Þjóðviljinn - 11.12.1991, Qupperneq 4
Skipulagsbreytingar
ríkisstofnana
undir smásjá verka-
lýðsfélaganna
í óþðkk stjórnar Áfengis- og
tóbaksverslunar ríkisins mættu
fuUtrúar Starfsmannaféiags ríkis-
stofnana og Bandalags starfs-
manna ríkis og bæja i starfs-
mannafund ÁTYR sem haldinn
var i fimmtudag. Sigríður Kríst-
insdóttir, formaður SFR, sagði að
með tilliti til ikvarðana ríkisstjórn-
arinnar um að segja upp 600
hundruð opinberum starfsmönn-
um, myndi félagið fylgjast grannt
með starfsmannafundum þar sem
skipulagsbreytingar væru i dag-
skrá.
Sigríður sagði að i fundarboðun-
inni hefði staðið að ræða ætti um
skipulagsbreytingar og tillögur svo-
kallaðrar niðursetningamefndar sem
hefði flallað um möguleika á einka-
væðingu ÁTYR.
- Það var því eðlilegt að við svör-
uðum kalli okkar félaga um að mæta
á fundinn. Hald manna var að þama
ætti að ræða um fækkun starfsfólks,
ekki síst í ljósi ákvarðana ríkisstjóm-
arinnar um að fækka opinberum
starfsmönnum um 600 manns, sagði
Sigríður.
Höskuldur Jónsson, forstjóri
ÁTVR, sagði að þama hefði verið um
hefðbundinn innanhússfund að ræða.
— Það kom beiðni frá SFR um að hafa
fúlltrúa á þessum fúndi. Eg get ekki
séð að fúlltrúar stéttarfélaga eigi er-
indi á innanhússfúndi stofhunar þar
sem fjallað er um fagleg mál
hennar, sagði Höskuldur.
Aðspurður um hvort hann teldi
óeðlilegt að fúlltrúar starfsfólksins
væm viðstaddir þegar rætt væri um
skipulagsbreytingar og tillögur um
einkavæðingu ÁTVR, sagði Höskuld-
ur að í þessu tilfelli hefði svo verið.
- Við rasddum um breytt skipulag
í fyrirtækinu sem hefúr engar upp-
sagnir í for með sér. Hvað varðar til-
lögur niðursetningamefndar má geta
þess að þama er eingöngu um tillögur
að ræða. Ef menn ætla að einkavæða
ÁTVR verður að breyta lögum og
það fer þá fyrir þingið, sagðí Hösk-
uldur. Ögmundur Jónasson, formaður
BSRB, sagði að fúndurinn í gær-
moigun hefði verið til fyrirmyndar.
- Það er eðlilegt að fúlltrúar stétt-
arfélaga mæti á starfsmannafúndi ef
starfsmenn óska eftir nærvero þeirra.
Hugmyndir ríkisstjómarinnar um
uppsagnir fólks í opinberum störfum
gera það að verkum að við munum
fylgjast mjög vel með. I dag vitum
við ekki hvar borið verður niður, en
ljóst er að einhversstaðar munu þeir
byrja, sagði Ögmundur.
Bömin
Tvöhundruð og fimmtíu
börn úr fimm barnakórum
voru búin að koma sér fyr-
ir á sviðinu í Háskólabíói
bakvið Sinfóníuhljómsveit íslands í
gærmorgun. Eftirvæntingin lá í
loftinu enda aðeins tveir dagar til
Jólatónleika Sinfóníunnar. Hljóð-
færaleikarar stilltu hljóðfærí sín og
barnakórarnir fimm skvöldruðu.
En svo lyfti Petri Sakarí hljóm-
sveitarstjórí sprota sínum og allt
datt í dúnalogn.
Sakari sagði frá næsta lagi sem
var mjög gamall gregoríanskur söng-
ur. Síðan flæddi tónlistin yfir salinn.
Þar sátu stjómendiu- kóranna, kóra
Austurbæjarskóla og Öldutúnsskóla
og skólakóra Árbæjar, Garðabæjar og
Kársness. Tónlistin hreif alla með;
Þóronn Bjömsdóttir, stjómandi
Skólakórs Kársness, stóð á fætur og
söng með.
