Þjóðviljinn - 17.01.1992, Síða 7
efiiahagslegrar uppbyggingar núna.
- En hefúr kreppan í áliðnaðin-
um í heiminum ekki komið niður á
ykkur eins og fleirum?
- Við erum með 5 mjög stórar
álverksmiðjur i Venesúela og
áform um að byggja fleiri. Við
höfum getað staðist verðhrunið
betur en aðrir vegna þess að fram-
leiðslukostnaðurinn er hvergi lægri
en hjá okkur.
Spillingin
- Þær fréttir sem okkur berast
hingað til íslands frá S-Ameríku
snúast oft um stórfellda spillingu í
efnahagslífi og stjómmálum. Er
fjármálaspillingin ekki vandamál í
Venezúela?
- Jú, spillingin er fyrir hendi
hjá okkur eins og annars staðar.
Var það ekki Napóleón sem sagði
að enginn herforingi myndi stand-
ast ígildi fallbyssunnar í gulli? En í
umtalinu um spillinguna er sjaldn-
ast talað um þá sem spillingunni
valda, sem í flestum tilfellum eru
hin stóru fjölþjóðlegu fyrirtæki
sem búa yfir mesta efnahagslega
valdinu. En það hefúr líka verið
barist gegn spillingunni í Venesú-
ela„ og sú barátta hefur skilað viss-
um árangri. En spillingarvaldamir
hafa líka þrengt sér inn í stjóm-
málaflokkana, og það má segja að
þótt almenningur trúi á lýðræðið,
þá sé traust hans á stjómmála-
flokkunum minna.
Utanríkisstefnan
- Hvaða áherslur hafa stjóm-
völd í Venesúela í utanríkismál-
um?
— Við höfum virka utanríkis-
stefnu sem miðar að því að þau
grundvallaratriði sem bundin em í
stjómarskrá okkar um fulltrúalýð-
ræði og mannréttindi séu virt á al-
þjóðavettvangi. Við vinnum að því
að ná alþjóðlegri samstöðu um fé-
lagslegt réttlæti og réttlátari skipt-
Rodolfo Molina-Duarte
sendiherra: Fjölþjóðafyrir-
tœkin eru stærstu spilling-
arvaldamir í Rómönsku
Ameriku.
Mynd: olg.
ingu hagnaðar af fjárfestingum.
Tímar heimsvaldastefnunnar em
liðnir undir lok. Við viljum að
komið verði á nýrri heimsskipan
með réttlátari skiptingu auðsins, og
við beitum áhrifúm okkar til þessa
innan Sameinuðu þjóðanna og i
GATT-viðræðunum. Við áttum á
sínum tíma frumkvæði að norður-
suður viðræðunum, við áttum
frumkvæði að stofnun OPEC, sam-
tökum olíuffamleiðenda, og við
áttum á sínum tíma víðtæka sam-
vinnu við Island á sviði hafréttar-
mála, en Hafréttarráðstefnan var
haldin í Caracas árið 1975. Og það
mun koma í ljós á stóm umhverfis-
ráðstefnunni sem halda á í Rio á
þessu ári, að stjómvöld í Venezú-
ela hafa svipaðan skilning á um-
hverfisvandanum í heiminum og
Norðurlöndin. Það er því hægt að
segja að Venezúela hafi haft mjög
virka utanríkisstefnu og beitt sér
með sjálfstæðum hætti á alþjóða-
vettvangi í samræmi við stærð
þjóðarinnar.
Menningin
- En hvað með menninguna?
Hver er þróun menningarmála í
Venezúela?
