisstjórnarinnar er harðlega mótmælt. Unnur Halldórsdóttir bendir á að bamafólk sé síst af öllum sá hópur sem megi við tekjuskerðingu enda langflest í þeirri stöðu að vera að borga af húsnæðis- og námslánum á sama tima og það berst fyrir tilveru sinni á vinnumarkaðinum með mikilli vinnu. Hún segir mikla tvöfeldni fel- ast í því að á sama tíma og stjómvöld boða foreldra til samráðs um hvemig styðja megi við fjölskylduna sé boð- aður niðurskurður á bamabómm. ,d>að er boðað til samráðs með ann- arri hendinni en skorið niður með hinni,“ segir Unnur. Hún kveðst búast við þvi að fólk muni mæta skerðingu á bamabótum með enn meiri vinnu, og það muni síðan aftur bitna á böm- imum. „Höggið kemur af fullum þunga á meðan bömin em lítil. Ég hef hins vegar ekki séð að það eigi að gera neitt til að kroppa í tekjur stór- eigna- og hátekjufólks," segir hún. Samkvæmt tillögum rikisstjóm- arinnar verður bamabótaauki hækk- aður um 30 prósent á kostnað bama- bótanna sem lækka þá um svipaða prósentutölu. Nú eni bamabætur greiddar út fjórum sinnum á ári og bamabótaaukinn einu sinni á ári, 1. ágúsL í tillögunum er gert ráð fyrir að fólk með eitt bam og með tekjur yfir 1,8 miljónir króna á ári fái engan bamabótaauka heldur aðeins skertu baraabætumar. Þau Kristinn og Unn- ur segja bæði að þessi mörk séu alltof lág og ættu a.m.k. að vera 2,5 miljón- ir. Hjón með tvö böm fá engan auka, hafí þau tekjur yfir 2,1 miljón á ári og ef bömin em þijú mega heild- arlaunin á ári ekki vera yfir 2,4 milj- ónum króna. Bamabætumar taka mið af aldri bama. Þar sem bamabætumar em skertar um 30 prósent þýðir það að þær lækka úr um 60 þúsund krónum með einu bami undir sjö ára aldri í um 41 þúsund krónur eða um 19 þúsund krónur á ári. Þetta þýðir að í stað þess að fá um 15 þúsund krónur fjómm sinnum á ári fá hjón með eitt bam rúmar 10 þúsund krónur í hvert sinn. Bamabætur em ekki tekjutengd- ar en það er bamabótaaukinn, þannig að við breytinguna verður hærra hlutfall tekjutengt en áður. Með þessu lækka bætumar um 500 milj- ónir króna í heild. Það em 10 prósent af þeim fimm miljörðum sem greidd- ir em út árlega. -vd./-gpm. Föndrað fyrir jólin. Hildur Ema, Sunneva Lind og Arnar Ingi í leikskólanum Álflaborg eru einbeitt á svip við að mála jólastígvél og jólasveina. Mynd: Jim Smart. Flati niðurskurðurinn bitnar á þeim tekjuminnstu Stjórnarandstaðan og formaður BSRB telja litlar sem engar líkur á þvi að ríkisstjórninni takist að draga úr launakostnaði um fimm prósent með flötum niðurskurði. Bent er á að þetta komi niður á þeim sem minnst mega sín og næstum örugglega án þess að bera árangur öðruvísi en að skerða þjónustu i ríkum mæli. Þá er bent á að svipaðar leiðir hafi veríð reyndar án árangurs, einsog kom fram hjá Ólafi Ragnarí Grímssyni, fyrr- um fjármálaráðherra, í Þjóðviljanum í gær. Ekki er von á nákvæmrí út- færslu á niðurskurðinum fyrr en kemur fram á næsta ár. ,J>etta er hin versta ráðstöfun sem hægt er að gripa til,“ sagði Ögmundur Til áskrifenda Nú fer að styttast f lokaskil- in í Happdrætti Þjóðviljans, en eins og kunnugt er voru vinn- ingsnúmer innsigluð þann fimmta þessa mánaðar. Enn em að berast greiðslur heimsendra gíróseðla og hafa undirtektir verið mjög góðar. Þjóðviljinn hvetur þá lesendur sfna og velunnara, sém enn eiga effir að greiða happdrættismið- ana, að láta ekki sitt eftir liggja. Góð þátttaka nú er blaðinu mikil- vægari en nokkru sinni fyrr. Hver miði kostar aðeins 300 krónur! Stefnt er að þvf að birta vinningsnúmerin