Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1995, Page 24
Ljónin jarma á Islandi.
nn
Sækjum
ísland heim
„Sækjum ísland heim, land
ljónanna sem jarma inn til dala,
út viö sæ, í borg og bæ. Ljón sem
jarma á öllum sviðum eru hvergi
nema á íslandi.“
Guðbergur Bergsson í DV.
Forsetaembættið og vínið
„Mér finnst það ósmekklegt að
draga umræður um vin inn í
málefni forseta íslands."
Sveinn Björnsson forsetaritari í DV.
Fölsku smáfuglarnir
„Vonandi gætir ritstjóri Al-
þýðublaðsins þess næst þegar
smáfugla blaðsins langar til að
kvaka nafn mitt á flögri sínu
milli greina, að tónninn í þeim
verði ekki falskur um of.“
Pjetur Hafstein Lárusson
í Alþýðublaðinu.
Ummæli
Rétt þarf ekki að vera rétt
„Það sem kann að vera rétt í
þessu máli er hugsanlega alls
ekki rétt og getur þess vegna
verið rangt, ef menn semja um
ranga niðurstöðu með réttan
málstað."
Dagfari í DV.
Að tala og þegja
„Tvennt gefur til kynna veik-
leika, að þegja þegar rétt er að
tala og að tala þegar rétt er að
þegja.“
Hilmar Þorbjörnsson i DV.
Kalle Randalu leikur einleik með
Sinfóníuhljómsveit íslands.
Fyrstu áskriftar-
tónleikarnir
Fyrstu áskriftartónleikar Sin-
fóníuhljómsveitar íslands verða i
kvöld og eru þeir í rauðri áskrift-
arröð. Það er aðalhljómsveitar-
stjórinn Osmo Vanská sem
stjórnar hljómsveitinni í Rímu
eftir Þorkel Sigurbjörnsson, Pí-
anókonsert nr. 24 eftir Mozart og
Rómeu og Júlíu, þætti úr svitum
eftir Prokofiev. Það er nýbreytni
hjá Sinfóníunni að beina sérstak-
lega kastljósi að einu íslensku
tónskáldi á hverju starfsári. Tón-
skáld ársins verður Þorkell Sig-
urbjörnsson. I vetur verða leikin
þrjú af verkum hans, þar á með-
Tónleikar
al verður frumfluttur á Islandi
nýr konsert fyrir horn og hljóm-
sveit. Rímu samdi hann þjóðhá-
tíðarsumarið 1974.
Einleikarinn Kalle Randalu er
fæddur í Tallin í Eistlandi og hóf
ungur tónlistarnám. Hann hefur
unnið til fjölda verðlauna, meðal
annars í Tsjaikovskíkeppninni í
Moskvu 1982. Randalu býr nú í
Þýskalandi og er prófessor við
tónlistarháskóla. Hann hefur
komið víða fram í heiminum,
bæði sem einleikari og kamm-
ermúsíkleikari.
36
FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1995
Skúrir og rigning
I dag verður suðvestan hvassviðri
suðvestanlands en víða stinnings-
kaldi í öðrum landshlutum. Skúrir
suðvestanlands, rigning á Vestfjörð-
um en léttskýjað austan til. Lægir
talsvert síðdegis og fer að snúast til
Veðrið í dag
norðvestanáttar vestanlands. í nótt
verður norðan stinningskaldi eða
allhvasst með éljum norðanlands en
vestan strekkingur með suður-
ströndinni og slydduél suðvestan til.
Hiti 5 til 10 stig í dag. Á höfuðborg-
arsvæðinu dregur úr veðurhæðinni
þegar líður á daginn og áttin verður
vestlægari. Norðvestankaldi eða
stinningskaldi og lítils háttar slydd-
uél í nótt. Hiti 2 til 7 stig.
Sólarlag í Reykjavík: 19.34
Sólarupprás á morgun: 7.09
Síðdegisflóð í Reykjavík: 16.33
Árdegisflóð á morgun: 4.56
Heimild: Almanak Háskólans
Veðrið kl. 6 í morgun:
Akureyri léttskýjaó 10
Akurnes skýjaö 8
Bergsstaóir léttskýjaö 7
Bolungarvík rigning 6
Egilsstaðir léttskýjaó 7
Keflavíkurflugvöllur skúr 7
Kirkjubœjarklaustur léttskýjaö 6
Raufarhöfn léttskýjaó 5
Reykjavik skúr 7
Stórhöföi skúr 7
Bergen súld 10
Helsinki hálfskýjaö 5
Kaupmannahöfn léttskýjaö 11
Ósló þokuruön. 5
Stokkhólmur þoka 5
Þórshöfn rigning 12
Amsterdam léttskýjaö 10
Barcelona þokumóöa 15
Berlin skýjaö 12
Chicago alskýjaö 10
Feneyjar heiöskírt 13
Frankfurt skýjaó 13
Glasgow súld 12
Hamborg þokuruön. 6
London léttskýjaó 8
Los Angeles þokumóöa 17
Lúxemborg skýjaó 7
Madríd léttskýjaó 9
Malaga léttskýjað 15
Mallorca léttskýjaö 17
New York alskýjaö 19
Nice hálfskýjaó 14
Nuuk snjókoma 1
Orlando heióskírt 24
París alskýjaö 12
Valencia léttskýjaó 14
Vín rigning 13
Winnipeg skúr 3
6=.#v> ..
