Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1995, Page 10
10
FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1995
Spurningin
Átt þú gæludýr?
Guðný Steingrlmsdóttir, vinnur í
banka: Já, kött sem sonur minn eig
inlega þröngvaði inn á mig en ég
myndi sakna hans.
Hólmfríður Pétursdóttir, vinnur í
ÁTVR: Nei.
Pétur Þór Benediktsson nemi: Já,
hund sem heitir Muggur.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, nemi:
Nei, en ég átti hund sem hét Lady.
Anna Lena Halldórsdóttir nemi:
Nei, og hef aldrei átt. Ég fæ mér
kannski hund.
Ingveldur Kristinsdóttir, vinnur
á barnaheimili: Nei, ég á ekki
gæludýr en það er páfagaukur á
heimilinu og það er gaman að hon-
um.
Lesendur
Bruggframleiðslan
í algleymingi
kemur ekki við ÁTVR
Er betra að einkaframtakið sjái um bruggun og sölu áfengis með þeim hætti
sem nú tíðkast?
Kristinn Jónsson skrifar:
Sífellt færist í vöxt að lögreglan
uppgötvi framleiðslu á bruggi víðs
vegar um land. Nú síðast í Mosfells-
bæ þar sem bruggverksmiðju var
lokað um sl. helgi. - „Það leynir sér
aldrei þegar framleiðsla þessara
manna kemur á markaðinn," var
haft eftir aðalvarðstjóra lögreglunn-
ar í Reykjavík í tengslum við þessa
lokun. Og auðvitað stöðvast fram-
leiðsla þessara bruggara með aðgerð
lögreglunnar. En af nógu er að táka
því að bruggarar eru um allt land og
markaðurinn er hvergi mettaður,
allra síst um helgar og fyrir hátíðar
og ferðahelgar sumarsins.
Og þá kem ég að þætti hins opin-
bera, ríkisvaldsins, sem rekur einu
löglegu áfengisverslunina í landinu.
ÁTVR hefur ekki enn lagt í það
„stórvirki", sem allir væru löngu
búnir að framkvæma í frjálri sam-
keppni, að lengja afgreiðslutíma út-
sölustaða áfengis; hafa opið á laug-
ardögum, jafnvel sunnudögum líka.
Og loka ekki útsölustöðunum í fjöl-
mennum verslunarkjörnum eins og
t.d. í Kringlunni og á Eiðistorgi hér
í Reykjavík.
Það verður að flokkast undir
meiri háttar skringilegheit þeirra
ráðamanna, t.d. í fjármálaráöuneyt-
inu, sem þó hafa yfirumsjón með
ÁTVR, að hafa ekki fyrir löngu gef-
ið úr nýja reglugerö um afgreiðslu-
tíma ÁTVR-verslananna. Því ekki
þarf annað til en reglugerðarbreyt-
ingu. Það hafa áður verið gerðar
reglugerðarbreytingar á fram-
kvæmd áfengislaganna svipaðs eðl-
is. Það var t.d. í tíð Steingríms Her-
mannssonar sem afnam miðviku-
dagslokun áfengissölu á veitinga-
húsum, og svo aftur þegar Sighvat-
ur Björgvinsson afnam bann á kaup-
um áfengs öls fyrir komufarþega í
fríhöfn Keflavíkurflugvallar.
Og í dag hamast bruggarar við að
framleiða sinn görótta drykk og
selja opinberlega hvar sem þeir
þora, og græða mest á því að „ríkið“
skuli ekki vera virkari söluaðili á
áfengi en það er. Hatursmenn víns
og vímuefna telja líklega að betra sé
að einkaframtakið sjái um bruggun
og sölu á áfengi með þeim hætti sem
nú tíðkast - sem sé ólöglega - en að
ríkið sé að vasast í þessu! - En því
þá ekki að gefa áfengissöluna, inn-
flutning og dreifingu frjálsa í þess
orðs fyllstu merkingu?
