Þjóðviljinn - 17.01.1992, Page 3

Þjóðviljinn - 17.01.1992, Page 3
S k ó I a m á Foreldrarnir baka og föndra Samband foreldrafélaga í grunnskólum Reykjavíkur (Samfok) hef- ur gert ítarlega könnun á foreldrastarfi. Spumingalistar voru sendir til stjómar í hveiju félagi og svör bárust ffá 65% grunnskóla. Þar kemur ffarn að andstætt því sem löggjafinn ætlast til, og foreldr- amir vilja, hafa foreldrar lítil sem engin áhrif á stjóm skóla. En hver eru helstu verkeíni mál sem lúta að innri málefnum foreldrafélaga í Reykjavík? (sjá skólans eins og til dæmis þátttöku í súlurit um helstu verkefiii gerð stundaskrár, val á námsgögn- foreldrafélaga) um og setu á kennarafundum. Þó 1. Úrbœtur í umferðarmálum. 2. Úrbætur á skólalóð. 3. Þrýstingur á yfirvöld. 4. Jólaföndur og laufabrauðsgerð 5. Samkomuhald. 6. Ferðalög. 7. Frœðslufundir 8. Fjáröflun fyrir skólann 9.Seta á almennum kennarafund- um. 10. Þátttaka i gerð skólanámsskrár. 11. Þátttaka i gerð stundaskrár. 12.Samráð um val á námsgögnum. 13. Aðstoð foreldra í kennslu. 14. Aðstoð við félagsstörf. Samkvæmt því sem hér kemur fram virðist minnst áhersla lögð á hefiir ákvæði um setu á almennum „ kennarafundum verið i grunnskóla- lögum frá 1974. Foreldrafélög nýta þennan rétt sjaldan en þó er oft tek- ið ffam í starfsreglum þeirra að þau vilji koma ffam með óskir um breytingar á starfi skólans. í könnun Samfoks var spurt um helstu hindranir í starfi foreldrafé- laga og þar ber langhæst skort á virkni og tregðu til stjómarþátttöku. Þetta er auðvitað hægt að túlka þannig að íslenskir foreldrar nenni hreinlega ekki að sinna bömunum sínum en líklegra verður að teljast að vinnutíminn geri þeim ómögu: legt að starfa í foreldrafélagi. í svömm stjómarmanna foreldrafé- laga var lítið sem ekkert kvartað Bannað að hlæja Uppselt er á laugardagssýningu Leikbrúðulands á brúðuleikritinu: „Bannað að hlæja“. Hins vegar em til fáeinir miðar á sýninguna sem verður á sunnudaginn, 19. jan. kl. 15.00. Sýnt er í kjallara hússins að Fríkirkjuvegi 11. Þessi sýning Leikbrúðulands fékk góða dóma. Hún þótti sam- eina skemmtun og uppeldisgildi á einstaklega fallegan hátt. -kj NÝTT HELGARBLAÐ 3 FÖSTUDAGUR 17. janúar 1992 Á leið i skólann. Miðað við könnun Samfoks œttu foreldrar að geta knúið fram stórbætt umferðaröryggi Jyrir bömin sin '. Mynd: Jim Smart. undan peningaleysi, aðstöðuleysi, verkefnaskorti og neikvæðri af- stöðu skólastjómenda. Þá var í könnun Samfoks einnig spurt um sex mismunandi verk- efnaflokka sem foreldrafélög ættu að sinna og fólk beðið að raða þeim eftir mikilvægi. Þar kom ffam að jólafondrið, sem flest foreldrafélög sinna, er ekki það sem þau vilja. Efst á óskalistanum um sameig- inleg verkefni foreldrafélaga era einsetinn skóli, samfelldur lengdur skóladagur, betri skólalóðir og úr- bætur í umferðarmálum. Mikilvægustu viðfangsefni ein- stakra félaga að mati þeirra sem spurðir vom em: Hagsmunamál foreldra og bama í skólahverfinu, það er að segja umferðaröryggi, umbætur í félagsaðstöðu og fræðslufundir fyrir foreldra. Listinn yfir helstu verkefni sem foreldrafé- lög ættu að sinna lítur þá svona út: 1. Standa að fræðslufundum og námskeiðum fyrir foreldra. 2. Hafa umsjón með jólajondri, laufabrauðsgerð og þess háttar samkomum. 3. Hafa umsjón með ferðalögum og annarri félagsstarfsemi þar sem böm og unglingar koma saman. 4. Koma með tillögur að úrbótum á skipulagningu skólastarfsins, til dæmis um stundaskrá, fjölda í bekk, námsgögn, kennslutæki, aðbúnað og húsbyggingar. 5. Hagsmunamál bama ogforeldra i skólahverfinu, t.d. umferðarör- yggi ogfélagsaðstöðu. 6. Taka í auknum mæli þátt í innra starfi skólans, þ.e. sitja kennara- fundi, taka þátt í stefnumótun og skólanámsskrárgerð, vettvangs- ferðum og fylgjast með kennslu. (sjá súlurit um helstu verkefhi sem foreldrafélög ættu að sinna) Samfok hefur ákveðið að koma til móts við óskir félaganna með ýmsum hætti. Stofnað hefur verið fulltrúaráð Samfoks og hafinn sam- eiginlegur skrifstofurekstur að Bol- holti 4 með Foreldrasamtökunum og Foreldrafélagi misþroska bama. Þangað geta áhugasamir for- eldrar snúið sér alla virka daga kl. 10.00-13.00. -kj KOTASÆLA fitulítil og freistandi Þessi fitulitla og kalkríka afurð býr yfir óþrjótandi fjölbreytni: Hún er afbragð ein sér, frábær ofan á brauðið með t.d. kryddjurtum, gæðir súpuna rjómabragði og gefur sósunni á grænmetissalatið fyllingu og ferskleika. KOTASÆLA - fitulítil og freistandi

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.