fyrir jól, þannig að vinningshafar geti sótt vinn- inga sína fyrir hátíðar. -grh Jónasson, formaður BSRB. „Þetta bitnar verst á þeim sem hafa minnstu tekjumar. Stofiianir em misjafnlega f stakk búnar til að draga saman seglin. Víða er það ekki hægt nema með því að skerða þjónustuna," sagði hann en bætti við að hann og hans samtök væm hlynnt hagræðingu í rekstri rík- isstofnana. Hann telur þessar ráðstaf- anir hinsvegar vanhugsaðar og það af þeim sem væri hugsað væri illa hugs- að og gengi i ranga átt. ,J>eir leita ofan í vasa sjúklinga að hálfúm miljarði, annað eins á að sækja til bamafólks. Þeir ætla að hlaða verkefnum á sveitarfélögin en það er eitt sem stendur óhaggað: við vaxtamálum og tekjuskiptingu í þjóð- félaginu má ekki hrófla. Hvergi er minnst á hátekjuskatt, fjármagnsskatt, cn á sama tima tala menn um að allt samfélagið þurfi að taka höndum saman og axla byrðamar i samein- ingu,“ sagði Ögmundur. Hann sagði að stjómin væri ekki að breyta i sam- ræmi við þetta. „Við fiábiðjum okkur svona tal, þessar ráðstafanir allar verða meira og minna til þess að mis- muna fólki,“ sagði Ögmundur sem var á leið til fundar við stjómarand- stöðuna á Alþingi. Stjómarliðar hafa ekki rætt við BSRB einu orði um þessar efnahagsráðstafanir, bætti hann við. Guðmundur Bjamason, fyrrum heilbrigðisráðherra, sagðist hafa um þetta efasemdir þar sem flatur niður- skurður hefði verið reyndur áður. „Ég hef reynslu af þessu frá 1989 og var þá prósentan minni en núna er talað um.“ Hann sagði einnig að þrátt fyrir ftrekuð fyrirmæli yfirvalda um hið gagnstæða hefðu heilbrigðisstofnanir dregið úr þjónustu sinni í það sinn. Ströng fundahöld um leiðir til hag- ræðingar dugðu ekki til. „Ég er sann- færður um að svo stór niðurskurður sem nú er lagður til getur ekki náðst öðmvisi en með því að draga úr kennslumagni, þjónustu við fatlaða og annaðhvort verður dregið úr starfsemi á sjúkrahúsum og heilsugæslustöðv- um eða þá að deildum verður lokað,“ sagði Guðmundur til að nefna nokk- uð. Jóna Valgerður Kristjánsdóttir, Kvennalista, tók undir með Guð- mundi og taldi að þessi niðurskurður myndi bitna á þeim sem síst skyldi. Hún sagðist hafa áhyggjur af því að til dæmis 59 stöður fyrir fatlaða, sem lofað hefði verið, hyrfu i þennan nið- urskurð. Hún sagði þó að það ætti eft- ir að koma f ljós hvemig þessi flati niðurskurður yrði útfærður. Hún spurði til dæmis hvort málin stæðu ekki þannig að stór hluti yfirvinnu vasri samningsbundinn. En hugmynd- ir ríkisstjómarinnar ganga út á fækkun rikisstarfsmanna, að ekki verði ráðið í ný störf og að dregið verði úr yfir- vinnu. Sighvatur Björgvinsson, heil- brigðis- og tryggingaráðherra, sagðist sannfasrður um að þessum niðurskurði væri hægt að ná ffam. Hann taldi til dæmis vel hægt að draga úr yfirvinnu, sérstaklega þar sem stór hluti hennar væri óunnin yfirvinna. Sighvatur sagði að það yrði erfitt að framkvæma þetta f sínu ráðuneyti en að sett yrði á stofh samstarfsnefnd sins ráðuneytis og fjármálaráðuneytisins þar sem far- ið yrði yfir hvert mál i samráði við forstöðumenn stofhana. Hann átti von á þvi að þessi nefnd yrði stofnuð upp úr áramótum. Þannig að ekki má eiga von á nákvæmum niðurskurðartillög- um fyrr en vel er liðið á næsta ár. Davíð Á. Gunnarsson, forstjóri Ríkisspítalanna, sagði i gær að hann gæti ekkert sagt um þessar niður- skurðarhugmyndir þar eð hann hefði ekkert séð frá ríkisstjóminni um mál- ið. -gpm Sovétríkin: Annáll

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.