//,< 1
// ')
10°
r 1/
2°
vT. V,
if
/ yo
V
f
y
l/-Æ
;_r
Veðrið kl. 6 í morgun
Daníel Guðjónsson, yfirlögregluþjónn á Akureyri:
Tónlistin er góð hvíld
frá lögreglustarfinu
Gylíi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Mér hefur verið mjög vel tekið
hér og hef ekki yfir néinu að
kvarta í þeim efnum. Ég get ekki
sagt að neitt sérstakt hafi -komið
mér á óvart hér í nýju starfi nema
þó helst það að hér er tæknivæðing
ekki eins mikil og á Húsavík þar
sem ég starfaði áður. Þar er tölvu-
væðing lengra á veg komin en
Maður dagsins
þetta stendur sem betur fer til bóta
hér,“ segir Daníel Guðjónsson,
nýráðinn yfirlögregluþjónn á Ak-
ureyri.
Daníel er fæddur og uppalinn í
Kjörvogi í Ámeshreppi á Strönd-
um. Eftir menntaskólanám í MR
og þriggja ára nám í viðskiptafræð-
um viö Háskóla íslands lá leið
hans til Húsavíkur þar sem hann
ílentist, fyrst vió smíðar, þá stutta
Daníel Guðjónsson.
viðkomu í sjómennsku, sem hann
þoldi illa vegna sjóveiki, og loks lá
leiðin í lögregluna árið 1979. Daní-
el hefur sótt ótal námskeið sem
tengjast starfi lögreglumannsins,
m.a. hjá Rannsóknarlögreglu ríkis-
ins, enda þekkist sérhæfing lög-
reglumanna ekki á stöðum eins og
Húsavík.
„í frístundum reyni ég að sinna
útiveru, bæði gönguferðum með
hundinn og skíðagöngu á vetuma.
Þá hef ég mikinn áhuga á tónlist
og hef stundað nám í orgel- og pl-
anóleik. Ég er aðallega að þessu
mér til ánægju en tónlistin er góð
hvíld frá lögreglustarfinu."
Daníelk er kvæntur Önnu Har-
aldsdóttur húsmóður og eiga þau
eina uppkomna dóttur, Mörsu
Hrönn, sem er nemandi.
Tekur upp þráöinn Myndgátan hér að ofan lýsir nafnorði
Pastelmynd-
ir á Axa
í Ögri
Kristín Andrésdóttir sýnir um
þessar mundir 24 pastelmyndir á
veitingastaðnum Ára í Ögri, Ing-
ólfsstræti 3. Kristín er fædd 1960.
Sýningar
Hún stundaði nám við MHÍ frá 7
ára aldri, fram að landsprófi.
Tók hún stúdentspróf af lista-
sviði FB 1978 og myndmennta-
kennarapróf frá MHÍ 1987. Þetta
er sjötta einkasýning hennar.
Sýningin er opin frá kl. 11 á
daginn og þar tU veitingastaðn-
um er lokað. Þetta er sölusýning
og stendur út septembermánuð.
Skák
Sterkt, opið mót fór fram í
Österskár, nærri Stokkhólmi, í ágúst-
mánuði, skömmu fyrir Friðriksmótið.
Helgi. Ólafsson var þar meðal þátttak-
enda og hlaut 5,5 v. af 9 mögulegum -
tapaði ekki skák. Sigurvegari á stigum
var ungverski stórmeistarinn Ivan
Farago, sem fékk 6,5 v. ásamt 9 öðrum
skákmeisturum.
Þessi staða er frá mótinu.
Sammalvuo, FIDE-meistari frá Finn-
landi, hafði svart og átti leik gegn
sænska stórmeistaranum Thomas
Ernst. Svartur hefur fórnaö manni og
fann nú þvingaða vinningsleið:
30. - Bh3 31. Re3 Dd3! 32. Rg2 Dbl+
33. Rel a3! og hvftur gafst upp.
Bridge
Þetta spil úr úrslitakeppninni í bik-
arkeppni BSf um síðustu helgi vakti
mikla athygli. Það kom fyrir í tveimur
leikjum í undanúrslitum. Annars veg-
ar í leik VÍB og Samvinnuferða - og
hins vegar í leik Hjólbarðahallarinnar
og +Film þar sem það réö úrslitum um
niðurstööu leiksins. Guðlaugur R. Jó-
hannsson og Örn Arnþórsson náðu 6
spöðum á hendur NS, en samningur-
inn var 4 spaðar á hinu borðinu í leik
Samvinnuferða og VÍB. Sagnir gengu
hins vegar þannig í opnum sal í hinum
leiknum, AV á hættu og vestur gjafari:
4 K7
44 K10852
-+ KD64
* D5
4 G109
44 DG6
♦ 109732
* 96
4 ÁD86532
4» Á43
♦ ÁG
4 K
Vestur Norður Austur Suður
Einar Valur Jónas Guðmundur
3* pass pass 44
p/h
Guðmundur valdi að stökkva í 4
spaöa og Valur átti erfitt með að finna
framhald með ásalausa hendi og tvö
spil í laufi. Sagnir gengu á annan hátt
í lokuðum sal:
Vestur Norður Austur Suður
Jakob Hjalti Sigurður Eiríkur
3* 3» pass 4G
pass 5 ♦ pass 6+4
p/h
Hjalti ákvað að koma létt inn á á
þremur hjörtum og Eiríkur fór beint í
ásaspumingu og sagði síðan hjarta-
slemmuna sem óhjákvæmilega fór
einn niður. Spilið skapaði 22 impa
sveiflu í leiknum (síðasta spilið í
leiknum) en sveit Hjólbaröahallarinn-
ar tapaði leiknum meö 19 impa mun.
Spurningin er hvort 3 spaðar hefðu
ekki verið betri sögn hjá Eiríki (eðli-
legt aö það sé kröfusögn) og þá hefði
hugsanlega veriö hægt að stýra spilinu
i 6 spaða. Ef þrjú lauf eru pössuð yfir
til suðurs, er dobl sennilega besta
sögnin til að segja síðar fjóra spaða og
eiga þannig möguleika á að ná réttri