Sakari var byrjaður að stýra öll-
um út í næsta erindi þegar kórstjór-
amir stoppuðu hann, erindin voro víst
bara þijú. Meðan Sakari átti orða-
skipti við kórstjórana kallaði Þóronn
og Sinfónían
Stund milli stríða á æfingu. Um 250 börn syngja með Sinfóníunni á fimmtudag-
inn. Mynd: Kristinn.
„Hallelúja". Þórunn Bjömsdóttir stýrir slnu liði á æfingu fyrir Jólatónleika Sinfón-
fuhljómsveitar Islands. Mynd: Kristinn.
upp á sviðið: „Þið eroð æðisleg
krakkar, frábær!"
í hléinu, þegar krakkaskarinn
hafði dreifst um allan salinn, voro
menn að gantast með það við Sakari
hljómsveitarstjóra að eftir þessa
reynslu myndi hann annaðhvort
ákveða að eignast aldrei böm eða þá
tiu. „No comment," svaraði hann
hlæjandi. Sakari sagði mjög gott að
vinna með bömunum því að böm
væro alltaf heil í því sem þau gerðu.
Hann sagði kórana einnig mjög vel
undirbúna.
Birgir Tryggvason og Guðmund-
ur Valdimarsson hafa báðir sungið í
nokkur ár með kóronum í Kársnes-
skóla. Þótt þeir séu aðeins tólf ára
hafa þeir tekið þátt í fveimur ópero-
uppfærslum. Sakari hljómsveitarstjóri
talar enga íslensku og strákamir
sögðust eiga erfitt með að skilja hvað
hann segði á æfingum, „en hann er
svo góður í að gera sig skiljanlegan
með allskyns bendingum og pati“
sagði Birgir. Þegar þeir voro spurðir
af hveiju svona fáir strákar væru í
þessum kórom töldu þeir að strákar
hefðu bara minni áhuga. Kórfélagi
þeirra, Marin Manda Magnúsdóttir,
skaut inn í að það væri ekki eina
skýringúi: „Sumir þeirra geta bara
ekkert sungið, þeir fara í mútur og
svoleiðis“.
Þóronn Bjömsdóttir sagði að
þetta væri í fyrsta skipti sem þorri
þessara kóra fengi það einstæða tæki-
færi að syngja með sinfóníuhljóm-
sveit. Slíkt er á við vítamínsprautu
fyrir krakkana, að sögn Þóronnar:
„Þau taka þetta mjög alvarlega og
hafa æft daglega undanfarið“. Fyrir
kórana er þetta laun margra ára vinnu
og erfiðis. Sumir þeirra hafa starfað í
15 ár án þess að fá svona tækifæri.
„Við vonum að það verði árlegur við-
burður að bamakórar komi ffam með
Snfóníunni. Þetta er stórkostlega
gaman og það er alveg óhætt að
hvetja alla til að koma,“ sagði Þór-
unn.
Jólatónleikamir verða á fimmtu-
dagskvöld og hefjast klukkan 19.
Kynnú; verður Sigurður Rúnar Jóns-
son. Á efnisskránni ero eftirtalin
verk: Troika úr „Lieutenant Kije“ eft-
ir Prokofíeff; ‘s kommt em Vogel
geflogen eftú Ochs og syngja kórar
Austurbæjar- og Öldutúnsskóla og
skólakór Árbæjar með; úr Söngva-
seiði eftir Britten og þar syngja skóla-
kórar Garðabæjar og Kársness með;
Tónlistarsleðaferð eftir Mozart með
þátttöku nemenda úr Tónmennta-
skóla Reykjavíkur. Eftú hlé verður
fluttur Snjókomavalsinn úr Hnotu-
bijótnum eftir Tsjajkovskíj og þá taka
allir kóramir þátt. Einnig verður lesið
úr jólaguðspjallinu og sungin jólalög.
Góða skemmtun. -ag
Jólasöfnun fyrir bágstadda
G ATT í andstöðu
við vilja þjóðarinnar
Frjálsari verslun með landbún-
aðarvörur og þar af leiðandi inn-
flutningur þeirra hingað til lands er
eitt af því sem stefnt er að í GATT
viðræðunum. Samkvæmt niður-
stöðum þjóðmálakönnunar sem Fé-
lagsvísindastofnun vann fyrir
Markaðsnefnd landbúnaðarins eru
sjö af hverjum 10 íslendingum
andvígir slikum innflutningi.
