Þjóðviljinn - 17.01.1992, Page 16
Helgarblað
ÞJÓÐVIIJINN
130 menn berjast
um tvö klósett
Verkamenn og iðnaðarmenn
við ráðhúsið í Tjörninni eru ekki
öfundsverðir af starfsaðstöðunni.
Fyrir 130 starfsmenn er boðið
upp á tvö salerni og tvær hand-
laugar, gólf í matsal er óryk-
bundið og aðstaða til geymslu yf-
irhafna er engin.
Kapp er best með forsjá, segir
málsháttur sem mörgum er tamur.
Ekki er hægt að segja að þau orð
eigi við um ráðhúsið í Tjöminni
þessa dagana, því í flýtinum við að
ljúka verkinu fyrir tilskilinn tíma i
apríl á þessu ári hefur gleymst að
huga að starfsaðstöðunni þegar
undirverktakar koma með mikinn
mannskap til að ljúka sínum verk-
um.
Verkamaður við ráðhúsið sagði
að aðstaðan væri ekki mönnum
bjóðandi. Mannskapurinn þyrfti að
slást um að komast á klósettið en á
efri hæðum væru salemi tilbúin til
notkunar, aðeins þyrfti að skrúfa
frá vatninu. „Ætli þessir háu herrar
í borgarkerfinu hafi ekki bannað að
verkalýður væri að nota þeirra
postulín,“ sagði viðmælandinn.
Annar starfsmaður sagði það kost
að setjast á klósettsetuna volga,
umgangurinn væri það mikill að
þær næðu ekki að kólna.
Nýtt Helgarblað hafði samband
við Vinnueflirlitið og sagði Jens
Andrésson starfsmaður þess að sér
kæmi þessi ábending á óvart. Sam-
starfið við Istak (yfirverktaka ráð-
hússins) hefði ávallt verið til fyrir-
myndar og þetta hlyti að stafa af
hraðanum í verklok.
„Þetta verður að sjálfsögðu tek-
ið til athugunar og við munum
senda menn á staðinn,“ sagði Jens.
Jónas Frímannsson, aðstoðar-
framkvæmdastjóri Istaks, sagðist
ekki hafa heyrt að starfsaðstaðan
væri ófullnægjandi. Istak hefði
ávallt séð hag sinn í því að hafa
hana góða.
„Þetta verður athugað og lagað
ef þurfa þykir,“ sagði Jónas. -sþ
I maísalnum var veríð að vinna. Meðan starfsmenn fá sér kaffisopann er ver-
ið að brjóta upp úr gólftnu með tilhevrandi hávaða og tyki.
Lyktin á salerninu var vond, enda plássið lítið og notkunin mikil. Myndir: Kristinn.
Hámarksgreiðslur
fyrir læknisþjónustu og heilsugæslu árið 1992 eru 12.000 kr.
Fyrir elli- og örorkulífeyrisþega er upphæðin 3000 kr.
Öll börn yngri en 16 ára í sömu fjölskyldu eru talin saman og er hámarksgreiðsla
fyrir læknis- og heilsugæsluþjónustu þeirra samtals 12.000 kr. á ári.
Munið að fá alltaf kvittun fyrir greiðslum
Á kvittuninni skal vera nafn útgefanda, tegund þjónustu, dagsetning og upphæð,
ásamt nafni og kennitölu sjúklings.
Fríkort
Þegar hámarksupphæð á ári er náð, skal framvísa kvittunum hjá Tryggingastofnun
ríkisins eða umboðum hennar utan Reykjavíkur. Þá fæst fríkort, sem undanþiggur
handhafa frekari greiðslum vegna læknisþjónustu til áramóta.
Þó þarf að greiða fyrir læknisvitjanir, en gjaldið lækkar við framvísun fríkorts.
Gjald fyrir læknisvitjun er þá 400 kr. á dagvinnutíma og 900 kr. utan dagvinnutíma.
Gegn framvísun fríkorts greiða elli- og örorkulífeyrisþegar 150 kr. á dagvinnutíma
og 300 kr. utan dagvinnutíma.
Börn undir 16 ára aldri í sömu fjölskyldu fá sameiginlegt fríkort, með nöfnum
þeirra allra.
í Reykjavík fást fríkortin í afgreiðslu Tryggingastofnunar ríkisins, Tryggvagötu 28.
Annars staðar eru þau afhent á skrifstofum sýslumanna og bæjarfógeta.
TRYGGINGASTOFNUN^^RÍKISINS
Geymið auglýsinguna
Ríkissamningurinn
er í nánd og er það mikið ánægjuefni að geta nú boðið menntaskólanemum að kaupa
Macintosh-tölvubúnað með verulegum afslætti. Auk þeirra eiga aðgang að samningnum:
Ríkisfyrirtæki, sveitarfélög landsins og starfsmenn þeirra, kennarar, nemendur á
háskólastigi, nemendur VÍ og nemendur innan BÍSN.
Lokadagur pantana er O SSffiSSS
30. janúar
Borgartúni 7, Rvk. Sími: (91) 26844
Apple-umboðið
Skipholti 21, Rvk. Sími: (91) 624800