- Við höfúm búið við þau for-
réttindi meðal ríkja Rómönsku
Ameríku að veita hæst hlutfall
þjóðartekna til menningarmála, að
Mexíkó einu undanskildu. Þetta
hefúr skilað árangri sem við sjáum
meðal annars hér á þessari sýn-
ingu. Það er komin upp ný og öfl-
ug kynslóð lista- og menntamanna,
sem við væntum mikils af. Þessi
kynslóð er mótuð af þeirri fjöl-
breytni sem einkennir Venezúela í
blöndun kynþátta, án þess þó að
vanrækja þann menningararf og
það umhverfi _sem við eigum öll
sameiginlegt. Ég get fullyrt að það
hefúr orðið mikil gróska, ekki bara
í myndlist, heldur líka í tónlist og
bókmenntum í Venezúela á síðustu
árum.
Og þannig kvöddum við þenn-
an bjartsýna sendiherra með bros á
vör. Hann var á forum til Osló, þar
sem hann hefur aðsetur. Hann seg-
ist ætla að beita frumkvæði sínu til
þess að efia menningartengsl á
milli íslands og Venezúela í fram-
tíðinni.
-ólg.
LANDVERND
LAND5RÆÐSLU - OG
NATTURUVERNDARSAMTÖK ÍSLANDS
Styrkir til umhverfismála
Á næstunni verður úthlutað styrkjum úr Pokasjóði
Landverndar.
1. Um styrk geta sótt: Félög, samtök, stofnanir og ein-
staklingar.
2. Úthlutun er bundin verkefnum á sviði umhverfis-
mála, svo sem landgræðslu, skógrækt, friðun, vemd-
un, fegrun og snyrtingu lands og til fræðslu og rann-
sókna. Skilyrði er að verkefnin séu í þágu almenn-
ings.
3. Verkefni, sem sótt er um styrk til, þurfa að vera vel
afmörkuð og skilgreind. Umsóknum ber að skila á þar
til gerðum eyðublöðum, sem fást á skrifstofu Land-
verndar, Skólavörðustíg 25, 101 Reykjavík, sími
25242 og 625242.
4. Farið er fram á að styrkþegar leggi af mörkum mót-
framlag, sem getur falist í Ijárframlögum, vélum, tækj-
um, efni eða vinnu.
5. Styrkþegar skuldbinda sig til að skila skýrslu um
framkvæmd og árangur verkefnisins fyrir lok úthlutun-
arárs.
6. Styrkumsóknir þurfa að berast skrifstofu Land-
verndarfyrir kl. 17:00 þann 29. febrúar 1992.
Þeir sem eiga eldri umsóknir í Pokasjóðinn þurfa að
endumýja þær í samræmi við þessa auglýsingu.
Landvernd
Skólavörðustíg 25
101 Reykjavík Sími: 25242 Myndsendir: 625242
■$•
Lærdómsrit Bókmenntafélagsins - ný bók
i-irwrt,- —- 1
KAT0K PLATON
Ríkið FfiibWi Ríkið Siðara bindi
i
RIKIÐ efdr PLATON
Eitt helsta heimspekirit sögunnar.
✓
Islensk þýðing eftir Eyjólf Kjalar Emilsson
sem einnig ritar inngang og skýringar.
Kristján Ámason þýddi bundið mál.
í þessu elsta stjómspekiriti vestrænnar
menningar setur Platon (427-347 f. Kr.) fram
hugmyndir um fyrirmyndarríkið, hvemig því skuli
stjómað og fyrir komið. Hann leitar eftir
heilladrýgsta fýrirkomulagi fyrir heildina fremur en
að samfélagi þar sem hver og einn fær að
njóta sín að vild. Þar með skipar Platon sér í sveit
þeirra sem era andsnúnir lýðræði.
Ríkið er viðamesta ritið í flokki Lærdómsrita
Bókmenntafélagsins, tæpar 800 bls. í tveimur
bindum með öskju.
HIÐ ÍSLENZKA BÓKMENNTAFÉLAG
SlÐUMÚU 21 • PÓSTHÓLF 8935 • 128 REYKJAVlK • SlMI 9W79060
M
1816 1991
NÝTT HELGARBLAÐ
7 FÖSTUDAGUR 17. JANÚAR 1992