í Ijósi þessarar niðurstöðu hlýtur
sú spuming að vakna hvort stefnan í
GATT-viðræðunum sé í andstöðu við
vilja meirihluta þjóðarinnar. Sigurgeú
Þorgeirsson, aðstoðarmaður landbún-
aðarráðherra, sagði að svo virtist vera
hvað landbúnaðinn varðaði þar eð
þjóðin vildi ekki innflutning landbún-
aðarvara. Sigurgeú benti hins vegar á
að landbúnaðarmálin væru bara hluti
af GATT- viðræðunum.
Helga Guðrún Jónasdóttir hjá
Upplýsingaþjónustu landbúnaðarins
sagði að margt annað en landbúnaðar-
mál héngi á spýtunni í GATT-viðræð-
unum, til dæmis bæði trygginga- og
bankamál. Hins vegar væri landbún-
aðurinn notaður sem keyri í viðræð-
tmum og þvi mest áberandi. Hún
sagði að nú í desember réðist hvort
samkomulag næðist í þessum viðræð-
um eða hvort GATT væri úr sögunni.
Þetta er spuming um það hvort
heimsviðskipti aukast eða dragast
saman um miljarða dollara, að sögn
Helgu.
-ag
Yfir jólahátíðina reyna flestir
að gera sér dagamun. En
víða er þröngt í búi og ekki
ráða allir við að kaupa hátíðamat,
færa börnum sínum gjafir eða ný
fót. Til að hjálpa þessum samborg-
urum okkar verður efnt til söfnun-
arátaks á morgun, fimmtudag. Ef
til vill er besta jólagjöfin að geta
hjálpað öðrum til að halda gleðileg
jól.
Mæðrastyrksnefnd, Rauði kross
íslands, Hjálpræðisherinn og Rás 2
standa saman að söfnuninni. Ólafúr
Oddsson hjá Rauða krossinum segist
finna að þörfin fyrir svona aðstoð
fari vaxandi. Um er að ræða bæði
fjölskyldur með böm og einstak-
linga. Það er sérstaklega sárt fýrir
bömin þegar þau skynja þann van-
mátt sem felst í litlum Qárráðum yfir
svona hátíðar. Ólafur segir að
ómagaviðhorfið sé svo ríkjandi hér
að mörgum finnist erfitt og kannski
niðurlægjandi að þurfa að leita sér
aðstoðar en eitt af markmiðum þessa
söfnunarátaks sé einmitt að hvetja
alla þá sem þurfa aðstoð, til að gefa
sig fram. Hjálpsemi og örlæti er
sjálfsagður samborgarabragur.
Öll félögin sem standa að úthlut-
un aðstoðarinnar fara eftir svipuðum
reglum. Ólafur segir að ýmist sé um
að ræða peninga, gjafakort, matvæli
eða fatnað - allt eftir aðstæðum
hvers og eins. Flestir sem fá slíka
aðstoð gefa sig ffam en að sögn Ól-
afs fá þau líka ábendingar frá öðrom.
I fyrra voro óskir um aðstoð mun
fleiri en búist hafði verið við og í ár
ætla félögin að vera undir það búin
að jafhvel enn fleiri leiti hjálpar. Á
morgun ætlar Rás 2 að leggja fram
húsnæði og vinnu dagskrárgerðar-
manna en sjálfboðaliðar Rauða
krossins munu sjá um skipulagingu
og framkvæmd ásamt fulltrúum
Mæðrastyrksnefndar og Hjálpræðis-
hersins. Tekið verður við framlögum
í síma Rásar 2; 687123 á morgun.
Hlustendur um land allt ero beðnir
að leggja sitt af mörkum. Útvarps-
söfhunin stendur bara í einn dag en
einnig er hægt að styrkja samtökin
sem að henni standa með beinum
framlögum. I öllum bönkum og
sparisjóðum er hægt að leggja inn á
gíróreikning Hjálparsjóðs Rauða
kross íslands, nr. 90000-1 í Póstgíró-
stofunni, eða tékkareikning nr. 12 í
SPRON.
í tilkynningu frá söfhunaraðilum
segir: „Takmarkið er að enginn fari í
jólaköttinn, allir fái notið einhvers
góðgætis til hátíðabrigða um jólin og
allir fái tækifæri til að láta í ljós ör-
læti í garð samborgaranna á jóla-
fostu.“ -ag
ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 11. desember 1991
Síða 4