Kjaradómur úrskurði um launin
Guðni Jónsson skrifar:
Mörgum launþegum þessa lands
finnst nú nógu langt gengiö í skrípa-
leiknum um kaup og kjör. Eftir síð-
ustu ákvörðun Kjaradóms um
launahækkun til handa alþingis-
mönnum, svo og sjálftöku þeirra um
skattfrelsi sér til handa, verður ekki
unað lengur við það að forysta laun-
þegasamtakanna semji enn einu
sinni um kaup og kjör á almennum
vinnumarkaði. Skynsamlegast væri
að Kjaradómur úrskurðaði laun á
vinnumarkaðinum í framtíðinni.
Það getur aldrei orðið verra að una
við en núverandi ástand, sem verka-
lýðsleiðtogar hafa manna mest
stuðlað að.
Þannig er þessu varið í EES-lönd-
unum og einnig í ESB. Maður heyr-
ir ekki um sifelldan barning al-
mennra launamanna í Þýskalandi,
Hollandi, Sviss eða í Lúxemborg og
stríð um launakjör sín. Vissulega er
þar efnt til verkfalla (þó sjaldan eða
aldrei í Lúxemborg eða í Sviss)
vegna ágreinings í einstaka tilfelli,
en það er afar sjaldan.
I þessum löndum er gjörla fylgst
með verðlagsþróun og vísitöluhreyf-
ingum og launin síðan jöfnuð með
tilliti til þeirrar þróunar. Einhverjir
segja nú sem svo að hér á landi sé
þetta ekki hægt, þar sem við búum
við „sveiflukennt ástand" eins og sí-
fellt er klifað á. Ég er þess fullviss,
að sjávarafli hér og afkoma útgerða
og fískvinnslustöðva er ekki jafn
mikilvæg í þjóðarbúinu og áður var.
Það eru komnar nýjar atvinnugrein-
ar, alls óskyldar, og það er ekki
nema lítill hluti þjóðarinnar sem er
háður sjávarútvegi.
Ég er ekkert viss um að það sé
rétta leiðin að hvetja þingmenn, eft-
ir allt saman, til að draga til baka
sínar hækkanir, heldur eigi að
knýja á um að Kjaradómur haldi sig
við sinn steðja, að dæma öðrum
starfsstéttum í landinu laun eftir
þeim forsendum sem notaðar voru í
Opið bréf til forseta ASÍ, Benedikts Davíðssonar:
Verkalýösforysta á villigötum
Einar Gíslason (071144-2839)
skrifar:
Ég get ekki orða bundist vegna
þeirrar baráttu sem þú og aðrir
verkalýðsleiðtogar standa í þessa
dagana gegn úrskurði Kjaradóms
um launahækkun til handa þing-
mönnum og ráðherrum þessa lands.
Sjálfur hefði ég kosið að verka-
lýðshreyfingin lýsti yfir ánægju
sinni með þennan úrskurð og við-
brögð ráðamanna við honum, en
þau sýna, svo ekki verður um villst,
að nú er af einhverjum ástæðum
meira svigrúm til kjarabóta en ver-
ið hefur síðustu misseri.
í ljósi þessa tel ég fulla ástæðu til
að blása í herlúður og krefjast sam-
bærilegra launahækkana láglauna-
fólki til handa. Hlýtur það enda að
vera hlutverk stéttarfélaga að berj-
ast fyrir kjarabótum, en ekki gegn
þeim. Sama hver í hlut á.
Ég hvet því verkalýðsforystuna til
að einbeita sér áfram að því hlut-
verki að berjast fyrir bættum kjör-
um þeirra sem lægst hafa laun í stað
Frá útifundi verkalýðsfélaganna á Ingólfstorgi í síöustu viku.
þess að sóa tíma og kröftum í að fulla ástæðu til að endurskoða til-
vinna gegn bættum kjörum hjá öðr- gang og markmið verkalýðshreyf-
um, sem telja sig heldur ekki of ingarinnar.
sæla af sínu! - Að öðrum kosti tel ég
DV
„Almannaróm-
ur“ Stöðvar 2
Sigurður Einarsson hringdi:
Ég fagna nýjum þætti Stöðvar
2, Almannarómi, þætti um samfé-
lagið og málefni líöandi stundar.
- Sjálfsagt væri að taka fyrst fyrir
mál málanna; kauphækkun al-
þingismanna og nýjustu skatta-
lög þeirra sér til handa, en ekki
eitthvert mál sem er orðið úr sér
gengið. Vonandi verður þessi
þáttur opinn öÚum áhorfendmn,
líkt og Bingólottó Ingva Hrafhs.
Trygg-
inga„kúpp“
Gæslunnar
Guðlaugur skrifar:
Nýjasta „kúppið“ í trygginga-
málum hér er nú það sem Land-
helgisgæslan gerði við Sjóvá-Al-
mennar vegna nýju þyrlunnar.
Þrátt fyrir úrskurð fjármálaráðu-
neytis um rof trygginga milli vá-
tryggingamiðlara, samningsrof á
grundvelli hraðútboðs og upplýs-
ingaskort í útboðslýsingum,
hliðrar sama ráðuneyti sér hjá að
rifta samningum, en mælir með
samningum milli Ríkiskaupa og
hins erlenda tryggingaraðila.
Rikissjóður mun tapa fé með
þessum hætti. Ráðuneytið vill
sem sé að trygginga„kúppið“
standi.
Hneykslan
sjálfstæðis-
manna
Hildur skrifar:
Borgarfulltrúar sjálfstæðis-
manna eru fullir vandlætingar
yfm hækkun fargjalda SVR og
álögðu holræsagjaldi. Ekki mæli
ég hækkununum bót, en ágætir
borgarfulltrúar ættu að líta til
Garðabæjar, en þar í bæ, undir
áratugastjórn sjálfstæðismanna,
er hvorki ungum né öldnum hllft
í fargjöldunum. Þeir höfðu fima
fmgur við að leggja „klósettskatt-
inn“ (hans Áma Sigfússonar) á
íbúana. - Ágætu hneyksluðu
borgarfulltrúar, horfíð á samherj-
ana og leggið af hneysklunarsvip
í fjölmiðlum. Hann klæðir ekki, í
ljósi staðreynda, og er í besta falli
sprenghlægilegur.
Ríkið bruðlar
ótæpilega
Guömundur Haraldsson skrifar:
Alþingismenn og ráðherrar
tala um hagvöxt eins og ekkert sé
að. Flestir þeirra segja allt á upp-
leið og kjörin fari batnandi. En
fjármunirnir skila sér ekki til
fólksins. Á meðan þeir tala um
spamað eyðir rikið peningum í
launahækkanir alþingismanna
og kaupir bíla handa ráðherrum
fyrir 10 milljónir króna. Þetta er
ekki sparnaður. Þetta er eyðsla,
ótæpilegt bruðl. Það þarf skatta
um 200 verkamanna í ASÍ til að
borga launahækkun þingmanna,
sem þeir ákváðu að greiða sjálf-
um sér. Nú er tími til að menn
hugsi sinn gang.
Gott þú fylgist
með, Davíð
Lárus Sigurðsson hringdi:
Alvarleg staða hefur nú skap-
ast á milli þings og þjóðar í
launamálum og með setningu
einkalaga um skattamál. f svo
litlu þjóðfélagi sem okkar má vel
líkja því við að uppreisn hefði
verð gerð á Puerto Rico og
Bandaríkjaforseti færi í frí í miðj-
um klíðum. Það hefur tíðum ver-
iö háttur sumra íslenskra ráöa-
manna og forstjóra stærri fyrir-
tækja að smella sér i utanlands-
reisu ef eitthvað á bjátar sem til
þeirra friðar heyrir. - Því er ég
feginn að heyra að forsætisráð-
herra okkar, er brá sér utan, er
mjög meðvitaöur um þetta alvar-
lega mál okkar. Gott að þú fylgist
með úr fjarlægð, Davíð.